Morgunblaðið - 24.09.1999, Side 4

Morgunblaðið - 24.09.1999, Side 4
Ljósmynd/Kristján Maack 4 C FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 H MORGUNBLAÐIÐ h MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 1999 C 5 DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF Til að framleiða stðl sem virðist laufléttur og sem reyndar heitir Vængur þurfti Dögg að útvega sér timburmót sem vegur 700 kíló. Fyrir sýninguna brá Dögg á leik og klæddi einn stólinn hvítum ijöðr- um til að undirstrika nafn stólsins enn frekar. íspokalampi, stóll í flaðraham og annar sem líkist lilju LAMPI úr klakapokum, stóll í fjaðraham og lilja í formi sófa og stóls er sýnishom af því, sem þrír íslenskir hönnuðir, þau Aðalsteinn Stefánsson, Dögg Guðmundsdóttir og Friðleifur Krist- jánsson sýndu á húsgagnasýningunni í Bella Center nýlega. Þau Aðalsteinn og Dögg sýndu hvort með sínum hópi ungra hönnuða, skólafélaga sinna úr Danmarks Design-skólanum, en Frið- leifur hefur lært iðnhönnun í Banda- ríkjunum og var sjálfur með bás, þar sem hann sýndi sófasett og stofuborð. Ljós í leiknum og leikur í Ijósinu „Lysfortællinger" eða „Ljósasög- ur“ er nafnið á sýningu, sem sjö ungir hönnuðir hafa haldið undanfarið í húsakynnum danska lampafyrirtæk- isins Louis Poulsen og í þeim hópi er Aðalsteinn Stefánsson. Hann lagði stund á innanhússarkitektúr við Dan- marks Design-skólann, en lauk síðan prófí þaðan í leikmyndahönnun, auk þess sem hann hefur starfað sem ljósamaður í Þjóðleikhúsinu. Leikmyndahönnun kom upp á hjá Aðalsteini þar sem hann hafði fengist við innsetningar þar sem rýmið og ljósið var í forsæti. Og það er kannski ekki fjarri því að það sé eitthvað leik- rænt við lampana hans úr ísmolapok- um, alla vega eitthvað leikandi. Og ✓ A húsgagnasýningunni í Bella Center gaf m.a. að líta verk þriggja íslenskra hönnuða. Sigrún Davíðsdóttir spjallaði við þá um fjörlegar hugmyndir og fallegar útfærslur. Dögg Guðmundsdóttir Friðleifur Kristjánsson Aðalsteinn Stefánsson þannig hefur hópurinn staðið að sýn- ingarhaldinu. Aðalsteinn segir hug- myndina með hópnum líka vera að hittast svo þau geti kynnt verk sín hvert fyrir öðru, en raunin hefíu- orð- ið sú að skipulagning varðandi sýn- ingarhaldið tekur mikinn tíma. Það þarf einfaldlega mörg handtök til að hlutirnir gangi upp. Hugmyndin að íspokalampanum fæddist síðasta ár og það voru Ijós- brotin í vatninu sem fönguðu athygli Aðalsteins. Hann hefur svo þreifað sig áfram með hugmyndina, sett liti í pokana og kaupandinn fær poka með mismunandi litum í. Hinn hamingju- sami lampaeigandi getur því skipt um liti eftir því hvernig liggur á honum. Ljós og lith- fanga hug Aðalsteins í fleiri verkum. Á sýningunni hjá Louis Poulsen sýndi hann ljós í kassa með tökkum á og þá er hægt að nota til að láta ljósið skipta litum. Og lampi, sem lítur út eins og gamaldags rannsókn- artæki, varpar mynd að eigin ósk upp á vegg. Hér gætir þess hvernig hann hugsar gjaman um ljós sem hluta af rými. Ljósamaðurinn er enn að störf- um... Netfang Aðalsteins er: rafalli@- hotmail.com. Stóll í fjaðraham og annar léttleiki Til að framleiða stól sem virðist laufléttur og sem reyndar heitir Vængur þarf timburmót sem vegur 700 kíló. Dögg Guðmundsdóttir hönn- uður fann húsgagnasmiðju á Fjóni sem treysti sér til að vinna verkefnið en stóllinn er gerður úr sveigðum krossvið. Niðurstaðan féll svo vel í smekk skipuleggjenda húsgagnasýn- ingarinnar í Bella Center að stóllinn var valinn til að vera inni í glerhring- hurðinni, sem allir gestir á húsgagna- sýningunni gengu um. Stólinn má nota á ýmsa vegu og hugmyndin að honum spratt upp úr leik Daggar með að setja saman þrjá hringi og ef vel er að gáð má enn sjá móta fyrir þeim í lögun stólsins. Hug- myndin var einnig sú að gera stól sem hægt væri að sitja í á ýmsa vegu og svo átti stóllinn að vera með léttu yf- irbragði. Allt þetta felur stóllinn í sér og hann vakti