Morgunblaðið - 25.07.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.07.1999, Blaðsíða 6
1 STJÖRNU-STRÍÐS- LEIKARARNIR OKKAR (taxti->Sta(án Unnar Sigurjónsson] ... eða næstum því! ||pll| að þykja alltaf stórtíðindi þegar íslendingar gera eitthvað af sér út í hinum I stóra heimi, og vilja þá oftast allir eignast smá hlut í viðkomandi sbr. "Björk okkar". Nú eiga flest allir minnihlutahópar sínar útgáfur af "okkar". íþróttaliðið á fullt af hetjum, poppararnir eiga Björk og Gus Gus o.s.frv. Núna ertími Stjörnustríðs aðdáendanna því við eigum líka okkar "okkar" til þess að monta okkur af. Ingvar Sigurðsson og Álfrún Örnólfsdóttir eiga það sameiginlegt að þau náðu bæði athygli Lucasfilm manna þegar þeir voru að leita eftir leikurum fyrir Episode 1. Þó svo að þau hafi ekki fengið hlutverkin, þá náðu þau samt lengra en þúsundir verðandi leikara gæti nokkurn tíman dreymt um að ná. Þau voru bæði mjög lítillát og kannski svolítið hissa þegar ég nálgaðist þau með stjörnuglampa í augum og plataði þau í viðtal. Það sem á eftir fer eru óklipptar frásagnir þeirra. Ingvar Sigurðsson stórleikari með meiru komst alla leið til London, og náði meira að segja að hitta George Lucas sjálfan er hann var beðinn um að koma út og lesa línurnar ffyrir engan annan en Sith lávarðinn DARTH MAUL sem er einn vinsælasti karakter myndarinnar, og án efa mesti töffari hennar. Ert þú ekkert svekktur yfir því að hafa misst af tækifærinu? Ingvar: Jú og nei, annars er alltaf gott að vera bara heima Hvernig byrjaði þetta nú allt saman? Ingvar: Snorri Þóris hjá Pegasus hafði samband við mig. Þá var náungi hérna á (slandi sem heitir Chris Newman, hann var eitthvað að starfa fyrir þessa pródúksjón við það leita eftir karakterum og vildi fá frekari upplýsingar um mig þannig að Snorri bað mig um að senda honum pakka um mig. Var þá einhvers konar tilbúinn pakki sem þú áttir? Ingvar: Ja ég var með videóspólu með nokkrum klippum úr hinu og þessu sem ég hafði gert. Ég fékk mjög góð viðbrögð við þessari spólu og þau vildu bara fá mig strax til London. Heldur þú að meistari Lucas hafi þá heiliast af þér persónulega eða var það einhver neðar í stiganum? Ingvar: Nei, það var fröken Robin Gurland. Ég talaði við hana í símann og það var akkúrat þannig ástatt fyrir mér að ég gat skellt mér út. Þau voru meira að segja það óþolinmóð að fá mig út strax að þegar ég lenti á Heathrow þá hringja þau í mig og spyrja hvort ég sé ekki að koma. En ég þurfti náttúrulega að losa mig við farangurinn og svoleiðis. Varst þú ekkert orðinn trylltur af spennu þegur þú komst út, eða vissir þú kannski ekkert um myndina á þessum tíma? Ingvar: Nei, eða jú jú auðvitað vissi ég að það átti að gera nýja Star Wars mynd, meira vissi ég ekki. Ég er ekkert svona Star Wars fan eða þannig skilurðu þó svo að ég hafi séð fyrstu myndina tvisvar. Ég vissi lítið sem ekkert um George Lucas, þekkti varla nafnið, síðan fer ég bara til London, fer í sturtu og dríf mig svo upp í Whatford Junction þar sem að stúdíóin eru. Ég tók lest þangað og svo leigubíl inn í stúdióið, fór í gegnum fyrsta "landamærahliðið" og fékk passa. Áttu verðirnir við hliðið þá von á þér? Ingvar: Já þeir buðu mig strax velkominn eftir að ég kynnti mig og það var tilbúinn passi á Mr. Sigurdsson. Ég man eftir því að leigubílstjórinn var mjög áhugasamur að komast að þvi hvað ég væri að gera þarna, svo förum við í gegnum annað svona landamærahlið og þar er mér vísað á byggingu númer 5. Þar á ég að hitta einhverja konu sem leiddi mig áfram og hún vísaði mér á Robin Gurland. Við hófumst strax handa um leið og ég hitti hana. Hún kom með videókameru með sér. Þið voruð þá bara i venjulegu herbergi, það var væntanlega ekki kominn