Morgunblaðið - 20.04.1999, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGÚR 20. APRÍL 1999 C 19
SVAVAR Gíslason er verslunarstjóri hjá Sindra-Stáli.
mjög ákjósanlegt, þar séu samgöng-
ur góðar og eigi eftir að batna enn
næstu árin með tilkomu Sunda-
brautar. „Sindra-Stál er eitt af
stærstu fyrirtækjum landsins í inn-
flutningi og starfsemin er mjög
hafnsækin þar sem um er að ræða
mikla þungaflutninga á stáli og
málmum sem koma með skipum og
dreifa þarf um allt land. Ég vona
því að aðstaða okkar á nýja staðn-
um verði mun betri og þægilegri
fyrirtækinu og viðskiptamönnum
þess,“ segir Bergþór. Verið er nú að
skipuleggja svæðið en búist er við
að því verði lokið kringum mitt árið
og gerir Bergþór þá ráð fyrir að
hægt verði að hefja framkvæmdir á
nýju lóðinni. Tíminn á meðan er
notaður til undirbúnings og eru for-
ráðamenn Sindra nú að velta fyrir
sér í samvinnu við ráðgjafa hvaða
leið verður farin en unnið er að
þarfagreiningu fyrir fyrirtækið
næstu árin. Hefur VSÓ ráðgjöf ann-
ast þann þátt.
Fimm hæða stál-
grindarhús?
„Þar sem við erum innflytjendur
á stáli og málum til hvers konar
bygginga eru við spenntir fyrir því
að nota þau efni sem mest í bygg-
ingar okkar og viljum helst að stál
og málmar verði ráðandi við útlit
þeirra," segir Bergþór. Ráðgert er
að reisa annars vegar um 5.800 fer-
metra skemmu fyrir lager og hins
vegar fimm hæða skrifstofubygg-
ingu sem verður rúmlega fjögur
þúsund fermetrar. Lagerhúsið í dag
er um þrjú þúsund fermetrar en
stækkunin þarf ekki að vera meiri
þar sem minna rými fer nú undir
ganga og hillurekkar ná í allt að 9
metra hæð þannig að grunnflötur-
inn nýtist betur.
„Lagerhúsið verður stálgrindar-
hús, svipað því sem við erum með
hér við Borgartúnið en um skrif-
stofuhúsið er meiri spurning. Hér-
lendis hefur ekki verið reist svo há
bygging úr stálbitum en við viljum
kanna rækilega hvort slíkt hús get-
ur ekki orðið fullt eins hagkvæmt
og bygging sem reist verður eftir
hefðbundnum aðferðum. Við höfum
líka áhuga á að verktakar hér kynn-
ist þessari aðferð og að húsið geti
þar með rutt brautina nokkuð fyrir
þeirri húsagerð hérlendis og okkur
sýnist líka að opinberir aðilar, þeir
sem þurfa að gefa nauðsynleg leyfi
og slíkt, hafi ekki síður áhuga á að-
ferðinni. Svona hús hafa verið reist
erlendis svo árum skiptir eins og
menn þekkja og því ætti það ekki að
ganga hérlendis líka,“ spyr Bergþór
og segir að verði niðurstaðan sú að
stálgrindarhús' muni kosta minna
eða jafnmikið og hefðbundið stein-
hús verði stálið trúlega fyrir valinu
sem aðal byggingarefnið.
Lokað alútboð
Sindra-Stál hefur nýlega selt
fasteignirnar við Borgartún, þ.e.
lagerskemmuna og þriggja hæða
skrifstofubyggingu. Hugmyndin er
að reisa fyrst á nýju lóðinni stál-
giindarhúsið fyrir lagerinn og verð-
ur hugsanlega hægt að flytja hann
uppúr næstu áramótum. I fram-
haldi af því yrði farið í skrifstofu-
bygginguna sem gera má ráð fyrir
að taki um ár að reisa. Bergþór seg-
ir hugmyndina að bjóða verkið út í
lokuðu alútboði. Hann segir arki-
tekt geta fengið nokkuð frjálsar
hendur varðandi útlit og annað en
allt verði þó að vera innan skynsam-
legra kostnaðarmarka.
