Morgunblaðið - 30.07.1999, Page 5
^ a
4 B FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 B 5
KNATTSPYRNA
Skagamenn
lánsamir
SKAGAMENN nældu sér í þrjú mikilvæg stig er þeir lögðu Vík-
inga 2:1 í efstu deild á Laugardalsvelli í gærkvöld. Ekki er hægt
að segja að sigur gestanna hafi verið sannfærandi og geta Vík-
ingar sjálfum sér um kennt að hafa ekki í það minnsta náð einu
stigi í viðureigninni. Heimamenn höfðu tögl og hagldir lengi vel í
leiknum en óskynsamlegur sóknarleikur og slakur varnarleikur
varð þeim að falli. Skagamenn reyndust hins vegar klókari, vörð-
ust skynsamlega og nýttu færin betur. Skildi þar á milli feigs og
ófeigs.
Víkingar, sem hófu keppnistíma-
bilið vel með sigri á Keflvíking-
um, hafa ekki náð að fylgja ágætri
frammistöðu sinni eft-
Gísli ir og hægt og sígandi
Þorsteinsson hefur liðið dregist nið-
skrífar ur f fallbaráttu. Liðið
var fyrir leikinn í gær-
kvöldi eitt og yfírgefið á botni deild-
arinnar með sjö stig og þurfti nauð-
synlega á sigri að halda. Liðsmenn
hugðust láta sverfa til stáls en óska-
byijun Skagamanna, er Kári Steinn
Reynisson skoraði laglegt mark eftir
bægslagang í vítateig Víkinga, setti
heimamenn út af laginu og þeir voru
töluvert lengi að komast í takt við
leikinn. Skagamenn voru sterkari
aðilinn framan af en um miðbik fyrri
hálfleiks voru Víkingar búnir að
jafna sig á markinu og náðu betri
tökum á framlínumönnum Skaga-
manna og voru beittari upp völlinn.
Engu að síður stafaði Skagamönnum
fremur lítil hætta af framlínumönn-
um Víkinga framan af, sem voru
óskipulagðir og nýttu illa tækifærin.
Skagamenn hafa sýnt batamerki í
undanfömum leikjum eftir slæma
byrjun á Islandsmótinu, en voru
heillum horfnir mestan hluta síðari
hálfleiks. Víkingar voru miklu
grimmari og greinilega staðráðnir í
að láta gestina hafa fyrir hlutunum -
og það tókst þeim. A 55. mínútu
fékk Sumarliði Amason, framherji
Víkinga, upplagt tækifæri, en á
óskiljanlegan hátt náðu Skagamenn
að afstýra marki. Sumarliði fékk
knöttinn vinstra megin við mark
Skagamanna og sendi boltann fram-
hjá Ólafi Gunnarssyni, markverði.
Boltinn dansaði á marklínu Skaga-
manna en Gunnlaugur Jónsson,
vamarmaður, var fyrstur á vettvang
og skóflaði knettinum frá marld.
Allt leit út fyrir að Víkingum væri
að takast ætlunarverk sitt í síðari
hálfleik, sem var fremur daufur: að
jafna leikinn. En heimamenn hug-
uðu ekki vel að vamarleiknum og
það færðu Skagamenn sér í nyt. A
76. mínútu léku Stefán Þórðarson
og Kenneth Matijane boltanum á
milli sín fyrir framan vítateig Vík-
inga. Matijane stakk sér framhjá
varnarmönnum Víkinga, fékk bolt-
ann frá Stefáni og skoraði. Eflaust
höfðu flestir áhorfendur búist við
því að markið drægi tennumar úr
Víkingum, en svo var ekki. Þeir
héldu áfram að sækja og innkoma
Þrándar Sigurðssonar hafði góð
áhrif á liðið. Þrándur var grimmur
upp við mark Skagamanna og lagði
upp eina mark liðsins á laglegan
hátt.
Markið hleypti miklu lífi í leikinn.
