Morgunblaðið - 28.09.1999, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 28.09.1999, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 B 3 ÍÞRÓTTIR KNATTSPYRNA Emmen vill fá Eystein HOLLENSKA 2. deildar liðið BVO Emmen hefur sýnt áhuga á að fá Eystein Hauksson, Ieik- mann Keflavíkur, til reynslu. Eysteinn, sem er 25 ára, skoraði fjögur mörk fyrir Keflvíkinga í sumar. Hollenska liðið hefur einnig lýst yfir áhuga á að fá Magnús Þorsteinsson, 17 ára leikmann með yngri flokkum Keflavíkur og fyrrverandi leikmann 16 ára landsliðsins, til sín. Magnús tók þátt í tveimur lekjum með meistaraflokki í sumar. Keflvík- ingar eiga von á umboðsmanni á næstu dögum til viðræðna við félagið um að fá leikmennina til Hollands. Gunnar Oddsson hefur gert eins árs samning við Keflvík- inga. Gunnar, sem er 34 ára, er fyrrverandi þjálfari liðsins. Mörg félög sýndu áhuga á að fá Gunnar til sín en hann af- réð að leika með Keflvíkingum að minnsta kosti eitt ár til við- bótar. HANDKNATTLEIKUR/EM I KROATIU B-RIÐILL Mæta Slóv LEIKIR ÍSLANDS 21, janúar: Ísland-Svíþjóð Siðan: Ísland-Portúgal Svo: fsland-Rússland Þá: Ísland-Danmörk Loks: Ísland-Slóvenía enum í Skjern byrjar vel Danska meistaraliðið Skjem, sem Aron Kristjánsson leikur með, byrjaði titilvörnina í danska handknattleiknum með sigri á heimavelli gegn Kaupmannahafnar- liðinu FIF, 21:20, um helgina. Geta liðsmenn Skjern þakkað markverði sínum fyrir sigurinn því hann varði vítakast á síðustu sekúndu leiksins. Aron hafði hægt um sig í leiknum og skoraði aðeins eitt mark. Mikil stemmning var í höllinni í Skjem og var uppselt á leikinn en alls um 1.800 manns greiddu aðgangseyri og studdu þeir vel við bakið á Aroni og samherjum sem þykja ekki lík- legir til þess að tapa mörgum stig- um á heimavelli á leiktíðinni. Gunnar með 8 mörk Gunnar Andrésson lék vel með Amitica Zúrich í fyrstu umferð svissnesku deildarinnar sem leikin var á laugardaginn. Amitica gerði jafntefli við nágranna sína í Grass- hoppers, 23:23, en Grasshoppers er spáð góðu gengi á leiktíðinni. Gunn- ar gerði 8 mörk og var markahæst- ur í sínu liði. „Mér gekk ágætlega," sagði Gunnar í samtali við Morgun- blaðið. „Annars er deildin mjög jöfn þetta árið þannnig að ég á von á skemmtilegri keppni," sagði Gunn- ar ennfremur. Morgunblaðið/Sverrir Ólafur Stefánsson í leik Makedóníu í Skopje. Arangur íslenska landsliðsins undir stjórn Þorbjörns Jenssonar // gegn þjóðunum riðli íslands í EM Gegn: Leikir S J T Árangur Rússlandi 2 1 0 1 50% Svíþjóð 3 0 0 3 0% Portúgal 1 1 0 0 100% Danmörku 5 2 1 2 50% Slóveníu 0 island hefur aldrei leikið gegn Slóveníu Noregur Úkraína Króatía Rússland Svíþjóð Portúgal Danmörk Slóvenía ísland ■ PANA THINAIKOS, sem Helgi Sigurðsson leikur með, vann AEK, lið Arnars Grétarssonar, 2:1 í grísku 1. deildinni um helgina. Arn- ar kom inn á í síðari hálfleik en Helgi kom ekki inn á. ■ BOLTON, sem Guðni Bergsson og Eiður Smári Guðjohnsen leika með, vann Nottingham Forest 3:2 í ensku 1. deildinni. Þeir léku báðir með Ueiknum. ■ LARUS Ovri Sigiirðsson lék með WBA er liðið gerði markalaust