Morgunblaðið - 30.07.1999, Qupperneq 2
2 B FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
SUND / EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ
Enginn íslensku sundmannanna komst í milliriðla eftir keppni gærdagsins
Hjalti bætti eigið íslandsmet
HJALTI Guðmundsson, SH, bætti eigið íslandsmet í 50 metra
bringusundi í undanrásum Evrópumeistaramótsins í Istanbúl í
gærmorgun. Synti hann á 29,75 sekúndum og bætti eigið
met, sem hann setti í Barcelona fyrr í sumar, um 21 hund-
raðshluta úr sekúndu. Tíminn nægði Hjalta ekki til þess að
komast í milliriðla, en til þess þurfti að synda á 29,31 sek-
úndu. Hjalti hafnaði í 24. sæti af 31 sundmanni. Jakob Jó-
hann Sveinsson, Ægi, náði sér ekki á strik í sömu grein og
rak lestina og var talsvert frá sínu besta.
Enginn íslensku sundmannanna,
sem synti í gær, komst áfram í
milliriðla og olli árangur í 200
metra skriðsundi Arnar Arnarson-
ar vonbrigðum. Veikindi þau sem
hrjáð hafa Kolbrúnu Ýri Kristjáns-
dóttir, ÍA, hafa greinilega slegið
hana út af laginu á Evrópumeist-
aramótinu. í gær synti hún 100
metra baksund á 1.07,23 mínútum,
sem er hálfri annarri sekúndu frá
hennar besta og varð næstsíðust 32
keppenda.
Órn Arnarson, SH, var einnig
talvert frá sínu besta í 200 metra
skriðsundi. Hann kom í mark á
1.52,90, en íslandsmet hans er
1.50,63. Það þurfti að synda á
1.52,33 til þess að komast í milli-
riðla. Örn byrjaði sundið í gær af
talsverðum krafti og hafði frum-
kvæðið fyrstu 100 metrana. Eftir
það dró smátt og smátt af honum
og loks átti hann ekkert svar við
góðum endaspretti sumra and-
stæðinga sinna. Örn varð 18. af 26
sundmönnum.
Eydís synti vel
Eydís Konráðsdóttir, Keflavík,
náði sér hins vegar ágætlega á
strik í 100 metra flugsundi og varð
aðeins 15/100 úr sekúndu frá ís-
landsmeti sínu frá 1996, synti á
1.03,12. Er þetta næstbesti tími
sem Eydís hefur náð í 100 metra
flugsundi á ferli sínum. Almennt
náðist góður árangur í greininni í
undanrásunum og synda þurfti á
1.01,94 til þess að komast í milli-
riðla.
Elín Sigurðardóttir, SH, var
skráð á meðal keppenda í 100
metra flugsundi, en mætti ekki til
leiks.
í dag keppir Örn í 200 metra
baksundi, Ríkarður Ríkarðsson,
Ægi, í 100 metra flugsundi, Lára
Hrund Bjargardóttir, SH, og Ey-
dís í 200 metra skriðsundi og loks
syndir Kolbrún Ýr 50 metra
baksund. Elín er einnig skráð í
sömu grein en vafi leikur á að hún
geti synt vegna veikinda.
Það verður fróðlegt að fylgjast
með hvemig Erni gengur í dag, en
hann er skráður til leiks með
fimmta besta tímann í 200 metra
baksundi, 2.01,13 mínútur. Takist
honum að komast í milliriðla, hóp
16 bestu, þá keppir hann á ný síð-
degis og nái hann að tryggja sér
sæti í úrslitum syndir hann eftir
hádegi á laugardag í úrslitum. Örn
er Evrópumeistari í 200 metra
baksundi í 25 metra laug, en Evr-
ópumeistaramótið nú fer fram í 50
metra laug.
Tvö Evrópumet
Tvö Evrópumet voru sett í gær,
annað í úrslitasundi í 50 metra
baksundi karla og hitt í milliriðlum
í 100 metra flugsunds kvenna.
Þjóðverjinn Steve Theloke setti
fyrra metið er hann vann sín önnur
gullverðlaun á mótinu, en hann
kom íyrstur í mark í 50 metra
baksundi. Hann kom í mark á 25,66
sekúndum og bætti fimm ára gam-
alt met Franck Scott um 5 hund-
raðshluta úr sekúndu. Thomas
Rupprath innsiglaði tvöfaldan
þýskan sigur er hann kom næstur
Theloke í mark á 25,94 sekúndum.
Theloke hafði áður unnið í 100
metra baksundskeppni á mótinu.
Ljóst er að það er útlit fyrir
mjög jafnt og spennandi úrslita-
sund í 100 metra flugsundi í dag
þegar Inge de Bruijn, Hollandi, og
Svíinn Johanna Sjöberg mætast.
