Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 28.09.1999, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1999 B 9„r KNATTSPYRNA Leiftursmenn leita enn þjálfara Leiftursmenn leita enn þjálfara fyrir knattspyrnulið félagsins í efstu deild. Páll Guðlaugsson hefur sem kunnugt er gerst þjálfari Keílvíkinga, en hann hefur stjóm- að Olafsfirðingum sl. tvö ár. „Við erum enn að leita og höfum átt óformlegar viðræður við marga þjálfara," sagði Þorsteinn Þor- valdsson, formaður knattspymu- deildar Leifturs, í gær. Hann vildi ekki nefna nein nöfn, en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins eru Ásgeir Elíasson og Njáll Eiðs- son þeirra á meðal. Leiftursmenn munu leggja áherslu á að fá reynslumikinn þjálfara og hafa ekki áhuga á að hann leiki einnig með liðinu. „Það er ekki skilyrði að hann sé búsettur á Norðurlandi," sagði Þorsteinn, en meirihluti leikmanna liðsins æfir nyrðra yfir vetrartím- ann. Formaðurinn sagði að Leift- ursmenn gæfu sér tíu daga til að ganga frá þjálfaramálunum, en kvaðst jafnframt vonast eftir því að það tækist fyrr. Flestir leikmanna Leiftursliðs- ins í sumar verða áfram hjá lið- inu. Óvíst er þó um Skotann Gor- don Forrest og Finnann Max Peltonen. Færeysku landsliðs- mennirnir tveir, Uni Arge og Jens Martin Knudsen, verða lík- lega áfram, að sögn Þorsteins, en Jens Martin heldur á næstunni til Englands þar sem hann hyggst reyna fyrir sér hjá neðri deildar liðum. „Sjálfs- morð“ áOld Trafford SOUTHAMPTON náði í fyrsta stigið á Old Trafford í 11 ár er liðið gerði 3:3-jafntefli við Manchester United. Arsenal tryggði sér sigur gegn Watford á síðustu mínútum leiksins og fylgir Man. Utd eins og skugginn. Leeds hélt áfram sigurgöngu í úrvalsdeild og lagði Newcastle 3:2. Sheffield Wednesday var nýliðunum í Sunderland lítil fyrirstaða og eru lærisveinar Peters Reid við topp deildarinnar. Alex Ferguson, knattspymustjóri Man. Utd sagðist eftir leikinn vart trúa þvi að lið sitt hefði aðeins gert jafntefli. Hann sagði að sínir leikmenn hefðu framið „sjálfsmorð" á veliinum miðið við þau tækifæri er þeir fengu. „Ég var í sjálfu sér ánægður með leik liðsins og ég tel að við höfum sýnt glimrandi spila- mennsku á köflum. En staðreyndin er sú að leikurinn, sem við hefðum átt að vinna með sex eða jafnvel 10 mörk- um, endaði með jafntefli. Úrslitin eru slæm fyrir okkur.“ Massimo Taibi, markvörður United, gerði sig sekan um alvarleg mistök er hann missti máttlaust skot Matt Le Tissier, leik- manns Southamptons, undir sig og inn í markið. Ferguson vildi ekki skella skuldinni á Tiabi og sagði: „Ég er viss um að hann er vonsvikinn en félagið veltir sér ekki upp úr því sem er afstaðið heldur horfir fram á við.“ Newcastle tókst að vinna upp tveggja marka forystu Leeds með mörkum frá Alan Shearer, en hann hefur skorað sjö mörk í undanförn- um tveimur leikjum. Leeds tókst engu að síður að tryggja sér sigurinn og er í öðru sæti deildarinnar. David O’Leary, knattspyrnustjóri Leeds, sagði að enn væri of snemmt að draga ályktanir af því hvar liðið end- aði. Hann benti hins vegar á að félög eins og Chelsea, Man. Utd og Ar- senal ættu erfitt tímabil fyrir hönd- um vegna leikja í Meistaradeild Evr- ógu og það kæmi sínu liði til góða. „Ég vona að þessi lið lendi í hremm- ingum í Evrópukeppninni því það er okkur til góða. En í raun hef ég ekki hugmynd um hvar liðið endar undir lok tímabilsins. Ég veit ekki hvað við komum til með að vinna. Svo gæti farið að við ynnum ekki neitt.“ Arsenal átti í erfiðleikum með Watford á heimavelli. Kanu tókst að tryggja Lundúnaliðinu sigur með marki á síðustu mínútum leiksins. Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, lýsti hrifningu sinni á frammistöðu Kanu og sagði: „Hann getur gert út af við lið ef hann fær knöttinn inni í vítateig. Hann er hættulegur leikmaður og sýndi enn og aftur hvers hann er megnugur, í leiknum gegn Watford. Annars var mikilvægt að vinna leikinn því við gerðum of mikið af jafnteflum á síð- asta tímabili og það gerði út af við meistaravonir liðsins.“ Graham Taylor, knattspyrnustjóri Watford, sagði að sitt lið hefði varist vel en varð engu að síður fyrir von- brigðum með úrslitin. „Ég get ekki gagnrýnt liðið, því að það lék vel. Við gerðum þeim erfitt fyrir og létum þá sækja leikmenn á bekkinn sem þeir hugðust hvíla fyrir leik í Meistara- deildinni.“ Martin O’Neil, knattspyrnustjóri Leicester, sagði sitt lið einfaldlega frábært í 3:l-sigri gegn Aston Villa. „Leikmenn sýndu einhverja bestu frammistöðu sem þeir hafa sýnt frá því að ég tók við því. Það hefði ekki reynst ósanngjarnt ef við hefðum komist í 3:0 í fyrri hálfleik." En O’Neil sagði að þrátt fyrir góða frammistöðu á vellinum gætu deilur innan stjórnar félagsins orðið til þess að leikmenn færu frá félaginu fyrr en síðar. „Leikmenn hafa unnið sitt verk þrátt fyrir deilur en fyrr eða síðar munu þær hafa áhrif og leiða til þess að leikmenn hverfa á braut.“ Steffan Ivarsen, miðherji Tottenham (t.h.) og Dean Blackwell, Wimbledon, í baráttu um knöttinn í jafnteflisleik liðanna, 1:1. John Gregory, knattspyrnustjóra Aston Villa, var allt annað en hlátur í huga eftir leikinn og lýsti Emilie Heskey, framherja Leicester, sem svikara fyrir að villa fyrii' dómara leiksins en sá sendi Gareth Southga- te, leikmann Aston Villa, út af. Bott- reksturinn fullkomnaði slæman dag Southgate því hann hafði fyrr í leikn- um skorað sjálfsmark. „Brottrekst- urinn var fáránlegur. Ég sá Heskey leika í vikunni gegn Chrystal Palace og þrívegis í leiknum lét hann sig falla í vítateig andstæðinganna. I þriðja skiptið gaf dómarinn víta- spyrnu.“ Bradford tókst að koma sér af mesta hættusvæðinu er liðið lagði Derby 1:0 með sjálfsmarki Horacio Carbonari. Paul Jewell, knatt- spyrnustjóri Bradford, sagði að varnarleikur sinna manna hefði reynst magnaður. „Liðinu tókst ekki að skapa sér mikið af tækifærum en við komum til leiks með jákvætt hug- arfar og það sem mestu máli skipti Sævar Þór óákveðinn EKKI er ljóst hvar Sævar Þór Gísla- son, framherjinn sterki úr ÍR, leikur knattspyrnu næsta sumar. Sævar hefur átt í viðræðum við IR-inga um nýjan samning en einnig hafa Vest- mannaeyingar rætt við hann. „Það er rétt að ég hef átt í viðræð- um við bæði þessi lið,“ sagði Sævar Þór við Morgunblaðið í gær. „Því er ekki að leyna að hugur minn stefnir til þess að leika í efstu deild, en að sama skapi er ég enn ótrúlega svekktur yfir að ná ekki að tryggja IR-ingum sæti í úrvalsdeildinni. Það var alveg hrikalegt og aðeins um að kenna ömurlegri frammistöðu okkar leikmanna í lokaleikjunum. Það er því ekki útséð um hvað ég geri,“ sagði Sævar Þór. Heimildir Morgunblaðsins herma að fleiri lið hafi borið víurnar í Sævar Þór, sem skoraði sex mörk fyrir Breiðholtsliðið í efstu deild í fyi-ra og vakti þá verulega athygli. Hann skoraði 12 mörk fyrir IR í sumar. Meðal áhugasamra liða munu vera IA, Fram og Fylkir. Auður áfram með Stjömuna AUÐUR Skúladóttir, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar, hef- ur framlengt samning sinn við félagið til eins árs. Auður hefur þjálfað Stjörnuna, sem lenti í 4. sæti efstu dcildar kvenna í sumar, undanfarin tvö ár. Goran Kristófer Micic, sem þjálfað hefur karlalið félagsins í knattspyrnu und- anfarin tvö ár, hefiir átt í viðræðum við stjórn félags- ins um að hann haldi þjálfun þess áfram. Undir hans stjórn komst Stjarnan á ný í efstu deild. var að varnarleikur þess.