Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
100 Hríseyingar þyrftu að
fínna sér annað viðurværi
VERÐl allri starfsemi Snæfells í
Hrísey hætt, og þeir sem þar vinna
fái ekki annað að gera í eyjunni,
munu 43 ársverk glatast. Þetta þýð-
ir að um 100 íbúar þurfa að flnna sér
annað lífsviðurværi og eftir stæði
samfélag með um 130 íbúum, með
um 60 ársverk og um 11% lægri
meðallaun en nú.
Þetta kom fram í úttekt sem
Benedikt Guðmundsson atvinnu-
ráðgjafi hjá Atvinnuþróunarfélagi
Eyjafjarðar vann fyrir Byggða-
stofnun og var kynnt á fundi í fé-
lagsheimilinu Sæborg í Hrísey í
gærkvöldi. Hríseyingar fjölmenntu
á fundinn, en á dögunum skoruðu
þeir á stjórnarmenn í Kaupfélagi
Eyfirðinga að mæta á fund eyjar-
skeggja í kjölfar ákvörðunar
stjórnar Snæfells, að flytja pökk-
unarstöð félagsins frá Hrísey til
Dalvíkur. Snæfell er að stærstum
hlut í eigu KEA.
Hríseyingum heitt í hamsi
Þungt hljóð hefur verið í Hrísey-
ingum síðustu vikur vegna þessarar
ákvörðunar, enda hefur hún víðtæk
áhrif á samfélagið.
Samkvæmt úttekt Benedikts
munu tekjur Hríseyjarhrepps drag-
ast saman um tæp 40%, eða úr 43,7
milljónum króna í 26,7 milljónir.
Tekjutap vatns- og hitaveitu myndi
nema 17% og væntanleg áhrif á
Eyjafjarðarsvæðið eni þau að allt að
60 manns myndu flytja á höfuðborg-
arsvæðið. Fyrirtæki í einkageiran-
um, svo sem flutningsaðilar og þjón-
ustufyrirtæki, myndu tapa 10-15
milljónum á svæðinu.
Eyjarskeggjum var mörgum
heitt í hamsi á fundinum og féllu á
stundum þung orð í garð stjórnar-
manna í KEA. Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson formaður stjórnar KEA
kvaðst á fundinum vel skilja
gremju og heitar tilfinningar
Hríseyinga, en ákvörðun um flutn-
ing pökkunarstöðvarinnar yrði
ekki breytt. Skynsamlegast væri
að reka hana við hlið frumvinnsl-
unnar á Dalvík.
„Ég get ekki lofað gulli eða græn-
um skógum, og hef alltaf sagt að
þetta yrði erfitt,“ sagði Jóhannes
Geir. Hann ítrekaði að KEA væri
reiðubúið að taka þátt í uppbygg-
ingu atvinnulífs í eyjunni.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Eftir að Hafbjörgin var komin til hafnar kviknaði aftur í henni en
slökkviliðsmenn úr Slökkviliðinu í Sandgerði réðu niðurlögum eldsins.
Manni bjargað úr brennandi skipi úti á sjó
Brúin alelda þegar
að var komið
EINUM manni var bjargað úr
brennandi skipi, Hafbjörgu AR 15,
nokkrum sjómflum undan Hafnar-
berginu í gær. Að sögn lögregl-
unnar í Keflavík var maðurinn
heill heilsu þegar komið var með
hann til hafnar í Sandgerði um
klukkan 16.30 í gær, en hann var
einn um borð á leið til Reykjavík-
ur frá Þorlákshöfn með skipið í
viðgerð þegar eldurinn kom upp.
Eldsupptök eru ókunn.
Neyðarkall barst frá skipverj-
anum um klukkan 15 í gær og
sendi Tilkynningaskyldan út til-
kynningu til nærstaddra báta auk
þess sem björgunarbátar frá
Sandgerði og Grindavík voru kall-
aðir til aðstoðar.