athygli, sem Dögg von- ar að verði til að einhver fái áhuga á að framleiða hann. Fyrir sýninguna brá Dögg auk þess á leik og klæddi einn stólinn hvítum fjöðrum til að undirstrika nafn stólsins enn frekar. Fjaðrahams- útgáfan er ekki hugsuð til fram- leiðslu, heldur sem sýningargripur. Dögg hélt nýlega sýningu í Stöðla- koti á lömpum og öðrum glermunum, en hún fæst við fleira, eins og Væng- urinn sýnir. í Bella Center sýnir hún með hópi ungra hönnuða, sem kallar sig Globus og þau sýna saman á líkum forsendum og hópurinn sem Aðal- steinn er í. Ungir hönnuðir hafa einfaldlega komist að því að það er auðveldara að stunda sýningarhald í slagtogi með öðrum en upp á eigin spýtur. Það skapar bæði athygli að fleiri sýni saman og eins léttir það undirbúning- inn, sem er mikill. Sýningin í Bella Center er fyrsta sýning hópsins, en fleiri fylgja á eftir. Á næstunni sýnir Globus á fastri sýn- ingu á efri hæð og einnig stendur til að sækja um að sýna á húsgagnasýn- Ljés í kassa með tökkum til þess að láta ljósið skipta litum. Lampi sem Iítur út eins og gamaldags rannsóknartæki varpar mynd að eigin ósk upp á vegg. ingunni í Mílanó og í Stokkhólmi næsta ár. Netfang Daggar er: daggadogg@- hotmail.com. Liljuform Innan um alla þessa hönnun, sem á rætur að rekja til Norðurlanda og norræns hugsunarháttar, kemur Friðleifur Kristjánsson úr allt annarri átt því hann lærði iðnhönnun í Banda- ríkjunum. Hann starfar nú sjálfstætt á íslandi, en til að koma hönnun sinni á framfæri víðar tók Friðleifur sig til og sýndi sófasett og stofuborð í Bella Center, þótt sýningarhaldinu fylgi mikill kostnaður. Sófl eftir Friðleif er til sölu í Epal og heitir Mirjam í höf- uðið á dóttur Friðleifs, því honum fannst fara vel á að fyrsti sófinn hans bæri nafn fyrsta bamsins hans. Friðleifur sýndi sófa og stól í seríu, sem hann kallar „10ium“, sem er lat- ína og þýðir „ldja“ og af því dregur Hugmyndin að íspokalampanum fæddist síðasta ár. Ljósbrotin í vatninu fönguðu athygli Aðalsteins. lögunin dám. Uppistaðan er viðar- grind, sem bólstrað er yfír og útkom- an er fíma þægileg til að sitja á, því sófinn er stinnur og styður vel við bakið, án þess að vera harður. Það var einfaldlega þægOeg upplifun að fá sér sæti þama, enda segir Friðleifur að hugmynd sín hafi verið að skapa sæti sem styddi vel við bakið og hent- aði öllum aldurshópum. Áklæðið heit- ir exel, áferðin líkist rúskinni og litur- inn fagurrauður. Það gekk ekki þrautarlaust að fá stóla og sófa smíðaða, því það reyndist tæknOega erfitt að framleiða sveigða armana. Á endanum reyndist Þröstur, bróðir Friðleifs, slíkur listasmiður að hann gat smíðað armana, sem aðrh- höfðu gefist upp á. Og það er fleira hagleiksfólk í fjölskyldunni því það er kona Friðleifs, Stefanía Ósk Þóris- dóttir, sem hefur hannað nafnspjöld hönnuðarins og annað prentmál, en Stefanía er grafískur hönnuður. Borðið sem Friðleifur sýnir er fer- kantað glerborð með sveigðum, ljós- um viðarfótum og sandblásinni gler- plötu í kringum stórt kerti í miðjunni, „svona til að skapa varðeldsstemmn- ingu í stofunni heima,“ segir Friðleif- ur brosandi og bætir við að hann sé mikið fyrir útivist og vOji með borðinu skapa þægdegt og rómantískt and- rúmsloft eins og úti í náttúrunni. Og nafn borðsins er viðeigandi, „ignis“ heitir það, en það þýðir „eldur" á lat- ínu. Netfang Friðleifs er frdlis- design@islandis.is. það einkennir einmitt hópinn, segir Aðalsteinn, því þau hafa fyrst og fremst í huga að halda sýningar, halda fast í leikinn í verkunum og sköpun þeirra, án þess að hafa hug- ann of mikið við sölu. Hönnuðimir halda sýninguna sam- an en annars hafa þau hvert um sig sín verkefni. Þau byrjuðu að sýna saman í fyrra og hafa í huga að halda því áfram. Eftir sýninguna í Bella Center og hjá Louis Poulsen fara þau á hús- gagnamessu í London og síðan liggur leiðin á sýn- ingu í Finn- landi í nóvem- ber. Þau eru þegar farin að huga