nein sviðsmynd á þessum tíma? Ingvar: Þetta var greinilega bara skrif- stofubygging, eitthvað svona leikaradæmi, það voru myndir af leikurum upp um alla veggi og slíkt. Hún bað alla sem voru I bessari skrifstofu álmu vinsamleaast fara út á meðan verið væri að prófa mig. Síðan sagði ég þarna nokkrar línur. Hún spurði mig hvort ég gæti lært þær á fimm mínutum, og ég sagðist geta það. Þá bað hún mig líka að gera einhverskonar karate spörk eða að hreyfa mig á meðan ég væri að fara með línurnar og ég gerði það bara. Ég hef nú reyndar aldrei farið í svona "audition" áðurl En þú hefur þó bjargað þér út úr þessari prufu slysalaust er það ekki? Ingvar: Jú jú það var þannig að eftir að ég var búinn að gera þetta fyrir framan kameru, þá var ég sendur aftur upp á hótel með chauffer á svaka flotum bíl, en þegar að við erum búnir að keyra í svona hálftíma þá hringir síminn hjá bílstjóranum og hann beðinn um að koma vinsamlegast með mig aftur til baka. Þá höfðu semsagt fleiri séð þetta, svo þegar ég kem aftur þá hitti ég "stunt- directorinn" og hann skoðaði mig allan I bak og fyrir, þuklaði á vöðvunum og svona, og leist greinilega mjög vel á mig. Hann spyr mig svo hvort að ég sé tilbúinn til þess að hitta leikstjórann, sem ég að sjálfsögðu var, hann sagði einnig við mig áður en ég hitti Mr. Lucas, að ef hann bæði mig um að gera eitthvað þá ætti ég að passa mig á tvennu. Ég man nú reyndar bara annað atriðið, það var að láta ekki koma eftirkast á hreyfingarnar, t.d. að stoppa alveg eftir að kýla eða sparka. Þegar ég svo hitti Lucas þá bað hann mig ekki um að gera neitt. Manstu hvað hann sagði? Ingvar: Ég man bara að hann kynnti sig og var ósköp vinalegur og eftir eitthvað smá small-talk þá sagðist hann eiginlega ekki vita af hverju hann væri þarna, hann hefði bara verið dreginn þangað til þess að hitta mig. "Ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja meira", sagði hann svo að ég segi bara: "Ég veit svo sem ekkert hvað ég á að segja heldur", þá stekkur fröken Robin Gurland upp og segir "OK that's great" og við erum eiginlega dregnir í burtu hvor frá öðrum þannig að við bara kvöddumst. Hvað, bara búið? Ingvar: (hlæjandi) Já, síðan var ég bara keyrður heim og beðinn um að bíða eftir símtali. Eftir einn og hálfan sólahring þá fæ ég uphringinu. Ég hafði reyndar hringt ( þau daginn áður og sagt þeim að ég væri í betra formi nú heldur en þegar ég var nýstiginn úr flugvélinni, ef þau vildu fá mig aftur. Þú hefur kannski verið þunnur eða eitthvað álíka skemmtilegt þegar þú lentir í Heathrow? Ingvar: Nei nei, ég var bara búinn að ferðast svo mikið að ég var þreyttur og slappur, svo ég fann það daginn eftir að ég var í miklu betra ástandi til þess að gera þetta. Þá fullvissaði hún mig um það að þetta væri ekki spurningin um mig, þeim hafði öllum litist vel á mig og bað mig um örlítið lengri frest því þau væru ennþá að funda um þetta, svo ég hélt bara áfram að bíða. Svo morguninn eftir þá hringja þau, og fröken Gurland segir mér að því miður þá treysti þau sér ekki til þess að hafa leikara í þessu hutverki. Já, þau enduðu Ifka með Ray Parks sem er ofur karate- gæi sem kann aðra hverja bardagalist sem til er. Ingvar: Já hún sagði það líka að þetta væri aðallega ákvörðun um áhættuleik, og þau treystu sér ekki til þess að geta tryggt fyrir eitthvað meiriháttar hættuspil. Darth-Maul er líka meira og minna í flikk-flakki alla myndina svo ég skil vel þá ákvörðun þeirra? Ingvar: Ég var búinn að segja við sjálfan mig allan timann að ég fengi þetta ekki, og það skipti ekki máli ég fengi þó að koma hingað og þetta yrði bara skemmtileg Iffsreynsla, og mér fannst nú bara ótrúlegt að komast inn fvrir bröskuldinn hiá bessu liði. A Ifrún