Morgunblaðið - 01.07.1999, Page 10
10 B FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Ævintýraferð íslensks háskólanema til Varna í Bulgariu
Landsmenn leystir úr
íj ötrum kommúnisma
Morgunblaöiö/Þorkell
Búlgaría er land tækifæranna, segir Kristrún Sveinbjörnsdóttir.
Kristrún Sveinbjörns-
dóttir stundar nám við
FlU-háskólann á Mi-
ami, í stjórnun og al-
þjóðaviðskiptafræði. I
maí lenti hún í ævintýri
sem hún sagði Ivari
Páli Jónssyni frá.
AÐDRAGANDI ferðar-
innar var með þeim
hætti að Kristrún sá
auglýsingu í skólanum. í
henni var auglýst eftir fólki til að
fara til borgarinnar Vama í
Búlgaríu og aðstoða þarlend fyrir-
tæki við að aðlagast frjálsum
markaði. Hún sendi umsókn til
prófessorsins sem sá um verkefn-
ið, dr. Jan Luytjes, og var vahn
ásamt 19 öðrum nemendum.
Kristrún segir að fímm nem-
endur hafí hætt við á síðustu
stundu, foreldrar þeirra hafi
bannað þeim að fara vegna stríðs-
ins í Kosovo. „Daginn áður en við
fórum varpaði NATO af misgán-
ingi sprengju á úthverfí Sofiu,
höfuðborgar Búlgaríu. Fólk var
því frekar taugaóstyrkt við upp-
haf ferðar,“ segir hún, en bætir
við að sjálf hafí hún ekki látið
hugfallast.
Að sögn Kristrúnar var fyrir-
fram gert ráð fyrir að dvöl nem-
endanna hefði verið að öllu leyti
undirbúin og skipulögð, en annað
kom á daginn. „Búlgarski prófess-
orinn sem átti að sjá um það, dr.
Koev, trúði því ekki að við værum
að koma. Hann trúði því ekki fyrr
en við vorum lent,“ segir hún. Hún
segir að lítið hafi verið búið að tala
við búlgörsk fyrirtæki, þannig að
þau hafí þurft sjálf að fara á stúf-
ana.
Erfitt að fá
upplýsingar
Kristrún segir þau hafa mætt
töluverðri tortryggni til að byrja
með. „Við fórum fljótlega á fund
með borgarstjóra Varna, sem heit-
ir Christo Kirchev. Prátt fyrir að
hann virtist vera hrifinn af því sem
við vorum að gera, var hann treg-
ur til að gefa okkur upplýsingar.
Við spurðum hann til dæmis
nokkrum sinnum hvort til væri
upplýsingamiðstöð fyrir fólk sem
væri að stofna fyrirtæki, en hann
fór undan í flæmingi. Svo þegar
við vorum búin að vera þarna í ein-
hvem tíma komumst við að því eft-
ir krókaleiðum að Efnahagsþróun-
arstofa var til í Varna og að borg-
arstjórinn var sjálfur forstöðumað-
ur hennar,“ segir Kristrún.
Að ferðinni kom ungverskur
milljarðamæringur, George Soros,
sem flutti ungur til Bandaríkjanna
og safnaði auði. Hann hefur mikla
trú á Búlgaríu og telur að þar sé
óplægður akur fyrir fjárfesta. Að
hans sögn er efnahagur Búlgaríu
að ná sér á strik, einkum vegna
þess að kommúnisminn náði ekki
að skjóta jafn sterkum rótum þar
og t.a.m. í Rússlandi. Soros hefur
látið mikið fé af hendi rakna til að
aðstoða Austur-Evrópuríki.
.Áhugamál hans er að koma á fót
stórri viðskiptamiðstöð, með þátt-
töku erlendra fjárfesta, til að
hjálpa Austur-Evrópubúum að
koma undir sig fótunum,“ segir
Kristrún. „Við undirbjuggum þá
miðstöð í samvinnu við menn frá
Open Societyí Sofiu, meðal annars
með fullkominni viðskiptaáætlun
sem var forunnin á Miami
nokkrum mánuðum fyrir brott-
för,“ bætir hún við.
Hjálp frá
milljarðamæringi
Soros hefur stofnað Open Soci-
efy-klúbba víðs vegar um Austur-
Evrópu, en hlutverk þeirra er að
aðstoða fyrirtæki. „Eftir nokkra
byrjunarörðugleika kom formaður
klúbbsins í Varna að máli við okk-
ur, eftir að hafa frétt af komu okk-
ar í fjölmiðlum. Hann greiddi okk-
ur leið, því hann vildi knýja fram
hugarfarsbreytingu hjá fyrirtækj-
unum,“ segir Kristrún.
