Morgunblaðið - 24.09.1999, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.09.1999, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ___________________________FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 C 7.v DAGLEGT LÍF Bandarískum konum er bannað að gefa börnum sínum brjóst við opinberar byggingar. Sjálfstraust og festa lykilatriði KRÖFUR umhverfisins gera for- eldra oft óörugga því allir eru með sína uppskrift að því hvemig maður á að vera sem móðir eða bam,“ seg- ir Þórkatla Aðalsteinsdóttir sál- fræðingur. „Við konur emm dug- legar við að segja reynslusögur: „Mín/minn var svona, gerðu bara svona eða hinsegin, það dugði mér. Hva læturðu barnið sofa hjá þér þegar þú ert að gefa? Þetta er nú ekki nógu gott!“ Svona athuga- semdir auka á óöryggi foreldranna og það getur gert mann snælduvit- lausan þurfa að hlusta á allar sög- urnar. Lykillinn er sá að hlusta á sína eigin dómgreind og fikra sig áfram,“ segh- hún. Þórkatla bendir á að öryggis- þörfin sé ein af sterkustu þörfum mannsins og henni verði að full- nægja til þess að bamið geti lært. „Við læram ekki ef við eram óör- ugg, við tökum ekkert inn og náum ekki að nýta okkur skynjun okkar ef öryggi er ekki til staðar. Þegar ungbörn koma í heiminn hafa þau ekkert öryggi til þess að bera því þau hafa enga reynslu. Það er reynslan sem færir okkur öryggi og hrynjandi í daglegu lífi er ungböm- um afar mikilvæg því hún auðveld- ar þeim að ná sér í reynslu. Eftir því sem hlutimir ger- ast oftar, því betur kann- ast þau við þá og öryggi þeirra eykst að sama skapi. Því er mikilvægt að ná utan um svefn- og mat- artíma, láta hlutina gerast í ákveðinni röð á hverjum degi, nota sama tóninn þegar við tölum til þeirra og forðast óvæntar uppákomur. Allt þetta hjálpar við þroskann því róleg böm geta lært og náð sér í reynslu,“ segir hún. Veikindi barns fyrstu mánuðina eða óværð sem erfitt er að finna lausn á getur orðið að mjög var- hugaverðum vítahring. „Þetta get- ur gerst því erfitt er að upplifa það, að geta ekki mætt þörfum bamsins síns því maður veit ekki hverjar þær era. Ovær börn og kröfuhörð, eða böm sem era mikið lasin fyrsta árið skapa mikið samviskubit, eink- um hjá móður, sem heggur í tengsl- in að því leyti að hún upplifir sig ófullnægjandi og ómögulega og gefst jafnvel upp. Sú uppgjöf getur litað tengslin milli móður og barns lengi nema að hún fái mikla aðstoð og njóti skilnings meðan á þessu stendur,“ segir hún. Einnig bendir Þórkatla á að sjálfsmynd foreldranna gegni veigamiklu hlutverki í tengsla- myndun. „Börn móta sína sjálfs- mynd fyrst og fremst í gegnum sambandið við foreldra sína fyrstu árin. Ef sambandið er jákvætt og viðurkennandi fær bamið á tilfinn- inguna að það sé áhuga- og elsku- verður einstaklingur sem auðvelt sé að láta sér þykja vænt um. Það er sú mynd sem barnið síðan ber með sér alla ævi. Ef foreldrarnir eru spenntir, stressaðir og óá- nægðir með sjálfa sig skrifar barn- ið það á sig, að þeir séu óánægðir með það, að það sé ekki nógu mik- ils virði. Því skiptir miklu að for- eldrar stappi stálinu í sjálfa sig í foreldrahlutverkinu. Þeir þurfa líka að viðurkenna mistök sín og reikna með því að þeim geti skjátl- ast. Foreldrahlutverkið er erfið- asta hlutverk lífsins," segir Þórkatla loks. Skrautgripir eða fæðugjafi? Brjóst eru oftast höfð til skrauts eða örvunar og eiga að sumra mati helst að vera í felum þegar þau eru nýtt í megintil- gangi sínum. Stöðug umræða um brjóst kvenna og breyttar tísku- áherslur láta fáar konur ósnortnar en þær sem ekki vilja fara i „lýta“-aðgerð geta breytt náttúrulegu sköpulagi sínu með platfyll- ingum eða vatnsbrjóstahald- ara. Frelsisstyttan á Liberty- eyju er engin undantekning. Jákvætt viðhorf ekki nóg í Bandaríkjunum eru