Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.07.1999, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1999 B 5 „Þegar slík blaðra springur brenna sig margir og á Wall Street hugsa marg- ir ennþá með hryll- ingi til allra líf- tæknifyrirtækjanna sem aldrei urðu að neinu.“ legt fyrir fjárfesta sem sjá ekki hagstæðustu kaup- og sölutilboð. Fyrstu dagana eftir stórkaup ríkis- bankanna fréttist t.d. að verið væri að bjóða bréf til almennra fjárfesta á gengi í kringum 20, á meðan önn- ur verðbréfafyrirtæki voru tilbúin að selja á lægra gengi fyrir hönd sinna viðskiptavina. Þetta er á vondu máli kallað krossaður mark- aður. Það væri æskilegt að einhver leið fyndist til að versla með þessi bréf hér á Islandi á skikkanlegan hátt. Níðstangir úr gulli DeCODE Genetics Inc. er senni- lega eitt þeirra fyrirtækja sem hvað besta kynningu hefur fengið áður en það hefur verið skráð á hluta- bréfamarkaði. Sú kynning gæti þýtt töluverðan meðbyr á markaðnum, a.m.k. fyrst um sinn. Bjartsýnustu menn tala jafnvel um að ekkert fyr- irtæki hafi verið í jafngóðri stöðu síðan sjálft Netscape fór á markað með miklum látum árið 1995 og gaf tóninn fyrir Intemet-kaupæðið. Það hlýtur að vera skrítin tilfinning fyr- ir gagnrýnendur fyrirtækisins og miðlæga gagnagrunnsins að hafa átt þátt í að auglýsa það svona rækilega upp og gera þannig hluta- bréf eigendanna að áhugaverðari söluvöru. Eg held nefnilega að það sé leitun að þeim fjárfesti sem hefur verulegar áhyggjur af því að hugs- andi vísindamenn riti alvarleg vam- aðarorð í fagtímarit eða einhver áhugamannasamtök reyni að tengja fyrirtækið við helför nasista. Menn láta sér yfirleitt nægja að fyrirtæki starfi eftir gildandi landslögum í sínu heimalandi og gagnrýnin eykur einfaldlega áhugann. Eftir ein- hverju hlýtur að vera að slæðast fyrst gagnrýnendurnir ganga svona hart fram, hugsa líklega flestir. Undantekningin: Amgen Það er fyrir margra hluta sakir áhugavert að skoða feril bandaríska líftæknirisans Amgen. Bæði fyrir þá sem þurfa nú að kynna sér fram- andi heim líf- og erfðatæknifyrir- tækja og einnig þá sem eru að velta því fyrir sér hvað verði um heitustu Internet-fyrirtækin til lengri tíma. Amgen var stofnað 1980 af hópi vís- indamanna og áhættufjárfesta og hóf starfsemi árið eftir á 19 milljóna dala framlagi hinna síðamefndu. Það aflaði þrívegis fjár á hluta- bréfamarkaði á árunum 1983-87. Árið 1987 fékk Amgen fyrsta einka- leyfi sitt vegna þróunar á stórlyfmu Epogen sem fékk markaðsleyfi tveimur ámm síðar. Síðan fylgdi annað stórlyf, Neupogen í kjölfarið og nú em starfsmenn Amgen orðnir 5.500 talsins og það komið í hóp stórra lyfjafyrirtækja. Síðustu 12 mánuði var velta Amgen 2,7 milljarðar bandaríkja- dala og þar af er hagnaðurinn 913 milljónir dala. Það gerist þótt fyrir- tækið eyði gríðarlegum fjármunum í rannsóknir og þróun. Markaðsvirði fyrirtækisins em 30 milljarðar dala, þannig að V/H hlutfallið er 33. Það er fróðlegt að skoða 15 ára graf yfir þróun verðs hlutabréfa í fyrirtækinu. Það fór