Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA -KR Bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli 26. september 1999 13 Markskot 10 4 Hornspyrnur 3 5 Rangstöður 3 Pálmi Haraldsson Kári Steinn Reynisson Ólafur Þór Gunnarsson Reynir Leósson jh Alexander Högnason Hálfdán Gíslason (Jóhannes Gislason 72.) Stefán Þórðarson Gunnlaugur Jónsson Sturlaugur Haraldsson Jóhannes Harðarson Unnar Valgeirsson (Ragnar Hauksson 86.) Sigþór Júlíusson (Arnar Jón Sigurgeirsson 86.) ^Guðmundur Benediktsson ■“ Þórhallur 2 ^ Hinriksson (Þorsteinn Jónsson 70.) W Bjarki ^ Gunnlaugsson (Indriði Sigurðsson 88.) Sigursteinn Gíslason Einar Þór Oaníelsson Sigurður Örn Jónsson Þormóður Egilsson David Winnie Bjarni Þorsteinsson Ahorfendur voru 7.401 Sigursteinn með þrennu SIGURSTEINN Gíslason hefur þrisvar sinnum orðið tvöfaldur meistari. 1993 og 1996 með ÍA og nú með KR. Kristján Finnbogason, markvörður KR, varð einnig tvö- faldur meistari með ÍA 1993. Kári hættur . KARI Gunnlaugsson, dómari frá Keflavík, hefur látið af störfum sem dómari á vegum KSÍ. Hans síðasta verk var að vera aðstoðardómari á úrslitaieik ÍA og KR. Kári, sem lék á árum áður með Keflavík, er 45 ára og hefur verið dómari í um fimmtán ár. Einar Þór skorar Dómari: Bragi Bergmann, Árroðanum, Árskógsströnd Aðstoðardómarar: Pjetur Sigurðsson og Kári Gunnlaugsson Kristján Finnbogason varði vel skot frá Hálfdáni Gislasyni, sem komst einn inn fyrir vörn KR og skaut frá vítapunkti. Kristján varði boltann í horn. 36. mín. 38. min. Reynir Leósson, IA, fær gult spjald fyrir brot. Unnar Valgeirsson, IA, fær gult spjald fyrir brot. Þórhallur Hinriksson fagnar hér marki sínu, sem kom KR-ingum á bragðið, ásamt Bjarna Þorsteinssyni og hluta af stuðn- ingsmannahópi KR-inga. Morgunblaðið/RAX A ■ #• w Morgunblaðið/RAX Smiðshogginu fagnað Atli Eðvaldsson fagnar þriðja marki KR, sem Bjarki Gunnlaugs- son skoraði, ásamt Sigþóri Júlíussyni, Bjarka, Þorsteini Jóns- syni og Guðmundi Benediktssyni. Einar Þór Daníels- son þakkaði fyrir sig er Ólafur Þór Gunn- arsson missti knött- inn frá sér. Hér horf- ir hann á eftir knett- inum í netið og á næstu mynd liggur Ólafur Þór á vellin- um og Guðmundur Benediktsson, sem átti sendinguna fyrir markið, hleypur fagnandi frá. Alexander Högnason skallar knöttinn frá markteig, niður i völlinn og yfir slána. Stefán Þórðarson skoraði með föstu skoti frá vítapunkti - knötturinn fór yfir Kristján markvörð og í þaknetið. Unnar Valgeirsson skallaði knöttinn til Stefáns eftir fyrirgjöf frá vinstri. Gunnlaugur Jónsson skallar knöttinn niður á völlinn úr markteig KR-inga, þaðan fór knötturinn rétt framhjá marki. Jóhannes Harðarson skaut rétt framhjá marki KR, eftir aukaspyrnu utan vitateigs. Einar Þór Daníelsson skaut föstu skoti af 25 m færi. Ólafur Þór Gunnarsson varði, knötturinn fór í slána og fór þaðan niður f markteig. Þórhallur Hinriksson var þar á réttum stað og skoraði örugglega. Guðmundur Benediktsson sendir fyrirgjöf fyrir mark ÍA frá vinstri. Olafur Þór náði ekki að grípa knöttinn og missti hann frá sér. Einar Þór nýtti sér það og spyrnti knettinum í netið. Bjarki Gunnlaugsson fékk knöttinn við miðju, brunaði fram völlinn hægra megin og lét skotið ríða af við vítateig. Knötturinn hafnar í fjærhorni. Guðmundur Benediktsson á skot framhjá marki ÍA. Sigurður Örn Jónsson, KR, fær gult spjaid fyrir brot. David Winnie, KR, fær gult spjald fyrir brot. Ólafur Þór Gunnarsson ver meistaralega skot frá Guðmundi Benediktssyni. i- O 5ö ® <Q ‘<0 ™ I </> Seinni hálfleikur varjafn. mín. mín. min Stefán Þórðarson, ÍA, gult spjald fyrir brot. Alexander Högnason, ÍA, gult spjald fyrir mótmæli. 