Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1999 B 5 Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson ? Alexei Trúfan og Galkauskas Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftureldingar Megum ekki ofmetnast „ÞAÐ sem ég er ánægðastur með er varnarleikurinn í síðari hálf- leik og síðustu tíu mínúturnar í fyrri hálfleik," sagði Skúli Gunn- steinsson, þjálfari UMFA. „Auðvitað bjuggum við okkur undir all- ar hugsanlegar varnaraðferðir FH-inga og höfðum fulla trú á því að við gætum leyst þá þraut að mæta framliggjandi vörn. Eins ef þeir tækju Bjarka og jafnvei fleiri úr umferð eins og raun varð á. Hins vegar lá meginþungi undirbúnings okkar í að við lékum góða vörn. Það hefur sýnt sig hingað til að þegar við náum vel saman í vörninni þá ver Bergsveinn nær BBBHnEBBI undantekningarlaust Ivar vel í markinu. Um leið Benediktsson fáum við snögg upp- skníar hlaUp sem gefa mörk. Svona úrslitaeinvígi vinnast fyrst og fremst á varnarleiknum. Lykillinn að sigri á FH er að leika sterka vörn og koma í veg fyrir að þeir fái hraðaupphlaup, það gerum við með- al annars með því að ljúka okkar sóknum á skynsamlegan hátt. FH- ingar þrífast á hröðum leik.“ Skúli varar hins vegar við því að leikmenn sínir ofmetnist af þessum fyi-sta leik því viðureignin næst í Hafnarfirði skiptir FH meginmáli og búast má við því að þeir mæti sem grenjandi ljón til leiks. „Eg lít svo á að annar leikurinn sé báðum liðum mikilvægur. Það verður i að Varmá pressa á FH-ingum því þeir verða að vinna, það er annaðhvort nú eða ekki hjá þeim. Fyrir vikið reikna ég með jöfnum leik frá upphafi til enda og verði svo á síðustu mínútu muni álagið á þeim verða til þess að hjálpa okkur. Fyrst og fremst snýst þetta einvígi nú um hugarástand, að menn mínir verði ekki of værukær- ir. Það er mikið hungur í mínum mönnum og löngun í að sigra í ein- víginu.“ Skúli telur að bæði lið eigi inni frá leiknum á sunnudaginn. „Þótt sumir minna manna hafi verið að leika vel þá eru einnig leikmenn sem geta gert betur. Ég hef þá trú að FH-lið- ið geti gert betur og handknattleik- urinn batni eftir því sem á keppnina líður. Við höfum vaxið með hverjum leik og svo verður vonandi áfram.“ svo skemmtilega á óvart með i leið sinni í úrslitarimmuna við , þar sem þeir mættu sér sterk- ónarsamir leikmenn Aftureld- H-inga - „Varnarmúrinn", sem nna á. Afturelding vann örugg- Fátt benda til að FH-ingar nái að að Varmá, svo öflugur og kraft- ia. Jón Andri Finnsson kunna að meta það að fá meira athafnasvæði til að ráðast til atlögu, sem þeir og gerðu - öruggur sigur heimamanna var í höfn, 31:23. Afturelding var sterkari í öllum aðgerðum, bæði í vörn og sókn. FH-ingar áttu í erfiðleikum með flata vöm heimamanna, þar sem Alexei Trúfan, Einar Gunnar Sig- urðsson og Galkauskas Gintas voru sem klettar á miðjunni, þannig að Hálfdán Þórðarson fékk ekki að leika lausum hala á línunni. Valur Amarson var sá leikmaður sem ógnaði mest af FH-ingum, en gerði mörg mistök. Þá átti Guðjón Ama- son ágæta spretti framan af, aðrir vom lítt áberandi. Eins og fyri' segir þá hrandi varnarmúr FH-inga. Þeir stóðu ráðþrota og þurftu að breyta vam- arleik sínum frá leikjunum gegn Stjörnunni og Fram. Lið sem þarf að taka tvo leikmenn úr umferð í úrslitakeppninni sýnir veikleika- merki. Með því viðurkenna FH- ingar að þeir era að leika gegn sér sterkari fylkingu. Lið Aftureldingar er með góðar skyttur, hreyfanlega hornamenn - SOKNARNYTING Fýrsti leikur (tðanna í úrslitunum, leikinn i Mosfeiisbæ 18. apríl 1999 pAftwreWingjxihliyxWiy: ■IMötkiíóHr:*:-:-:-: I-Úork'&ólrátn'it 16 25 64 F.h 15 26 58 31 51 61 Alls 23 51 45 Langskot híhXúúSegmimbrót 8 Hraðaupphlaup 6 Lína Sigurð Sveinsson og Jón Andra Finnsson - sem vora óragir við að fara inn á línuna fyrir aftan útliggj- andi vöm FH; sterkan línumann - Magnús Má Þórðarson, sem skor- aði tvö mörk af línu og fiskaði þrjú vítaköst og var afar ógnandi, svo að Kristján Arason átti í miklum erfiðleikum. Leikmenn Aftureldingar hafa tekið stórt skref í átt að fyrsta meistaratitli félagsins. FH-ingar vita að þeir verða að sækja sigur að Varmá til að eiga möguleika, en fyrst verða þeir að standa vörð í Kaplakrika í kvöld þegar Aftureld- ingarmenn sækja að þeim. Það er erfið vakt fyrir höndum hjá FH. Þannig vörðu þeir (Innann sviga, skot