Áður en lengra er haldið er rétt
að geta um helstu þættina í starfi
Sindra en fyrirtækið starfar í fjór-
um deildum, sem eru efnissala,
byggingavörur, vélasala og verslun.
Jón Emil Halldórsson er deildar-
stjóri byggingadeildar en uppbygg-
ing hennar hófst fyrir þremur ár-
um. Hann segir Sindra veita marg-
háttaða ráðgjöf og aðstoð þegar efn-
iskaup vegna byggingafram-
kvæmda séu annars vegar: „Við er-
um með fjölmarga tæknimenn í
starfi í öllum deildum hjá okkur,
tæknifræðinga og verkfræðinga, og
við segjum stundum í gamni og al-
vöru að við séum álíka mannaðir og
meðal verkfræðistofa hvað það
varðar og ég hugsa að óvíða sé
meiri þekking á málmum fyrir
byggingariðnaðinn og hjá okkur,“
segir Jón Emil sem sjálfur er bygg-
ingatæknifræðingur. „Við erum
með öðrum orðum ekki aðeins að
selja efni heldur setjum fram heild-
arlausnir fyrir byggingaraðila og
reynum þá að bjóða fleiri en einn
kost sem menn vega og meta.“
Deildin annast útvegun stálgi'indar-
húsa, hringstiga úr stáh, álklæðn-
inga, þakglugga, girðingar og nán-
ast hvaðeina sem þarf til að reisa
hvers kyns byggingar eða mann-
virki. Fyrir utan þetta flytur Sindri
inn hillukerfi, smíðajám, ryðfrítt
stál, ál og margs konar vélar og tæki
sem notuð eru í byggingariðnaði.
Verslun fyrirtækisins þjónar eink-
um verktökum og iðnaðannönnum
en sala til almennings á slíkum vör-
um er aðallega hjá smásölum. En
aftur að byggingardeildinni.
Vaxandi áhugi á málmum
í byggingariðnaði
„Notkun á málmum er að aukast
mjög í íslenskum byggingariðnaði
og ég verð var við síaukinn áhuga
arkitekta í þeim efnum,“ segir Jón
Emil. „Þar er ég að tala um efni
eins og ál, zink, kopar og fleira og
við þurfum ekki annað en að líta til
húss Hæstaréttar, Brimborgar og
hér hinum megin götunnar reis í
vetur stór skrifstofubygging sem er
klædd áli frá okkur.“
Jón Emil segir hvers kyns ráð-
gjöf og námskeiðahald líka mjög
mikilvægt þegar verið er að koma
að nýjungum í byggingariðnaði og
að Sindri hafi oftlega staðið fyrir
námskeiðum af ýmsum toga. Er þar
bæði um að ræða námskeið hérlend-
is til dæmis fyrir starfsmenn verk-
fræðistofa og nokkuð er um að er-
lendir framleiðendur taki iðnaðar-
menn á námskeið erlendis þegar
verið er að kenna meðferð á ýmsum
klæðningum og öðru efni sem lítið
hefur verið notað hérlendis.
Sindra starfsmenn 55
í verslun Sindra eru seld ýmis
tæki fyrir iðnaðarmenn og verk-
taka, loftpressur, rafsuðuvélar,
sandblásturtæki, stórar og smáar
sagir, slípirokkar og borvélar með
tilheyrandi fylgihlutum og þannig
mætti lengi telja. Starfsmenn Sind-
ar eru í dag 55 talsins. Um heildar-
íjárfestingu framkvæmdanna vildi
Bergþór hafa sem fæst orð, útboð
væri framundan og best að iáta töl-
ur bíða um sinn. Hann sagði þó ljóst
að um verulega stærra húsnæði yrði
að ræða á nýja staðnum en fyrir-
tækið hefur yfir að ráða við Borgar-
tún í dag.
