Morgunblaðið - 30.07.1999, Síða 7

Morgunblaðið - 30.07.1999, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1999 B 7 FRJÁLSÍÞRÓTTIR Verður Emma George ekki á HM í Sevilla? Emma George, heimsmethafi í stangarstökki kvenna frá Ástralíu, slasaðist Ola á baki á æf- ingu í Sviss í vikunni og er jafnvel talið að hún keppi ekki á heims- meistaramótinu í Sevilla í næsta mánuði. George varð fyrir því óhappi í æfingastökki að lenda á bakinu á hlaupabraut utan dýnunn- ar. Var um tíma talið að hún hefði brotið einhver bein, en síðar kom í ljós að svo var ekki en hún er illa marin víða á líkamanum. Eigi að síður getur heimsmethafinn ekki æft íþrótt sína á næstunni og verð- ur hugsanlega af heimsmeistara- mótinu. George hefur ekki vegnað sem skyldi á mótum í Evrópu í sumar, eftir að hafa átt mjög gott keppnis- tímabil á heimavelli sl. vetur þar sem hún setti meðal annars heims- met sitt, 4,59 metrar. Upp á síðkastið hefur hún verið í æfínga- búðum í Sviss og ætlaði þar að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir heimsmeistaramótið er óhappið varð. George hafði þegið boð um að keppa í stangarstökki á DN Gala- mótinu í Svíþjóð í kvöld og á al- þjóðlega mótinu í Hechtel um aðra helgi. Hefur hún nú skráð sig úr báðum keppnunum. Þess má geta að Vala Flosadóttir og Þórey Edda Elísdóttir eru skráð- ar til leiks á DN Gala-mótið í Stokkhólmi. Reuters ÓHAPP á æfingu gæti komið í veg fyrir að Emma George verði með á HM í Sevilla. AKSTURSÍÞRÓTTIR Ragnar Ingi var öryggið uppmálað SÍÐASTA umferð íslandsmótsins í motokrossi fór fram um síð- ustu helgi og sigraði Ragnar Ingi Stefánsson og innsiglaði þar með íslandsmeistaratitilinn. Fyrir lokaumferðina stóðu leikar þannig að Ragnar Ingi Stefánsson var efstur með 120 stig, Reynir Jónsson með 98 stig og Viggó Örn Viggósson 94. Til að Reynir eða Viggó ættu möguleika á titlinum varð Ragnar að missa úr 1 moto og hafna á eftir þeim í hinum tveim motounum sem ekin voru. Nítján fóru af stað í lokaumferðina. Ifyrsta motoinu var það ÞoiTarður Björgúlfsson sem náði besta við- bragðinu og var fremstur fyrstu hringina. Ragnar Jón Hafsteinn Ingi, Viggó og Reynir Magnússon fylgdu fast á eftir. skrífar Reynir náði fljótlega í forystu en Ragnar og Viggó fylgdu fast á eftir. Er tveir hringir voru eftir fór Ragnar fram úr Reyni og vann motoið, Reynir varð annar og Viggó þriðji. í öðru motoi náði Helgi Valur Ge- orgssón besta viðbragðinu en Viggó, Þorvarður, Ragnar og Reyn- ir fylgdu fast á eftir. Eftir fyrsta hring var Viggó orðinn fyrstur. Ragnar datt og Reynh- komst í ann- að sætið og hélt því til loka. Mikil barátta var um 4. til 10. sæti á milli Þorvarðar, Erlends Eiríkssonar, Helga Vals Georgssonar, Stein- gríms Leifssonar, Karls L. Ragn- arssonar, Þorsteins Marels og Inga Þórs Tryggvasonar. Baráttan milli Helga Vals og Karls endaði rétt við endamarkið er Karl L. missti vald á hjólinu og datt og Helgi Valur ók yfir hann. Öku- menn eru í góðum öryggisbúnaði og því slapp Karl L. með mar og skrámur. Viggó Örn jók forskot sitt jafnt og þétt allt motoið með glæsi- legum akstri og vann motoið með töluverðum