Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 27
ERLENT
Qháði saksóknarinn Kenneth Starr tjáir sig um Lewinsky-málið
Kveðst ekki troða
illsakir við Clinton
Aðskiln-
aðarsinn-
ar vilja
ekkert
fullyrða
Toronto. Morgunblaðið.
LUCIEN Bouchard, fylkisstjóri í
Quebec í Kanada, og leiðtogi
flokks aðskilnaðarsinna, viU ekki
lengur fullyi'ða að efnt verði til at-
kvæðagreiðslu um aðskilnað fylk-
isins frá Kanada á núverandi kjör-
tímabili, sem lýkur 2003, að því er
kanadíska blaðið The Globe and
Mail greinir frá.
Bouchard hefur hingað til ekki
hvikað frá þeirri afstöðu að íbúar
Quebec, sem flestir eru frönsku-
mælandi, muni fá að greiða at-
kvæði um aðskilnað áður en kjör-
tímabilinu ljúki. En skoðanakann-
anir nýlega hafa sýnt að meðal
Quebecbúa er lítill stuðningur við
aðskilnað, og auk þess hefur dreg-
ið úr vinsældum stjórnar
Bouchards.
Flokkur aðskilnaðarsinna, Parti
quebecois (PQ), sigraði naumlega í
fylkisþingkosningunum í fyrra, en
fyrir fjórum árum munaði innan
við einu prósenti atkvæða að að-
skilnaður væri samþykktur í at-
kvæðagreiðslu. Síðan hafa leiðtog-
ar aðskilnaðarsinna sagt að skapa
þyrfti „aðstæður fyrir sigur“ í
nýrri atkvæðagreiðslu.
Á flokksfundi PQ um síðustu
helgi gætti Bouchard þess vand-
lega að nefna enga tímasetningu
um væntanlega atkvæðagreiðslu.
Hann sagði að þegar réttar að-
stæður sköpuðust yrði Quebecbú-
um gefinn kostur á að ákveða
framtíð sína. Þegar fréttamenn
spurðu hann hvenær nákvæmlega
atkvæðagreiðslan yrði haldin sagði
hann:
„Þegar tími er til kominn, þegar
aðstæður eru réttar, munum við
halda atkvæðagreiðslu. Og ég er
þess fullviss að við getum gert það
áður en langt um líður.“ Frétta-
skýrandi The Globe and Mail segir
að aukin varkárni í orðum
Bouchards sé til marks um að
hann telji sig þurfa meira svigrúm.
Varla er mánuður liðinn síðan
Bouchard fullyrti að hann væri
viss um að takast myndi að skapa
réttar aðstæður áður en kjörtíma-
bilinu lyki.
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið urval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufasgata 9 • AK
London. Reuters.
KENNETH Starr, sem rannsakaði
mál Bills Clintons, sagði í gær að
ekkert væri hæft í því að hann
træði illsakir við bandaríska forset-
ann og kvaðst harma að menn
teldu persónulegar ástæður liggja
að baki rannsókninni.
Rannsóknin stóð í fimm ár og
kostaði 40 milljónir dala, tæpa þrjá
milljarða króna. Hún beindist í
fyrstu að viðskiptum Clintons og
konu hans þegar hann vai- ríkis-
stjóri í Arkansas en henni lauk
með því að fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings höfðaði mál á hendur
forsetanum til embættismissis fyr-
ir að bera ljúgvitni um samband
sitt við Monicu Lewinsky, fyrrver-
andi starfsstúlku í Hvíta húsinu.
Embættissviptingunni var hafnað í
atkvæðagreiðslu í öldungadeild-
inni.
Skipa hefði átt nýjan
saksóknara
Starr og Clinton eru sagðir hata
hvor annan en Starr kvaðst harma
að menn hefðu fengið það á tilfinn-
inguna að rannsóknin snerist um
fjandskap tveggja manna. „Verk-
efni mitt sem lögfræðilegs embætt-
ismanns var að safna staðreyndum,
meta þær og fylgja þeim síðan eftir
með þeim hætti sem ég taldi rétt-
an.“
Starr viðurkenndi þó að skyn-
samlegra hefði verið að skipa ann-
an saksóknara til að rannsaka sam-
band Clintons og Lewinsky þar
sem menn hefðu fengið það á til-
fínninguna að hann træði illsakir
við forsetann og vildi koma honum
á kné. „Eftir á að hyggja hefði ver-
ið betra að öðrum hefði verið falið
að rannsaka málið.“
Hann kvaðst ekki fjandskapast
við Clinton. „Við viljum að forset-
anum farnist vel... En ef við fáum
upplýsingar sem þarf að rannsaka
þá getum við ekki skorast undan
skyldum okkar.“
Starr var í London til að flytja
íyrirlestur um „hneykslismenning-
una“. Hann neitaði að svara því
hvort hann teldi einhverja mein-
bugi á því að eiginkona Clintons,
Hillary, yrði öldungadeildarþing-
maður New York-ríkis og sagði að
rannsókninni á málum hennar væri
ekki lokið. „Tveimur þáttum rann-
sóknar okkar er enn ólokið og ég
tel óhyggilegt að ræða þá.“
Falleg innrétting.
Hæðarstillanlegt öryggisbelti.
Hccenf/I /
&llt&
Nú fæst Hyundsi Accent í sérstakri
Elite-útgáfu með aukabúnaði að
verðmæti 155.000 kr. í kaupbæti.
Bensínlok opnanlegt innan frá.
I Accent Elite
færðu aukalega
• Álfelgur
• Vindskeið með
bremsuljósi
■ Geislaspilara
• Mottur
• Fjarstýrðar samlæsingar
• Vetrardekk á stálfelgum
Accent El'rte, 3 dyra
1.050.000kr.
Accent Elite, 5 dyra
1.199.000kr.
3
BtfretOaakoðun ^ [B&L____________________
’------% GrJótbAfs
VosturfandsvoQur
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1280
HYunani
me,>frö»u
pm
til útLanda
-auðvelt dð mund
SÍMINN
www.simi.is