Morgunblaðið - 17.06.1999, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FRJALSIÞROTTIR
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1999 C 3
Morgunblaðið/Golli
UNGA kynslóðin hópaðist að Þóreyju þegar færi gafst eftir að stökkmóti ÍR-inga lauk til þess
að fá hjá henni eiginhandaráritun.
ingar hjá fimleikafélaginu Björk í
Hafnarfirði 9 ára gömul. „Fram til
þess að ég fór að æfa fimleika hafði
ég bara verið að leika mér eins og
önnur böm á leikjanámskeiðum.
Ég æfði fimleika í tíu ár.“ Þórey
varð bikarmeistari í liðakeppninni
sex ár í röð með Björk. „Ég var yf-
irleitt á eftir Nínu Björk [Magnús-
dóttur] og Elvu Rut [Jónsdóttur] á
íslandsmótum. En ég varð þó eig-
inleikameistari 1993 og Islands-
meistari á tvíslá sama ár. Ég tók
síðast þátt í Islandsmeistaramót-
inu 1996.
Fimleikar era góður grunnur
fyrir margar íþróttir, ekki bara
stangarstökk. Þar skiptir miklu
máli að vera í góðri alhliða æfingu,
hafa fimi, jafnvægi auk þess sem
maður verður að temja sér aga og
læra að taka við leiðbeiningum um
tæknileg atriði frá þjálfara. Fim-
leikamaður sem vill ná árangri
verður að vera gagnrýnn á sjálfan
sig.“
Eftir tíu ár í ströngum fimleika-
æfingum vildi Þórey breyta til og
reyna sig á öðram vettvangi
íþrótta. „Mér fannst ég ekki vera
orðin gömul, það var meira vegna
þess að ég var farin að þreytast á
því að æfa það sama aftur og aftur
árið út í gegn.“
Ragnheiður Olafsdóttir, þjálfari
hjá frjálsíþróttadeild FH og ís-
landsmethafi í hlaupum, hafði sam-
band við Þóreyju og Nínu Björk
Magnúsdóttur þegar hún frétti að
þær væra hættar í fimleikum og
spurði þær hvort þær hefðu áhuga
á að reyna fyrir sér í stangar-
stökki. „Við höfðum aðeins prófað
stangarstökk árið áður en við hætt-
um í fimleikunum en ég ákvað að
hella mér út í íþróttina haustið
1996. Byrjaði reyndar fremur ró-
lega, æfði einu sinni í viku en fjölg-
aði síðan smátt og smátt æfingun-
um.
Ég fór meira af gamni en alvöra
að stunda frjálsíþróttir eftir að ég
rifaði seglin í fimleikunum. Ég
bjóst aldrei við að ná árangri í
frjálsíþróttum, enda fór ég ekki
með því hugarfari á mínar fyrstu
æfingar."
Hvað olli því að þú valdir stang-
arstökkið fremur en annað, nú
varst þú til dæmis liðtækur lang-
stökkvari?
„Forvitni, mig langaði einfald-
lega að prófa og athuga hvort ég
gæti náð einhverjum árangri. Síð-
an hjálpaði það einnig að Kristján
Gissurarson hvatti mig til dáða og
sagðist sjá í mér efni í stangar-
stökkvara.“
Þórey segist hafa stokkið yfix-
2,80 metra í fyrsta sinn sem hún
stökk á stöng og aðeins fundið fyrir
hræðslu. Eftir um það bil tveggja
mánaða æfingar hætti hún og fór
til Bandaríkjanna og var þar við
leik og störf í fjóra mánuði. Fyrri
hluta sumars 1997 kom hún heim
og fór þá að æfa af meiri alvöra en
áður og segja má að síðan hafi vart
fallið út æfingadagur.
Sumarið 1997 keppti hún í fyrsta
sinn utan landsteinanna í Evrópu-
meistaramóti unglinga, 20 ára og
yngri, sem fram fór í Finnlandi.
Þórey stökk 3,70 metra, bætti sig
um 10 sentímetra og hafnaði í
fjórða til níunda sæti. „Þetta var
mjög eftirminnilegt mót, ekki síst
vegna þess að ég var mjög stressuð
í keppninni." Helgina eftir mótið
bætti Þórey sig enn og stökk 3,80
metra á Meistaramóti íslands.