Lagnasýning í Frankfurt
Lagnafréttir
A annað hundrað lagnamenn sóttu fyrr á
þessu ári sýningu sem haldin er annað
hvert ár í Frankfurt í Þýskalandi. Signrð-
ur Grétar Guðmundsson greinir hér frá
ýmsu sem þar hefur verið að gerjast gegn-
um árin en hátt í þrjátíu ár eru frá því þeir
tóku að sækja sýninguna.
ANNAÐ hvert ár er haldin mikil
sýning og kaupstefna í Frank-
furt þar sem framleiðendur og selj-
endur lagnaefnis, tóla og tækja
sýna allt það nýjasta og besta sem
finnst á þeim markaði. Þetta er ai-
þjóðleg sýning, þó er ekki mikið um
að framleiðendur utan Evrópu sýni
þar, en hún er sótt af lagnamönnum
hvarvetna í heiminum.
Sýningai’svæðið er engin smá-
smíði, líklega um 200.000 fm og
gestir fleiri en allh' íslendingar.
Það eru líklega nálægt þrjátíu ár
síðan lagnamenn hérlendis hófu
ferðir á ISH sýninguna (eins og hún
er í daglegu tali kölluð þarlendis) í
Frankfurt og það er enginn vafi á
því að þangað hafa menn sótt mik-
inn fróðleik.
Það var einmitt á „byltingartím-
anum“ sem menn héðan komu fyrst
á Frankfurtarsýninguna, byltingar-
tímanum sem byrjaði á 7. áratugn-
um þegar plastið var að ryðjast inn í
lagnaheiminn. Fram að því hafði
allt verið í föstum skorðum, snittuð
skrúfuð rör notuð í hita- og neyslu-
vatnslagnir og pottrör í skólplagnir,
þannig hafði það verið frá aldamót-
unum síðustu. En skyndilega
breyttist allt, ný efni og ný tæki og
geysilega ör þróun.
Á síðustu sýningum hefur allt ró-
ast, en alltaf er eitthvað nýtt að sjá
og mörgum hérlendum lagnamönn-
um finnst þeir hreinlega ekki fylgj-
ast með ef þeir fara ekki á hverja
sýningu í Franfurt.
Lykkja á leið
Líklega hafa á annað hundrað
lagnamenn frá íslandi sótt sýning-
una í ár, sem var í lok mars. Sumir
fara í litlum hópum, jafnvel einir,
aðrir taka þátt í stærri hópferðum .
Stærsti hópurinn í ár, eins og á und-
anförnum sýnmgum, var á vegum
Lagnafélags íslands, yfir sjötíu
manns.
Nú er ekki lengur flogið til Lúx-
emborgar og síðan tekin rúta til
Frankfurt heldur flogið beint og
lent á hinum risastóra flugvelli við
Frankfurt. Ætla mætti að það sé
þægiiegra fyrir ferðalanginn, en
ánægjan virðist blandin þegar menn
fara um þetta ofvaxna, villugjarna
völundarhús sem Frankfurtarvöllur
er. Þá sakna menn litla vinalega
umhverfisins í Lúxemborg.
Sérdeilis er mönnum villugjarnt
við brottför og það er einlæg ábend-
ing til Flugleiða að það ágæta fyrir-
tæki láti fylgja farseðlum leiðbein-
ingar til farþega við hvaða
„termínal" menn eigi að mæta og
inn í hvaða skála eigi að fara, það
sparar mönnum langar lestarferðir
milli staða með mann- og sálarlaus-
um lestum.
Hópurinn frá Lagnafélaginu
lagði lykkju á leið sína og hélt þeg-
ar til Dússeldorf í boði stórfyrir-
tækisins Mannesmann og umboðs-
aðila þess á íslandi, Tækja-Tækni
hf. Þar var dvalist í einn sólarhring
og verksmiðja Mannesmann skoðuð
og setinn fræðslufundur. Orðið
Mannesmann er orðið þekkt hér-
lendis vegna lagnakerfisins, bæði
svört og ryðfrí stálrör, sem mikið
eru notuð til utanáliggjandi lagna.
