Morgunblaðið - 30.07.1999, Page 1
1999
FÖSTUDA GUR 30. JÚLÍ
BLAÐ
KNATTSPYRNA
**
tvö og lagði
upp eitt
KATRÍN Jónsdóttir, landsliðs-
maður í knattspyrnu, skoraði
tvö mörk og lagði upp eitt í
stórsigri Kolbotn, 10:0, á
Kaupanger í efstu deild
norsku knattspyrnunnar á
miðvikudagskvöldið. Katrín
skoraði þriðja og fimmta mark
Kolbotn í Ieiknum. Með sigrin-
um er Kolbotn komið í þriðja
sæti deildarinnar, hefur 19
stig, þremur stigum á eftir
Asker, sem er í efsta sæti.
Þrándheims Örn er í öðru
sæti, með 19 stig eins og Kol-
botn, en hefur hagstæðara
markahlutfall.
Katrín kom til íslands í gær
og leikur í kvöld æfingaleik
með íslenska landsliðinu gegn
21 árs liði Ástralíu, sem er í
heimsókn hér á Iandi vegna
Opna Norðurlandamóts 21 árs
landsliða kvenna. Leikur Is-
lands og Ástralíu fer fram á
Valbjarnarvelli í Laugardal og
hefst kl. 16.
Dagur Sigurðs-
son frá um tíma
Katrín með
Gunnar
DAGUR Sigurðsson, leikmaður þýska 1. deildar-
liðsins Wuppertal í handknattleik, er með ónýtan
liðþófa í öðru hné og talið að meiðsli hans geti ver-
ið enn meiri en talið er. Hann verður frá vikum
saman og óvíst hvort hann verði búinn að ná sér
fyrir leiki íslenska landsliðsins gegn Króatíu í und-
ankeppui Evrópumótsins. Fyrri leikurínn fer fram
12. ágúst ytra, en sá seinni 19. ágúst.
Dagur, sem slasaðist er hann var í æfingabúðum
með Wuppertal, var skoðaður af læknum í gær og á
að fara í uppskurð í dag. Deildarkeppnin í Þýska-
landi hefst 28. ágúst og allsendis óvíst hvort Dagur
geti leikið í fyrstu leikjum liðsins.
Roberts til Keflavíkur
ÍSLANDSMEISTARAR Keflavíkur í körfuknattleik
karla hafa gert samning við Bandaríkjamanninn
Chiamti Roberts þess efnis að hann leiki með félag-
inu í úrvalsdeildinni á næstu
leiktið. Roberts er einkar íjöl-
hæfur leikmaður sem getur
leikið allar stöður á vellinum
ojg er rúmlega 2 metrar á hæð.
A háskólaárum sfnum lék Ro-
berts með háskólaliði Okla-
homa State og komst með því í
fjögurra liða úrslit eitt árið.
Hann reyndi fyrir sér í nýliða-
vali NBÁ-deiIdarinnar fyrir
tveimur árum en hafði ekki er-
indi seni erfiði og hefur frá
þeim tíma leikið með félagsliði
í Taívan.
Duranona er efstur ís-
lensku leikmannanna
innsiglaði
sigurinn
Gunnar Oddsson, sem sagt var
upp störfum sem þjálfari
Keflavíkur í síðustu viku, innsiglaði
sigur Keflavíkur á Fram í gærkvöldi,
2:1. Leikurinn fór fram í Keflavík og
var þetta fyrsti leikur liðsins eftir að
Gunnar og Sigurður Björgvinsson
hættu og Kjartan Másson tók við.
Með sigrinum er Keflavík komið
með 13 stig og komst upp fyrir
Grindavík og Val. Grindavfk tapaði
4:1 í heimsókn sinni til Breiðabliks í
Kópavogsdalinn. Þriðji leikurinn
sem fór fram í gærkvöldi var
viðureign Víkings og IA.
Þar höfðu Skagamenn betur, 2:1,
og eru Víkingar því enn fjórum
stigum á eftir Val og Grindavík, í
botnsætinu.
Þýska handknattleikstímaritið
Handball woche hefur tilkynnt
um árlegt val sitt á 10 bestu leik-
manna í hverri stöðu í þýska hand-
knattleiknum á síðasta leiktímabili.
Enginn íslenskur leikmaður er í úr-
valsliði blaðsins þ.e. var valinn best-
ur eða næstbestur í sinni stöðu.
Efstur á blaði íslensku leikmannana
sem í þýskalandi leika er Julian
Duranona, hann er talin sjötta besta
skytta í þýskum handknattleik.
I vinstra horn voru þeir Stefan
Kretzschmar og Nikolaj Jacobsen
valdir bestir en Dimitir Filippov var
valinn í áttunda sæti. I skyttu
hægra megin var Daniel Stephan og
Nenand Perunicic valdir bestir en
Julina Duranona varð sjötti besti
leikmaðurinn í þeirri stöðu, og var
það jafnframt það besta sem ís-
lenskur leikmaður náði í valinu.
í stöðu leikstjómanda voru þeir
Magnus Wislander og Nedeljko
Jovanovic valdir bestir en Dagur
Sigurðsson varð í 10 sæti. Athygli
vekur að Daniel Stephan er valinn í
skyttuhlutverkið en sem kunnugt er
leikur hann langmest sem miðju-
maður.
Besta vinstrihandar skyttan að
mati blaðsins var Kyung-Shin Yoon
og Volker Zerbe næstbestur. Olafur
Stefánsson komst í 8. sæti. I hægra
hornin var Pierrre Thorsson valinn
bestur og landi hans Johann Petter-
son sem lék í annarri deild með
Nordhorn númer tvö. Valdimar
Grímsson hafnaði í 8. sæti.
Christian Schwarzer var valinn
besti línumaðurinn og Dimitri Tor-
gowanow númer tvö sem er afar
einkennilegt þar sem hann lék örfáa
leiki með liði sínu, Frankfurt, vegna
alvariegra bakmeiðsla. Geir Sveins-
son var valinn 8. besti línumaður-
inn. Steinar Ege Gummersbach og
Stefan Hecker, hinn fertugi, sem
gerði nýlega eins árs samning við
Essen, hans 21. ár með félaginu,
voru svo valdir.bestu markverðir
vetrarins.
KNATTSPYRNA: STEFNAN TEKIN Á 3. - 6. SÆTIÐ Á NORDURLANDAMÓTINU / B8
HANDKNATTLEIKUR