Morgunblaðið - 23.06.1999, Side 46
DRAMA
Allt í botni -
Pump Up the
Volume ('90)
Frumsýningar
/ Christian Slat- /
9 er leikur ung- l
an mann, nýfluttan til Arizona frá
New York. Á erfitt með að aðlagast.
Opnar útvarpsstöð til að bæta úr
einsemdinni. Slater er ekki alls
varnað þótt hæfileikarnir gneisti
ekki af honum, og heldur meðal-
unglingamynd gangandi. Sýn, 3.
júlí.
Brotsjór - White Squall {'96)
v Fokdýr og hádramatísk
9 (Bekkjarfélagið heldur til
sjós), en yfir höfuð mislukkað pen-
ingabruðl með svo lélegum brellum
aðjafnvel örgustu landkrabbar ættu
að hrista höfuðið yfir útkomunni.
Handritið vont, heilu persónurnar
úti að aka (t.d. John Savage) og
fátt sem gleður skilningarvitin. Eitt
af mörgum feilsporum Jeffs Bridges
og leikstjórans, Ridley Scott.
Bfórásin, 30. júní.
Carrington ('95)
jy Litskrúðugt ástalff einstakling-
9 anna er til umfjöllunar í sann-
sögulegri mynd um listamannahóp
sem kenndi sig við Bloomsbury. Þ.á
m. voru listmálarinn Dora Carrington
(Emma Thompson) og rithöfundurinn
Lytton Strachey (Jonathan Pryce). Sá
böggull fylgir skammrifi að hún er
gift, hann hommi. Pryce er fremstur
meðal jafningja í glæsilegum leikhóp
sem fer vel með litríkan og kjarnyrt-
an texta Christophers Hampton
(Dangerous Liaisons). Bíórásin, 24.
júní.
Heimkoman -
Coming Home (78)
i/ Grunnar og stundum forkast-
9 anlegar skoðanir fröken
Fonda, Waldo Salt (handritshöfund-
ur) og leikstjórans Hal Ashby, á
róstutímum Víetnamstríðsins, eink-
um afstaða Fonda til hermanna
sinnar eigin þjóðarsem börðust
samkvæmt skipunum fyrir land sitt í
vonlausu stríði sem tapaðist og Ví-
etnam varð að stærsta fátækrahverfi
veraldar, gleyptu ekki allir hráar.
Það breytir engu um að þessi
stórpólitíska mynd nær vel afstöðu
frjálslyndra og vinstrisinnaðra
Bandaríkjamanna á tímum þessa
óþurftarstríðs. Fonda leikur sjálf-
þoðaliða á sjúkrahúsi sem gift er at-
vinnuhermanni ÍVÍetnam (Bruce
Dern). Annast slasaða hermenn á
meðan bóndi hennar sinnir skyldum
sínum á blóðvellinum. Þau verða
ástfangin, Fonda og einn sjúkling-
anna, lamaður hermaður sem leik-
inn er af mikilli snilld af Jon Voight,
sem hlaut Óskarsverðlaunin, ásamt
Fonda og Salt. Dern stendur þeim
lítt að baki. Auk þess var myndin til-
nefnd til fjölda annarra verðlauna.
Bíórásin, 1. júlí.
Land og frelsi -
Land and Freedom ('95)
ji Það sannast hið fornkveðna,
9 “Byltingin étur börnin sín", í
nærskoðun vinstrisinnaða kvik-
myndajöfursins Keris Loach, á borg-
arastyrjöldinni á Spáni. Þar sem
heittrúaðir kommúnistar úr öllum
heimshlutum létu að lokum í minni
pokann fyrir Frankó. Loach bendir á
að orrustan tapaðist á fleiri vígstöðv-
um. Hugsjónir myrkvuðust, jafnvel
grundvallarsjónarmið jafnréttis og
bræðralags guldu afhroð. Bíórásin,
25. júní.
Magnús ('89)
i Leikstjórinn og handritshöf-
9 undurinn Þráinn Bertelsson
hefði mátt draga um það ákveðnari
línur hvort hann ætlaði að gera gam-
anmynd eða drama. Alvaran þung-
lamaleg en gamanþátturinn léttleik-
andi með skemmtilegum persónum í
fyndnum kringumstæðum. Þetta
tvennt blandast illa saman og skað-
ar heildarútkomuna. Egill Ólafsson,
Þórhallur Sigurðsson, Jón Sigur-
björnsson, Guðrún Gísladóttir.
Bíórásin, 27. júní.