„Eftir hraðar framfarir staðnaði ég
aðeins og tók ekki eins öram fram-
fóram og áður.“
Hún viðurkennir að það hafi oft
verið býsna einmanalegt að æfa
stangarstökk hér heima, einkum á
sumrin. „Þá voram við Kristján
þjálfari oft tvö á æfingum, en yet-
urinn 1997 til 1998 byrjuðu nokkrir
strákar að æfa. Það var mikið
betra að fá einhvern félagsskap við
æfingamar. Þennan sama vetur
náði ég lágmarkinu til þátttöku á
EM innanhúss og það hvatti mig
ennfrekar til dáða og sagði mér að
ég væri á réttri leið.“
A síðasta ári keppti Þórey bæði
á Evrópumeistaramótinu innan-
húss og utan. A báðum mótunum
gekk henni allt í mót og felldi fjóra
metra í þrígang í undankeppni ut-
anhússmótsins. „Ég var mjög
stressuð og var að reyna nýjar
stangir og ýmislegt fleira varð til
þess að slá mig út af laginu. En ég
kom ríkari af reynslu til baka frá
báðum mótunum.
Á HM í Japan í vetur gekk mér
mun betur, stökk 4,20 og varð í ní-
unda til tíunda sæti, en hefði viljað
fara aðeins hærra. Mér tókst hins
vegar að létta af mér þeim álögum
sem mér fannst hvfla á mér á stór-
mótum. Þegar ég stökk yfir byrj-
unarhæðina í Japan, 3,84 metra,
hélt ég um stund að ég færi ekki
hærra, en sá kvíði hvarf og var
ástæðulaus."
Líkar vel í Svíþjóð
Þórey ákvað að fara til Svíþjóðar
sl. haust og æfa grein sína með
Völu Flosadóttur, undir hand-
leiðslu þjálfara hennar, Pólverjans
Stanislavs Szcyrba. En hvað réð
því að hún valdi Svíþjóð?
„Stanley þjálfari hafði samband
við mig í kringum EM í Valencia í
febrúar í fyrra og spurt hvort ég
vildi ekki koma út og æfa með
Völu. Mér var heiður að boðinu og
velti því talsvert fyrir mér í fyrra-
sumar, ásamt boði frá bandarísk-
um háskóla. Hins vegar fór tvenn-
um sögum af skólastyrk þeim sem
mér stóð til boða við þann skóla,
þannig að ég var í hálfgerðri
klemmu um tíma. Að endingu lét
ég slag standa, ákvað að fara til
Svíþjóðar í tvo til þrjá mánuði og
æfa með Völu og sjá til hvemig
mér gengi. Mér líkaði strax vel og
lærði strax mikið af Völu og St-
anley þannig að ég tók þá ákvörð-
un að vera áfram í Svíþjóð.
Síðan komst ég inn á mánaðar-
legan styrk frá Afreksmannasjóði
ISI um áramót og það breytti öllu
fyrir mig og gerði mér í raun kleift
að vera ytra, án styrksins væri það
ekki mögulegt. Nú get ég einbeitt
mér að því að æfa íþrótt mína.“
Þórey lauk stúdentsprófi sl. vor
og daginn áður setti hún Islands-
og Norðurlandamet í stangar-
stökki utanhúss, 4,18 metra, en átti
það aðeins í nokkra daga, þá hafði
Vala endurheimt það. Þórey var
ekkert í skóla sl. vetur en segir það
koma til greina að vera í nokkram
fögum í háskólanum í Lundi á kom-
andi vetri „til þess að hafa eitthvað
fyrir stafni, milli æfinga,“ eins og
hún orðar það. I framtíðinni segist
hún stefna að því að fara í verk-
fræðinám og sem stendur er líkleg-
ast að umhverfisverkfræði verði
fyrir valinu.
„I fyiTavetur var ég sjálfboðaliði
í skóla fyrir hreyfihömluð börn.
Þar lærði ég sænskuna og var auk
þess í mjög gefandi starfi. Sænsk-
an er að koma hjá mér, að minnsta
kosti er ég hætt að tala ensku við
Svíana, enda era þeir ekkert hrifn-
ir af því.“
í skugga Völu
Er Stanley mjög kröfuharður
þjálfari?
