Morgunblaðið - 09.06.1999, Page 24

Morgunblaðið - 09.06.1999, Page 24
SITJI GUÐS ENGLAR í SUMARLEIKHÚSI BARNANNA Á RÁS I Fyrsti þáttur útvarpsleik- ritsins Sitji Guðs englar, sem gert er eftir sögum Guðrúnar Helgadóttur, verður fluttur á Rás 1 þann 19. júní. Leikritið er í tólf þáttum og er samið upþ úr þókunum Sitji Guðs englar, Saman í hring og Sænginni yfir minni, er fjalla um sjómannsfjölskyldu í Hafn- arfirði á stríðsárunum. Illugi Jökulsson sá um leikgerð og leikendur eru Rúrik Haralds- son, Edda Heiðrún Backman, Valdimar Örn Flygenring, Þóra Friðriksdóttir, Brynhildur Guð- jónsdóttir, Gunnur Þórhallsdótt- ir og Eyþór Rúnar Eiríksson. ÓLÍK LISTFORM „Ég er mjög ánægð með leikgerð llluga og hann er af- skaplega trúr bókunum. Það má hins vegar alltaf deila um hvort eigi að breyta bók í leikrit eða gera kvikmynd eftir skáld- sögu, því að þetta eru ólík list- form. En stundum tekst þetta ágætlega og ég er í þessu til- viki mjög sátt.“ - Hvert er umhverfi „Engla- bókanna“? „Þessar bækur skrifaöi ég upp úr 1980 og þá hafði ég skrifað bækur um Jón Odd og Jón Bjarna er fjölluöu um sam- tímafjölskyldu. Mig langaöi til að skrifa um sjómannsfjöl- skyldu, því sögur af sjómönn- um hafa ekki verið IVirferöar- miklar í íslenskum bókmennt- um þrátt fyrir að þjóðin lifi nær eingöngu á sjósókn. Einnig fannst mér spennandi að skrifa um stríðsárin, það tíma- bil þegar ísland stökk alskap- að inn í nútímann." - Eiga persónur bókanna sér fyrirmyndir í raunveruieikan- um? „Bækurnar gerast á þeim tíma þegar ég var að stíga mfn fyrstu skref í lífinu og fjalla auðvitað um tilfinningar sem ég hafði þá. Þetta er þó ekki frásögn af raunverulegum at- buröum, en aöstæöurnar eru þær sömu; barnmörg fjöl- skylda þar sem pabbinn er aldrei heima og afinn og amm- an búa á heimilinu. Maöur uþplifir lífið svo sterkt sem krakki og sú reynsla er með manni alla ævi. Það er sennilega eitthvað Ástarsaga úr fjöllunum var gefin út á japönsku. Á næstunni verður bókin endurútgefin, bæði á íslensku og ensku. Guörún Helgadóttir er margverölaun- aóur rithöfundur og bækur hennar eru til á flestum íslenskum heimilum. Jón Oddur og Jón Bjarni, ásamt krökkunum í Sitji Guös englar, stóöu Sunnu Ósk Logadóttur Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum á ný er hún ræddi viö Guórúnu á notalegu heimili hennar í vesturbænum. af mér í öllum þremur systrun- um sem sagan fjallar um, þó að þær séu mjög ólíkar." - Hvenær byrjaóir þú aö skrifa? „Ég byrjaði aö skrifa þegar ég var krakki. Ég skrifaði heila bók þegar 13 ára og mynd- skreytti hana sjálf. Ég fór meira að segja meö hana til útgefanda, en sá hana reyndar aldrei aftur, þannig að hún hef- ur sennilega ekki verið mjög góð. Það var ekki fyrr en ég var sjálf komin með börn að ég tók aftur til við skáldskap- inn, með því að segja þeim sögur. Á þeim tíma var óskap- lega lítið vandað til barnabóka og ég byrjaði því að segja börnunum sögur af þeim bræðrum Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Þær sögur voru til í munnlegri geymd í tvö ár áður en mér datt í hug að fara að skrifa þær niöur. Voriö eftir að fyrsta bókin kom út fékk ég verðlaun Fræðsluráös Reykja- víkur og það varð mér óskap- lega mikil hvatning og ég ákvað að fara að taka sjálfa mig alvarlega sem rithöfund." BLÚSSAN YFIR BRJÓSTIÐ - Áttu þér einhverja eftir- lætispersónu úr bókum þín- um? „Mér er ósköp vel við allt þetta fólk en ég get ekki neit- að því að ég er alltaf svolítiö skotin í Ástarsögu úr fjöllun- um. Ég hef alltaf veriö mikill náttúruunnandi og mig langaði til að börn sem aka um landiö með foreldrum sínum litu að- eins upp úr Andrés-blööunum og skoðuðu landið og því varð sú bók til. Ég óttaóist reyndar mjög f byrjun að bókin yrði gagnrýnd harkalega af vinkon- um mínum í kvenréttindahreyf- ingunni, því hún fjallar um kerl- ingu sem er að eltast við karl og eignast með honum átta krakka! í eina skiptið sem ég fékk athugasemd um bókina var þegar Bretar ætluðu að gefa hana út. Þeir fóru fram á það að við Brian Pilkington, sem myndskreytti bókina, kiþptum blússunni yfir brjóstið á tröllskessunni þegar hún var að gefa börnunum brjóst. En ég haröneitaöi því." - Hvað þarfgóð barnabók 24

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.