Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.1999, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN —-: - ■ ■ •_\_-_:___ Traustur búnadur • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓBUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Stjórnbúnaður fyrir varmaskipta Prentsmlðja Morgunblaðslns Þriðjudagur 20. aprfl 1999 Blað C Ekki alltaf bundinn HAFI eigandi íbúðar í fjölbýli ekki verið með í ráðum við ákvörðun um sameiginleg mál- efni er hann ekki bundinn af henni. Sandra Baldvinsdóttir, lögfræðingur Húseigendafélags- ins, bendir þó á undantekningar frá þessari meginreglu. /24 ► Morgunblaðið/Árni Sæberg Bruna- varnir EITT og annað má læra af brun- anum mikla í félagsheimili í Gautaborg, segir Böðvar Tómas- son. Bendir hann á að hönnun innréttinga, val á húsgögnum og öðrum búnaði skipti ekki síður máli þegar hugað skal að bruna- vörnum. /30 ► Um 18 þúsund manns sóttu Byggingadaga ‘99 Morgunblaðið/Kristinn HVERS konar byggingarefni og innviði mátti sjá á Byggingadögum ‘99, meðal annars þennan heita pott sem hægt var að sulla svolítið í. Ú T T E K T Sindri á leið a nyj- an stað SINDRI í Reykjavík eða Sindra-stál, eins og fyr- irtækið heitir form- lega, fagnar um þessar mundir 50 ára afmæli sínu. Stofnandi þess var Einar Ás- mundsson ásamt fleirum og þjónaði fyrirtækið í fyrstunni einkum málm- og byggingar- iðnaði. Segja má að um það snúist starfsemi fyrirtækisins enn í dag en með mun meiri fjöl- breytni. Fyrirtækinu hefur verið skipt í fjórar deildir og sér ein um efnissölu, önnur um byggingavörur, sú þriðja annast vélasölu og síðan rek- ur Sindri verslun. Síðasta aldarfjórðunginn hefur Sindri verið til húsa við Borgartún en stefnir nú að flutningi inn að Klettagörð- um við Sundahöfn. Þar verð- ur athafnarýmið verulega þægilegra að sögn Bergþórs Konráðssonar, framkvæmda- stjóra Sindra. Búið er að selja fasteignir Sindra í Borgartúni og er nú verið að bíða þess að skipulag fyrir athafnasvæðið við Kletta- garða verði tilbúið. Reiknað er með að verkið verði unnið eftir alútboði og gerir Bergþór ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist í sumar. í fyrri áfanga er gert ráð fyrir að reisa skemmu fyrir lagerinn en síðan myndu menn snúa sér að byggingu fyrir skrifstofur og verslunina. /18 ► UM 18 þúsund manns sóttu sýning- una Byggingadagar ‘99 sem haldin var í Laugardalshöll í Reykjavík um síðustu helgi. Þar sýndu um 70 fyr- irtæki í byggingariðnaði vöru sína og framleiðslu og nokkur fyi-irtæki kynntu ýmsa þjónustu er tengist heimilum og rekstri húsnæðis, svo sem hvað varðar öryggismál og tryggingar. Talið er að um 12 þúsund störf hafi verið í mannvirkjagerð hér- lendis á síðasta ári, um 10% af heildarfjölda starfa í landinu og er það svipað og í flestum EES-lönd- um en þar er talið að um 10 milljón- ir manna starfi beint við mann- virkjagerð. Þetta kemur fram í samantekt Ingólfs Bender í riti um sýninguna. Hann telur að árin 1996 til 1998 megi rekja rúmar tvær krónur af hverjum tíu til bygging- ariðnaðarins, hagvöxturinn hafi verið um 76 milljarðar á þeim tíma og hafi tæpir 17 milljarðar orðið til fyrir mannvirkjagerð. Hann segir að á sama tíma hafi hlutur fiskveiða og fiskvinnslu verið rúmur milljarð- ur. „Að baki þessu mikla vægi mannvirkjagerðar í hagvexti liggja tölur um aukningu í verðmæta- sköpun greinarinnar sem eiga sér vart hliðstæðu í íslenskri hagsögu. Aldrei fyiT, frá því að hagmælingar hófust á þessum þætti þjóðhags- reikninga, hefur vöxturinn verið jafnmikill á jafnlöngu skeiði. Sam- tals var aukningin tæp 50% frá 1996 til 1998. Mestur var vöxturinn í fyrra, alls 20%. Þrisvar frá 1974 hefur vöxturinn verið yfir 10% á ársgrundvelli, þ.e. árin 1976, 1980 og 1987,“ segir einnig í samantekt Ingólfs. Alls söfnuðust um tvær milljónir fyrir krabbameinssjúk börn en 200 kr. aðgangseyrir fullorðinna rann til þeirra. Fyrirtækjum sem þóttu skara framúr á sýningunni var veitt viðurkenning fyrir bása sína: BYKO, BM Vallá, Agli Árnasyni og Orkuveitu Reykjavíkur og Vatns- veitu Reykjavíkur sem voru með sameiginlegan bás. Haraldur Sumarliðason, formað- ur Samtaka iðnaðarins, segir í rit- inu að íslenskur byggingamarkaður sé opnari en áður og að íslensk fyr- irtæki séu í meiri samkeppni við er- lenda framleiðslu. Hann staðhæfir að íslenskt handbragð og hugvit standist fyllilega slíka samkeppni en þá megi lög og reglugerðir ekki skekkja samkeppnisstöðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.