aftur til mótherja). Bcrgsveinn Bcrgsveinsson, UMFA, 24/5; 10(1) langskot, 3(3) eftir gegnumbrot, 3(2) úr hraðaupphiaupi, 1(0) úr horni, 2(1) af línu, 5(1) úr vítakasti. Magnús Árnason, FH, 11; 3(1) langskot, 2(1) eftir gegnumbrot, 2(2) úr hraðaupphlaupi, 4(3) af línu. Morgunblaðið/Kristinn BERGSVEINN Bergsveinsson átti stórleik gegn fyrrverandi fé- lögum sínum ( FH. Hér brýnir hann samherjana í hita leiksins í fyrri hálfleik þegar vörn UMFA hafði ekki fundið taktinn. Sóknin brást „VIÐ lékum ágætlega í fyrri hálf- leik og fram í þann síðari en þá mis- notuðum við góð færi á mikilvægum kafla og leikmenn Aftureldingar stungu okkar af. Eftir það náðum við aldrei að nálgast þá,“ sagði Kri- stján Arason, þjálfari FH. „Þá hafði það einnig mjög mikið að segja að Bergsveinn varði mjög vel í marki Aftureldingar á sama tíma og Magnús náði sér ekki á strik hjá okkur.“ Kristján telur ekki að varnarleik- ur FH hafi bragðist heldur hafi það fyrst og fremst verið sóknarleikur- inn sem ekki hafi gengið sem skyldi, þar hafi fyrst og fremst skilið á milli liðanna að þessu sinni. „Sóknarleik- ur okkar var óvandaður og fyrir vikið fengum við alltof mikið af mörkum á okkur úr hraðaupphlaup- um, þar var meginmunurinn. Varn- arleikurinn gekk vel.“ Var það skynsamlegt að taka Bjarka Sigurðsson úr umferð svo lengi sem bar vitni um? „Mér fannst það. Við urðum að taka Bjarka og jafnvel annan til úr umferð og freista þess þannig að leysa leikinn upp, auka hraðann í honum. í því var von okkar fólgin og þess vegna tókum við Bjarka úr umferð meðal annars. Það var mikið frekar að við spiluðum illa í sókninni heldur en að vörnin hafi brugðist, sem olli því að við töpuðum leiknum að þessu sinni.“ Kristján telur sitt lið eiga meira inni en það sýndi að þessu sinni, jafnt í vöm sem sókn og því verði ■ reynt að ná fram í kvöld þegar liðin eigast við öðru sinni í Kaplakrika. „Við eigum einhverja ása uppi í erminni og með góðum stuðningi Hafnfirðinga ætlum við að jafna metin.“ Bergsveinn í stuði BERGSVEINN Bergsveins- son, markvörður Aftureld- ingar, var í stuði gegn sín- um gömlu félögum úr FH, varði mjög vel og þar af fimm vítaköst. Hann byrjáði á því að verja vítakast frá Guðmundi Petersen, síðan varði hann fjögur vítaköst í röð í seinni hálfleik - fyrst frá Val Arnarsyni, þá Lárusi Long, Guðjóni Ámasyni og Sigursteini Amdal, þaunig að fimm leikmenn FH stóðu fyrir framan Bergsvein í vítaköstum. Bergsveinn setti met BERGSVEINN hefur leikið vel í marki Aftureldingar í úrslitakeppninni - varði 24 skot gegn FH. Hann setti met í úrslitakeppninni í und- anúrslitum gegn Haukum, er hann varði 28 skot. Gamla metið átti Suik Hyung Lee, er hann varði 27 skot í undanúrslitum gegn Fram í fyrra. Jón Andri örugg vítaskytta JÓN Andri Finnsson, Aftur- eldingu, tók sex vítaköst og skoraði úr þeim öllum. Hann stóð u.þ.b. rúmt fet frá víta- línu þegar hann tók köst sín. Svo vel treysta félagar Jóns Andra honum, að þeir vom allir fyrir innan eigin punktalínu þegar hann var einn á vallarhelmingi FH til að taka vítaköstin. Met hjá Jóni Andra JÓN Andri setti liðsmet með því að skora 12 mörk í leikn- um, en svo mörg mörk hefur leikmaður hjá Aftureldingu ekki skorað í einum leik í úrslitakeppninni. Fyrir utan mörkin sex úr vítaköstum skoraði hann sex mörk eftir hraðaupphlaup. Skotnýting Jóns Andra var góð, eða 92% - hann skoraði mörkin tólf úr þrettán skotum. Bjarki Sigurðsson átti gamla metið, 11 mörk - sett í leik gegn Haukum á dögunum. Magnús í „baklás“ MAGNUS Ámason, mark- vörður FH, varð fyrir því óláni í fyrri hálfleik gegn Aftureldingu að bak hans læstist og átti hann þar af leiðandi erfitt með hreyfing- ar. „f leikhléi var rokið í það að aðstoða Magnús og kost- aði það miklar tilfæringar en tókst ágætlega og hann var mun betri í síðari hálf- leik,“ sagði Krislján Arason, þjálfari FH. „Það bætti auð- vitað ekki úr skák hjá okkur að Magnús gekk ekki heill til skógar." Hann varði að- eins tvö skot í fyrri hálfleik en níu í þeim síðari. Kristján sagði að vand- lega yrði áfram fylgst með heilsufari Magnúsar, en hann hefur fundið fyrir sár- indum í baki á leiktíðinni þrátt fyrir að hann hafi ekki verið eins slæmur í leikjum eins og í fyrri hálfleik gegn Aftureldingu á sunnudag- inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.