Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 1

Morgunblaðið - 18.05.1999, Page 1
Stjórnbúnaður fyrir ofnhitaketfi —---------—----|----------|--— • MARKAÐURINN • SMIÐJAN • --------|-----| LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR O G GARÐAR HÝBÝLI • FRÉTTIR Verð við allra hœíi H---------------------------------------------------------------:—] ]-------------|--------------------------j----j-----------------j j----:------j--- Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 18. maf 1999 Blað C Byggt á Grænlandi TIMBURGRIND og annað tilheyr- andi tréverk í skála Eiríks rauða og Þjóðhildarkirkju í Grænlandi hafa verið í smíðum hér á landi, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Þetta tréverk verður flutt til Eriksfjarðar og reist í Brattahlíð. / 26 ► Breyttar áherslur SÉ LITIÐ yfir húsnæðismál hinna þróuðu ríkja Vesturlanda, þar á meðal hér á landi, blasir það við, að ýmsar helstu áherslur fyrri stefnu eru mjög að breytast, segir Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræð- ingur í grein um ný viðhorf í hús- næðismálum. / 30 ► Ú T T E K T Nýjar íbúðir í hafnfirzku umhverfi SKORTUR er nú á nýjum íbúðum í Hafnarfirði, en eftirspurn mikil. íbúðir, sem byggingafyrirtækið Fjarð- armót ehf. hefur hafið fram- kvæmdir við að Hringbraut 2a og 2b, vekja því verðskuldaða athygli, en þar verða byggð tvö lyftuhús, annað með 12 íbúðum en hitt með 16 íbúðum. I húsunum verður ennfremur kjallari fyrir bflskýli. Þetta verða í senn vandaðar og fal- legar íbúðir og ekki spillir, að þær munu standa á einum bezta stað í gamla bænum í Firðinum. íbúðunum er skilað fullbúnum að utan sem innan en án gólf- efna. „Þarna er rammhafnfirskt umhverfi,11 segir Helgi Jón Harðarson hjá fasteignasölunni Hraunhamri, þar sem íbúðirnar eru til sölu. „Hamarinn er öðr- um megin og Lækurinn er í göngufæri og svo er örstutt nið- ur í gamla miðbæinn. Umhverf- ið er því allt mjög skemmtilegt og á örugglega mikinn þátt í því, hversu mikill áhugi er á þessum íbúðum.“ Helgi Jón kveðst álíta, að uppbygging nýs byggingasvæð- is í Áslandi fyrir ofan Reykja- ,. , nesbraut eigi eftir að hafa mikil áhrif á fasteignamarkaðinn í Hafnarfirði. Þar verður byrjað að byggja í sumar og haust og þeir, sem setjast þar að, þurfa að selja þær eignir, sem þeir eiga fyrir. Þá má gera ráð fyrir, að framboð á eignum aukist í Firð- inum, en þangað til verður ríkj- andi mikil umframeftir- spurn. / 18 ► íbúðaverð hækkar ört á höfuð- borgarsvæðinu VERÐ á íbúðarhúsnæði hefur farið ört hækkandi á höfúðborgarsvæð- inu á síðustu mánuðum eins og sjá má á teikningunni hér til hliðar, en hún er byggð á upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Þannig varð um 3,5% hækkun á verði milli febrúar og marz sam- kvæmt vísitölu fermetraverðs, sem Fasteignamatið reiknar út. I febrú- ar var vísitalan 113,9 miðað við staðgreiðsluverð, en var í marz 117,9. Svo virðist sem verð hafi haldið áfram að hækka í apríl. Að sögn fasteignasala ríkir mjög óvenjulegt ástand á markaðnum. Eftirspurnin er svo miklu meiri en framboðið, að góðar eignir á eftir- sóttum stöðum seljast jafnvel á upp- sprengdu verði. Þenslan á höfuðborgarsvæðinu á vafalaust rót sína að rekja að tals- verðu leyti til góðærisins í landinu. En fleira kemur til. Aðflutningar fólks eru mjög miklir. Þannig flutt- ust 1700-1800 manns á höfuðborg- arsvæðið í fyrra umfram brott- flutta. Allir þurfa þak yfir höfuðið og húsnæðisþörf slíks mannfjölda jafn- gildir 400-500 íbúðum. Það er ríf- lega sá fjöldi íbúða, sem gert er ráð fyrir, að byggðar verði í öllu Staða- hverfi, nýjasta hverfi Reykjavíkur. Þær hækkanir, sem orðið hafa á nýju íbúðarhúsnæði að undan- förnu, eru samt ekki óraunhæfar að mati fasteignasala. Byggingar- aðilarnar, sem byggja til þess að selja, eru loksins farnir að selja á raunvirði. Á samdráttarárunum var verð á nýsmíðinni aftur á móti það lágt, að margir þeirra högn- uðust lítið á henni. Lágt verð á nýsmíðinni hélt líka verði á notuðu húsnæði niðri og þegar þar við bættist, að offramboð var á eignum á markaðnum, hélzt fasteignaverð lágt. Nú hefur þetta snúizt við. Fermetraverð á höfuðborgarsvæðinu Vísitala, staðgreiðsluverð hver fermetri, jan. 1996 Þriggja mánaða meðaitöl 120 118 116 11 112 110 108 106 104 100 98 96 ■ 1999 JFMAMJJÁSONDJFHAMJJÁSONDJFMAMJJÁSONDJFMAMJJÁSOND Leitaóu ekki langt yfir skammt. Við kaupum alla flokka húsbréfa gegn staðgreióslu Kaupþing hf. Ármúla 13A Reykjavík sími 515 1500 fax 515 1509 www.kaupthing.is KAIJPÞTNG HF : 1 "rn m i§ hí 1 .mm n

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.