Víkingar lögðu nú allt kapp á að
jafna leildnn og því var vamarleik-
urinn lagður til hliðar. Skagamenn
bragðust skjótt við og fengu ákjós-
anleg tækifæri til þess að bæta við
mörkum. Bestu færin fékk Kenneth
Matijane rétt fyrir leikslok. í fyrra
skiptið varði Gunnar vel frá honum
en í seinna skiptið var Matijane
klaufi að senda ekki knöttinn í autt
markið. Þess í stað skaut hann í
Unnar Valgeirsson, samherja sinn,
og dæmd var rangstaða. Þá áttu
Skagamenn að fá vítaspymu rétt í
blálokin er Þorri Ólafsson braut á
Stefáni Þórðarsyni inni í teig, en
Bragi Bergmann dómari sá ekki
ástæðu til þess að dæma.
Skagamenn mega þakka fyrir að
ná þremur stigum í viðureigninni
gegn Víkingum, sem fengu síst
færri tækifæri þegar upp er staðið.
Allt annað var að sjá til heima-
manna í gærkvöld eftir dapra
frammistöðu á vellinum í síðustu
leikjum, ekki síst gegn Skagamönn-
um í bikarkeppninni er liðið tapaði
5:0. En lánleysi Víkinga ríður ekki
við einteyming. Þeir fengu gullin
tækifæri til þess að bæta við mörk-
um og ná í að minnsta kosti eitt stig,
en allt kom fyrir ekki.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
SIGURDUR Sighvatsson, varnarmaður Víkings, var fastur fyrir í vörn síns liðs og hafði góðar gætur
á framlínumönnum Skagamanna. Hér er hann í baráttu við Kennneth Matijane, leikmann IA.
„Afar ósáttir við leikinn“
„VIÐ eram afar ósáttir við leik okkar
í kvöld og eigum að geta gert betur.
Mér fannst eins og leikmenn væra
farnir í frí, en ef við ætlum okkur að
komast ofar í deildinni verðum við að
sýna betri leik. Það sem kom okkur
til bjargar var að við gerðum færri
mistök en þeir [Víkingar],“ sagði
Alexander Högnason, fyrirliði ÍA.
Alexander sagði jákvætt að vinna
sigur þrátt fyrir að hafa leikið illa.
„Svo lengi sem við vinnum leiki getur
maður sætt sig við að liðið eigi lélega
leiki, en ég vil nú sjá meiri reisn yflr
leik liðsins heldur en það sýndi nú.
Við náðum að skora eitt mark og síð-
an var eins og leikmenn héldu að
hlutimir gerðust af sjálfu sér. Við
hleyptum þeim inn í leikinn og áttum
íbasli."
Áttum meira skilið
„Eg tel að við höfum átt skilið að
minnsta kosti eitt stig í þessum leik.
En við lékum illa í upphafi leiks og
gáfum þeim eitt mark í forskot. Af
einhverjum ástæðum tekst okkur ekki
að komast í gang þegar mest á reynir
og þegar liðið heftu- engu að tapa fer
það að leika betur,“ sagði Þrándur
Sigurðsson, leikmaður Víkinga.
Þrátt fyrir ósigurinn gegn Skaga-
mönnum í gærkvöld sagði Þrándur að
Víkingsliðið hefði sýnt ákveðin bata-
merki í þessum leik frá því sem verið
hefur. „Það er mikið af stigum enn í
pottinum og engan bilbug að finna á
okkur þrátt fyrir fá stig að undan-
fömu.“ ,
Morgunblaðið/Jim Smart
ALBERT Sævarsson markvörður Grindvíkinga, hafði í nógu að snúast í Kópavoginum í gærkvöldi. Hér á hann í höggi við Ásgeir Baldurs, sem nær
að stökkva aðeins hærra. Salih Heimir Porsa fylgist grannt með.
Færi á færíbandi
BLIKAR fóru á kostum í Kópavoginum í gærkvöldi og fengu færi á
færibandi en skoruðu „aðeins“ fjögur mörk gegn lánlausum Grindvík-
ingum, sem tókst þó að minnka muninn um eitt mark í lokin. Sigurinn
fleytir Kópavogsliðinu upp í 5. sæti deildarinnar á meðan Grindvíking-
ar fara niður í það áttunda og þaðan er stutt í fallbaráttuna. Reyndar
fengu Valsmenn líka á baukinn við þessi úrslit - hröpuðu úr 6. sæti
niður í fallsæti.