yfirburðum. Reynh’ varð annar og Ragnar Ingi þriðji og þar með orðinn íslandsmeistari. Til þess að krækja í annað sætið í Islandsmeistarakeppninni varð Viggó að sigra í þriðja motoinu og Reynir að hafna í þriðja sæti eða aftar. í þriðja og síðasta motoinu var greinilegt að Ragnar Ingi ætlaði að sýna hvernig meistari keyrh-. Hann náði besta viðbragðinu og Helgi Valur, Reynir og Viggó Örn komu næstir. Reynir féll, Viggó Örn komst í annað sætið og Reynir þriðja. Greinilegt var á akstrinum að Viggó ætlaði sér að komast í forystu. Ragnar Ingi, Viggó Örn og Reynir voru sem límdir saman allt motoið. I síðasta hring komst Viggó Örn fram úr Ragnari Inga, sem greinilega líkaði ekki að missa Viggó Örn fram úr sér, og jókst þá baráttan um helming. Þegar tvær beygjur voru eftir náði Ragnar Ingi að skjótast fram úr Viggó Erni sem reyndi allt hvað af tók að snúa taflinu við. I örvæntingar- fullri tilraun missti Viggó Örn grip á framhjóli og datt í síðustu beygj- unni. Reynir, sem hafði fylgt þeim sem skugginn og beðið eftir mis- tökum, þakkaði fyrir og fór fram úr Viggó Erni. Ragnar Ingi vann motoið, Reynir varð annar og Viggó Örn þriðji. Ragnar Ingi keyrði mjög vel allt mótið og tapaði aðeins einu motoi allt tímabilið. Viggó Öm sýndi mik- inn styrk þar sem þetta er aðeins annað árið sem hann keppir í motokrossi. Keppt var á nýrri braut við Lyklafell á Sandskeiði. Brautin er á graslendi og var hún mjög hál og erfið yfirferðar þar sem mikið hafði rignt. Kópavogsbær úthlutaði Vél- hjólaíþróttaklúbbnum þessu land- svæði sem framtíðaraðstöðu fyrir klúbbinn og á þakkir skUdar fyrh- framsýnina. í rúm 20 ár hafa vél- hjólaíþróttaiðkendur barist fyrii' því að fá framtíðaraðstöðu til að geta stundað íþrótt sína á og í sátt við yf- irvöld. Doug Walker hreinsaður af lyfjanotkun EVRÓPUMEISTARINN í 200 metra hlaupi karla, Doug Wal- ker, var á miðvikudaginn hreins- aður af ásökunum um notkun á ólöglegum lyíjum, en Walker féll á lyfjaprófi sl. vetur. Dómstóll breska frjálsíþróttasambandsins sýknaði Walker. Þessi niðurstaða opnar möguleika á því að Walker verði á meðal þátttakenda á heimsmeistaramótinu í frjálsí- þróttum í Sevilla í næsta mánuði, en breska frjálsíþróttasambandið hélt sæti lausu fyrir hann er keppnishópurinn var tilkynntur um sl. helgi. í sýni sem tekið var af Walker á eftir æfingu í desember kom í ljós merki um að hann hefði neytt anabólískra stera. Walker hefur hins vegar alla tíð haldið fram sakleysi sínu og haldið því fram að hann liafi aldrei notað ólögleg lyf til þess að bæta ár- angur sinn í íþróttum. f tilkynn- ingu frá dómstólnum sem sýkn- aði Walker kom ekki fram hverj- ar forsendur væru fyrir niður- stöðunni. Reuters DOUG Walker var glaður í bragði eftir sigurinn á EM í Búdapest í fyrra. Nú getur hann tekið gleði sína á ný. Morgunblaðið/Jon Hafsteinn Magnússon RAGNAR Ingi Sigurðsson á fullri ferð og á eftir honum koma Viggó Örn Viggósson og Reynir Jónsson. ■ STEFÁN Þórðarson, framherji knattsp^Tnuliðs ÍA í efstu deild, var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi aganefndar KSÍ á þriðjudag, en hann var rekinn af velli í leik