Morgunblaðið - 25.07.1999, Page 15
Stafrænir leikarar
Ein helsta byltingin við tölvugraffkina í Fyrsta Hluta
er tilkoma stafrænna leikara. Leiksigrar skordýrana í
myndunum Bugs's Life og Antz voru tæknilega miklu
einfaldari en raunsæislegar geimverurnar í Fyrsta
Hluta sem þurftu að leika á móti Liam Neeson og Ewan
McGregor. Það eru 66 söguhetjur sem eru algerlega
gerðar í tölvu, þar af tíu sem geta talað. Sex þeirra
hafa fullkomlega raunverulegar varahreyfingar, en það
er erfitt að líkja eftir flóknum andlitshreyfingum svo
hægt sé að tala um Ijósmyndaraunsæi. Þrátt fyrir að
fígúrur í teiknimyndum hafi verið talandi í meira en
hálfa öld, þá er sú tækni sem notuð er í teiknimyndum
ansi óraunveruleg þegar tölvuteiknaða fígúran stendur
milli tveggja raunverulegra leikara. Líkja þurfti eftir
varahreyfingum venjulegs fólks, en gallinn var sá að
ffgúrurnar litu ekkert út eins og venjulegt fólk. Þegar
verið er að láta tölvugerða hausa tala og gretta sig, er
oftast smíðað vöðvanet inni í líkaninu af höfðinu sem
samsvarar andlitsvöðvum mannfólks. I þessu tilfelli,
hinsvegar, mótuðu þrívíddarsmiðir ILM "grunnsvipi"
fyrir fígúrurnar. Bros, grettu, pírð augu, opinn munn
og svo framvegis. Með því að blanda saman þessum
grunnsvipum, tókst þeim að blása lífi í fígúrurnar og
gera þær sannfærandi. Á milli 30 og 45 manns unnu að
stafrænu leikurunum hverju sinni, þar af 15 eingöngu
með Jar-Jar, mest áberandi tölvugerðu fígúruna í
myndinni. Mikil vinna fór í að láta föt fígúranna líta
eðlilega út. Hefðbundnir "fata-hermar" í tölvum vinna
yfirleitt bara með eitt lag fata og eiga auðveldast með
að líkja eftir þunnum, teygjanlegum efnum eins og
spandex eða silki. ILM þurftu því að skrifa sérstakan
hugbúnað þar sem lög eðlisfræðinnar voru notuð til
þess að herma eftir þykkum strigafötum, lopa og leðri
sem lögðust hvert ofan á annað. Löng eyru Jar-Jar
voru einnig skilgreind sem fatnaður i tölvunni, svo þau
myndu dingla og rekast í axlir hans á eðlilegan hátt.
Enn sem komið er - aðeins geimverur
Þrátt fyrir öll tækniundrin í Fyrsta Hluta er rétt að
minnast þess að flest mannfólk i myndinni er enn af
holdi og blóði. Brellumeistararnir veigra sér við því að
líkja eftir fíngerðum andlitshreyfingum mannfólksins.
Ennþá er erfitt að líkja eftir hári svo það virðist
fullkomlega eðlilegt. Kostnaðurinn við tölvuvinnsluna
enn svo hár að ódýrara er að notast við ekta leikara
svo þeir þurfa því ekkert að óttast atvinnumissi I náinni
framtíð, en við getum verið viss um að brellumeistar-
arnir hjá ILM eru þegar komnir langt á leið með að búa
til hinn fullkomna leikara. Leikara sem aldrei eldist,
rífst ekki við leikstjórann, lendir ekki ( bílslysum né
drekkur sig í hel. Því má þó ekki gleyma að þrátt fyrir
að leikararnir séu tölvugerðir, er það ekki vél, heldur
hópur fólks sem stendur á bak við það að gæða þá lífi.
Hver einasta hreyfing er úthugsuð, hver hrukka á
andlitinu teiknuð og röddin kemur alltaf úr mannlegum
barka. Þess vegna þarf ekki að hafa áhyggjur af því að
mannlegi þátturinn hverfi úr kvikmyndum með tilkomu
fleiri stafrænna leikara.
LEIkFaNQ FYI.ftlO
HVEfUUBAftHJVBOXI
SAFNIÐ ÖLLUM 6
Taktu þátt í Stjörnustríðsleik á mbl.is. og kynntu þér allt um nýju Stjörnustríðsmyndina á
stórglæsilegum Stjörnustríðsvef. Svörin finnur þú í Stjörnustríðsblaðinu. Þú getur unnið
ferð fyrir tvo með Samvinnuferðum Landsýn, miða á kvikmyndina, Star Wars tölvuleik, Star
Wars kvikmyndatónlist, Star Wars bol eða húfu frá Skífunni.
Á næstunni verður frumsýnd stórmyndin Stjörnustríð - fyrsti hluti: Úgnvaldurinn. Með aðal-
hlutverk í kvikmyndinni fara Liam Neeson, Ewan McGregor, Natalie Portman, Jake Lloyd
og lan McDiarmid.
Samvinnuferðir
Landsýn
Nýjar spurnlngar
koma í hverri viku á mbl.is.
Geymið Stjörnustríðsblaðið!
Þorir þú?
<§>mbl.is
-AL-LTAf= e!TTH\SAÐ NÝTl
I
|
í
i
l
- TFÓ-