Eftir 35 sekúndur kom fyrsta færi
Blika þegar ívar Sigurjónsson
skaut yfir úr upplögðu færi við mark-
teig. Blikarnir pressuðu
Stefán vöm gesta sinna mjög
Stefánsson framarlega, sem áttu
skrifar fyrir vikið í basli með að
byggja upp sóknarleik
enda fór það svo að heimamenn voru
stöðugt að skapa sér marktækifæri.
En eftir nokkur misheppnuð færi í
byrjun misstu Blikarnir aðeins damp-
inn svo að Grindvíkingar komust inn í
leikinn en eftir að þeir höfðu fengið
tvö ágæt færi, bæði skot frá Scott
Ramsey, tóku Blikarnir við sér á ný.
ívar náði góðu skoti á 40. mínútu en
boltinn fór beint í hendur Alberts
Sævarssonar, markvarðar Grindavík-
ur. Tveimur mínútum síðar skallaði
Ásgeir slá en eftir langt innkast Hjalta
Kristjánssonar skoraði ívar loks
fyrsta mark Blika. Mínútu síðar var
eins og varnarmenn gestanna væru
farnir að bíða eftir að Gylfi Orrason
dómari flautaði til leikhlés því þeir
vora ekki viðbúnir þegar Hreiðar
Bjamason skaust upp kantinn og víðs-
fjarri þegar Salih Heimir Porsa skall-
aði boltann í netið af markteig.
Strax á upphafsmínútum síðari
hálfleiks munaði litlu þegar Grindvík-
ingurinn Albert markvörður bjargaði
skoti Kjartans Einarssonar í horn en
skömmu síðar kom Albert litlum
vörnum við þegar Marel Jóhann Bald-
vinsson skoraði eftir góða sendingu
Salihs Heimis. Hinum megin, fjórum
mínútum síðar, þurfti Atli Knútsson
markvörður að taka á honum stóra
sínum og verja skot Duros Mijuskovic
í horn. Marel Jóhann launaði Salih
Heimi sendinguna því sá síðarnefndi
tók vítaspyrnu, sem dæmd var Marel
Jóhanni. Þrátt fyrir nokkur færi tókst
Blikum ekki að bæta við mörkum og
Ásgeir skaut í stöng Grindvíkinga en
þegar Marel var skipt út af á 77. mín-
útu datt botninn úr sóknarleik Kópa-
vogsliðsins. Síðasta orðið átti síðan
Grétar Ólafur Hjartarson þegar hann
minnkaði muninn í 4:1.
„Ég er auðvitað mjög ánægður með
leikinn, sem var stórgóður af okkar
hálfu og sigurinn síst of stór miðað við
færin,“ sagði Sigurður Grétarsson,
þjálfari og leikmaður Breiðabliks,
kampakátur eftir sigurinn. „Mér leist
ekki á blikuna eftir fyrsta hálftímann
og við ekki búnir að skora úr neinu af
þessum fimm til sex færam okkar því
það er oft refsað fyrir það, en sem
betur fer tókst okkur að skora tvö
mörk fyrir hlé. Deildin er svo jöfn að
hvert stig er afar mikilvægt - ekki
síst þar sem við eram í baráttu við Gr-
indvíkinga og urðum að vinna. í leikj-
um okkar höfum við fengið færin en
ekki náð að nýta þau, en sem betur fer
gekk það í dag.“ Blikar sýndu á köfl-
um stórskemmtilega knattspyrnu
enda létu færin ekki á sér standa.
Grindvíkingar náðu ekki upp bar-
áttu hjá sér þrátt fyrir dygga stuðn-
ingsmenn í stúkunni í Kópavoginum.