Skítverk - Blue Collar (78)
ij Fyrsta og besta mynd leik-
9 stjórans Pauls Schrader er
kaldhæðin frásögn af fáséðu fyrir-
brigði í bandarískum myndum: iðn-
verkamönnum. Richard Pryor, Harvey
Keitel og Yaphet Kotto leika vinnufé-
laga í bílaverksmiðju sem grípa til
örþrifaráða þegar endarnir ná ekki
saman. Athyglisverð og vel gerð
mynd. Stöð 2, 26. júní.
QAMANMYNDIR
Eftirskjálftar -
Tremors 2: After-
shocks ('95)
/ Framhald
9 bærilegrar
aulagrínmyndar um mannætu-
maðka stendurfrummyndinni tals-
vert að baki hvað snertir handrit og
leikstjórn og köttur kominn í ból
Kevins Bacon. Fred Ward er boru-
brattur einsog fyrri daginn. Stöð 2,
26. júní.
Ace Ventura; Náttúran kallar -
Ace Ventura; When Nature Calls
('95)
/ Kvikmyndaframleiðendur
9 fundu gullnámu í Jim Carrey
en önnur myndin um gæludýrasþæj-
arann Ventura er dáðlaus prump- og
aulabrandarasúpa frá handritshöf-
undinum. Aðeins fyrir harðsvíruðustu
aðdáendur gamanleikarans, þó langt
fyrir neðan hans virðingu. Stöð 2,
25. júní.
í djörfum leik -
Dirty Mary, Crazy Larry (74)
ji Galgoþagamanmynd um
9 mannrán, smáglæpi, hrað-
skreiða bíla og ungt og óstýrilátt par
sem þau leika furðu vel, Peter Fonda
og kyntáknið Susan George. Útkom-
an fislétt grín að hætti tíðarandans,
það kemur í Ijós hvernig hún hefur
elst. Stöð 2, 3. júlí.
Max Dugan snýr aftur -
Max Dugan Returns ('83)
ii Miðaldra kennslukona
9 (Marsha Mason), býr við
þröngan kost ásamt syni sínum
(Matthew Broderick). Skyndilega
birtist faðir hennar (Robards), sem
hljóp frá fjölskyldunni fyrir löngu, í
dyrunum. Maðurinn er alræmdur
fjárhættuspilari, kvennabósi, sælkeri,
tugthúslimur, heimspekingur og
drabbari, sem fær loks inngöngu er
hann segist eiga skammt eftir ólifað.
Kemur í Ijós að karl er múraður og
tekur að ausa stórgjöfum yfir
mæðginin, sem Mason á erfitt með
að fela fyrir augum kærastans (Don-
ald Sutherland) sem til allrar bölvun-
ar er lögga! Lauflétt og oft bráðfynd-
in, enda byggð á leikriti eftir Neil
Simon, sem býður upp á skemmti-
legar uppákomur sem nýtast fag-
manninum Herbert Ross. Stöð 2,
27. júní.
Ofurhetjan - Hero at Large (92)
éAtvinnulaus leikari (John Ritt-
er) fær íhlaupavinna við
kynningu á kvikmynd og klæðist f
því tilefni búning ofurhetju. Tekur
hlutverkið fullalvarlega þegar þlá-
kaldur raunveruleikinn fiækir at-
burðarásina. Úr verður bærileg
gamanmynd og Ritter engum líkur.
Fæstir þola hann, reyndar, en hann
kom þægilega á óvart í hádramat-
ísku hlutverki. í Sling Blade. Sýn,
27. júnf.
SPENNUMYNDIR
About Last Night
('86)
ÉUng hjón búa
saman en allir
í kringum þau eru
einhleyþir og gæinn á erfitt með að
finna sig í aðstæðunum. Ágætlega
gerð mynd með fullt af unglingaleik-
urum, (Rob Lowe, Demi Moore,
Elizabeth Perkins), að fikra sig upp í
fullorðinshlutverk. Gerð eftir leikriti
David Mamets. RUV, 3. júlí.
Áflótta-
North By Northwest ('59)
tiy Einn besti spennutryllir
9 meistara Hitchcocks er linnu-
laus eltingaleikur kaupsýslumanns
(Cary Grant) um þver og endilöng
Bandaríkin, undan fjandsamlegum
erindrekum sem telja hann njósn-
ara sem veit of mikið. Mikil spenna,
rómantík og stórkostleg atriði, sem
eru með þeim bestu í kvikmynda-
sögunni; frábær Grant, Eva Marie
Saint og James Mason, gera mynd-
ina að ódauðlegri afþreyingu. Sýn,
2. júlí.
46