Morgunblaðið - 25.07.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.07.1999, Blaðsíða 2
STAR WARS UPPLIFUN EINLÆGS AÐDÁANDA Hltexti-'Guömundur Br.líl|6rí I ér til hliðar fer smá grein eftir einlægan Star Wars aðdáanda um hvernig það var að upplifa sýningu á Star Wars Special Edition í Mann's Chinese Theater í Hollywood daginn eftir frumsýningu. Þess má geta að allar Star Wars opnuðu í Mann's Chinese bíóinu og hefur bíóið orðið hálfgert "Mekka" Star Wars aðdáenda. f dag er dagurinn! f dag er Star Wars-dagurinn. f dag er laugardagur 1. febrúar 1997. Ég stend í röðinni á hliðargötu fyrir aftan hið fornfræga Mann Chinese Theater á Hollywood Boulevard, í hjarta drauma- verksmiðjunnar þar sem kvikmyndastjörnurnar gera minningu sfna og frægð ódauðlega með því að setja hendur og fætur í sement ásamt undirskrift. Ég bíð í örvæntingu eftir því að sjá Star Wars Special Edition. Veðrið hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif á stemmn- inguna. Annars vegar spýtir sólin sjóðheitum geislum sínum í allar áttir um Ijósbláan, skýjalausan himininn og ekki er laust við að funheitum íslenskum stjörnustríðsaðdáanda þyki nóg um. Á hin bóginn rignir ekki (gerist nánast aldrei í suður-Kalifornfu) svo af tvennu illu er fyrri kosturinn betri. Sjóðandi hitinn gerir það að verkum að sólgleraugun renna eilftið eftir nebbanum undir Star Wars derhúfunni minni sem ég ber stoltur. Áfram er beðið. Allt f kringum mig ómar hin engilsaxneska alheims- tunga ásamt hlátrasköllum og hitastunum frá þéttholda götuspekingum með andlitshár f öllum heimsins regnbogatískulitum. Einn og einn svitadropi læðist eftir bakinu. Áður en ég veit af er komin hálfskílómetra löng röð fyrir aftan mig! Ég kom einum og hálfum tíma fyrir sýningu, samt var komin (að mér fannst) mflulöng röð fyrir framan mig. Sýningin á að hefjast korter í eitt á þessu sjóðheita laugardagseftirmiðdegi. Ég horfi á þá sem standa f röðinni: Fullorðið fólk með Star Wars leikföng, étandi, drekkandi, lesandi, hlæjandi og stynjandi. LOKSINS er opnað við mikið lófatak fjöldans og skriður kemst heidur betur á röðina sem breytist f flóðbylgju inn í andyrið - allir hafa þegar keypt miða auðvitaðl Ég fjárfesti í poppi og kóki með grænu dollurunum mfnum og ryðst sfðan inn í bfósalinn. Þvflíkur bíósalur! 1.500 manna risasalur með hafsjó af rauðum sætum fyrir framan 60 feta risasýningartjald með rauðum tjöldum og fullkomnasta hjóðkerfi heimsl Klukkuna vantar korter í sýningu. Mannþröngin ærist þegar sýningartjöldin opnast. Hróp, köll og klapp og fólk raulandi Star Wars.... Star Wars... Star Wars. Þvílík og önnur eins upplifun. Aldrei áður á ævinni. Stóra stundin er að renna upp. Klukkan 12:42 og counting... Það verður gjörsamega allt vitlaust þegar myndin byrjar og látlaust klappað... gjörsamlega stanslaust. Síðan er klappað og öskrað þegar hver hetjan af fætur annarri birtist á hvfta tjaldinu þó mest fyrir Svarthöfða og Hans Solo. Einnig er klappað og flautað fyrir nýju senunum sem bætt hefur verið við og í lokin tekur bíóið þátt í lokaathöfninni með áframhaldandi öskri, lófataki og flauti. Lófatakið stendur langt fram í endalistann. Oftar en ekki fékk ég gæsahúð á meðan á sýningunni stóð. En þegar Obi Wan dó f lokin og þegar Helstirnið splundraðist eru ógleymanleg augnablik sem koma til með að lifa í eilífri minningu fullorðinsáranna. Hætt er þó við að þessar sömu tilfinningar vakni heldur betur til Iffsins við það að upplifa nýju Star Wars myndina sem fengið hefur frábærar viðtökur um heim allan. - Guðmundur Breiðfjörð ■ STJORNUSTRIÐ epísode^j FYRSTI HLUTI: ÓGNVALDURINN. FRUMSÝND Á ÍSLANDIM!!! ann 13. ágúst næstkomandi rennur stóra stundin upp. Myndin sem allir hafa beðið I eftir, Stjörnustríð fyrsti hluti: Ógnvaldurinn, verður loksins frumsýnd í 6 kvikmyndahúsum samtímis hér á landi. Myndin hefur farið sigurför um heiminn og slegið fjöldan allan af aðsóknarmetum t.d. í Bandaríkjunum, Bretlandi, Asíu og Ástralíu og nú er komið að því mátturinn verði með íslendingum. Fös. 13. Ágúst: í hvaða bíóum er nýja Stjörnustríðsmynndin sýnd? Nýja Stjörnustríðsmyndin verður sýnd í Regnboganum, Kringlubfói, Bfóhöliinni f