Vörnin var oft sein til og átti ekkert
svar við snöggum framherjum
mótherjanna, miðjuleikmenn urðu
undir í baráttunni og í framlínunni
fékk Grétar Ólafur lítið svigrúm gegn
varnarmönnum Blika, sem gættu hans
vandlega.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
MAREL Jóhann Baldvinsson lék varnarmenn Grindvíkinga oft grátt f
gærkvöldi. Hér hefði hann sloppið framhjá Allistair McMillan og Guð-
I jóni Ásmundssyni, sem fórna höndum, en var brugðið svo að dæmd
var vítaspyrna, sem Salih Heimir Porsa skoraði úr.
Stigasöfnun
suður með sjó
MEÐ rödd nýráðins þjálfara síns, Kjartans Mássonar, í eyrum
héldu Keflvíkingar út á heimavöll sinn í gærkvöldi og lögðu
Framara 2:1. Kristján Brooks kom þeim yfir strax á áttundu mín-
útu úr vítaspyrnu og fráfarandi þjálfari, Gunnar Oddsson, bætti
um betur skömmu fyrir leikhlé. Reykjavíkurliðið klóraði iítið eitt í
bakkann með heppnismarki tveimur mínútum fyrir leikslok, en
að öðru leyti virtust þeir ekki líklegir til að jafna metin eftir að
forskot Keflvíkinga var orðið tvö mörk.
Með sigrinum losuðu Suður-
nesjamennirnir sig við félags-
skap Víkinga á botni úrvalsdeildar,
hafa nú sigrað í
Edwin tveimur leikjum í röð
Rögnvaldsson og era komnir með
skrífar þrettán stig, tveimur
stigum meira en Val-
ur, sem er í næstneðsta sæti deild-
arinnar - svokölluðu hættusvæði
hvað fall í 1. deild varðar.
Framarar, sem framan af móti
gerðu sig líklega til að velgja liðum
KR og ÍBV undir uggum, hafa farið
halloka að undanförnu og ekki bætti
ósigurinn á Keflavíkurvelli úr skák.
Sáralítil skerpa var í sóknarleik
liðsins og fékk það ekkert einasta
marktækifæri, sem kalla mátti
hreint og klárt.
Keflvíkingar virtust mun ákveðn-
ari en gestimir í byrjun leiks og
Kristján Brooks gerði mestan usla í
vöm þeirra. Vítaspyrnuna fengu
þeir þó algerlega upp úr þurra. As-
geir Halldórsson, sem lék í þriggja
manna varnarlínu Framara, hugðist
skalla boltann frá marki eftir auka-
spymu Eysteins Haukssonar, en
rétti upp hendur sínar í leiðinni og
hafnaði boltinn í annarri þeirra.
Kristinn Jakobsson, dómari leiks-
ins, dæmdi réttilega vítaspyrnu.
Kristjáni varð ekki skotaskuld úr að
skora úr spymunni og gerði það af
miklu öryggi.
Eftir markið bökkuðu Keflvíking-
ar heldur hressilega og var auðséð
að leikmönnum liðsins var umhugað
að halda forskotinu - frekar en að
bæta öðru marki við. Á meðan á
þessu stóð sýndu Framarar öragg-
an samleik, en fundu eigi að síður
ekki leiðir að marki heimamanna.
Oft lauk sóknunum með löngum og
lélegum sendingum, sem Keflvík-
ingar spyrntu umsvifalaust frá
marki.
Þeir sáu fljótlega að það gengi
ekki mikið lengur að dvelja svona á
eigin vallarhelmingi og ekki leið á
löngu þar til hætta skapaðist við
mark Fram. Ólafur Pétursson varði
t.d. frábærlega skot Eysteins
Haukssonar, sem stefndi neðst í
bláhornið. Þetta var aðvöran þeirra
Keflvíkinga og í næstu sókn létu
þeir slag standa og juku muninn.
Áhorfendur fögnuðu því ákaft að
þar var sjálfur Gunnar Oddsson,
sem var vikið úr starfi sem þjálfara
ásamt Sigurði Björgvinssyni eftir
síðasta leik liðsins, sem skoraði
markið með skalla.