Eðlilega telja margir þetta nýjung
hérlendis sem lítil reynsia sé af, en
svo er ekki, elsta hitakerfið lagt úr
þunnveggja stálrörum og þrykkt-
um tengjum nær því að verða 30
ára á næsta ári og er enn í fullu
fjöri.
Það er eins gott að hafa þrekið og
liðina í lagi ef farið er á slíkar sýn-
ingar og kaupstefnur eins og ISH-
sýninguna í Frankfurt.
Umfram allt verða menn að
skipuleggja för sína um sýninguna
harla vel, kynna sér fyrirfram hvar
hver vörutegund er og hefja göng-
una samkvæmt því.
Fólk flutt á
færiböndum
Milli sýningarskálanna eru nú
komin færibönd sem flytja stans-
lausan straum af fólki, þar hvílast
menn nokkuð, en sumum liggur
þau reiðinnar ósköp á að þeir jafn-
vei ryðjast áfram á færiböndunum
til að komast sem fyrst í næsta
skála.
En hvað var nú áhugaverðast á
þessari miklu sýningu?
Þróunin í smáatriðum, engin ný
efni í lögnum eru að koma fram, en
það er fróðlegt að sjá hvernig fyrir-
tækin keppa hvert við annað.
Allir eru að reyna að komast
hænufetinu fram fyrir þann næsta
og oftast með því að þróa kerfi,
bjóða heildarlausnir og er það svo
sannarlega lærdómsríkt fyrir okkur
Islendinga. Sum fyrirtæki eru í
smáatriðunum, breyta tengjum svo
þau verði með þeirra sérkennum,
sem oft leiðir til þess að til að geta
EF EKKI er farið skipulega í
gegnum stóra lagnasýningu geta
menn lent í slæmum málum.
lagt kerfin verður að hanna og
framleiða sérstakt verkfæi'i einung-
is til að leggja þetta eina kerfi.
Á undanförnum árum hefur þró-
unin verið á fleygiferð frá snittuð-
um, skrúfuðum lögnum, enda sjást
þær lagnir ekki lengur á lagnasýn-
ingum.
Þrykktu tengin hafa fleiri og
fleiri framleiðendur tekið upp á
sína arma til að vera með í þróun-
inni, en nú sáust nokkur merki r
þess að nokkur fyrirtæki sneru að
nokkru leyti til baka og þróuðu
skrúfuð tengi, þó ekki þannig að
þýðing snittvélarinnar hafi aukist
aftur. Öll kemur þessi þróun hinum
almenna borgara við, ekki síst
þeim sem búa í eldra húsnæði,
segjum húsnæði sem er yfir 30 ára
gamalt.
Þess vegna skulum við í næstu
pistlum reyna að glöggva okkur
nánar á því hvað er að gerast í þró-
un á lagnaefnum og lagnaleiðum.
Í&m I áP MM Lögfræðingur
Sfakfell San^ott
Fasteignasala Sudurlsnasbraut 6 oolumaður
568-7633 if Gísli Sigurbjörnsson
ATVINNUHÚSNÆÐI
BÍLDSHÖFÐI Iðnaðarhúsnæði, 291
fm, með tvennum innkeyrsludyaim. I
húsnæðinu eru tvær skrifstofur, kaffistofa,
tvær snyrtingar. Þriggja fasa raflögn.
Lofthæð ca fjórir metrar. Malbikuð bíla-
stæði.
VAGNHÖFÐI Atvinnuhúsnæði, 170
fm, á jarðhæð með innkeyrsludyrum.
Húsnæðið, sem er í góðu ástandi, er laust
nú þegar. Verð 9,8 millj.
