Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 8

Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 8
Þú varst ekki talinn heill á geði ef þú lékst þér ekki með Star Wars kalla hérna í "gamla daga". Ég er að tala um árin 1977 til 1985 en þá var hið rómaða Star Wars æði í algleymingi. Krakkar kepptust um hver ætti mest af Star Wars dóti og þú varst talinn nokkuð góður fíkill ef þú áttir 30-40 kalla og vel flest faratækin. Þetta var í fyrsta skipti sem lögð var slík vinna í einhver leikföng og útkoman var vandað og spennandi leikfangasafn, sem er við góða heilsu enn þann dag í dag i einkasöfnum hér og þar. Ekki nóg með það heldur var þetta einnig í fyrsta skipti að gerð voru leikföng eftir kvikmynd, þannig að við erum að tala um stórmerkileg leikföng hérna. Fyrstu leikföngin komu út nokkru eftir sýningu fyrstu myndarinnar, en það voru þau Leia prinsessa, Logi Geimgengill, Chewbacca og R2-D2 sem áttu þann heiður að komast í skltugar hendur krakka vfðsvegar um heiminn. Og það sniðuga við þetta allt saman er að engin leikföng voru tilbúin jólin 1977, en menn voru ekki ráðalausir og settu á markað sérstakt Star Wars box sem innihélt engar Star Wars fígúrur, bara lítinn inneignarmiða sem átti að senda til Kenner, framleiðanda flgúranna. Svo fékkst þú senda heim til þin í pósti þessa fyrstu fjóra Star Wars kalla. I kjölfarið fygldu svo aðrar þekktar persónur úr Star Wars heiminum og þvilikt æði hófst um allan heim. Auk allra Star Wars kallana kom út fjöldinn allur af flaugum og faratækjum en þar má fyrst og fremst nefna hinn sívinsæla og hraðskreiða Fálka eða Millenium Falcon, sem ofutöffarinn og kvennaflagarinn Han Solo átti. Þetta var stórt og mikið farartæki sem var ótrúlega flott og vel hannað, semsagt draumur hvers Star Wars aðdáanda. En Fálkinn var ekki stærsta leikfangið sem kom út í seriunni, það var AT-AT járnklumpurinn sem kom fram I Empire Strikes Back, I stórkostlegri snjóorrustu á plánetunni Hoth. Þetta leikfang var á við meðalstóran heimilishund og vist að nokkrir móðursjúkir kettir vilja ekki undir neinum kringumstæðum rifja upp þau kynni. Hérna á (slandi var það leikfangaverslunin Liverpool á Laugaveginum sem sá meðal annars um að dæla Stjörnustríðsfígúrum í aðdáendahópinn. Hver man ekki eftir sér slefandi yfir öllu þessu Star Wars dóti, ha... þið vitið hver þið eruð. Þó svo að flestir hafi sprengt upp gamla Star Wars dótið sitt um áramót eða gefið gæludýrunum sínum gott I gogginn, þá má örugglega finna einhverja safnara hér á landi. Og ef þið eruð svo sniðug að eiga óuppteknar Star Wars flgúrur I upprunalegum umbúðum og allt, þá gætuð þið verið I nokkuð góðum málum. Þessi leikföng ganga nefnilega ennþá kaupum og sölum víðsvegar I heimunum og er ágætis leið að smella sér á netið til að fræðast nánar um það. Það komu út leikföng fyrir allar þrjár myndirnar og víst að hér var verið að mjólka beljuna eins og hægt var. Sömu kallarnir komu jafnvel út aftur, bara í nýjum pakkningum og þetta fékk allra mestu flónin til þess að kaupa sama kallinn tvisvar, þrisvar sinnum. Já, sllkt var æðið og ég minnist þess nú að (ég er farinn að hljóma eins og gamalmenni hérna) jólin voru algjörlega ónýt ef maður fókk ekki allavega 5-6 Star Wars kalla og eina flaug. Þegar Star Wars myndirnar voru endur- útgefnar undir heitinu "special edition" þá voru kynnt ný og "endurbætt" leikföng sem áttu að höfða til nýrrar kynslóðar. Þessi leikföng voru aðeins öðruvísi en upprunalegu útgáfurnar. Til að mynda voru kallarnir sjálfir miklu vöðvastæltari og Logi Geimgengill var t.d kominn með stæltan brjóstkassa og "six pack” magavöðva, ef þið skiljið hvað ég er að meina. Svarthöfði varð algört tröll og Chewbacca leit út eins og fffl. Það má enn deila um hvort þessi nýju leikföng eru flottari eða betri en gömlu leikföngin, en þið fáið sennilega aldrei harðan Star Wars fíkil til þess að sverja við nýju og "betri" leikföngin. Og nú þegar byrjað er að sýna nýjustu myndina, The Phantom Menace, erlendis koma enn og aftur ný leikföng. Nú er kominn allskonar flókinn tæknibúnaður sem við gamla fólkið skiljum bara ekkert f, það er víst