að sýningar- tækifærum á næsta ári, hugsanlega í sam- bandi við norrænu menn- ingarborgimar þrjár, Reykja- vík, Bergen og Helsinki. Sýningarhaldið gengur því það er víða hægt að sækja um styrki og Hávaðarok kringum vetrartískuna EITT vinsælasta ljósmyndastúdíó landsins er hvorki búið kösturum né fölskum bakgrunni. Þar eru þó fjöl- breytt birtuskilyrði og bakgrunnur- inn er síbreytilegur, en adt er það frá náttúrunnar hendi. Hið um- fangsmikla stúdíó er svæðið milli Dyrhólaeyjar og Reynisfjalls, en þangað leita æ fleiri ljósmyndarar sem vilja finna fyrirsætum og íh'kum magnað svið. íslenskar fyrirsætur og Ástrali Nýlega kom út vetrarbæklingur danska tískuhússins Bertoni og eru allar myndirnar teknar í Reynis- fjöru undir Reynisfjalli og í Kirkju- fjöm við Dyrhólaey. Umhverfis ungt fólk í fáguðum vetrarfatnaði blasa við þverhníptir klettaveggir, úfnar öldur og svartir sandar, en fötin sýnir íslenskt tvíeyki frá eskimo models ásamt Ástralanum Peter Jackson. Umboðsmaður Bertoni á Islandi, Guðmundur Ólaf§son í heildverslun- inni Golco, segir að tökulið hafi kom- ið hingað til lands í apríl sl. í hópn- um vora danski ljósmyndarinn Mor- ten Bjarnhof, fyrirsætan Jackson og Reynisdrangar rfea að baki fyrir- sætu dönsku kvenfatalúiunnar CCDK í haustr og vetrarbækl- ingnum 1999. stílisti frá Bertoni ásamt aðstoðar- fólki. „Umræddur ljósmyndari, sem er mjög eftirsóttur, hafði áður tekið myndir við Dyrhólaey fyrir annað fyrirtæki. Hann varð yfir sig heillað- ur af staðnum og fannst hann hafa himin höndum tekið þegar hann fékk að mynda að nýju í „Svörtu fjörum" eins og hann kallar stað- inn,“ segir Guðmundur heildsali. Veðurblíða hamlaði tökum Guðmundur var tökuliðinu innan handar þá þrjá daga sem það dvaldi hér á landi, án þess reyndar að fylgja því á tökustað. „En ég hugsaði til Bjarnhofs og félaga og var einmitt óskaplega glaður fyrir þeirra hönd fyrsta daginn því veðrið var svo gott. Eg hugsaði með mér að tökurnar hlytu að ganga vonum framar í svona fínu veðri. Hina tvo dagana var hins vegar kolvitlaust veður, rok og nístingskuldi. Ég hafði af þessu miklar áhyggjur og þegar þau komu til baka spurði ég hvort þetta væri ekki alveg misheppnað. „Nei, ekki aldeilis," svaraði þá ljósmyndarinn. „Fyrsti dagurinn var slæmur - þá var alltof gott veður. En hinir tveir dagarnir vora stórkostlegir!" Svona horfði þetta öðruvísi við honum eins og rann auðvitað upp fyrir sjálfum mér eftir á. Þetta voru jú vetrarflík- ur sem verið var að mynda og því nauðsynlegt að umhverfíð væri dálít- ið kuldalegt,“ segir Guðmundur og hlær. Og kuldalegu myndirnar koma firna vel út í bæklingnum, sem er hinn áferðarfallegasti. Tískuhúsið Bertoni er með um- boðsmenn í Kanada og á Irlandi, auk Norðurlandanna. Það byggir á gömlum grunni, en sérhæfði sig í buxnaframleiðslu á áram áður. „Þeir framleiddu meðal annars buxur fyr- ir danska herinn, en eftir að ný kyn- slóð tók við rekstrinum hafa þeir í auknum mæli lagt út á tískubrautina og sérhæfa sig í herrafatnaði. Flík- unum hefur verið vel tekið og þetta er ört vaxandi fyrirtæki," segir Guð- mundur sem verið hefur umboðs- maður Bertoni um fjögurra ára skeið. Spor í sunnlenskuni sandi. Ástralskur vetrargestur eltir ís- lenska íjallkonu í bæklingi Bertoni. Nýr haust- og vetrarbæklingur danska kvenfatafi-amleiðandans CC- DK er einnig að öllu leyti tekinn á ís- landi. Tvær myndir eru teknar í Reynisfjöra með Reynisdranga í bak- sýn, en aðrar eru teknar í íslensku hrauni og á hrjóstrugum holtum. Að- eins ein fyrirsæta er á hverri mynd og nýtur landslagið sín vel á stóram myndunum, en bæklingurinn er í brotinu A3. Og hvort sem það er tilviljun eða ekki er sami hellirinn í Reynisfjöra notaður sem bakgrunnur í bækling- um CCDK og Bertoni, auk þess sem í báðum bæklingum eru myndir af slípuðum steinum úr fjöranni í opn- um lófum fyrirsætanna. sþ ~¥

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.