Morgunblaðið - 25.06.1999, Blaðsíða 4
4 C FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Atakalítill
sigur í átaka
miklum leik
KR-ingar tylltu sér í efsta sæti íslandsmóts karla með sann-
gjörnum og nokkuð öruggum 3:1 sigri á Fram á heimavelli sín-
um. Var sigurinn þeim e.t.v. átakaminni en reikna hefði mátt
með miðað við leik liðanna upp á síðkastið. KR-liðið var einfald-
lega mun heilsteyptara og ákveðnara í öllum sínum aðgerðum og
uppskar samkvæmt því. Þótt sigurinn hafi verið átakalítiil var
nokkuð um átök á milli manna sem þurfti ekki að koma á óvart.
KR-ingar hófu leikinn mun betur
með fremur sókndjarfri uppstill-
ingu sinni sem fólst í því að hafa Ein-
^■■1 ar Þór Daníelsson í
Ivar fremstu röð ásamt
Benediktsson Guðmundi Benedikts-
skrifar syni og Bjarka Gunn-
laugssyni í fjarveru
Andra Sigþórssonar. Reyndist þessi
uppstilling ágætlega gegn Fram-lið-
inu sem var heldur vamarsinnað og
ætlaði sér greinilega ekki að fara
neinu offari í leiknum. Einar Þór
gerði strax usla í vörn fram og á 6.
mínútu fékk hann allgott færi á
markteigshorni en skaut framhjá.
Þremur mínútum síðar bjargaði Ólaf-
ur Pétursson vel eftir fyrirgjöf frá
Bjarka Péturssyni, andartaki áður en
Guðmundur kom aðvífandi að mark-
inu, óvaldaður. Menn rak því ekki í
rogastans er KR-ingar opnuðu mark-
areikning leiksins á 12. mínútu með
marki frá Einari Þór.
Eftir fyrsta markið varð loft lævi
blandað á leikvellinum og óþarfa
pústrar og brot urðu algengari sem
minnkaði einbeitingu manna talsvert.
Meðal annars fékk einn leikmaður
hvors liðs gult spjald með mínútu
millibili og var það síst ósanngjarnt
eða of sparlega með spjöldin farið hjá
slökum dómara leiksins, Agli Má
Markússyni. Hann vantaði alla rögg-
semi frá upphafi, hefði mátt nota
gulu spjöldin enn meira og a.m.k.
brúka það rauða einu sinni oftar en
hann gerði.
KR-ingar voru eftir sem áður
sterkari aðilinn og fengu færi til að
bæta við. Besta færið fékk Bjarki á
19. mínútu er hann var staddur einn
á miðjum vítateig Fram gegn Ólafi
Péturssyni markverði. Klaufaskapur
Bjarka kom hins vegar í veg fyrir að
hann skoraði og Ölafur varði vel
Hilmar Björnsson lék gegn gömlu félögunum
„Megum ekki
hengja haus“
Hilmar Björnsson lék sinn annan
leik fyrir Framara, en varð að
lúta í lægra haldi fyrir gömlu sam-
herjunum í KR. Þetta
Björn Ingi er i annað sinn á ferl-
Hrafnsson inum sem Hilmar
skrifar leikur gegn KR-ing-
um, fyrra sinnið var
árið 1993 er hann lék seinni hluta
tímabilsins með FH-ingum í efstu
deild.
„Þetta var svolítið skrítið fyrst, ég
verð að viðurkenna það, en um leið
og leikurinn hófst velti ég því ekki
lengur fyrir mér og upp frá því var
þetta eins og hver annar leikur,"
sagði Hilmar eftir leikinn.
„Þetta var örugglega mjög
skemmtilegur leikur fyrir áhorfend-
ur, mikil barátta og fjögur mörk.
KR-ingar voru sterkari í fyrri hálf-
leik og gerðu þá tvö mörk, en við
fengum líka færi og hefðum með
heppni getað skorað, t.d. er Steinar
[Guðgeirsson] negldi í slána undir
lok fyrri hálfleiks. Svo gekk okkur
betur í seinni hálfleik, sérstaklega
þegar við þorðum að láta boltann
ganga innan liðsins. Eftir mark okk-
ar náðum við ágætri pressu, en
þriðja mark KR kom eiginlega á
versta tíma fyrir okkur. Samt héld-
um við áfram að reyna og við hefðum
sett mikla spennu í leikinn með öðru
marki. Það tókst því miður ekki,“
sagði Hilmar.
