Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.06.1999, Blaðsíða 25
Guðrún las fyrlr börnin á leikskólanum Sælukoti sem heilludust af töfrum sögunnar. Morgunblaðið/Golli að hafa til að bera að þínu mati? „Ég tel að það sé afar mikil- vægt að fullorönir hafi líka gaman af barnabókum. Sumir halda að það sé auöveldara að skrifa fyrir börn en full- orðna, en það er alrangt. Börn eru svo fullkomlega heiðarleg. Þau segja hreint út: „Þetta er asnalegt" ef þeim sýnist svo. Fyrstu árin í lífi barna eru svo mótandi og þess vegna er það heillandi verkefni að skrifa fyrir þau. Góð barnabók þarf að vera bók sem börn vilja lesa og því er fyrsta skilyröiö að hún sé aölaöandi í augum barnsins. Til þess að skrifa barnabók þarf að vera eitthvað eftir af barninu f manni sjálf- um. Það S ekki að hlífa börn- um heldur segja þeim sann- leikann. Þannig er hægt að hjálþa börnum aö takast á við alls konar erfiöleika og að eygja leið út úr þeim." SAMBAND LESANDA OG BÓKAR - Finnst þér þókin eiga undir högg að sækja á tímum mynd- banda og tölvuleikja? „Afþreyingarflóran hefur vax- ið til muna undanfarin ár en ég held að bókin sé ekki á undanhaldi. Bókin er svo allt öðruvísi miöill heldur en t.d. sjónvarp. Sérhver manneskja upplifir bók á sinn hátt og þaö er ekki hægt að taka frá henni. En fjölmiðlaefni upplifa allir eins, þar er ekki til staöar þetta beina samband sem er milli lesanda og bókar." - Eru útvarpsleikrit búin að missa töfrana? „Ég held að minna sé hlust- að á útvarpsleikrit nú en áður. En auövitað hlusta alltaf ein- hverjir á útvarpsleikrit og út- varpiö er og verður mjög sterk- ur miðill. Mér finnst það mjög virðingarvert af Ríkisútvarpinu að reyna að halda sínu striki og ráðast í þessa vinnu." - Hefur samfélagið breyst mikið síðan Jón Oddur og Jón Bjarni sprönguðu hér um göt- ur? „Ég er ekki viss um það. Þær bækur voru endurútgefnar nýlega og það kom mér á óvart hvað við þurftum litlu að breyta. Þær hafa elst mjög vel, mér sýnist börn í dag eiga við sömu vandamál að etja og þá, því börn verða alltaf börn.“ 25

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.