„Hann er kröfuharður og verður
að vera það. Allir þjálfarar sem
vilja ná árangri verða að gera kröf-
ur. Mér líkar mjög vel við hann og
treysti honum fullkomlega enda
hefur það skilað árangri.“
Þórey segir það bara vera betra
fyrir sig að standa í skugga Völu
Élosadóttur, Islands- og Norður-
landamethafa. „Mér finnst gott að
standa í skugganum, mér líður
ekki vel í sviðsljósinu, þannig að ég
er ósköp sátt við mína stöðu í dag.“
Þórey segist líka sérlega vel
samstarfið við Völu. „Hún aðstoðar
mig mikið og á þeim tímabilum
sem við eram í erfiðum æfingum
hvetjum við hvor aðra áfram,
þannig að ég held að samstarfið sé
af hinu góða.“
Nú eruð þið Vala landar og æf-
ingafélagar; hvernig lítur þú á
hana sem keppinaut þinn?
„Ég ber mikla virðingu fyrir
Völu, sem er frábær einstaklingur
hvort heldur er utan eða innan
íþróttanna. Auk þess sem við eram
góðir félagar. Síðan þegar út í
keppni er komið er hún eins og
hver annar keppinautur."
Ertu undir það búin að vinna
Völu, verða betri en hún?
„Alls ekki eins og ástatt er nú.
Hreint út sagt er ég ekki tilbúin til
að vinna hana og ég er heldur ekki
viss um að almenningur og fjöl-
miðlar séu undir það búnir heldur.
Ennþá finnst mér á einhvern hátt
rétt að hún vinni.“
Stefnir þú að því að vera áfram í
Svíþjóð við æfíngar?
„Að minnsta kosti er það stefnan
fram yfir Olympíuleikana í Sydney
á næsta ári. Þangað stefni ég
ótrauð og vona að það takist. A^
meðan á þeim undirbúningi stend-
ur tel ég að mér sé vel borgið í Sví-
þjóð. Eftir leikana ætla ég að end-
urmeta stöðuna. Draumurinn er að
geta æft hérna heima að minnsta
kosti í hálft ár eftir leikana, en það
verður að koma í ljós þegar þar að
kemur.“
Hápunktur sumarsins hjá
Þóreyju verður heimsmeistaramót-
ið í Sevilla sem fram fer í ágúst.
Allur undirbúningur vorsins miðar
að því að vera í sem bestri æfingu
þegar á mótið kemur. Lágmarkið
til þátttöku er 4,35 metrar og ár- '
angur innanhúss tekinn gildur
þannig að Þórey getur verið nokk-
uð afslöppuð á mótum sumarsins,
þarf ekki að berjast við eitthvert
lágmark og vera með öndina í háls-
inum yfir því á hverju móti.
„Um áramótin setti ég mér
ákveðið markmið fyrir sumarið en
vil ekki segja hvert það er, mark-
mið á maður fyrir sjálfan sig.“
Með góðum árangri síðasta
vetrar, 4,36 metrum, hlýtur þú að
hafa nálgast markmiðið?
„Ekki alveg, en ég er komin
nærri því sem ég stefndi að.“
Stekkur þú yfír 4,50 metra í
sumar?
„Nei, ég geri það ekki í sumar,
það held ég að hægt sé að útiloka,
þótt vissulega sé alltaf erfitt að
slá einhverju föstu.“
Ertu haldin fullkomnunar-
áráttu?
„Kannski, ég reyni að minnsta
kosti að leggja mig alla fram við
það sem ég tek mér fyrir hendur,
ef ekki þá finnst mér alveg eins
gott að sleppa því að taka eitthvað
að sér eða ganga í eitthvert verk.“
FederaF Expres
verður haldið hjá Golfklúbbnum
Setbergi sunnudaginn 20. júní 1999.
Keppnisfyrirkomulag höggleikur með og án forgjafar.
Glæsileg verðlaun
Án f.orgjafar 1. sæti Utanlandsferö að verðmæti kr. 30 þús.
2. sæti Vöruúttekt að verðmæti kr. 20 þús.
3. sæti Vöruúttekt að verðmæti kr. 10 þús.
Með foraiöf 1. sæti
2. sæti
3. sæti
Utanlandsferð að verðmæti kr. 30 þús.
Vöruúttekt að verðmæti kr. 20 þús.
Vöruúttekt að verðmæti kr. 10 þús.
Þrenn glæsileg nándarverðlaun
Ræst verður út frá
kl.8.00 til 10.00 og frá
kl. 13.00 til 15.00
Skráning í síma 565 5690