Samkvæmt upplýsingum Til-
kynningaskyldunnar kom vertíð-
arbáturinn Baldur frá Keflavík
fljótlega á vettvang og hafði
nægilega öflugar dælur til að
takast á við slökkvistarf, en skip-
verjanum var bjargað um borð í
Sómabátinn Nonna eftir að hafa
bjargað sér um borð í gúmbjörg-
unarbát. Björgunarbátur úr
Sandgerði tók siðan við skipverj-
anum úr Nonna og kom honum til
hafnar um hálfri annarri klukku-
stund eftir neyðarkallið.
Kviknaði í skipinu á nýjan leik
Að slökkvistarfi loknu tók Bald-
ur skipið í tog og dró það til hafn-
ar í Sandgerði og lagðist það að
bryggju um kiukkan 18. Þar vildi
þó ekki betur til en svo að eldur
blossaði upp í skipinu á nýjan Ieik
og var slökkviliðið í Sandgerði
kallað til og slökkti cldinn.
Að sögn skipveija á Baldri var
bni Hafbjargar alelda þegar fyrst
var að komið og skiðlogaði út um
alla glugga. Þeir fengu þær fregnir
að varðskip Landhelgisgæslunnar
væri á leiðinni og var því sagt að
bíða, en þeir ákváðu engu að síður
að leggjast að síðu hins brennandi
skips til að dæla sjó á eldinn.
Hafbjörgin er 15 tonna línu- og
netabátur frá Þorlákshöfn en
hann er úr eik og smíðaður í
Stykkishólmi árið 1969.
Hart deilt í Norður-Héraði
Samstarfi
meirihluta slitið
SLITNAÐ hefur upp úr meirihluta-
samstarfi í sveitarstjórn Norður-
Héraðs. Þá hefur sveitarstjórinn
sagt starfi sínu lausu.
Fulltrúar H- og S-lista mynduðu
meirihluta um stjórn Norður-Hér-
aðs að loknum sveitarstjómarkosn-
ingum. Fulltrúar H-listans hafa nú
ákveðið að slíta samstarfinu og ósk-
að eftir aukafundi í hreppsnefnd til
að láta fara fram oddvitakjör. Efsti
maður S-lista er nú oddviti sveitar-
stjómar. Er stefnt að fundi annað
kvöld.
Fulltrúar listanna hafa deilt um
skólaakstur í sveitarfélaginu.
Þannig stóðu fulltrúar H-listans að
því að hafna öllum tilboðum sem
bárust í skólaakstur í útboði og
semja við fyrri skólabílstjóra. Átta
bjóðendur hafa nú sent félagsmála-
ráðuneytinu stjómsýslukæra vegna
ákvörðunarinnar og fara meðal ann-
ars fram á það að allir fulltrúar H-
listans sem að málinu komu verði
úrskurðaðir vanhæfír til meðferðar
málsins vegna tengsla við skólabíl-
stjórana sem ákveðið var að semja
við.
Jónas Þór Jóhannsson sveitar-
stjóri hefur sagt starfi sínu lausu og
lýst því yfir að það sé vegna ósam-
lyndis í hreppsnefnd og erfiðra
starfsaðstæðna.
Báðust af-
sökunar
fyrir hönd
lögregl-
unnar
TVEIR fulltrúar þýsku lög-
reglunnar í Recklinghausen
gengu í gær á fund Ingimundar
Sigfússonar, sendihema Is-
lands í Þýskalandi, en hann
hefur aðsetur í Berlín, og bára
fram afsökunarbeiðni vegna
framgöngu lögreglunnar við
handtöku pólskra glæpamanna
í sjónvarpsturninum í Diiss-
eldorf. Hópur Islendinga lenti
þar í áhlaupi lögi-eglunnar.
Enginn íslendinganna slasaðist
alvarlega í áhlaupinu, en tveir
voru fluttir á sjúkrahús til að-
hlynningar.
Ingimundur sagði að lög-
reglumennirnir hefðu komið á
hans fund til að gera grein fyr-
ir aðgerðunum og útskýra þær.
Fram hefði komið að þeim
þætti mjög fyrir að íslending-
amir hefðu orðið fyrir þessum
hremmingum, en þeir hefðu
verið að glíma við glæpamann,
sem væri eftirlýstur á alþjóða-
vettvangi, og talinn mjög
hættulegur.