Sjöberg, sem vann í 50 metra
flugsundi og bætti um leið Evr-
ópumet de Bruijn, synti í milliriðl-
um á 59 sekúndum á sama tíma og
Hollendingurinn gerði sér lítið
fyrir og bætti Evrópumetið um 1
hundraðshluta úr sekúndu og
synti á 58,92 sekúndum. Fyrra
metið átti Sjöberg en það setti
hún 1. júlí sl.
Úkraína fagnaði sínum öðrum
gullverðlaunum á mótinu er Jana
Klochkova kom fyrst í mark í 200
metra fjórsundi og fylgdi þar með
eftir góðum sigri sínum í 400 metra
fjórsundi kvenna á mánudaginn.
Tími Klochkova í gær var 2.14,02
mínútur.
Strandarmótld
Opið öldungainc
Strandarvelli
mánudaginn 2. ágúst.
Flokkar:
50 - 54 ára karlar
55 ára og eldri karlar
50 ára og eldri konur
Höggleikur með og án forgjafar
Næst holu á 9. og 18.
Skráning í síma 487 8208, fax 487 8757
eða netfang ghrmot@simnet.is
STRANDARVÖLLUR
Reuters
INGE de Bruijn fagnar Evrópumeti í 100 metra flugsundi að lokinni keppni í milliriðlum í gær. Hún
fær örugglega harða keppni frá Johönnu Sjöberg í úrslitunum í dag.
KNATTSPYRNA
Vilja gjarnan fá
meirí peninga
Reyna við
íslandsmet
ÍSLENSKU konurnar fjórar,
sem taka þátt í Evrópumeist-
aramótinu í sundi í Istanbúl,
Eydís Konráðsdóttir, Elín Sig-
urðardóttir, Kolbrún Ýr Krist-
jánsdóttir og Lára Hrund
Bjargardóttir hyggjast gera at-
lögu að íslandsmetinu í 4x100
metra fjórsundi á sunnudaginn.
Metið er 4.31,49 og var sett af
þeim á Smáþjóðaleikunum í
Reykjavík 1997.
Án forgjafar
1. sæti: Vöruúttekt fyrir 30 þús.
2. sæti: Vöruúttekt fyrir 20 þús.
3. sæti: Vöruúttekt fyrir 10 þús.
Þýska knattspymusamþandið
hafnaði í fyrrradag tilboði stór-
liða Bayern Múnchen og Bayer
Leverkusen um að sjá alfarið um
auglýsingar á leikjum sínum vegna
þýsku deildarinnar. „Við sættum
okkur við þessa niðurstöðu, en
Með forgjöf
1. sæti: Vöruúttekt fyrir 30 þús.
2. sæti: Vöruúttekt fyrir 20 þús.
3. sæti: Vöruúttekt fyrir 10 þús.
þetta sem við viljum er það sem
koma skal,“ sagði Uli Höness fram-
kvæmdastjóri Bæjara. „Málið
snýst um að verða samkeppnishæf-
ir við stórlið Evrópu og við verðum
að taka upp nútíma auglýsingaað-
ferðir,“ sagði Höness. „Það er
brandari að þegar við fáum 600
milljónir króna vegna sjónvarps-
réttar fær Real Madrid 5 milljarða
króna og það er ekki viðunandi
munur,“ segir Karl Heinz-Ru-
menigge varaforseti Bayern
Múnchen. Rumenigge segir lág-
marksupphæð fyrir árið 2000 vera
3 milljarða og því ljóst að um engar
smátölur er að ræða.
Eintracht eyðir miklu
Eintracht Frankfurt skýrði loks
frá þvi hvaðan allar þær milljónir
marka sem liðið hefur eytt í nýja
leikmenn undanfarið kemur. Það
er auglýsingafyrirtækið ISPR sem
stendur á bakvið liðið með nýjum
stuðningssamningi og fær
Eintracht þegar 200 milljónir og
síðan vaxtalaust lán til margra ára
upp á 500 milljónir króna.
Eintracht Frankfurt hefur þegar
eytt þessum peningum til leik-
mannakaupa og eru væntingar í
kringum liðið nú þegar orðnar gíf-
urlegar.
Nándarverðiaun á 2./11., 5./14. og 8. holu - Golfvörur
Ræst verður ú( frá kl. 8:00 lil 10:00 og frá kl. 13:00 lil 15:00.
Skráning í síma 565 5690.
Styrktaraðili er
SPARISJOÐUR ##
HAFNARFJARÐAR
*% Opna «t
Setbergsmótið
verður haldið hjá Golfklúbbnum Setbergi
á frídegi verslunarmanna mánudaginn 2. ágúst 1999.
Kcppnisfyrirkomulag: Höggleikur með og án forgjafar.
Glæsileg verðlaun