EINBÝLISHÚS
BLÁSKÓGAR Glæsilegt og vandað
hús, u.þ.b. 380 fm með 3 íbúðum og bíl-
skúr. A efri hæð eru 4 svefnherbergi,
stofa/borðstofa í suður og vestur, sjón-
varpsherbergi á neðri hæð. Niðri er góð
70 fm stúdíóíbúð og er hún samtengd efri
hæðinni og getur einnig nýst sem vinnu-
pláss. Einnig er 4ra herbergja 100 fm íbúð
á neðri hæðinni. Sérinngangur (allar íbúð-
irnar. Góð lóð. Verð 28,0 millj.
SMÁRARIMI Sérstaklega vandað
fullbúið einbýlishús, 150 fm, með inn-
byggðum bílskúr. Glæsilegar stofur og tvö
góð svefnherbergi, stórt og gott eldhús
með þvottahúsi innaf og stórt baðherbergi
með baðkari og sturtuklefa. Allar innrétt-
ingar mjög vandaðar. 38 fm sólpallur með
skjóiveggjum. Fullbúin lóð. Áhvíl. 6,0 millj.
húsbréf og 4,5 millj. hjá Samvinnusj. Isl.
Verð 16,5 millj.
RAÐHÚS/ PARHÚS
SMYRLAHRAUN Endaraðhús,
149,1 fm, á tveimur hæðum. Stofur, eld-
hús, gestasnyrting, þvottahús og geymsla
á neðri hæð. Fjögur herbergi og
baðherbergi á efri hæð. Góð gólfefni.
Bíiskúr, 28,2 fm, fylgir. Fallegur garður
sunnan hússins. Verð 13,9 millj.
Opið laugardaga
kl. 11-14.
ÁLFHÓLSVEGUR Endaraðhús,
179 fm, sem skiptist i kjallara og tvær
hæðir. Stofur og eldhús eru á neðri hæð.
Á efri hæð eru þrjú herbergi og bað-
herbergi með þvottavélatengingu. í kjall-
ara eru þvottahús og þrjú herbergi. Ljósar
eikarinnréttingar. Góður 39,6 fm bílskúr
með rafmagni, hitaveitu og vatn. Einungis
í skiptum fyrir stóra hæð með bílskúr í
Kópavogi. Verð 12,0 miilj.
3JA-4 HERBERGJA
STIGAHLÍÐ 3-4ra herbergja enda-
íbúð, 77 fm, á 3. hæð. Tvær stofur, tvö
svefnherbergi. Nýtt eldhús. Suðursvalir.
2 HERBERGJA
HÁAGERÐI Lítil ósamþykkt íbúð I
kjallara, 48,2 fm. Parketlögð stofa og eld-
hús í suður. Svefnherbergi með skáp og
gólfdúk. Baðherbergi með baðkari. Laus
strax. Verð kr. 3,8 millj.
SUMARBÚSTAÐIR
SVARFHÓLSSKÓGUR Mjög
vandaður sumarbústaður, 52,3 fm, í
Svarfhólsskógi, Hvalfjarðarstrandarhr. á
rúmlega 1 ha eignarlandi, sem er allt
skógi vaxið. Bústaðurinn er stofa með
eldhúskrók, tvö svefnherbergi og svefnloft
auk baðherbergis. Góð verönd er um-
hverfis bústaðinn á tvo vegu. Mjög fallegt
útsýni. Lítið dúkkuhús er á lóðinni fyrir
yngstu kynslóðina.
EILÍFSDALUR - KJÓS Fallegur
49,5 fm sumarbústaður á góðum stað í
Eilífsdal á afgirtu landi. Verð 3,5 millj.
Laust strax.
SUMARBÚSTAÐALÓÐIR
RANGÁRVALLASÝSLA Sumar-
bústaðalóðir í Hvolhreppi á skipulögðu
sumarbústaðasvæði við Eystri-Rangá,
Hver lóð er ca 1 ha að stærð og selst til
leigu til 75 ára. Leigusali sér um lagningu
neysluvatns að lóðarmörkum bústaða,
gerð rotþróa, lagningu malarstiga um
svæðið skv. skipulagsuppdrætti og trjá-
rækt á sameiginlegum svæðum.