Að sögn Kristrúnar eru 60%
búlgarskra fyrirtækja í ríkiseign.
„Einkavæðingin er í fullum gangi.
Við komum til landsins núna þegar
hún var að hefjast. Hlutverk okkar
var að veita sem flestum fyrirtækj-
um ráðgjöf, en við vorum náttúru-
lega helst til fá til að veita öllum
þjónustu sem þurftu,“ segir
Kristrún.
Fyrirtækið sem Kristrún að-
stoðaði var stærsta atvinnumiðlun
Varna, Polykontakt, sex ára gam-
alt fyrirtæki. „Við gerðum full-
komna viðskiptaáætlun til næstu
fimm ára fyrir fyrirtækið. Það
þurfti reyndar nokkuð til að sann-
færa stjómendur þess um nauðsyn
áætlunarinnar, en þeh' voru í byrj-
un á þeirri skoðun að slík áætlun
væri óþörf. En það tókst og við er-
um núna í góðu sambandi við þá,“
segir hún.
Aftur austur
innan skamms
Kristrún segist hafa mikinn hug
á því að endurtaka leikinn og
heimsækja Austur-Evrópu á ný.
„Þrjú önnur Austur-Evrópulönd
hafa haft samband við dr. Jan Lu-
ytjes með svipuð verkefni í huga.
Hann var nýlega á stórri ráðstefnu
í Búlgaríu og ég bíð núna eftir að
heyra frá honum um framhaldið,“
segir hún. Þess má geta að dr. Lu-
ytjes er einn af stofnendum FIU
og er iðulega kallaður „faðir“ há-
skólans.
Búlgaría er land tækifæranna,
segir Kristrún. „Möguleikarnir
eru óþrjótandi,“ segir hún. „Ef ég
væri að klára nám núna, myndi ég
reyna fyrir mér í Búlgaríu. Það
sem þarf er hugarfarsbreyting, en
ég fann greinilega fyrir henni með-
al ungs fólks,“ segir Kristrún að
lokum, en um þessar mundir er
hún að vinna hjá Arnasyni og co,
einkaleyfa- og vöramerkjastofu.
Hún er einnig að vinna að því að
gera viðskiptaáætlanir fyrir fyrir-
tæki.
Það ælti einhver að taka Þú gætir tekið ó því.
ó þessu vandamóli!
Þú gerir ekki neitt.
- Ekki nokkurn skapaðan hlut.
VOO DON'T
DO ANVTHTNG.
NOT A SINGLE
THING.
&
EVERVTHTNG 15 so
AtASIGUOUS HERE!
15 IT TOST fAE,
OR IS THIS
iaeeting taking
FOREVER? j--
Það er allt svo tvírætt hérnal Finnst mér það bara,
Það ætti einhver að eða er þessi fundur hrikalega langurí
taka á því vandamáli!
Einar Farest-
veit semur
við Sensor-
matic
EINAR Farestveit & Co hf. tók
nýlega við söluumboði fyrir banda-
rísku samsteypuna Sensormatic
Electronic Corporation sem fram-
leiðir rafeindaöryggistæki, að því
er fram kemur í fréttatilkynningu
frá Einari Farestveit & Co.
Samningurinn við Einar Farest-
veit & Co felur í sér sölu og þjón-
ustu á öllum framleiðsluvörum
Sensormatic á Islandi en á meðal
þess búnaðar sem Sensormatic er
hvað þekktast fyrir er vörueftirlits-
kerfi fyrir verslanir, myndavéla-
kerfi og aðgangseftirlitskerfi.
Hákon Farestveit, sölustjóri ör-
yggiskerfa hjá Einari Farestveit
& Co, segir í fréttatilkynningunni
að með samningnum aukist
breiddin í öryggisbúnaði sem fyr-
irtækið selur, einkum þó á sviði
vörueftirlitskerfa. Hann segir að
sökum harðnandi samkeppni séu
verslunareigendur á íslandi að
gera sér æ betur grein fyrir
hversu nauðsynlegt er að lág-
marka vörurýrnun með því að
koma í veg fyrir að vörur fari
ógreiddar úr verslununum.
Einar Farestveit & Co hefur selt
heimilistæki, öryggistæki og lækn-
ingatæki auk ýmissa annarra raf-
eindatækja í 35 ár. Velta fyrirtæk-
isins er um 240 milljónir króna og
hjá því starfa 10 manns.