gegn KR á fimmtudag í síðustu viku. Stefán tók út leikbann sitt gegn Víkingi í gær. ■ DAVID Winnie, skoskur varnar- maður KR, fékk einnig rautt spjald ■ ■ í leiknum og hlýtur líka eins leiks bann. Hann missti því af leik KR við Leiftur í fyrrakvöld. ■ Zoran Miljkovic verður af næsta leik ÍBV í úrvalsdeild eftir að hafa verið úrskurðaður í eins leiks bann á fundi nefndarinnar, en hann hefur fengið fjórar áminningar í deildar- keppninni. ■ TVEIR Vaismenn fengu einnig eins leiks bann, þeir Jón Þorgrím- ur Stefánsson, vegna fjögurra áminninga, og Sigurbjörn Hreið- arsson, sem fékk rautt spjald gegn Breiðabliki fyrir viku. @texti:B MARCO Lanna, ítalskur varnarmaður sem verið hefur í her- búðum Salamanca á Spáni, hefur*- gert tveggja ára samning við Real Zaragoza. Lanna lék með Samp- doria og AS Roma áður en hann fluttist til Spánar árið 1997. ■ BÚLGARSKI leikmaðurinn Lu- boslaw Penew, rifti samningi sín- um við spænska liðið Celta Vigo. Leikmaðurinn sem orðinn er 34 ára verður næsti forseti búlgarska knattspyi-nusambandsins og hyggst gera þar stóra hluti. ■ CHRISTOPH Daum, þjálfari Leverkusen, stendur frammi fyrir , erfiðri ákvörðun mitt í undirbún- ingi liðs síns. Þjálfarinn skapmikli verður að fara í uppskurð vegna verkja í mjöðm og kom tilkynning frá félaginu um að þessari aðgerð væri ekki hægt að fresta mikið lengur þar sem þjálfarinn væri mjög kvalinn og ætti orðið erfitt með gang. Læknar liðsins vilja skipta um mjaðmarlið í Daum en hann má ekki tO þess hugsa og er að reyna allar aðrar leiðir sem læknar segja aðeins frestun á nauð- synlegri aðgerð. ■ SEAN Dundee er á leið frá Li- verpool tO Stuttgart, eftir því sem forsvarsmaður þýska liðsins sagði í gær. Stuttgart þarf að greiða um- 100 milljónir fyrir pOt sem fá tæki- færi hefur fengið með Liverpool. ■ SIGURÐ Rushfeldt er kominn til Rosenborg á nýjan leik en norska félagið óskaði eftir að hann kæmi heim frá Benfica af því að portú- galska liðinu hafði ekki tekist að leggja fram bankatryggingar fyrir kaupverði framherjans. Takist það hins vegar á næstunni er líklegt að Rushfeldt haldi á ný til Portúgal. ■ JOAO Vale e Azevedo forseti Benfica er hins vegar ævareiður út í forráðamenn Rosenborg og segir þá ekki fara eftir samningi félag- anna. „Benfica hefur staðið við sinn hluta samningsins en Rosen- borg hefur hins vegar ekki gert v það sama,“ sagði Azevedo. Hann sagði ennfremur að Benfica hefði þegar greitt fyrstu greiðsluna, um 100 milljónir, samningurinn segði til um. ■ NEWCASTLE sagði upp samn- ingi sínum við 17 ára knattspyrnu- mann, Anthony Parry, eftir að leif- ar af kókaíni fannst í sýni sem tekið var af pilti við lyfjapróf fyrir nokkru. ■ GLENN Helder, fyrrverandi leikmaður Arsenal, sem gekk til liðs við MTK Búdapest á dögunum/ kom ekki með liðinu til Eyja í fyn’a- dag. Helder er meiddur á læri og er frá keppni. LOdegt þykir að hann verði með í síðari leiknum að sögn þjálfai-a MTK Búdapest. ■ FLORIAN Batrinu varnarmaður rúmenska landsliðsins og Dynamo frá Búkrarest hefur verið seldur til . portúgalska félagsins Leiria.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.