KR-ingar eru gríðarlega sterkir,
að mati Hilmars. „Það er valinn mað-
ur í hverju rúmi í þessu liði og mjög
erfitt að leika gegn þeim. Sigurinn
var líklega sanngjarn, þegar á heild-
ina er litið, en mér fannst þeir detta
nokkuð niður í seinni hálfleik og þá
gekk okkur betur. En það er sér-
staklega gaman að spila á þessum
velli og mikil stemmning í kringum
leikinn. Auðvitað er erfitt að leika
gegn bestu vinum sínum og ég vildi í
sannleika sagt ekki þurfa að gera
það í hverri viku. En nú er ég
Framari og vil vinna leiki með þeim
og standa mig sem best í hverjum
leik.“
Hilmar segist enn vera að kynnast
samherjum sínum í Fram-liðinu og
er bjartsýnn á næstu leiki. „Þetta
var gífurlega erfiður leikur og ör-
ugglega einn erfiðasti útileikur okk-
ar í deildinni. Þess vegna megum við
ekki hengja haus þrátt. fyrir tapið,
heldur rífa okkur upp og gera betur í
næstu leikjum. Það er leikið ört í
deildinni þessa dagana og því er
mjög mikilvægt að missa ekki damp-
inn. Staða okkar í deildinni er enn
ágæt.“
kæruleysislegt skot hans. Hvað sem
þessu leið kom annað mark KR á 37.
mínútu og var það sérlega laglegt hjá
Guðmundi Benediktssyni.
Heldur dró úr krafti KR eftir
markið. Lið Fram sýndi hins vegar
ekki mikla tilburði í sókninni. Næst
því að skora komst Anton Bjöm
Markússon er hann skallaði framhjá
á 28. mínútu eftir einu homspyrnu
Fram í leiknum. Marcel Orlemans
fékk opið færi á 38. mínútu, en tókst
ekki að stjórna boltanum og skot
hans fór nokkuð yfir markið. Hinum
megin var Sigþór í færi á vítateign-
um en náði ekki að stýra knettinum
rétta leið. Rétt áður en flautað var til
leikhlés átti Steinar Guðgeirsson
þrumuskot af 20 metra færi í slá KR-
marksins. Fór þar með eitt besta
færi Fram í leiknum.
Framarar færði sig framar á leik-
völlinn í upphafi síðari hálfleiks,
bættu manni í sóknina á kostnað
vamarinnar og það virtist hrífa því
sóknarákafinn varð meiri en fyrr.
Ágúst Gylfason átti skot framhjá á
47. mínútu og gaf tóninn um stund.
Sævar Pétursson minnkaði síðan
muninn á 55. mínútu og virtist sem
markið ætlaði að hleypa spennu í
leikinn. Leikmenn Fram reyndu að
fylgja markinu eftir, en vantaði
herslumuninn upp á. Sóknarleikur
liðsins var oft einum of hægur og
varfærnislegur sem gerði KR-ingum
auðvelt um vik í vörninni.
KR-ingar vora hins vegar ekkert á
þeim buxunum að gefa Fram annað
stigið. Vesturbæjarliðið hafði viljann
til sóknar en bitið virtist minnka
nokkuð er Sigþór og Guðmundur
urðu að yfirgefa leikvöllinn fyrri
hluta hálfleiksins. Bjarki fékk tæki-
færi til að innsigla sigurinn, a.m.k. að
koma KR í góða stöðu, á 71. mínútu
er hann fékk annað opið marktæki-
færi líkt því sem hann fékk í fyrri
hálfleik. Enn á ný mistókst honum og
Ólafur varði vel. Bjarki bætti hins
vegar fyrir mistökin einni mínútu síð-
ar er hann skoraði þriðja mark KR
með fallegu skoti utan vítateigs; þá
var Ólafur illa á verði.
KR-ingar voru sterkari síðasta
stundarfjórðung leiksins eftir þriðja
markið. Héldu þeir Frömurum í
greipum sér og biðu menn þess eins
að leikurinn yrði flautaður af.
Sem fyrr segir var sóknarleikur
Fram nokkuð hægur og bitlítill. Or-
lemans mátti ekki við margnum og
Sigurður Örn gætti Hilmars vel sem
fékk þess vegna lítið svigrúm til að
gera usla. Höskuldur Þórhallsson
sást vart í fremstu víglínu og í raun
þurftu varnarmenn KR engar
áhyggjur af honum að hafa.
