Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 27 ERLENT Qháði saksóknarinn Kenneth Starr tjáir sig um Lewinsky-málið Kveðst ekki troða illsakir við Clinton Aðskiln- aðarsinn- ar vilja ekkert fullyrða Toronto. Morgunblaðið. LUCIEN Bouchard, fylkisstjóri í Quebec í Kanada, og leiðtogi flokks aðskilnaðarsinna, viU ekki lengur fullyi'ða að efnt verði til at- kvæðagreiðslu um aðskilnað fylk- isins frá Kanada á núverandi kjör- tímabili, sem lýkur 2003, að því er kanadíska blaðið The Globe and Mail greinir frá. Bouchard hefur hingað til ekki hvikað frá þeirri afstöðu að íbúar Quebec, sem flestir eru frönsku- mælandi, muni fá að greiða at- kvæði um aðskilnað áður en kjör- tímabilinu ljúki. En skoðanakann- anir nýlega hafa sýnt að meðal Quebecbúa er lítill stuðningur við aðskilnað, og auk þess hefur dreg- ið úr vinsældum stjórnar Bouchards. Flokkur aðskilnaðarsinna, Parti quebecois (PQ), sigraði naumlega í fylkisþingkosningunum í fyrra, en fyrir fjórum árum munaði innan við einu prósenti atkvæða að að- skilnaður væri samþykktur í at- kvæðagreiðslu. Síðan hafa leiðtog- ar aðskilnaðarsinna sagt að skapa þyrfti „aðstæður fyrir sigur“ í nýrri atkvæðagreiðslu. Á flokksfundi PQ um síðustu helgi gætti Bouchard þess vand- lega að nefna enga tímasetningu um væntanlega atkvæðagreiðslu. Hann sagði að þegar réttar að- stæður sköpuðust yrði Quebecbú- um gefinn kostur á að ákveða framtíð sína. Þegar fréttamenn spurðu hann hvenær nákvæmlega atkvæðagreiðslan yrði haldin sagði hann: „Þegar tími er til kominn, þegar aðstæður eru réttar, munum við halda atkvæðagreiðslu. Og ég er þess fullviss að við getum gert það áður en langt um líður.“ Frétta- skýrandi The Globe and Mail segir að aukin varkárni í orðum Bouchards sé til marks um að hann telji sig þurfa meira svigrúm. Varla er mánuður liðinn síðan Bouchard fullyrti að hann væri viss um að takast myndi að skapa réttar aðstæður áður en kjörtíma- bilinu lyki. GÓLFEFNABÚÐIN Mikið urval fallegra flísa Borgartún 33 • RVK Laufasgata 9 • AK London. Reuters. KENNETH Starr, sem rannsakaði mál Bills Clintons, sagði í gær að ekkert væri hæft í því að hann træði illsakir við bandaríska forset- ann og kvaðst harma að menn teldu persónulegar ástæður liggja að baki rannsókninni. Rannsóknin stóð í fimm ár og kostaði 40 milljónir dala, tæpa þrjá milljarða króna. Hún beindist í fyrstu að viðskiptum Clintons og konu hans þegar hann vai- ríkis- stjóri í Arkansas en henni lauk með því að fulltrúadeild Banda- ríkjaþings höfðaði mál á hendur forsetanum til embættismissis fyr- ir að bera ljúgvitni um samband sitt við Monicu Lewinsky, fyrrver- andi starfsstúlku í Hvíta húsinu. Embættissviptingunni var hafnað í atkvæðagreiðslu í öldungadeild- inni. Skipa hefði átt nýjan saksóknara Starr og Clinton eru sagðir hata hvor annan en Starr kvaðst harma að menn hefðu fengið það á tilfinn- inguna að rannsóknin snerist um fjandskap tveggja manna. „Verk- efni mitt sem lögfræðilegs embætt- ismanns var að safna staðreyndum, meta þær og fylgja þeim síðan eftir með þeim hætti sem ég taldi rétt- an.“ Starr viðurkenndi þó að skyn- samlegra hefði verið að skipa ann- an saksóknara til að rannsaka sam- band Clintons og Lewinsky þar sem menn hefðu fengið það á til- fínninguna að hann træði illsakir við forsetann og vildi koma honum á kné. „Eftir á að hyggja hefði ver- ið betra að öðrum hefði verið falið að rannsaka málið.“ Hann kvaðst ekki fjandskapast við Clinton. „Við viljum að forset- anum farnist vel... En ef við fáum upplýsingar sem þarf að rannsaka þá getum við ekki skorast undan skyldum okkar.“ Starr var í London til að flytja íyrirlestur um „hneykslismenning- una“. Hann neitaði að svara því hvort hann teldi einhverja mein- bugi á því að eiginkona Clintons, Hillary, yrði öldungadeildarþing- maður New York-ríkis og sagði að rannsókninni á málum hennar væri ekki lokið. „Tveimur þáttum rann- sóknar okkar er enn ólokið og ég tel óhyggilegt að ræða þá.“ Falleg innrétting. Hæðarstillanlegt öryggisbelti. Hccenf/I / &llt& Nú fæst Hyundsi Accent í sérstakri Elite-útgáfu með aukabúnaði að verðmæti 155.000 kr. í kaupbæti. Bensínlok opnanlegt innan frá. I Accent Elite færðu aukalega • Álfelgur • Vindskeið með bremsuljósi ■ Geislaspilara • Mottur • Fjarstýrðar samlæsingar • Vetrardekk á stálfelgum Accent El'rte, 3 dyra 1.050.000kr. Accent Elite, 5 dyra 1.199.000kr. 3 BtfretOaakoðun ^ [B&L____________________ ’------% GrJótbAfs VosturfandsvoQur Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1280 HYunani me,>frö»u pm til útLanda -auðvelt dð mund SÍMINN www.simi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.