“ Gordon Strachan, knattspymustjóri Covent- ry, sagði að lið sitt hefði unnið mikinn heppnissigur gegn West Ham. „Oft- ast erum við óheppnir en aldrei þessu vant var lukkan á okkai- bandi.“ Strachan bar jafnframt lof á Robbie Keane, leikmann liðsins, og sagði hann töframann í knattspyrnu. „Hann gerir allt sem ég hef ekki séð um langa hríð. Nær allir knatt- spymustjórar sem ég hef talað við að undanförnu segja að Keane sé ein- stakur Ieikmaður. Ég er glaður yfir því að hann er i okkar röðum.“ + Sunderland hefur leikið vel að undanförnu og Stefan Schwarz tryggði því sigur gegn Sheffield Wednesday með sínu fyi-sta marki fyrir félagið. „Við sýndum þolinmæði allan leikinn og ljóst er að liðið leikur betur eftir því sem líður á tímabilið. En þrátt fyrir góða byrjun bendi ég á að mikið er eftir af tímabilinu og allt getur gerst,“ sagði Peter Reid, knattspyrnustjóri Sunderland. Uni og Allan á skotskónum UNI Arge, sem leikið hefur með Leiftri undanfarin tvö sumui', og Allan Morkore, leik- maður ÍBV, voru á skotskónum með færeyska liðinu HB um síðustu helgi, að því er kemur fram í færeyska dagblaðinu Dimmalætting. Uni og Ailan léku áður með HB áður en þeir komu til ís- lands. Þeir ætla að leika tvo síð- ustu leikina með liðinu á tíma- bilinu í Færeyjum og skoruðu í 5:l-sigri gegn B68 um helgina. Uni, sem er í samningaviðræð- um um að leika áfram með Leiftri næsta sumar, gerði tvö og Allan, sem fékk leyfi hjá ÍBV til þess að fara til Færeyja og leika síðustu leikina með HB, gerði eitt. HB var færeyskur meistari og bikarmeistari áður en mótið hófst í vor. Rosenborg enn í bikarúrslit Tromsö komst í 0:1 á útivelli gegn Rosenborg í undanúrslitum norsku bikarkeppninnar á sunnu- dag. Það dugði þó ekki til því Noregs- meistararnir fóru með 2:1 sigur af hólmi og tryggðu sér þar með keppnisrétt í úrslitum í sjötta sinn á þessum áratug. Tryggvi Guðmundsson lék vel í liði Tromsö en meiddist á ökkla snemma í leiknum. Hann harkaði af Gylfi Hafsteinsson skrífar frá Noregi sér það sem eftir lifði hálfleiksins en eftir hlé kom maður í hans stað. Minnstu munaði að Tromsö tækist að komast í 0:2 á 25. mínútu. Þá átti Tryggvi frábæra utanfótarsendingu inn á Frode Fermann sem tókst ekki að ljúka dæminu. Það var Rune Lange sem skoraði mark Tromsö. Hann hefur skorað í sex síðustu leikjum á móti Rosenborg og ekki að undra að liðið hafi haft áhuga á að fá hann til að fylla skarð Sigurd Rushfeldts sem fór frá liðinu í sum- ar. Sigur Rosenborg er sætur í ljósi þess að liðið hefur ekki unnið Trom- sö í deildinni í ár og að Tromsö vann Rosenborg 2:1 í úrslitaleik bikar- kegpninnar árið 1996. Á laugardaginn sigraði Molde Lil- leström 3:0 í fjórðungsúrslitum bik- arkeppninnar. Það er fyrsti sigur liðsins síðan 15. ágúst. Liðið hefur ekki leikið vel í deildarkeppninni og líklega verið með hugann við meist- arakeppnina, þar sem liðið hefur tap- að tveimur fyi'stu leikjum sínum. Rúnar Kristinsson og Heiðar Helgu- son léku báðir með Lilleström en þjálfarinn, Arne Erlandsen, var ekki + ánægður með sína menn eftfr leik-' inn. Meðal annars þótti honum sókn- armennirnir tveir, Heiðar og Arild Sundgodt, vera þungir, að því er fram kemur í Aftenposten. Molde leikur við Brann í undanúrslitum. Úrslitaleikurinn í bikarkeppninni sem venjulega fer fram á sunnudagi hefur verið fluttur fram til laugar- dagsins 30. október.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.