Það er svo sem enginn hægðarleik-
ur að sækja stig í greipar KR-inga á
heimavelli þeirra. Hins vegar má
spyrja sig að því hvort ekki sé þörf á
að tefla djarfar en leikmenn Fram
gerðu að þessu sinni til þess að eiga
einhvern möguleika á stigi. KR-liðið
er sterkt, innan þess virðist ríkja
góður andi, auk þess sem leikmanna-
hópurinn er þéttur.
Dómarinn gerði rétt
EINAR Þór Daníelsson, leikmaður KR, setti heldur
betur svip sinn á leikinn gegn Fram. Hann lék í fram-
línu liðsins í fjarveru Andra Sigþórssonar, sem er
meiddur, og skoraði fyrsta mark leiksins í fyrri hálf-
leik. I heild átti hann ágætan leik og tilkynnti vallar-
þulurinn undir lok leiksins að Einar hefði verið út-
nefndur maður leiksins af Útvarpi KR. Aðeins örfáum
andartökum síðar fékk Einar Þór svo réttilega að líta
rauða spjaldið fyrir að slá til Ásgeirs Halldórssonar,
varnarmanns Framara.
.Ásgeir braut á mér og ég sló hendinni til hans, ég
verð að viðurkenna það,“ sagði Einar heldur óhress
með sjálfan sig eftir leikinn. „Dómarinn gerði því rétt
í að reka mig út af og ég verð að súpa seyðið af því.“
ÞÓRHALLUR Hinriksson fagnar Guðmundi Benediktssyni eftir að hinn síðarn
þess einnig albúinn að gleðja
Atli Eðvaldsson, þjálfari KR-inga
Sigurinn var
sanngjam
Atli Eðvaldsson, þjálfari KR, sagðist
ánægður með sigurinn á Fram enda
væru það stigin þrjú sem skiptu öllu
máli. „Ég er ánægður með
Vaiur leikinn að mestu leyti.
Jónatansson Fram-liðið er mjög gott
skrifar 0g nær að leika vel saman
þegar það fær tíma. Við
náðum oft að pressa á þá og gera þeim
erfiðara fyrir. Ég er ánægður með bar-
áttuna í KR-liðinu og sigur er það sem
skiptir öllu máli. Sigurinn var sanngjarn
enda fengum við fleiri færi en þeir. Þetta
var mikil vinna hjá leikmönnum og von-
andi verða þeir búnir að jafna sig áður
en við mætum Leiftri á Ólafsfirði á
sunnudaginn," sagði Atli.
Fór ekki um þig þegar Framarar náðu
að minnka muninn í 2:1 í upphafí síðari
hálfleiks?
„Jú, auðvitað. Við sögðum á vara-
mannabekknum: Enn fáum við mark upp
úr föstu leikatriði - eins og hin fjögur
sem við höfðum fengið á okkur fyrir
þennan leik. Þetta er einhver grýla sem
við verðum að vinna okkur út úr, en það
er ágætt að vita hvað er að. Við fengum á
okkur tvö mörk eftir hornspyrnur í Eyj-
um og núna bara eitt, þannig að það er
framför."
Nú settir þú Einar Þór í framlínuna
fyrir Andra, sem er meiddur, ertu
ánægðurmeð frammistöðu hans?
„Já, hann skilaði sínu vel. Hann gerði
það sem til var ætlast, skoraði mark og
vann vel. Hann fór að vísu aðeins yfir
strikið í lokin þegar hann braut af sér og
fékk að líta rauða spjaldið. En svona get-
ur komið fyrir í hita leiksins."
Sigþór var búinn að vera góður, hvers
vegna tókst þú hann út af í upphafí síðari
hálfleiks?
„Sigþór var meiddur. Hann fékk hné í
bakið í lok fyrri hálfleiks og var orðinn
þjáður. Guðmundur var líka slæmur í
bakinu og því tók ég hann út af og Bjarki
fékk högg á aðra höndina. Það er mikið
álag framundan hjá þessum strákum og
því gott að geta hvílt þá.“
Nú er KR komið í toppsæti deildarinnar
og ætlar sjálfsagt að halda í það sem
lengst?
„Já, nú erum við komnir með einu stigi
meira en eftir alla fyrri umferðina í
fyrra. Það eru 13 stig komin í hús og
þegar við erum búnir að ná í 30 stig get-
um við farið að spá í hver staðan og
möguleikar okkar séu á íslandsmeist-
aratitlinum, ekki fyrr. Það eru allt of
margir leikir eftir til að spá of mikið í
það. Við stefnum að því að ná í þrjú stig
á Ólafsfírði á sunnudaginn og hugsum
ekki um annað á meðan.“