Morgunblaðið - 25.06.1999, Qupperneq 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
@ rjj tml>Ifií>ií>
1999
Arnar byrjar
á Highbury
MANCHESTER United mun
hefja titilvörnina í ensku úrvals-
deildinni gegn Everton á Godison
Park í íyrsta leik ensku úrvals-
deildarinnar sem hefst 7. ágúst.
Arsenal mætir Arnari Gunnlaugs-
syni og félögum í Leicester á Hig-
hbury
Eftirtaldir leikir verða í fyrstu
umferð ensku úrvalsdeildarinnar:
Arsenal - Leicester, Chelsea -
Sunderland, Coventry - Sout-
hampton, Everton - Manchester
United, Leeds - Derby, Middles-
brough - Bradford City, Newcastle
- Aston Villa, Sheffield Wednesday
- Liverpool, Watford - Wimbledon
og West Ham - Tottenham.
FOSTUDACUR 25. JUNI
TENNIS / WIMBLEDON
BLAÐ
c
Einbeiting..
ANDREW Uie frá Ástralíu er tilbú-
inn - hann horfir á boltann áður en
hann slær honum yfir á vallarhelm-
ing Hollendingsins Sjeng Schalken
á Wimbledon-mótinu, sem stendur
yfír í Englandi. Ilie, sem er númer
62 á heimslistanum, mátti þola tap
fyrir Schalken þrátt fyrir einbeit-
ingu 6-4 6-1 2-6 6-3.
Lavrov
til Kiel
ÞÝSKU handknattleiks-
meistararnir, Kiel, hafa gert
samning við rússneska
landsliðsmarkvörðinn And-
rei Lavrov um að hann verji
mark liðsins á næstu leiktíð,
en samningurinn er til eins
árs. Lavrov, sem er 37 ára,
hefur undanfarin ár leikið
með Niederwiirzbach en 1'
vor varð hann atvinnulaus
eftir að félagið var lýst
gjaldþrota. Rikti um tíma
nókkur óvissa hvert, Lavrov
myndi halda, en í framhaldi
af góðri frammistöðu hans á
HM í Egyptalandi á dögun-
um gerði Kiel honum tilboð
þrátt fyrir að hjá félaginu sé
hinn sterki norski mark-
vörður Steinar Ege. Lavrov
var m.a. valinn í úrvalslið
heimsmeistaramótsins, en
hann hefur leikið 213 lands-
Ieiki fyrir Rússland og Sov-
étríkin.
Sturm Graz til-
búið að kaupa
Ríkharð fyrir
60 milljónir
AUSTURRÍSKA félagið Sturm Graz hefur
gert norska félaginu Viking tilboð í íslenska
landsliðsmanninn Ríkharð Daðason. Sturm
Graz hefur þegar keypt sænska varnarmann-
inn Roger Nilsen fyrir komandi timabil og
vantar framherja og er Ríkharður sagður
þar efstur á óskalistanum. Tilboðið til Viking
er talið yera á bilinu 50 til 70 milljónir
króna. Áður hafði skoska liðið Hibernian,
sem Ólafur Gottskálksson leikur með, gert
tilboð í Ríkharð upp á 30 milljónir, en því var
hafnað.
Bjarne Berntsen, frarn-
kvæmdastjóri Viking, stað-
festi í samtali við Stavan-
ger Aftenbladid í gær að
rétt væri að tilboð væri
komið í Ríkharð frá aust-
urríska félaginu. „Ég get
ekki upplýst hve hátt til-
boðið er, en það eina sem
ég get sagt, er að tilboðið
er betra en frá Hibernian,
en er sjálfsagt of lágt,“
sagði hann.
Stuttgart hefur einnig
verið að skoða Ríkharð að
undanförnu og líklegt talið
að tilboð berist frá þýska
félaginu á næstu dögum.
Reuters
Flutningur
á stöngum
Þóreyjar
brást
ÞÓREYJU Eddu Elísdóttur,
stangarstökkvara úr FH, var
boðið til þátttöku á alþjóðlegu
frjálsíþróttamóti í Þessalóníku
í Grikklandi í fyrrakvöld, en
þetta átti að vera fyrsta mót
hennar á keppnistímabilinu.
Af því varð þó ekki þar sem
grísku móthaldararnir gerðu
engar ráðstafanir með flutn-
ing á stöngum Þóreyjar fyrr
en um seinan, að sögn Vé-
steins Hafsteinssonar, um-
boðsmanns Þóreyjar. Var
þetta mál allt hið mesta klúð-
ur af hálfu mótshaldara.
Þórey ætlar að opna keppnis-
tímbilið á móti í Kuortane í
Finnlandi á laugardaginn.
Þórey hefur verið meidd í
mjóbaki frá því síðari hluta
vors, að sögn Vésteins, en er
óðum að ná sér á strik. Meiðsl-
in gerðu vart við sig í fram-
haldi af einstaklega erfiðum
æfingum síðari hluta vetrar og
Fylkir leitar að erlendum leikmanni
Iýliðar Fylkis í 1. deild karla í
handknattleik leita að erlendum
leikmanni til þess að stykja leik-
mannahópinn fyrir næsta vetur.
Einar Þorvarðarson, sem nýverið
framlengdi samning sinn við Fylki
til tveggja ára, sagði að framundan
væri krefjandi verkefni hjá liðinu.
„Fæstir leikmanna hafa leikið í 1.
deild og markmiðið er að styrkja
liðið fyrir veturinn. Meðal annars
er stefnt á að fá erlendan leikmann
til liðsins," sagði Einar, en fyrir
eru hjá liðinu tveir erlendir leik-
menn: Rey Guiterez, markvörður
frá Kúbu, og Branislav Dimitrijevic
frá Júgóslavíu.
Einar sagði að sjálfsagt yrði
talið að Fylkir færi niður eftir eitt
tímabil enda hefðu nýliðar síðustu
ára fallið beint niður þrátt fyrir
liðsstyrk. „Við ætlum hins vegar að
leggja okkur alla fram við þetta
verkefni og sjá hvort það dugi ekki
til þegar upp verður staðið.
Hermann Erlingsson, formaður
handknattleiksdeildar Fylkis,
sagðist ánægður með að nýr samn-
ingur við Einar væri loks í höfn.
„Samningaviðræður hafa tekið
talsverðan tíma en nú geta Fylkis-
menn snúið sér að því að búa liðið
undir átökin sem framundan eru.
Við gerum okkur grein fyrir því að
næsti vetur verður liðinu erfiður.
Fylkir hefur áður komist upp í 1.
deild en fallið niður. Nú er mark-
miðið að mæta með lið sem getur
haldið sér í deildinni," sagði Her-
mann.
SKYLMINGAR: KEMST SIGRÚN ERNA GEIRSDÓTTIR Á HM/C7