Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999 C 7-t'
IÞROTTIR
SKYLMINGAR
Kemst Sigrún á HM?
Sigrún Ema Geii-sdóttir er í 45.
til 60. sæti heimslista kvenna í
skylmingum með höggsverði og
takist henni að halda því sæti fram
á haustið hefur hún unnið sér inn
þátttökm-étt á heimsmeistaramót-
inu sem fram fer í Seoul í S-Kóeru í
nóvember. Sigrún hefur síðustu
mánuði tekið þátt í fjórum heims-
bikarmótum, en þau gefa stig á
heimslistann, og hefur árangurinn
fleytt henni í þessa stöðu á listan-
um. Takist henni að vinna sér þátt-
tökurétt á heimsmeistaramótinu
yrði hún fyrst íslenskra skylminga-
manna til þess.
Á fyrsta heimsbikarmótinu sem
Sigrún tók þátt í, í Orléans í Frakk-
landi, hafnaði hún í sæti á milli 30 og
40, en keppendur voru nærri 100.
Alls komust 64 fjórir þeiira áfram í
útsláttarkeppnina. í henni vann Sig-
rún fyrstu viðureignina en tapaði í
annaiTÍ umferð. Ásamt Sigrúnu tóku
Guðrún Jóhannsdóttir og Þorbjörg
Ágústsdóttir einnig þátt en þeim
vegnaði ekki eins vel og Sigrúnu.
Því næst kepptu Sigrún og Guð-
rún þátt í móti í Boston í Bandaríkj-
unum. Þar náði Sigrún sér ekki á
strik, hafnaði í 67. sæti. Guðrún var
betri og hafnaði í 45. sæti en alls
voru keppendur 75 á mótinu.
Þriðja heimsbikarmótið sem ís-
lenskir skylmingamenn tóku þátt í
var haldið í Koblenz í Þýskalandi.
Keppendur voru alls 75 og komst
Sigrún í 64 manna úrslit. Vann hún
fyrstu viðureign þar en tapaði þeini
næstu og varð í 44. sæti. Þorbjörg
tók einnig þátt en var í 74. sæti.
Snemma í júní fóru Sigrún og
Guð.rún á mót í mekka skylmingaí-
þróttarinnar í Þýskalandi, bæinn
Tauberbischofsheim. Þangað
stefndu alls 64 skylmingamenn til
keppni í kvennaflokki, en einnig var
keppt í karlaflokki. Sigiún náði sér
sérlga vel á strik á þessu móti,
hafnaði í 20. sæti, sem er það besta
sem hún hefur náð til þessa og gaf
henni um leið mikilvæg stig á
heimslistann. Guðrún varð í 57.
sæti. Síðasta heimsbikarmótið á
þessu keppnistímabili fór fram í
Havana á Kúbu um síðustu helgi,
en þangað fóru íslenskir skylminga-
menn ekki.
„Það hefur verið mjög skemmti-
legt og lærdómsríkt að taka þátt í
þessum mótum, auk þess sem það
er góð tilbreyting frá því að vera að
eiga alltaf við sömu andstæðingana
hér á landi,“ segir Sigrún Erna,
sem notið hefur styrks frá Hafnar-
fjarðarbæ til að taka þátt í mótun-
um. „Einkum var ánægjulegt að
keppa í Tauberbischofsheim. Þar
var aðstaðan einstök og mótið fékk
mikla athygli enda gríðarlegur
áhugi fyrir íþróttinni í bænum.“
Sigrún tók upp æfingar af fullum
krafti snemma í ár eftir að þær
höfðu legið niðri um nokkurt skeið
meðan hún stundaði nám í Dan-
mörku. „Það er gaman að vera
komin á fulla ferð að nýju og von-
andi tekst mér að vinna mér sæti á
heimsmeistaramótinu, möguleikinn
er fyrir hendi.“
Kristinn áfram
í efsta flokki
afreksmanna-
sjóðs
Á FUNDI framkvæmdanefndar
Iþrótta- og ólympíusambands Is-
lands í sl. viku var ákveðið að end-
urnýja y langtímastyrktarsamning
við SKÍ til eins árs vegna Kristins
Björnssonar skíðamanns. Hann
verður áfram í efsta styrktarflokki
afreksmannasjóðs, fær 160 þúsund
krónur á mánuði til 30. apríl á
næsta ári.
Þá var samþykkt að veita Fim-
leikasambandinu 200 þúsund krón-
ur vegna landsliðsverkefna, Hand-
knattleikssambandinu 800 þúsund
vegna þátttöku ungmennalandsliðs
kvenna í heimsmeistaramótinu í
Kína í sumar og Iþróttasambandi
fatlaðra veitt 200 þúsund krónur í
styrk.
MOTORKROSS
IL
GOLF/EM UNGLINGA
Morgunblaðið/Jón Hafsteinn Magnússon
RAGNAR Ingi Stefánsson og Viggó O. Viggósson í baráttu og að hringa aðra keppendur í fyrstu
umferð mótsins að Laugalandi.
