Morgunblaðið - 24.09.1999, Page 2

Morgunblaðið - 24.09.1999, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF UMGJARÐIR AUGNANNA Gleraugu til gagns og gamans „Fólk notar ekki sömu skóna í tennis og þegar það fer út að skemmta sér og sama máli gegnir um gleraugna- umgjarðir." Alain Bekaert hönnuður gleraugnaumgjarða Gleraugnaumgjarðir virðast lúta lögmálum tískunnar í ríkari mæli en áður og bjóðast nú í alls konar frumlegum útgáfum. Vaigerður Þ. Jónsdóttir og Kjartan Þor- björnsson ljósmyndari gengu um miðborg- ina og gáfu vegfarendum með gleraugu sérstakan gaum. Litu líka inn í verslun á Laugaveginum þar sem Alain Bekaert, belgískur hönnuður gleraugnaumgjarða, kynnti nýjustu tísku sína og ráðlagði fólki. FLESTIR sem standa augliti til auglitis við aðra manneskju taka fyrst eftir augunum - eða gler- augnaumgjörðunum," fullyrðir Ala- in Bekaert sölustjóri, hönnuður og einn þriggja eigenda belgíska fyrir- tækisins theo cyewear. Fyrirtækið settu þremenningarnir á laggirnar fyrir tólf árum vegna þess að þeim þóttu umgjarðir, sem þeir sáu á sýningum víða um heim harla óspennandi. „Kollegar mínir, Patrick Hoet og Wim Sommer, eru sjóntækjafræð- ingar. Sjálfur er ég sonur belgísks verksmiðjueiganda og fataframleið- anda, sem varð að ósk sinni um að sonurinn færi í viðskiptafræðinám í Cambridge. Eg starfaði lengi við fjölskyldufyrirtækið, þar sem ég hafði hönnun bamafatnaðar m.a. á minni könnu. Eiginkona mín er hins vegar sjóntækjafræðingur og því fylgdi ég henni oft á sýningar er- lendis," segir Bekaert, sem vegna eiginkonunnar kynntist þeim Hoet og Sommer. Gler í súpunni „Okkur varð vel til vina og eitt sinn sem oftar á sýningu í Mílanó barst í tal hve sýningargripimir væru einkar óáhugaverð fram- leiðsla," segir Bekaert og rekur áfram hvernig kaupsýslumaðurinn og bamafatahönnuðurinn varð einn af þremur hönnuðum gler- augnaumgjarða, sem nú em seldar jafnt á Vesturlöndum sem í Asíu, Saudi-Arabíu og víðar. „Við töldum okkur geta hannað HELOSAN húð-, hand- og fótaáburður Taktu hann með þér f sólarfríið! Sótthreinsandi, græðandi, mýkjandi, vinnur gegn flögnun og sólarexemi. til auglitis nýstárlegri og smekklegri um- gjarðir og ákváð- um að hanna nokkrar í sam- einingu til prufu. Patrick fann verksmiðju til að framleiða sýnishornin, en mest var leik- urinn okkur til gamans gerð- ur. Þótt um- gjarðimar væra smart og óvenjulegar skal játað að gæðin vom ekki upp á marga fiska enda litlu til kostað. Með slík gleraugu missti ég til dæmis einu sinni annað glerið ofan í súp- una mína,“ viðurkennir Beakart hlæjandi en bætir snarlega við að atvikið hafi orðið áður en fram- leiðsla hófst íyrir almennan mark- að. Gleraugnasala segir hann strax hafa hrifist af prufunum og því hafi þeir félagar hafist handa við að bæta gæðin og leita til verksmiðja Við val á gleraugnaumgjörðum spyr hönnuðurinn Alain Beka- ert kaupendur um ímyndina sem þeir vilja skapa sér. um að framleiða hina ýmsu hluta umgjarðanna. Síðan hafa umsvifin aukist jafnt og þétt. Aðalbækistöðvarnar eru í Antwerpen en fyrirtækið er líka með skrifstofur í New York, Hong Kong, Tókýó og París auk þess að hafa umboðsmenn víða uin heim. „Við höfum tölu á starfsfólkinu, enda kappkostum við að hafa yfir- bygginguna í lágmarki. Reynslan úr föðurhúsum kenndi mér að ekki er fjárhagslega hagkvæmt að fjár- festa í eigin verksmiðju. Vélar eru fljótar að úreldast og þvi þyrfti e.t.v. að fjárfesta í nýjum tækja- kosti í hvert skipti sem okkur dytti í hug einhver nýjung. Framleiðslan er því í ýmsum verksmiðjum sem hafa yfir að ráða viðeigandi tækj- um hverju sinni.“ Sækja víða innblástur Þótt Belgarnir þrír haldi um stjórntaumana era þeir jafnframt einu hönnuðir fyrirtækisins. „Við hönnum umgjarðimar í samein- ingu og sækjum víða innblástur. Einu sinni vorum við að borða spaghettirétt á veitingahúsi og þar sem ein ræman hafði ratað út af disknum lékum við okkur að því að laga hana eins og umgjörð." Og Bekaert kann fleiri sögur af upp- runa sumra gleraugnaumgjarð- anna. „Spaghettiumgjörðin" var framleidd sem og margar fleiri þar sem innblástur hugmyndanna virð- ist nokkuð langsóttur. Eftir að skýring er fengin minnir þó ein gerðin á japanskt vatnslitamál- verk, en hugmyndina að löguninni fengu þeir félagar þegar þeir horfðu á handbragð listamanns eins í Japan. Sérhver „fjölskylda“ í níu litum Fyrstu umgjarðir þeirra félaga voru úr plasti, en núna eru flestar úr málmi, sem skorinn er með leisertækni. Tæknilega segir Beka- ert umgjarðirnar vera öllu flóknari í framleiðslu en í byrjun. Stundum sé plast og málmur notað í bland, allt eftir því hvernig áferðin og út- litið eigi að vera. „Við leitum stöðugt nýrra leiða, aðferða og efna í umgjarðirnar og eru opnir íyrir öllum nýjungum. Fyrst og fremst leggjum við áherslu á gæði, Fæst í apótekum. Vetrartískan í gleraugnaumgjörðum sem Alain Ferðafélag íslands Mörkinni 6 I08 Reykjavík Simi 568 2533 » Fax 568 2535 » www.fi.is » fi@fi.is Dags- og helgarferðir í haustlitum Landmannalaugar - Jökulgil 24.-26. september Heillandi landslag. Spennandi ferð. Pantið og takið farmiða á skrifstofunni. Laugardagur 25. september kl. 08.00 Langavatn - Vikrafell - Hreðavatn Um 7 klst. göngu- og haustlitaferð í Borgarfjörð. Verð kr. 3.000. Sunpudagur 26. september kl. 13.00 a. Þingvellir í haustlitum. Um 3 klst. ganga milli eyðibýla. Verð kr. 1.400. b. Hellaskoðun í Gjábakkahrauni. Fjölskylduferð. Hafið Ijós með. Verð kr. 1.400, frítt fyrír börn með fullo'rðnum. Brottför i dagsferðir frá BSÍ, austanmegin, og Mörkinni 6.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.