Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 28

Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 28
hulduher og fjölmörg önnur samtök innan samtakanna; þetta er mjög margslungiö samfélag sem viö vitum fjarska lítið um og getur veriö mjög heillandi." Hulduher?... „Já," svarar Shatner og hlær. „Þarna er hópur manna sem lítur svo á að hann sé f hernum og þaó hefur jafnvel myndast stéttaskipting innan hersins. En þetta er jaöarhóp- ur og vissulega eru til aðdá- endur Star Trek sem hafa misst allt jarösamband." Þú hefur skrifað fjölmargar vísindaskáldsögur. Hvenær kviknaði sá áhugi? „Ég hef alltaf haft áhuga á vísindaskáldskap," svarar Shatner. „Hann efldist viö þaö að leika í myndum í anda vísindaskáldsagna. Það góöa viö vísindaskáldskap er tví- þætt. Annars vegar er þetta æfing í hreinu hugarflugi. Hins vegar eru skáldsögur oftast nær byggöar á rann- sóknarvinnu, t.d. er ég aö lesa skáldsögu sem gerist f banka og er skrifuó af banka- starfsmanni. Ég hef ekki tíma fyrir rannsóknarvinnu og þá er gott aö geta skrifað vísinda- skáldsögur; mín sýn á fram- tíöina er jafngild sýn hvers sem er.“ EKKI ÓLÍKUR SJÁLFUM MÉR Þú segir að skipstjórinn Kirk sé að eldast í nýrri bók þinni; hvernig er komið fyrir honum? „Hann er oröinn miöaldra og er enn myndarlegur, eftir- tektarsamur og meö á nótun- um. Ekki ósvipað og ég sjálf- ur." „Á hverju hefurðu áhuga fyrir utan Star Trek, - hvað annað fær þig til að brosa að lífinu? „Þú kemur mér til aó hlæja," segir hann. „Þú og bláu augun þín og bleiku kinn- arnar, - mér finnst þetta mjög broslegt." Hehemm, þakka þér fyrir, svarar blaðamaður hikandi. Eitthvað fleira? „Allt sem er kaldhæðnis- legt," segir hann. „Ef maður er heilsuhraustur og úthvíldur þá hefur Iffiö upp á margt aö bjóöa. Annars verður maður taugaveiklaöur og líður ekki vel." Hvernig kom það til að þú byrjaðir í þáttaröðinni um Star Trek? 28 Búningamir og förðunin er hvort tveggja æði skrautlegt í Star Trek og hætt við að vinnuveit- endum bregði í brún þegar áhangendurnlr mæta þanníg uppábúnir í vinnu. Á STAR TREK ALLT AÐ ÞAKKA Eitthvað hlýtur þú að hafa fyrir stafni fyrir utan Star Trek. „Veistu," segir Shatner og lítur ábúö- arfullur á blaóamann. „Þú hefur ekki hug- mynd um hversu áhugavert líf mitt er. Vinir mínir líta á mig og segja: „Ég vildi að ég lifði þínu Iffi." Ævi mín er eins áhuga- verö og fjölbreytileg og raun ber vitni vegna Star Trek. Svo ég hugsa aldrei sem svo: „Ég vildi óska aö þetta hefði ekki gerst." Ég er bara þakklátur fyrir aö hafa öðlast viðurkenningu á alþjóöavett- vangi vegna Star Trek og geri mér grein fyrir aö það er bara vegna Star Trek sem þetta viötal á sér staö." Ertu fjölskyldumaður? „Já, ég á konu og þrjú börn," svarar hann. „Og þaö er líka Star Trek aö þakka." Horfðu afsprengi þín á Star Trek í æsku? „Nei, ég hélt þeim frá því," svarar Shatner. „Þau vissu ekki um Star Trek f mörg mörg ár." Hvað gerðist þegar þau komust að því? „Þau gengu í aðdáenda- klúbbinn." Shatner skaut aftur upp kollinum i kvikmyndinni „Star Trek Generations" árið 1994. „Ég kom oft fram í sviös- spaugi í beinum sjónvarpsút- sendingum í New York. Þaö hafði verið gerður upphafsþátt- ur af Star Trek meö öörum leikara, Jeffrey Hunter. Fram- leiöendurnir gátu ekki selt hann en NBC-sjónvarpsstööinni líkaöi hugmyndin á bakviö þátt- inn og sögðu: „Ráöið nýja leik- ara." Þeir sáu mig í sjónvarp- inu og buðu mér hlutverkið." Af hverju tókstu tilboðinu? „Vegna þess aö ég sá þeg- ar hvað hugmyndin var góö." Enn á eftir að gera tvær Stjörnustríðsmyndir. Myndir þú íhuga að taka að þér hlutverk í þeim ef þér byðist það? „Nei, ég held aö þaö yröi ekki ráölegt," svarar hann og hristir höfuöið. Hvernig hefði líf þitt orðið ef skipstjórinn James T. Kirk hefði ekki komið til sögunnar? „Ég hefði haldið áfram á sömu braut og orðið forseti Bandaríkjanna," svarar Shatner, „og ég heföi dregiö mig í hlé eftir þaö og gerst for- seti alheimsins." En þú ert frá Montreal í Kanada þannig að þetta verð- ur að teljast dáiítið tangsótt er það ekki? spyr blaðamaður kankvísiega. „Ég heföi breytt lögunum," svarar Shatner ákveöinn og viðtalið er aö snúast upp í vís- indaskáldsögu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.