hægt að láta leikföngin segja setningar úr myndinni. Þetta var nú ekki til í gamla daga en hljómar dálítið spennandi... best að drífa sig út f búð... May The Force Be With Youl STAR WARS MYNDASÖGUR I t • * I I ’ B I r g I r örn Stalnarason] Hvað veldur þvf að milljónir manna hafa ekki fengið sig fullsadda af Star Wars kökunni? Verður endalaust hægt að baka nýjar kökur án þess að hráefnið fari að þynnast? Myndasögur eru vissulega fullkominn miðill fyrir útidúra úr Star Wars umheiminum. En mikilvægt er að aðdáendur myndanna átti sig á því að hér er ekki um að ræða gleymda sneið af stóru kökunni. Þetta eru einungis iitlar smákökur sem bakaðar eru til að minna fíkla á rétta bragðið. það er alltaf eitthvað meira sem þú vissir ekki um! Það virðist vera nægilegt fyrir karakter f Star Wars að birtast aðeins f örfáar sekúndur í bakrunninum án þess að segja orð til að fá sína eigin myndasöguserfu. Slfkur er áhuginn fyrir myndaseríunni. Sumum finnst þeir öðlast enn dýpri skiining á seríunum með lestri slíkra myndasagna, á meðan aðrir hrista hausinn og blóta heilögum Lucas fyrir að svfkja lit. Reyndar er það þannig að George Lucas kemur ekkert nálægt sögunum sem eru í myndasögublöðunum, fyrir utan að skapa umheiminn. Lucas setur upp allmarga ramma sem handritshöfundar mega ekki fara út fyrir og ekker er gefið út nema að hann samþykki hugmyndina. Ég leyfi mér, sem einlægur aðdáandi Star Wars myndanna, að vona að Lucas hafi ekki lesið of margar Star Wars myndasögur. Þó svo að hann hafi greinilega fengið nokkrar góðar hugmyndir fyrir nýju myndina úr sumum þeirra, (sbr. tvöföld geislasverð, og borgarplánetuna Coruscant) þá eiga þær oft til að verða of tilgerðalegar og missa oft marks. En þær eru eins misjafnar og þær eru margar. Bestar eru þær sem eru eftir höfunda sem taka Star Wars ekki of alvarlega. Hér eru nokkrar sem ég hef verið að skoða síðustu vikur. Star Wars - Crimson Empire Eftir að keisarinn er dauður hefst innri barátta milli lífvarða hans og kemur þá loks f Ijós hverjir voru tryggir keisaranum og hverjir ekki. Lffverðir keisarans voru rauðu kallarnir með sköftin í Return Of The Jedi sem stóðu bara kyrrir allan tímann. En þeir áttu vfst að vera bestu bardagamenn Star Wars myndanna, fengu bara ekki að njóta sín. Þannig að þessi bók reynir að bæta upp fyrir það. Star Wars - Shadows Of The Empire Þessi bók brúar bilið á milli Empire Strikes Back og Return Of The Jedi. Sagan segir frá öllum þeim hremmingum sem söguhetjur okkar lentu f á þeim tíma sem það tók Boba Fett að fara með Han Solo til Jabba The Hut. Star Wars - Jabba The Hutt: The Art Of The Deal Hérna er um að ræða 4 smásögur um glæpabaróninn Jabba. Höfundurinn tekur hann ekkert of alvarlega og tekst ágætlega til á köflum. Stundum er söguþráðurinn aðeins of grunnur og ekki eru teikningarnar flottar, engu að sfður ffn lesning á meðan þú ert að bíða eftir strætó. Star Wars - The Phantom Menace Að sjálfsögðu ætti enginn lifandi maður að kíkja á þessa fyrr en hann hefur séð myndina en freistingin getur reynst um of eftir 17 ára bið. Fyrsti kaflinn í Star Wars serlunni er aðallega til að leggja grunninn fyrir það sem koma skal og gerir hann það bara nokkuð vel. Það eina sem skilar sér engan veginn f þessari bók eru hasar atriðin úr myndinni. T.d. er kappakstursatriðið sem er um tfu mínutur í myndinni aðeins tvær opnur. Blað sem er mjög skemmtilegt að glugga f, eftir að maður sér myndina. Star Wars - Tales Of The Jedi Þetta er sex bóka serfa sem gerist þúsund árum áður en myndirnar. Sagan segir frá Jedi-riddurum þess tíma og er einfaldlega einhver leiðinlegasta lesning sem ég hef lent f. Gott dæmi um hvernig hægt er að klúðra góðri hugmynd með þvf að taka hana aðeins of alvarlega. Serfan á sér einhverja spretti, en ég gafst upp þegar höfundurinn kynnti "...stökkbreytta afkomendur hins forna dökkahliðs krafts". Svona má bara ekki geral - Birgir Örn Steinarsson - Eyddu þeim Öllum. JETAR. WART i pisom- i THE PHANTOM MENACE R'. SS$- ]{ ' fll I C* »"* ! $ 1 Upplifðu ævintýrið - á PlayStation & PC CD ROM ROM ■&

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.