Álfabakka, Laugarásbíói, Nýja Bfói Akureyri og Nýja Bíói Keflavík. Sólarhringssýningar: Myndin verður sýnd allan sólarhringinn í Regnboganum, Bíóhöllinni í Álfabakka og Nýja Bíói Akureyri fyrstu tvo sólarhringanna. Forsala aðgöngumiða er hafih! • Hraðbankar: Hægt verður að kaupa miða beint f hraðbönkum fslandsbanka um allt land með debet eða kreditkorti. Þú einfaldlega velur kvikmyndahús og sýningartíma og útprentaður miði er staðfesting sem þú skiptir fyrir bíómiða í miðasölu viðkomandi kvikmyndahúss. • Heimabanki: Þú ferð einfaldlega inn á Heimabanka (slandsbanka, www.isbank.is, og velur kvikmyndahús og sýningartíma og millifærir sfðan upphæðina sem verslað er fyrir. Hægt verður að nálgast miðann/miðana f miðasölu viðkomandi kvikmyndahúss í eigin persónu gegn framvísun persónuskilríkja eftir 10. ágúst þegar forsölu fslandsbanka lýkur. Miðinn verður að vera sóttur tveimur klst. fyrir sýningu. Regnboginn 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 5:00 8:00 Bfóhöllin 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 5:00 8:00 Nýja Bíó Akureyri 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 5:00 8:00 Krfnglubfó 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Laugarásbfó 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 Nýja Bíó Keflavík 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Lau. 14. Ágúst: Regnboginn 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 5:00 8:00 Bfóhöllin 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 5:00 8:00 Nýja Bíó Akureyri 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 5:00 8:00 Kringlubfó 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Laugarásbíó 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 2:00 Nýja Bfó Keflavík 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Sun. 15. Ágúst: Regnboginn 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Bíóhöllin 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Nýja Bíó Akureyri 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Kringlubfó 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Laugarásbíó 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 Nýja Bíó Keflavík 12:30 15:00 17:30 21:00 23:30 laaaMÆfflgi KRINGUJK)1% vr-Víi ÁLFABAKKA bHk-Aaui D I G I T A L surround-ex Nýja stafræna Dolby Surround EX hljóðkerfið: Nýtt og fullkomið Dolby Digital Surround EX hljóðkerfi var sett upp í Regnboganum f júnf síðastliðnum, gagngert vegna nýju Stjörnustrfðsmyndarinnar. Fyrir 20 árum heilluðust áhorfendur um allan heim af nýrri mynd sem hét Stjörnustríð og nýju margrása hljóðkerfi sem hét Dolby Stereo. Nú loksins þegar nýja Stjörnustríðsmyndin sem allir hafa beðið eftir, Störnustríð fyrsti hluti: Ógnvaldurinn, er komin í bfó hafa Dolby Laboratories og Lucasfilm tekið höndum saman og búið til nýtt og enn fullkomnara hfjóðkerfi sem heitir Dolby Digital Surround EX, nýjasta uppfinningin f kvikmyndahljóði fyrir nýja og spennandi bíóöld. Kerfið var tekið í notkun nú f maf í Bandarfkjunum á nýju Stjörnustrfðs- myndinni. Áhorfandinn upplifir betri samsvörun og jafnvægi allra hljóða, hljóðeffecta og tæknibrellna frá öllum hliðum kvikmyndasalarins (360° hljóðflutningur) sem mun gera bfóupplifunina á nýju Stjörnustrfðsmyndinni enn magnaðri en nokkur hefur ímyndað sér. Önnur bíó sem sýna nýju Star Wars myndina hérlendis hafa einnig tekið upp hið nýja EX kerfi. Ritstjórar: Stefán Sigurjónsson og Gísli Einarsson Hönnun og uppsetning: Siggi Sveinn og Ari S. Arnarsson Textahöfundar: Gísli Einarsson Stefán U. Sigurjónsson / Der Konig Ari S. Arnarsson Jón Björgvin Stefánsson Torfi Frans Ólafsson Birgir Örn Steinarsson Guðmundur Breiðfjörð Haraldur Vignir Sveinbjörnsson / Rauða Ljónið Þó Clio hafi alla kosti smábfls býður hann um leió þægindi og öryggi stserri bíla. Hann er ekki aðeins rúmmeiri en aðrir bflar f sama stxrðarflokki heldur er hann einnig mun öruggari á alla vegu (t.d. ABS hemlakerfi og allt að 4 loftpúðar). Hljóðeinangrunin í Clio er meiri og aksturseiginleikar hans eru betri. Er ekki kominn tími til að fá sér stóran bfl? CrjótháU 1 Sfmi 5751200 Soludeild 57J1220

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.