í fyrri hálfleik virtist vöm Fram
einfaldlega ekki í stakk búin til að
verjast hröðum sóknum Keflvíkinga
og missti hún hvað eftir annað
framherja heimamanna aftur fyrir
sig. Eftir leikhlé fór leikur Keflvík—
inga í sama farið og um tíma í fyrri
hálfleik. Leikmenn héldu sig aftar-
lega og vængmenn liðsins, þeir
Hjörtur Fjeldsted og Marko
Tanasic, vora komnir í hlutverk
bakvarða. Framarar litu þá á köfl-
um afar vel út á miðjum vellinum og
léku boltanum lipurlega á milli sín
án þess að frekari sóknartilburðir
gerðu vart við sig.
Framarar gerðu þó tvær heiðar-
legar tilraunir til að skora síðasta
stundarfjórðunginn. í fyrra skiptið
varði markvörðurinn Bjarki Guð-
mundsson, sem átti skínandi leik, og
í það síðara hittu tveir sóknarmenn
Fram ekki boltann eftir aukaspymu
Sigurvins Ólafssonar.
Varamaðurinn Halldór Hilmisson
gerði þó óvænt mark er tvær mínút-
ur lifðu leiks úr langskoti sem fór í
vamarmann Keflavíkur og yfir
Bjarka markvörð, en það kom of
seint fyrir Framara - þeir fengu lít-
inn tíma og lítið rúm til að jafna
metin og krækja í eitt stig. Þess í
stað verða þeir að súpa seyðið af að-
gerðaleysi sínu í sókninni. Þvert á
móti hafa Keflvíkingar snúið við
blaðinu eftir brösótt gengi fyrri
hluta sumars. Sjálfstraust þeirra
virtist aukast jafnt og þétt er á leið
og undir stjórn nýs þjálfara stefna
þeir ótrauðir að markmiði sínu - að
leika til sigurs í hverjum leik.
Morgunblaðið/Kristinn
KJARTAN Másson var óspar á hvatningu til sinna manna í gærkvöldi.
Ég vil ekki bakka
KJARTAN Másson, nýráðinn þjálf-
ari Keflavíkurliðsins, var eldhress
eftir sigur í fyrsta leik sínum sem
þjálfari í efstu deild í um sex ár.
Þegar hann var spurður hvort það
hefði ekki verið ánægjulegt, sagði
hann: „Jú, það er svakalega gaman
af þessu. Ég hefði heldur aldrei tek-
ið þetta að mér nema af því að
strákamir óskuðu sjálfir eftir því að
ég tæki við. En að koma aftur og
sigra í fyrsta leik er meiriháttar,“
sagði Kjartan.
Eftir að hafa skorað, hörfaði lið
hans fullmikið og virtist einungis
ætla að halda fengnum hlut. Kjart-
an benti hins vegar mönnum sínum
á að færa sig framar á völlinn á ný.
„Það gerist oft ósjálfrátt eftir að
lið hefur skorað mark, en þeim var
ekki uppálagt að gera það. Ég vil
ekki bakka. Þá er svo mikil hætta
á að fá á sig mark jafnharðan og
það er ekki óalgengt," sagði þjálf-
arinn.
Eigum erfitt með
að skapa færi
Búningsldefi Framara líktist
einna helst egypsku grafhýsi eftir
viðureignina á Keflavíkurvelli.
Þjálfarinn Ásgeir Elíasson steig
fram á gang og lýsti áhyggjum sín-
um. „Ég hef áhyggjur af hversu
mörg mörk við eram að fá á okkur.
Auk þess eigum við í erfiðleikum
með að skapa færi. Þess vegna höf-
um við ekki efni á því að gefa and-
stæðingum okkar mörk,“ sagði Ás-
geir. Uppskrift að sköpun mark-
tækifæra hafði hann á reiðum hönd-
um og virtist einföld: „Til að fá færi
verða menn að stinga sér inn í opin
svæði og aðrir verða þá að senda í~
boltann á þá.“
Ásgeir taldi að um fremur jafnan
leik hefði verið að ræða. „Mínir
menn unnu sumir hverjir ekki nógu
vel í vöminni í fyrri hálfleik, en þeir
þrír sem komu inná sem varamenn
hleyptu nokkra lífi í leik okkar. Það
er aldrei að vita hvað hefði gerst ef _
við hefðum náð að minnka muninn ’
fyrr,“ sagði hann.