Ragnar keyrði besl
að Laugalandi
Jón velur ung-
mennalandsliðin
JÓN Karlsson, landsliðseinvaldur
unglinga í golfi, tilkynnti í gær
hópinn sem keppa mun á Evrópu-
meistaramótum unglinga í næsta
mánuði. Keppa drengir í Svíþjóð og
stúlkur í Finnlandi, en mótin fara
fram 6. til 10. júlí nk.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslend-
ingar senda stúlknaflokk á Evrópu-
mótið og Jón sagði í gær að menn
renndu blint í sjóinn hvað það varð-
aði. „Stefnan er auðvitað að gera sitt
besta, en það er ánægjulegt að sjá þá
miklu breidd sem er hjá ungum
kylfingum hér á landi, hvort sem eru
drengir eða stúlkur," segir Jón.
Hópurinn æfir saman þessa dag-
ana og mun gera fram að mótinu í
næsta mánuði. I drengjahópnum eru
Gunnai- Þór Gunnarsson, Gunnar Þór
Jóhannsson, Örlygur Helgi Gríms-
son, Guðmundur Ingvi Einarsson,
Sigurþór Jónsson og Bii'gir Már Vig-
fússon. í stúlknaliðinu eru Helga Rut
Svanbergsdóttir, Nína Björk Geirs-
dóttir, Kolbrún Sól Ingólfsdóttir og'
Kristín Elsa Erlendsdóttir.
Karl er þjálfari beggja liða, en mun
fylgja drengjaliðinu til Svíþjóðar
ásamt Þóri Bragasyni. Með stúlkna-
liðinu verða í för Olga Lísa Garðars-
dóttir og Kai'l Ómar Karlsson.
QPNA EITVtSKIPS
golfmótið á Nesvelli
laugardaginn 26. júní 1999
Rástímar frá kl. 8-10 og 13-15.
Verðlaunaafhending um kl. 19.
Stórglæsileg verðlaun fyrir:
1., 2. og 3. sæti með og án íorgjafar.
Nándarverðlaun verða veitt á 2./11. braut og 5./14. braut
Skráning í golfskála í síma 561 1930.
Þátttökugjald kr. 2.000.
Golfklúbbur Ness
r......... ........\
ÖNNUR umferð fslandsmótsins í mótorkrossi fór fram að
Laugalandi í Eyjafjarðarsveit um síðustu helgi á braut sem
akstursdellukallinn Finnur Aðalbjörnsson hefur útbúið með hjálp
góðra vina. Framkvæmd og aðbúnaður var til fyrirmyndar. 20
keppendur voru skráðir til leiks og var mikil spenna var á
ráslínunni þar sem íslandsmeistarinn Ragnar Ingi Stefánsson,
sem býr í Svíþjóð, hafði unnið fyrstu umferðina frekar létt. En
hann endurtók leikinn og sigraði þó svo að hann hafi þurft að
hafa töluvert fyrir honum.
Eknar voru þrjár umferðir. Besta
startinu í fyrstu umferð náði
Helgi Valur Georgsson, fyrrverandi
Islandsmeistari, þá
Jón Hafsteinn kom Ragnar Ingi,
Magnússon .Þorvarður Björg-
skrifar úlfsson, Viggó O.
Viggósson og Reyn-
ir Jónsson. Ragnar náði fljótlega
forystunni með Þorvarð og Viggó á
hælunum, en Þorvarður bræddi úr
hjóli sínu og hætti. Viggó fylgdi fast
á eftir Ragnari og reyndi árangurs-
laust að komast framúr, mikil drulla
sem Ragnar jós yfir hann byrgði
honum sýn. Niðurstaðan var að
Ragnar varð fyrstur, Viggó annai'
og Reynir þriðji.
I 2. umferð náði Helgi Valur
besta startinu, þá kom Þorvarður,
Ragnar, Reynir og síðan Viggó.
Þorvarður komst fljótlega í forystu,
missti hana síðan niður tO Viggós.
Ragnar og Reynir voru í mikilli bar-
áttu og þustu fram úr Viggó og allt í
einu var Reynir orðinn fyrstur,
Ragnar annar og æðisleg barátta
þar sem þeir skiptust á að hafa for-
ustu. Reynir náði smáforskoti en
Ragnari tókst að komast fram úr á
lokahringnum. Niðurstaðan var:
Ragnar númer eitt, Reynii- tvö og
Viggó þrjú.
I þriðju og síðustu umferðinni
náði Helgi Valur besta startinu aft-
ur, en flótlega tóku þeir Ragnar og
Reynir við forystuhlutverkinu og
háðu harða orustu sem endaði með
að Reynir stakkst fram fyrir sig og
Ragnar náði forustunni sem hann
hélt til loka. f þessari umferð þurfti
Ragnar svo sannarlega að hafa fyrir
sigrinum.
Nokkrir nýliðar tóku þátt í
keppninni og stóðu sig vel. Keppnin
var mjög spennandi, brautin góð og
skemmtu áhorfendur sér vel. Má
búast við afar spennandi lokaum-
ferð í stigakeppninni um íslands-
meistaratitilinn sem fram fer 24.
júlí.
Lokaúrslit:
1. Ragnar I. Stefánsson, VH&S CR 500
2. Viggó Ö. Viggósson, JHM SPORT YZ 250
3. Reynir Jónsson, VH&S KX 250.
olis
Olís Char. Broil opið
verður haldið hjá Golfkiúbbi Borgarness
laugardaginn 26. júní.
Leikinn verður 18 holu höggleikur.
Glæsileg verðlaun frá Olís
fyrir fyrstu þrjú sætin með og án forgjafar.
Nándarverðlaun, verðlaun fyrir lengsta
teighögg,
dregið úr skorkortum.
Skráning og upplýsingar í síma
437 1663 eða 862 1363.