hægt af stað en í líftæknikaupæðinu 1990-91 marg- földuðust bréfin í verði. Eftir að sú blaðra sprakk tók það Amgen síðan á þriðja ár að ná aftur fyrra gengi, jafnvel þótt reksturinn' væri með ágætum. Langflest líftæknifyrir- tækin sem athygli spákaupmanna beindist að urðu aldrei að stórfyrir- tækjum og á þeim töpuðu fjárfestar miklu fé. Gott gengi Amgen er því undantekning. Það er ekki ólíklegt að eitthvað svipað muni eiga sér stað með netfyrirtækin núna. Ein- staka munu lifa og verða viðskipta- veldi, en flest falla í gleymsku. Hér er alls ekki verið að gefa því undir fótinn að deCODE verði nýtt Amgen. Þótt þróun lyfja með hag- nýtingu líftækni sé erfið, þá er notk- un erfðatækninnar ennþá flóknari. Keppinautarnir Það er áhugavert að skoða þróun verðs á hlutabréfum keppinauta deCODE, þótt engin þessara fyrir- tækja séu fyllilega sambærileg. Mil- lenium Pharmaceuticals hefur verið að gera það gott að undanfömu og hafa hlutabréfin tvöfaldast í verði síðasta árið. Markaðsvirði Milleni- um er nú 1.200 milljónir dala, eða meira en helmingi hærra en deCODE. Gengi hjá Human Gen- ome Sciences hækkaði mikið um áramótin 1995/96, en þótt fyrirtæk- ið hafi verið afar duglegt við einka- leyfaumsóknir hefur það ekki staðið undir væntingum og gengið héfur sveiflast fram og til baka æ síðan. Enn em fjárfestar þó greinilega ekki úrkula vonar, því markaðsvirði fyrirtækisins er 900 milljónir dala. Athugasemd greinarhöfundar Þær vangaveltur sem fram koma í þessari grein má alls ekki túlka sem hvatningu til að kaupa eða selja hlutabréf deCODE Genetics né nokkurs annars fyrirtækis. Þær geta heldur ekld á nokkum hátt talist fullnægjandi grundvöllur ákvarðanatöku um kaup eða sölu. Margeir Péturssón Höfundur er héraðsdómslögmaður og löggiltur verðbréfasali. Hann rekur eigið verðbréfafyrirtæki. Skjávarpi ~"V4” til myndframsetningar -úr tölvu eða af myndbandi Mjög léttur og meðfærilegur skjávarpi, aðeins 4,5 kg. Fjarstýring með músarstýringu og leysibendli. Innbyggðir hátafarar. Er ætlaður ráðstefnusölum, stofnunum, fyrirtækjum skólum o.fl. Kynning í verslun okkar og eða með heimsókn til þín. ieitið upplýsinga. BRÆÐURNIR Lágmúla 8 • Sími 533 2800 SH/VR P.... leiðandi framleiðandi með uLCD"’tækni *Uquid Crisktl Display 'I 25QQ 02 , THn'u Ö5 /' Oí) sundurliðun ferðaútgjalda allar tryggingar vegna viðskiptaferða bílaleigutrygging betri aðstaða í viðskiptaferðum EUROPAY ísland og Flugleiðir bjóða fyrirtækjum nýtt kreditkort, Fyrirtækjakort. Notkun kortsins hefur í för með sér aukið hagræði hjá fyrirtækjum, sparnað og skilvirkara eftirlit með ferðaútgjöldum. Handhafi kortsins nýtur betri aðstöðu í viðskiptaferðum og korthafi, sem er íVildarklúbbi Flugleiða, fær að auki ferðapunkta samkvæmt reglum Vildarklúbbsins. Láttu Fyrirtækjakortið auðvelda þér að halda utan um reksturinn Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð hjá Europay ísland í síma 550 1555 og hjá Söluskrifstofum Flugleiða í síma 5050 IŒLANDAIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.