Morgunblaðið - 12.06.1999, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SlMI 6691100, SÍMBRÉF 6691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 12. JÚNÍ 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
AURSKRIÐUR úr Eyrarhlíð fylltu garða ofan við hús við Urðarveg í gærkvöldi og vatn flæddi inn í lqailara húsanna.
" Skriður féllu úr Eyrar-
hlíð að húsum á Isafirði
UNNIÐ að því að dæla vatni úr raðhúsi við Urðarveg í gærkvöidi.
AURSKRIÐUR féllu úr Eyrarhlíð
við ísafjörð í gærkvöldi ofan við
Urðarveg og Hjallaveg. Flæddi
vatn inn í kjallara tveggja húsa og
skriðurnar fylltu garðana fyrir ofan
húsin. Á ellefta tímanum í gær-
kvöldi var allt slökkvilið ísafjarðar
kallað út til að dæla vatni úr kjall-
■ara í fjölbýlishúsum við Urðarveg
en talsverður vatnselgur kom úr
hlíðinni. Almannavarnanefnd ísa-
fjarðar sat á fundi um miðnættið.
Ekki hafði þá verið gefm fyrir-
skipun um rýmingu húsa en nokkrir
íbúar við Urðarveg yfirgáfu hús sín
í gærkvöldi. Einn þeirra, Sigurjón
Sigurðsson, sagði að tugir aur- og
grjótskriðna hefðu komið úr fjallinu
frá því klukkan 18 í gærkvöld.
Fyrst hefðu komið aurskriður og í
kjölfar þeirra stórgrýti og loks
grjótskriður. „Mér er alveg hætt að
lítast á þetta,“ sagði hann.
Aimannavamanefnd Isafjarðar-
bæjar kom saman á fundi kl. 19
vegna skriðufalla úr Eyrarhlíð og í
tilkynningu lrá nefndinni sagði að
skurðir ofan byggðar, sem ætlaðir
eru til að taka við skriðum, hafi
fyllst og því sé mokað úr þeim eftir
þörfum með vinnuvélum. Var
ákveðið að standa vakt á svæðinu og
takmarka umferð. Einnig var staðin
vakt á Suðureyri ofan Sætúns en
þar féll aurskriða niður í hlíðarræt-
ur.
Skyndileg hlýindi
Skriðuföllin á Vestfjörðum koma í
kjölfar skyndilegra hlýinda en í gær
var um 15 stiga hiti í Bolungarvík.
Talsverður snjór hefur verið í fjöll-
um, sem hefur bráðnað hægt undan-
farið, en að sögn Odds Péturssonar,
starfsmanns Veðurstofunnar á Isa-
firði, kom í gær nokkuð skörp leys-
ing sem orsakaði víða aurskriður.
Oddur sagði að slíkt væri alvanalegt
á vorin en væri ívið meira núna þar
sem hlýnað hefði svo snögglega.
Aurskriður féllu í gær á vegi í Ós-
hlíð, Eyrarhlíð og Súðavíkurhlíð.
Lokuðust vegir á einstaka stað en
Vegagerðin opnaði veginn jafnóðum
með gröfu þar sem skriður höfðu
fallið.
Fuglar missa hreiður
I Eyjafirði voru í gær gífurlegir
vatnavextir í ám í kjölfar hlýind-
anna og er talið að hundruð fugla, í
það minnsta, hafi misst hreiður sín
þegar Svarfaðardalsá flæddi yfir
bakka sína.
■ Hundruð fugla/4
Tveggja
tíma leit
gerð að
neyðarsendi
NEYÐARSENDIR fór í gang í
flugskýli á flugvellinum við Tungu-
bakka í Mosfellssveit klukkan
16.30 í gær er hann datt niður úr
hillu. Sendar sem þessi fara í gang
við högg og eru í flugvélum og
skipum til að gera vart við slys.
Námu flugvélar í háloftunum norð-
an Skarðsheiðar merki hans vel og
var brugðist við til að leita sendinn
uppi. Var talið að merkin kæmu úr
flugvél í Borgarfirðinum og beind-
ist leit því einkum að flugvélum á
því svæði.
Þótt ekki hafi verið talið að um
raunverulegt slys væri að ræða,
vegna rækilegrar könnunar flug-
stjómar Reykjavíkurflugvallar á
flugumferð og vegna veðurskilyrða,
sem ollu því að mjög fáar einkaílug-
vélar voru í lofti, var engu að síður
send einkaflugvél á loft frá Borgar-
nesi til að nema neyðarmerkin.
Alllangan tíma, eða um tvær
klukkustundir, tók að rekja merki
neyðarsendisins til flugskýlisins á
Tungubakka, en vísbending um að
sendirinn væri annars staðar en í
Borgarfirðinum barst um síðir er
flugvél á flugi sunnan við Bláfjöll
tilkynnti flugstjóm að hún hefði
numið neyðarmerkin. Þyrla Land-
helgisgæslunnar hafði verið kölluð
út, samkvæmt venjubundnu ferli,
til að aðstoða við leitina að upptök-
um merkjanna, en við það var þó
naumlega hætt þegar upp komst
um neyðarsendinn, sem reyndist
nær en menn hafði grunað.
