Morgunblaðið - 30.07.1999, Qupperneq 8
■nm
KNATTSPYRNA / NM KVENNA 21 ÁRS OG YNGRI
Stefnum á 3.-6. sæti
Morgunblaðið/Halldór
ÞÓRÐUR Lárusson, landsliðsþjálfari, leggur á ráðin með leikmönnum sínum á
fundi utandyra síðdegis í gær.
ÞÓRÐUR G. Lárusson, þjálfari
íslenska 21 árs landsliðs
kvenna í knattspyrnu sem tek-
ur þátt í opna Norðurlanda-
mótinu hér á landi í byrjun
ágúst, segir markmið þess að
ná 3.-6. sæti á mótinu. Hann
telur stuðning áhorfenda liðinu
mikilvægan og að hann geti
fleytt liðinu langt í keppninni.
órður, sem tók við íslenska
kvennalandsliðinu og 21 árs
landsliði kvenna í janúar á þessu
ári, sagði mótið hafa mikla þýðingu
M fyrir ungar knattspymukonur, sem
sumar væru að stíga sín fyrstu
skref í efstu deild kvenna. Hann
taldi að þær sem tækju þátt í mót-
inu öðluðust forskot á jafnaldra sína
og fengju meiri reynslu sem gæti
nýst þeim með sínum liðum. Þá
nefndi hann að þær sem stæðu sig
vel á mótinu hefðu möguieika á að
spreyta sig með kvennalandsliðinu
síðar.
Islenska liðið, sem hafnaði í 7.
sæti á síðasta Norðurlandamóti, er
nú í riðli með Aströlum, Noregi og
' Svíþjóð en Danir, Finnar, Þjóðverj-
ar og Bandaríkjamenn eru í öðrum
riðli. Aðspurður sagði Þórður um
möguleika liðsins á opna Norður-
landamótinu að erfítt væri að segja
til um hvar liðið gæti hafnað en
bætti við að markmiðið væri að
sleppa við að leika um neðstu sætin
á mótinu og hann gerði sér vonir
um að ná 3.-6. sætinu. „Við förum í
hvem leik til þess að vinna sigur og
vonandi tekst okkur að reyta stig af
andstæðingum okkar. Astralir eru
óskrifað blað og okkur hefur gengið
vel gegn Svíum í gegnum tíðina.
Það sama má segja um frammi-
stöðu okkar gegn Norðmönnum á
liðnum árum. Til dæmis gerði 17
" ára landslið kvenna jafntefli við
Norðmenn á Norðurlandamóti ný-
verið. Annars býst ég við að um
sterkt mót sé að ræða. Við getum
tekið sem dæmi lið Bandaríkjanna
en aðallið þeirra varð nýverið
heimsmeistari. Þær stúlkur sem
koma hingað tii lands eiga margar
hverjar eftir að taka við í aðalliði
landsins."
A opna Norðurlandamótinu verð-
ur leikið á níu stöðum á landinu: á
höfuðborgarsvæðinu, Akranesi og í
Borgamesi. Á kynningarfundi sem
Knattspymusamband Islands hélt
fyrir skömmu kom fram að ekki
væri búist við mikilli aðsókn á
Norðurlandamótið að fenginni
reynslu í sambærilegum mótum
sem haldin hafa verið hér á landi.
Þórður sagði hins vegar að stuðn-
ingur við íslenska liðið hefði mikið
að segja og gæti fleytt íslenska lið-
inu lengra en ella.
Opna Norðurlandamót 21 árs
landsliða kvenna hefst 2. ágúst og
lýkur 8. sama mánaðar.
KORFUKNATTLEIKUR
Framtíð Breiða-
bliks í óvissu
Ostojic er
fundinn
MILAN Ostojic, handknatt-
ieiksmaður, sem lék fyrir
nokkrum árum á íslandi með
Víkingi og síðar Breiðabliki,
gerði um helgina samning við
þriðju deildar liðið USV Cott-
bus í Þýskalandi. Þetta er at-
hyglisvert þar sem Ostojic
hvarf sporlaust frá Breiðablik
á sínum tíma án þess að
greiðsla kæmi fyrir hann.
Hann mun hafa haldið tU í
Portúgal og er nú með portú-
galskt vegabréf svo hann telst
ekki til útlendinga í þýsku
deildinni en hann er fæddur (
Júgóslavíu. Þrátt fýrir marg-
ar fyrirspurnir frá HSÍ á sín-
V um túna kom aldrei svar frá
júgóslavneska sambandinu
eða því portúgalska þar sem
talið var að hann léki. Hann
mun um langa hríð hafa leik-
ið með fyrstu deildar liði
Ginasio CS í Portúgal.
Erfiðlega gengur að fá fólk til
starfa fyrir körfuknattleiks-
deild Breiðabliks og hefur verið
rætt um að leggja deildina niður af
þeim sökum.