Ingimundur sagðist telja að
það væri fátítt að lögregla bæð-
ist afsökunar með þessum
hætti. Fram hefði komið að
þýska lögreglan tæki þennan
atburð mjög alvarlega. Hún
hefði gengið hart fram, en ekki
talið að um annan kost væri að
ræða til að koma í veg fyrir að
þróun atburða yrði með verri
hætti en þó varð raunin, eins og
tii dæmis hvað varðaði hættuna
á hugsanlegri gíslatöku.
Annar snarpur jarðskjálfti upp á 3,7 á Richter-kvarða varð við Hestvatn
Möguleiki á að
spennan brjótist út
SNARPUR jarðskjálfti, um 3,7 á
Richter-kvarða, varð við Hestvatn
rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöld og
fannst hann allvíða á Suðurlandi.
Skjálftinn varð á sömu slóðum og
skjálftinn í fyrradag sem mældist
4,3 á Richter-kvarða. Að sögn Páls
Halldórssonar, jarðskjálftafræð-
ings Veðurstofu Islands, má rekja
skjálftana tO spennulosunar í
sprungu sem liggur frá norðri til
suðurs á Suðurlandsbrotabeltinu.
Nokkuð margir eftirskjálftar
mældust eftir jarðskjálftann í fyrra-
dag en svo hægði á allt þar tO í gær-
kvöld, að sögn Páls. Um klukkan níu
í gærkvöld mældust tveir skjálftar
með stuttu mOlibiii, annar upp á 2,5
á Richter-kvarða og hinn upp á 2.
Klukkan 21.50 kom síðan skjálftinn
upp á 3,7 á Richter-kvarða.
Að sögn Páls er spurningin nú
sú hvort spennan nái að brjótast út
úr því þrönga svæði sem hún hefur
verið í undanfarna daga eða hvort
hún koðni niður. Hann sagði að
menn yrðu að halda þeim mögu-
leika opnum að spennan brytist út
og því væri Veðurstofan með sér-
staka skjálftavakt á næturna og
Almannavarnir ríkisins fylgdust
vel með.
Spenna hleðst upp
á löngum tíma
Aðspurður sagði Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræðingur á Veður-
stofu Islands að sérstök þensla á
Mýrdalsjökulssvæðinu í sumar gæti
hafa haft áhrif á spennulosun á
þessu svæði.
Ragnar sagði að spenna hlæðist
upp í sprungunni á löngum tíma
sem losnaði síðan um með tilheyr-
andi jarðskjálftum, en síðast losnaði
um spennu í sprangunni árið 1967
með álíka stóram jarðskjálfta og
varð í fyrradag. Sagði Ragnar að
sprangan sé vel þekkt og framkalli
jafnan skjálfta þegar losnar um
spennu sem hleðst upp í henni
vegna landreks.
Hann sagði einnig líklegt að jarð-
hræringar á Mýrdalsjökulssvæðinu
í sumar hefðu haft þau áhrif að
spenna í sprungunni hækkaði.
„Það er því hugsanlegt að það sé
samhengi þarna á milli, sem lýsir
sér í því að sérstök þensla á Mýr-
dalsjökulssvæðinu hafi bæst við
spennuupphleðsluna á Suðurlandi
sem nægði til að framkalla þennan
skjálfta," segir Ragnar.
Sérblöð í dag
www.mbt.is
ím síwm
4 ZÍÐUn
tstimm
Jfl«t#untrUÍ>ib É #
aagskra
Verðlaunakrossgáta
► Þættir - íþróttir
► Kvikmyndir - Fólk
Hálfur mánuður
af dagskrá
frá miðvikudegi
til þriðjudags
► í VERINU í dag er spjallað við Sigurgeir
Pétursson, skipstjóra í Astralíu, sagt frá
rannsóknum á áhrifum veiðarfæra á aflagæði
og litið í heimsókn til Meðbyrs hf. Þá em í
blaðinu ýmsar fréttir úr sjávarútvegi, ásamt
upplýsingum um aflabrögð og markaði.