jafn- tefli við Crystal Palace. Hann meiddist í leiknum en er sagður klár fyrir næsta leik. ■ WALSALL tapaði fyrir Black- burn 2:0. Sigurður R. Eyjólfsson og Bjarnólfur Lárusson komu inn á í leiknum. ■ HERMANN Hreiðarsson lék með Brentford, sem gerði 2:2-jafn- teíli við Preston í ensku 2. deildinni. Brentford er í 8. sæti deildarinnar. ■ ÓLAFUR Gottskálksson lék með Hibernian, sem tapaði fyrir Celtic 2:0. ■ SIGURÐUR Jónsson þurfti að fara af velli á 72. mínútu er Dundee Utd. tapaði fyrir Hearts 2:0 í Skotlandi. ■ ÓLAFUR Kristjánsson skoraði fyrir AGF, sem tapaði fyrir Vejle, 2:1, í dönsku 1. deildinni. ■ HELGI Kolviðsson lék með Ma- inz í þýsku 2. deildinni er liðið vann Hanover 1:0. Mainz er í 12. sæti. ■ ARNAR Viðarsson lék í 75 mín- útur með Lokeren, sem tapaði fyrir Anderlecht, 3:2, í belgísku 1. deild- inni um helgina. Lokeren er í 17. sæti deildarinnar. ■ GENK, sem Þórður og Bjarni Guðjónssynir leika með, vann Beveren 4:1 og skoraði Þórður eitt marka Genk. Kristján ræðir við KR KRISTJÁN Finnbogason, markvörður KR, hyggst ræða við forsvarsmenn liðs- ins um nýjan samning á næstunni. Sainningur mark- mannsins rennur út 1. októ- ber nk. og samkvæmt heim- ilduni Morgunblaðsins mun vera gagnkvæmur áhugi á að sá samningur verði endurnýj- aður. fyrsta sinn FRJÁLSÍÞRÓTTIR íslandsmet hjá Mörthu ÍSLAND er í B-riðli úrslitakeppni Evrópukeppninnar í handknatt- leik í Króatíu 21. til 30. janúar á næsta ári. Ásamt íslendingum leika Rússar, Evrópumeistarar Svíar, Portúgal, Danmörk og Sló- venía. Leikur ísland þar með í fyrsta skipti landsleik { karlahand- knattleik gegn Slóvenum, en þeir virðast með sterkt lið um þessar mundir og komust í keppnina með því að slá út Ungverja. IA-riðli leika gestgjafar Króatíu, Spánverjar, Þjóðverjar, Frakkar, Norðmenn og Ukraína. A-riðiIl verð- ur leikinn í Zagreb en leikir B-riðils í borginni Rijeka, sem er við Adría- hafsströnd Króatíu, u.þ.b. 60 km suður af Tríeste. Spánverjar, Þjóðverjar, Frakkai-, Rússar og Svíar hafa þegar tryggt sér sæti í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Sydney og því verða sjö þjóðir að keppa um að tryggja sér eina sæti Evrópu sem enn er laust á Ólympíuleikunum. Það verður því keppikefli að verða sem næst á eftir þessum fimm þjóðum að því tilskildu að þeim takist að verða í fimm efstu sætunum. Króatar eru núverandi Ólympíumeistarar og verða auk þess á heimavelli í þessari keppni. Má því telja fullvíst að þeir leggi allt í sölurnar til þess að ti-yggja sér sæti á Ólympíuleikunum. Ef dæmi er tekið um að Island nái þriðja sæti í B-riðli, á eftir Svíum og Rússum, tryggir það sér leik um fimmta sætið við þá þjóð sem hafnar í þriðja sæti í A-riðli. Verði Þjóðverj- ar, Spánverjar og Frakkar í þremur efstu sætum þess riðils og Rróatía í fjórða sæti getur ísland þar með tryggt sér lausa sæti Evrópu á Ólympíuleikununum, hvort sem það hafnar í fimmta eða sjötta sæti. Verði Rróatar í einum af þremur efstu sætum A-riðils þarf Island að ná að a.m.k. sama sæti og þeir í sín- um riðli til þess að eiga möguleika á að leika við Króata um lausa sætið. Takist