Morgunblaðið - 24.09.1999, Page 1
VETRARTÍSKUNA/6 ■ BRJÓSTAGJÖF/6 ■ GLAÐBEITTUR SAUMAFUGL/8
FJAÐRAHAM OG ANNAR SEM LÍKIST LILJU/4 ■ HÁVAÐAROK KRINGUM
Geri
Haliwell
fyrrverani
kryddpía
bregður
stundum
fyrir sig
spænsk-
unni.
FOSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999
BLAÐ C
GLERAUGU TIL GAGNS OG GAMANS/2 ■ ÍSPOKALAMPI, STÓLL í
Suðræa
í TAKT við suðræna og seiðandi tón-
list dilla íslendingar sér sem aldrei
fyrr. Mögulega gerir sólarleysið í
sumar þetta að verkum. Og þó. Það
sama virðist eiga sér stað víðar og í
mun sólríkari löndum. Latnesk áhrif
eru greinileg í dægurtónlist og dansi.
Á spænsku syngja stjörnurnar
popplögin með suðrænu ívafi; Ricky
Martin, Geri Haliwell, Jennifer
Lopez, Enrique Iglesias og síðast en
ekki síst Lou Beca með eitt vin-
sælasta lag á íslandi; Mambo no. 5.
Skýring á suðrænu sveiflunni er
ekki auðfundin en Ásgeir Nikulás Ás-
geisson, verslunarstjóri í Skífunni á
Laugavegi, segir straumana loks hafa
borist hingað frá spænskumælandi
þjóðum. „Ovenju mörg lög eru vinsæl
í þessum dúr en auðvitað hafa ýmsir
duflað við þessa tegund tónlistar áður
og náð vinsældum, eins og Gipsy
Kings.“ Ásgeir Nikulás segir að suð-
rænu sveiflunni megi líkja við rappið
á vissan hátt. „Lengi var sú tónlist að-
eins spiluð í svertingjahverfum
Bandaríkjanna en allt í einu var eins
og fjöldinn gleypti við þessu.“
Allir í dans
Dansskólar eru að hefja haust-
námskeiðin og viti menn. Salsa,
mambó og jafnvel merengue heillar
unga jafnt sem aldna. Jóhann Örn
Ólafsson danskennari segir tónlist
sem þessa afar vinsæla á dansnám-
skeiðum, hana megi nota við öll
tækifæri og hún gefi pörum færi á að
dansa saman.
Ólafúr Geir Jóhannesson dans-
kennari tekur undir og segir áhugann
vera gríðarlegan. „Mambo no. 5 var
kosinn dans ársins í Hollandi um dag-
inn en við lagið eru til ótal útgáfur af
dönsum, meira að segja línudans."
„Sori og viðbjóður“
Ekki eru allir á einu máli um
ágæti Mambo no. 5 og álíka popp-
laga með suðrænni sveiflu. „Lögin
eru sori og viðbjóður," segir Margeir
Ingólfsson, skífuþeytari í Reykjavík.
„Þetta er ekki alvöru tónlist, bara
plat. Alvöru suður-amerísk tónlist er
hins vegar æðisleg en heyrist því
miður afar sjaldan í útvarpinu. Ricky
Martin og hans líkar eru einfaldlega
í gróðahugleiðingum og kunna ekki
önnur ráð en að skemma gamla og
góða tónlistarstefnu."
DJ Margeir hefur getið sér gott
orð fyrir að spila suðræna tónlist á
skemmtistöðum borgar-
innar. „Eg spila meðal annars
tónlist með söngkonunni
Joyce og finn að latnesk tón-
list fellur fólki í geð. Það er þó
ekki ástæðan fyrir því að ég
spila þessa tegund tónlistar, mér
finnst hún einfaldlega skemmtileg."
Þeim sem falla fyrir mambótakti og
salsadansi, er bent á salsabar í mið-
bæ Reykjavíkur að nafni Tres
Locos. Þar er oft spiluð sjóðheit og
seiðandi tónlist langt fram á nótt
um helgar.
Ricky Martin er stór stjarna víða um heim
Sjóðheitur
mambó-
drykkur.
og betn
óðan svefn
eilsu
Hjá okkur færðu allt í svefnherbergið, gott úrval
húsgagna og teppasetta. Hjá okkurfærðu
CHIROPRACTIC heilsudýnurnar sem yfir 32 þúsund
kírópraktorar mæla með, þar á meðal þeir íslensku.
Ný sérverslun á Akureyri
Nú höfum við opnað glæsilega 300m2
verslun að Dalsbraut 1, Akureyri.
Listhúsinu Laugardal, sími 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, sími 461 1150 • www.svefnogheilsa.is