sjö mjólkurbankar sem taka á mdti gjafamjólk handa fyrirburum og nýburum með alvarlegt ofnæmi. SKORTUR á stuðningi er oft ástæða þess að brjósta- gjöf tekst ekki sem skyldi," segir Steina Þórey Ragnarsdóttir hjúkrunai’- fræðingur um tilhneigingu til ábótargjafar, það er gjafar á annarri næinngu en móðm-mjólk. Tíðni brjóstagjafar virðist hærri á íslandi en greint hefur verið frá 1 erlendum rann- sóknum, samkvæmt könn- un Hildar Atladóttur nær- ingarfræðings á mataræði íslenskra ungbarna og virðist þurrmjólkurnotkun einnig sjaldgæfari hér en í nágrannalöndunum. Leiðir rannsókn hennar í ljós að 97% eins mánaðar og 93% tveggja mánaða barna væru á brjósti og að 74% tveggja mánaða barna fengju eingöngu móður- mjólk. Við fjögurra mán- aða aldur reyndust 83% á brjósti en 77% sex mánaða barna. I hvoru tilfellanna fyrir sig fengu 46% og 5% brjóstamjólk einvörðungu og við 12 mánaða aldur vora 13% barna enn á brjósti. Þess má líka geta að 98% eins árs barna drekka kúamjólk sem er mun hærra hlutfall en á Norðurlöndunum. Segir Hildur að þótt tíðni gjafar hafi reynst meiri hér en erlendis fái færri börn ein- göngu brjóstamjólk en bú- ast hefði mátt við miðað við það sem konum hefur verið ráðlagt, það er að hafa börn sín á brjósti fyrstu fjóra til sex mánuð- ina og að gefa þeim helst ekki aðra næringu. Steina Þórey vitnar í rannsókn Mörgu Tome frá 1993 þar sem fram kemur að ábótargjöf er mismikil á íslandi eftir landshlut- um, allt frá 7% upp í 41%, en 19,4% á landsvísu að meðaltali við 2-3 mánaða aldur. Fram kemur sú til- hneiging hjá mæðrum að endurtaka ábótargjafir hjá næsta barni hafi fyrra barn fengið ábót. í rann- sókn Mörgu kemur fram að 67% ungbarna á Norð- urlandi vestra fá brjósta- mjólk eingöngu við þriggja mánaða aldur en einungis 44% barna á Vestfjörðum. Því hafi bú- seta áhrif á það hvort mæður hafi börn eingöngu á brjósti. Ábót talin nauðsynleg til ársins 1984 Steina Þórey segir jafn- framt að fram til ársins 1984 hafi ábót verið talin barninu nauðsynleg og að slíkt viðhorf hafi verið rak- ið til þess að heilbrigðis- starfsfólk hafi boðið mæðrum ábót við brjósta- gjöfina, sem aftur hafi skapað tiltekna hefð um nauðsyn þess. Einnig hafi verið talið að börn sem séu - lengi á brjósti eingöngu geti átt í erfiðleikum með að borða síðar, sem ekki sé rétt. „Því fyrr á meðgöngu sem konan tekur ákvörðun um að hafa barn sitt á brjósti því líklegra er að brjóstagjöf verði árang- ursrík. Rannsóknir sýna að undir lok meðgöngu hafi 75% kvenna ákveðið hvernig þær hyggist næra börn sín eftir fæðingu og því skiptir jákvæð mynd af brjóstagjöf máli, ásamfy góðri þekkingu. Fræða þarf konuna snemma á meðgöngu um ávinning brjóstagjafar og hvaða vandamál geti komið upp svo hún sé betur í stakk búin til þess að takast á við þau,“ segii’ hún. Steina Þórey segir enn- fremur að viðhorf kvenn- anna til brjóstagjafar, sem og þeirra sem þær um- gangast virðist skipta miklu máli. Jákvætt við- horf til brjóstagjafar dugi ekki eitt og sér. „Rann- sóknir hafa líka sýnt að mæður sem fá ráðgjöf í brjóstagjöf og stuðning um það leyti sem barnið fæðist eru líklegri til þess að hafa börnin eingöngu á brjósti og í lengri tíma. Konur þurfa raunhæfar upplýsingar um kosti og galla brjóstagjafar, svo þær geti tekið upplýsta ákvörðun, og aðstoð frá heilbrigðisstarfsfólki, eig- inmönnum, fjölskyldu, vin- um og samfélagi,“ segir hún að lokum. ► VEISTU \ AF HVERJU - VIÐFÁUM HRUKKUR MEÐ ALDRINUM? MiVf * mflð Húöin hægir á framleiöslu Q10, efninu sem heldur húöinni sléttri. Nú er hægt aö fá Q10 í dag-, nætur og augnkremi frá Nivea Visage. Veldu þaö sem hentar þér og húöinni þinni best. QIO frá Nivea Visage andlitskrem sem virka! HIVEA www.jsh.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.