Hendir 3-4 sinnum árlega
Að sögn Ingvars Valdimarsson-
ar, aðalvarðstjóra hjá flugstjóm
Reykjavíkurflugvallar, koma tilvik
sem þessi upp þrisvar til fjóram
sinnum á ári. Hann sagði að ef slík
merki hefðu borist við betri flug-
skilyrði, þegar vitað væri um mikla
umferð einkaflugvéla, hefði flugvél
Flugmálastjómar verið send í loft-
ið, en hún er búin mjög nákvæmum
miðunartækjum til að miða út slík-
ar sendingar.
----------------
Kynna sér
fí skveiðistj órn-
un á Islandi
LANDBÚNAÐARNEFND brezka
þingsins kemur til íslands í næstu
viku til að kynna sér sjávarútveg
hér með áherzlu á fiskveiðistjómun.
Það er landbúnaðamefndin sem fer
með sjávarútvegsmál í Bretlandi
eins og víðar í Evrópu.
Bretamir koma til landsins síð-
degis á þriðjudag. Á miðvikudag
heimsækja þeir Hafrannsókna-
stofnun og Fiskistofu, ræða við
Ragnar Árnason prófessor og
snæða hádegisverð, þar sem jjeir
hitta meðal annars Áma
Mathiesen sjávarútvegsráðherra.
Síðdegis hitta þeir sjávarútvegs-
nefnd Alþingis, Sævar Gunnars-
son, formann Sjómannasambands
íslands, Kristján Ragnarsson, for-
mann og framkvæmdastjóra LIÚ,
og heimsækja höfuðstöðvar SÍF. Á
fimmtudag, 17. júní, heldur brezka
landbúnaðamefndin heim á ný, en
hittir fyrst Ellert Eiríksson, bæj-
arstjóra Reykjanesbyggðar.
tuw-
Greiðslustöðvun KÞ framlengd
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands eystra hefur
samþykkt framlengingu á greiðslustöðvun Kaup-
félags Þingeyinga um þrjá mánuði, eða til 10.
september nk. Beiðni um framlengingu var tekin
fyrir á Akureyri í gær.
Ragnar Baldursson hdl. mætti til þinghaldsins
fyrir hönd nokkurra kröfuhafa og eigenda við-
skiptavíxla, samtals að upphæð 55 milljónir
Jcróna og mótmælti framlengingu á greiðslu-
■' ~ 'ttöðvun félagsins. Hann vitnaði til lagaákvæða
máli sínu til stuðnings og benti jafnframt á óljósa
tilvist Kaupfélags Þingeyinga í framtíðinni.
Stefnt væri að því að selja allar eigur félagsins og
hætta rekstri þess.
Niðurstöðu áfrýjað til Hæstaréttar
Ragnar sagði að staðfesting á þessu kæmi
.' JÉfam í skjali endurskoðanda félagsins sem lagt
var fram við þinghaldið í gær. Hann sagði því
ekki hægt að ætla að ívilnanir kröfuhafa næðu
fram að ganga og að framhald málsins þjónaði
því engum tilgangi. Ragnar sagði að niðurstöðu
héraðsdóms frá í gær yrði áfrýjað til Hæstarétt-
ar.
Talið er að mismunur á eignum og skuldum
KÞ sé um 150 milljónir króna og að hægt verði að
greiða um 80% almennra krafna. Glsli Baldur
Garðarsson, aðstoðarmaður Kaupfélags Þingey-
inga á greiðslustöðvunartímabilinu, lagði fram
beiðni um framlengingu greiðslustöðvunar fé-
lagsins. í máli hans kom fram að almennar kröf-
ur í KÞ næmu 679 milljónum króna og að aðrir
kröfuhafar en umbjóðendur Ragnars Baldurs-
sonar myndu gefa eftir.
Verður hægt að loka skuldagatinu?
Gísli Baldur sagði að við mat á uppgjöri skulda
KÞ hefði verið gætt varfæmi í hvívetna. Hann
sagði þó að eignir væra augljóslega vanmetnar
og nefndi í því sambandi 15% hlut félagsins í
Fiskiðjusamlagi Húsavíkur, sem við mat á upp-
gjöri skulda var metinn á 130 milljónir króna á
sölugengi 1,5. Nafnverð eignar félagsins í FH er
um 86 milljónir króna og í máli Gísla Baldurs í
gær kom fram að gengi bréfanna væri nær því að
vera 2,2 til 2,5 og gengi það eftir myndi staða fé-
lagsins batna mjög mikið. Hann sagði jafnframt
að líkur væru til þess að aðrar eignir gætu skilað
hærri tekjum í búið en ráð var fyrir gert.
Fallið frá kröfu í þrotabú Aldins
„Þegar allt er talið saman er ekki ólíklegt að
gatið minnki verulega og jafnvel að það lokist al-
veg,“ sagði Gísli Baldur og bætti við að nauðsyn-
legt væri því að fá áframhaldandi vinnufrið. Hann
sagði jafnframt að ef greiðslustöðvun KÞ yrði
samþykkt yrði fallið frá kröfu í þrotabú Aidins.