Portúgal, Dönum eða Slóven- um að verða fyrir ofan ísland í B- riðli er draumurinn um keppnisrétt í Sydney á enda, hvað sem árangri Króata líður í A-riðli. Martha Ernstsdóttir, ÍR, setti íslandsmet í maraþonhlaupi kvenna er hún kom ellefta í mark í Berlínar-maraþoninu á sunnudag á tímanum 2:35.15 klst. Bætti hún fyrra Islandsmet sitt um eina sek- úndu en það setti hún í Hamborgar- maraþonhlaupinu í vor. „Framfarir eru alltaf jákvæðar, en ég hafði gert mér vonir um að geta bætt mig meira, ef til vill um tvær mínútur," sagði Martha, sem telur árangur sinn nú vera einn þann allra besta sem hún hefur náð. „Eg varð sjö- unda í Hamborg í vor, en ellefta nú. Hins vegar er Berlínarhlaupið sterkara þannig að ég tel þetta vera að minnsta kosti með því besta sem ég hef gert, ef ekki það besta.“ Mjög góður árangur náðist í Berlínar-maraþoninu að þessu sinni. I kvennaflokki sigraði Tegla Loroupe, Kenýa, á 2:20.43 sem er besti árangur sem náðst hefur í maraþonhlaupi kvenna frá upphafi. í öðru sæti varð Belginn Marleen Renders á 2:23.58 og þriðja sætið kom í hlut Rússans Svetlönu Zak- harovu á 2:27.07. „Ég er algjör kettlingur í saman- burði við þessar bestu sem hlaupa yf- ir tvö hundruð kílómetra á viku þeg- ar mest er,“ sagði Martha. „Þegar ég er í mestu álagi hleyp ég eitt hundrað og fimmtíu kílómetra á viku, en kannski eitthundrað og tuttugu til þrjátíu að jafnaði. Það er erfitt að æfa meira þegar maður er í fullri vinnu, er með fjölskyldu og heimili.“ Hjá körlunum kom Josephat Kiproni, Kenýa, fyrstur í mark á 2:06,44 og Japaninn Takayuka Inu- bushi varð annar á 2.06,57. Þetta er þriðji og fimmti besti tími frá upp- hafi í maraþonhlaupi karla. Bryndís, systir Mörthu, keppti einnig og bætti hún sig um 9 minút- ur, kom í mark á 2:56.09 og varð þar með þriðja íslenska konan til þess að hlaupa maraþon á skemmri tima en þrjár klukkustundir, en auk Mörthu og Bryndísar hefur Anna Jeves brot- ið þennan erfiða múr. Martha sagði aðstæður hafa verið góðar í Berlín til maraþonhlaupa, hiti hefði verið um 20 gráður og bjart, en skúr hefði gert undir lok hlaupsins. Martha sagði þetta vera lokin á keppnistímbilinu hjá sér og hún væri nokkuð sátt við árangurinn í maraþonhlaupum ársins. „Ég hef náð tveimur jöfnum hlaupum en það er ljóst að ég verð að æfa enn meira til þess að ná betri árangri og kom- ast undir tvær og hálfa klukku- stund.“ Æfir í Flórída í vetur Síðustu ár hefur Martha æft á ís- landi en nú stendur til hjá henni að flytja til Miami í Flórída, þar sem eiginmaður hennár, Jón Óddsson, hefur fengið vinnu. Ytra ségist Martha ætla að'eintíeita sér að æf- ingum og keppni enda stefnir hún á keppni í maraþonhlaupi á Ólympíu- leikunum í Sydney eftir rétt ár. „Ytra ætla ég að einbeita mér að æf- ingum og keppni í götuhlaupum sem geta gefið einhvern pening í aðra hönd. Það er mjög kærkomið að fá þetta tækifæri til að geta einbeitt sér að æfingum síðasta árið fyrir Ólymp- íuleikana og vonandi skilar það sér í enn betri árangri,“ sagði Martha Ernstdóttir, hlaupakona.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.