86. 87. 88. 89. min. min. mín. min. Q Q Týndu synirnir komu, sáu - og skoruðu KR-INGAR sýndu það í bikarviðureign sinni gegn Skagamönn- um, að það má aldrei sleppa þeim lausum - þá eru þeir tilbúnir að refsa. Skagamenn sofnuðu tvisvar á verðinum á stuttum tíma í byrjun seinni hálfleiks og nýttu KR-ingar sér það og lögðu grunninn að sætum sigri sínum, skoruðu tvö mörk og fögnuðu síðan sigri, 3:1. Þeir þrír leikmenn sem skoruðu mörkin höfðu verið iítt áberandi fram að því að þeir settu knöttinn í netið. Má því með sanni segja að týndu synirnir - Þórhallur Hinriksson, Einar Þór Daníelsson og Bjarki Gunnlaugsson - hafi komið fram á hárréttum tíma, skorað og fagnað sigri. Eftlr Sigmund Ó. Steinarsson KR-ingar voru sprækari í byrjun leiksins, en fljótlega kom í ljós að Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, hafði lagt leik sinn upp til að stöðva Guðmund Benediktsson og Bjarka Gunnlaugsson, ásamt að koma í veg fyrir áhlaup þeirra Einars Þórs og Sigþórs Júlí- usarsonar upp kantana. Þar sem þeir Þórhallur og Sigursteinn Gíslason lágu nokkuð aftarlega náðu Skagamenn yfirhöndinni á miðjunni. Olafur setti Heimi Guð- jónsson og Ragnar Hauksson út en inn á miðjuna Hálfdán Gíslason og Unnar Valgeirsson. Alexander Högnason var færður fram á miðj- una, Kári Steinn Reynisson var úti á vinstri kantinum, Jóhannes Harð- arson inni á miðjunni, þannig að Stefán Þórðarson var einn í fremstu víglínu. Það var mikill hraði í leik Skagamanna, sem höfðu náð völdum á miðjunni þannig að öftustu menn í vörn þeir bræður Pálmi og Sturlaugur Haraldssynir og Gunnlaugur Jónsson og Reynir Leósson gátu náð að stilla strengi sýna, voru yfírvegaðir. Skagamenn voru óheppnir að skora ekki mark er Hálfdán Gísla- son komst einn inn fyrir vörn KR - Kristján Finnbogason sá við honum og varði vel. Leikurinn var í jafnvægi í byrjun seinni hálfleiksins - KR-ingar höfðu ekki náð sér á strik, voru slegnir út af laginu. Skagamenn fengu aftur tækifæri til að skora er Aiexander Högnason átti skalla rétt fram hjá marki. Svo þegar ekkert virtist vera í spilunum, voru KR-ingar búnir að gera út um leikinn - bæði mörkin voru skoruð úr markteig og í bæði skiptin voru þeir leikmenn sem skoruðu eins og Palli væri einn í heiminum - átti í litlum erfiðleikum með að koma knettinum í netið. Þórhallur Hinriksson skoraði fyrst, síðan Einar Þór Daníelsson eftir mikil mistök Ólafs Þórs Gunnars- sonar, markvarðar, sem missti hálan knöttinn frá sér, er hann reyndi að handsama hann. Skagamenn náðu að svara fyrir sig, en allar vonir þeirra um frekari frama slökkti Bjarki Gunnlaugsson, er hann innsiglaði sigur KR-inga með fallegu marki á 83. mín. Eftir gáfu Skagamenn eftir, KR-ingar gátu bætt við fleiri mörkum. Ólafur Þór kom t.d. í veg fyrir að Guð- mundur Benediktsson næði að skora mark í öllum fimm bikarleikj- um KR rétt fyrir leikslok. Sigur KR-inga var sanngjarn. Þeir nýttu sér flest þau marktæki- færi sem þeir fengu - út á það gengur knattspyrnan. Atli sjöundi þjálfar- inn með „tvennu“ ATLI Eðvaldsson var sjöundi þjálfarinn sem fagnaði tvöföld- um sigfri með lið sitt ogJ>riðji þjálfarinn hjá KR sem nær þeim árangri að verða bæði Islands- og bikarmeistari. Óli B. Jóns- son gerði KR að tvöföldum meistara 1961 og Sigurgeir Guð- mannsson 1963. Rússinn Júri Ilitchev náði þeim árangri með Val 1976. Undir stjórn Harðar Helgasonar urðu Skagamenn tvöfaldir meistarar 1883 og 1984. Guðjón Þórðarson vann það afrek með ÍA 1993 og 1996, Bjarni Jóhannesson með ÍBV 1998 og nú Atli með KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.