Stjórn deildarinnar hélt fund á
þriðjudagskvöld þar sem málefni
hennar voru rædd. Að sögn Hann-
esar S. Jónssonar, fráfarandi for-
manns, mættu fáir á fundinn, eða
15 manns fyrir utan leikmenn
meistaraflokks karla. Hannes sagði
að of fáir einstaklingar vildu starfa
fyrir deildina og að formann vant-
aði til þess að leiða hana. „Fjórir
tóku þátt í að reka deildina síðasta
vetur og það gefur augaleið að slíkt
gengur ekki upp. Eg, sem hef
starfað fyrir körfuknattleiksdeild-
ina í 10 ár, þurfti að eyða 2-4
klukkutímum í vinnutíma síðasta
vetur fyrir deildina og það gengur
ekki til lengdar. Ég sé mér ekki
fært að starfa áfram sem formaður
og hef óskað eftir að nýr taki við,
en enginn hefur boðið sig fram. Við
þurfum fleiri til þess að taka þátt í
starfinu og formann til þess að
leiða deildina."
Hannes sagði að starf deildar-
innar væri með blóma: 170 iðkend-
ur, efnilegir leikmenn í yngri flokk-
um karla og kvenna og að meist-
araflokkur karla væri öflugur.
„Það er mikil krafa frá foreldrum
barna um að íþróttafélög veiti góða
þjónustu og en það er ekki hægt ef
of fáir taka þátt í starfi félaganna.
En ef fleiri gefa sig fram ætti
starfið að ganga betur. Á fundinum
á þriðjudag gáfu nokkrir sig fram
til að starfa fyrir okkur en við þurf-
um fleiri til þess að hægt sé að
reka deildina með eðlilegum
hætti.“
Hannes sagði að hann vænti þess
að fleiri gæfu sig fram á næstu
dögum en annar fundur yrði hald-
inn í næstu viku þar sem framtíð
deildarinnar yrði ráðin. „Við ætlum
að bíða í nokkra daga og vonum að
fólk taki við sér. Ef fleiri koma
ekki til starfa fyrir okkur er fram-
tíð deildarinnar í mikilli óvissu.“
Rússi til
neynslu hjá
Haukum
OKSANA Kerechenko, rúss-
nesk, rétthent skytta, er vænt-
anleg til reynslu hjá kvennaliði
Hauka í handknattleik. Ker-
echenko er 28 ára og 1,82 m á
hæð. Hún hefur leikið með Ku-
bur í Rrasnodar og lék með
rússneska unglingalandsliðnu
sem varð heimsmeistari árið
1991.
Að sögn Þorgeirs Haralds-
sonar, formanns handknatt-
leiksdeildar félagsins, er von á
leikmanninum seinni hluta
ágústmánaðar. Þorgeir sagði að
ef Rússinn stæði undir vænt-
ingum yrði gerður samningur
við hann fyrir næsta vetm-.
Haukar hafa styrkt leik-
mannahóp sinn verulega fyrir
næsta vetur, en Inga Fríða
Tryggvadóttir, fyrrverandi
leikmaður Stjörnunnar, er
gengin til liðs við Hafnarfjarð-
arliðið. Þá hefur Hjördís Guð-
mundsdóttir markvörður, sem
lék áður með Víkingi, gengið í
raðir Hauka. Auður Her-
mannsdóttir landsliðskona,
sem var meidd síðasta leik-
tímabil, hefur hafið æfingar og
eru forráðamenn Hauka bjart-
sýnir á að hún verði með næsta
vetur. Þorgeir sagði að miklar
vonir væru bundnar við
kvennalið félagsins og að það
stefndi á að vera í fremstu röð
næsta tímabil.
Lasse Stenseth, norskur
hornamaður, sem karlalið
Hauka samdi við í vor, er kom-
inn til landsins. Hann lék áður
með Drammen og hefur verið
markahæsti hornamaður
norskur úrvalsdeildarinnar síð-
ustu fjögur ár.
■ SUNDERLAND festi í gær
kaup á sænska landsliðsmanninum
Stefan Schwarz frá Valencia á
Spáni. Kaupverð leikmannsins er
sagt tæpur hálfur milljarður
króna.
■ SHWARZ er margreyndur
miðjumaður og hefur áður komið
við sögu í ensku knattspyrnunni -
lék með Arsenal 1994-5. Hann er
þrítugur að aldri og lék með Ben-
fica í Portúgal og Fiorentina á
ftalíu áður en hann hélt til Va-
lencia. Samningur hans við nýliða
Sunderland er til fjögurra ára.
■ CELTA Vigo keypti í gær
argentínska landsliðsmiðherjann
Gustavo Lopez frá Real Zaragoza.
Framherjinn er 26 ára og á að baki
37 landsleiki fyrir Argentínu.
Hann er tíundi leikmaðurinn sem
forráðamenn Celta kaupa á undan-
förnum vikum og ætlunin er
greinilega að gera enn betur en á
síðustu leiktíð. Þó ber þess að
geta, að fimm leikmenn hafa verið
seldur frá liðinu á sama tíma.
■ NORSKA úrvalsdeildarliðið
Strömsgodset hefur fengið eist-
neska landsliðsmanninn Marek
Lemsalu að láni í þrjá mánuði frá
Fiora Tallin, einstnesku meistur-
unum. Þjálfari Floru er Teitur
Þórðarson, en með Strömsgodset
leika bræðurnir Valur Fannar og
Stefán Gíslasynir. Þeir voru þó
hvorugur í byrjunarliðinu í síðasta
leik liðsins.