Örnólfsdóttir kom til greina í hlutverk drottnigarinnar sem Natalie Portman hneppti að lokum, en þó svo að hún hafi hvorki fengið hlutverkið né komist jafnlangt og hann Ingvar, þá komst hún þó töluvert lengra en margir aðrir, og hún var ekki einu sinni að sækjast eftir hlutverkinu. Hvað kom til að þú fórst að brasa við að verða þér úti um þetta mæta hlutverk? Álfrún: Þetta byrjaði þannig að Friðrik Þór sat með "casting directornum" fyrir Episode 1 í bíó úti í Hollywood. Þeir voru að horfa á Cold Fever þar sem ég kem fyrir í nokkrar sekúndur. Hún varð eitthvað voðalega hrifin af mér í þessari mynd og vildi að Friðrik hefði samband við mig, þannig byrjaði þetta! Þeir báðu mig svo að senda þeim myndir, ég þurfti að fara til Ijósmyndara og láta taka portrait myndir af mér, loks vildu þeir fá videótape með mér, svo gengu símbréf á milli okkar f tvo mánuði, þar til ég hætti skyndilega að heyra f þeim Kom þá aldrei nein neitun frá Lucasfilm mönnum, hættu þeir bara skyndilega að senda þér símbréf? Álfrún: Nei nei, þeir voru alltaf voða hrifnir, þú veist "... hún er voða sæt" og allt svona. Ég fékk meira að segja lýsingu á persónunni, mjög nána skilgreiningu á persónuleika hennar og eftir hverju þeiri voru að leita og svoleiðis. Nú veit ég að Ingvar Sigurðsson fór út fyrir tveimur árum síðan, hvenær höfðu þeir samband við þig? Álfrún: Þetta var fyrir u.þ.b. þremur árum síðan. Já svo gerðist eitthvað þannig að að alllt stoppaði f einhvern tfma. Liggja myndir af þér inn á fleiri erlendum skrifstofum, á að meika'ða f Hollíwúdd? Álfrún: Ég er ekkert að reyna að koma mér áfram strax erlendis. Ég held að það sé nægur tfmi til þess, en pabbi minn er aðeins kunnur kvikmyndabransanum, og hann talaði við félaga sinn úti sem sagði að það væru umboðsmenn nokkurra þúsunda stelpna út um allan heim að reyna að koma þeim í prufur fyrir þessa mynd, þannig að það mætti teljast jákvætt að þeir höfðu þó samband við mig. Já, ég myndi halda það! Álfrún: Já þetta var bara gaman, skemmtileg viðbót í minningasafnið. Það kom til tals að fá mig til London en svo varð ekkert úr þvf, þeir voru vfst búnir að vera að leita að stelpu f þetta hlutverk f tvö ár áður en þeir höfðu samband við mig. Á videóspólunni sem þú sendir þeim út, fórstu þá með línur úr handritinu? Álfrún: Nei, ég var bara að segja frá mér og bulla eitthvað á ensku. Heldur þú að þú hefðir valdið hlutverki drottningarinnar ef út í þá sálma hefði verið farið? Álfrún: Það er kannski svolftið varhugavert að byrja svona á toppnum. Ég hugsa nú að ég hefði ekki sagt nei ef mér hefði verið boðið hlutverk í Star Wars mynd. Þú værir f það minnsta örugg i dag fjárhagslega séð með splunkunýjan BMW á gangstéttinni hérna fyrir utan, ef svo hefði fariðl Álfrún: Já já einmitt og fengi engan friðl En hvað segirðu á ekkert að reyna meira fyrir sér erlendis? Álfrún: Nei ég fæ nóg að gera hérna og mér líður ágætlega, svo er ég náttúrulega í skóla hérna þannig að ég klára hann allavega áður en ég pæli meira í svoleiðis, en maður veit svo sem aldrei. Ég veit þó ekki hvort mig langi sérstaklega að enda i Hollywood, þó það væri náttúrurlega mjög áhugavert að kynnast því að leika f erlendum bíómyndum. ... f það minnsta þess virði að skoða það ef það fellur í hendurnar á þér eins og Episode 1 gerði næstum því á sínum tíma! Álfrún: Að sjálfsögðu . En eins og ég sagði þá er ég sátt hórna heima á íslandi. Ég hef nóg að gera og mér Ifður bara mjög vel. Já þarna hafið þið það, þið sjáið það að við erum ekkert ósýnileg grey þó svo að við séum fá. Látum lokaorð Álfrúnar standa og látum okkur bara líða vel. MEGI MÁTTURINN VERA MEÐ YKKURI - DerKonig - -I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.