Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Landsvirkjun með æfíngu til að búa sig undir 2000-vandann Raforkukerfið fært aft- ur um rúma tvo áratugi LANDSVIRKJUN efndi frá hádegi og til klukkan 17 í gær til æfingar í því skyni að búa sig undir áramót og hugsanleg vandkvæði af völdum 2000-vandans. Boðleiðir innan fyrir- tækisins voru reyndar og raforku- kerfi Landsvirkjunar stýrt án að- stoðar tölvukerfis í stjómstöð. Þor- steinn Hilmarsson, upplýsingafull- trúi Landsvirkjunar, segir flest benda til að æfingin hafi gengið vel og að fyrirtækið sé sæmilega búið undir að mæta næstu áramótum í tæknilegu tilliti. „Við létum á það reyna hvort þjálf- un okkar og viðbúnaður nægðu til að við gætum starfað við slæmar að- stæður og má líkja þessu við línu- dans með öryggisneti," segir hann. Eftir viku, 5. október næst kom- andi, verður síðan æfð stýring raf- orkukerfisins við aðstæður þar sem fjarskipti eru takmörkuð og koma þarf boðum á milli með öðrum hætti, en í æfingunni í gær gátu menn notast við fjarskiptatæknina. Stýrt án aðstoðar tölva „Þeir sem stýra raforkukerfinu í stjómstöð Landsvirkjunar í Reykjavík hafa í raun og vem þurft í dag [gær] að glíma við samsvar- andi aðstæður og vom við lýði í kringum 1975 og svipaðar aðferðir verið viðhafðar við stjómunina. Þeir hafa ekki haft aðgang að tölvunum sem stýra kerfínu og orðið að bregðast við í gegnum fjarskipti til að halda raforkukerfinu gangandi. Tölvukerfið hefur þó eftirlitshlut- verk og sérstakur vaktmaður fylgd- ist með því og gat gripið inn í ef eitthvað færi úrskeiðis, því að við vildum að sjálfsögðu ekki kljást við 2000-vandann þremur mánuðum fyrir tímann. Við vildum ekki að lækningin yrði verri en sjúkdómur- inn. Tölvan hefur hins vegar ekki þurft að grípa inn í starfsemina," segir Þorsteinn. Kostnaður um 35 millj. Landsvirkjun hefur frá því í fyiTa unnið að því að yfirfara og laga bún- að fyrirtækisins að sögn Þorsteins, og er búið skipta út nánast öllum þeim búnaði sem ekki er „aldamóta- hæfur“. Um er að ræða á annað þúsund tæki. Einnig þurfti að gera vemlegar endurbætur á kerfisráði, þ.e. tölvu- kerfi stjórnstöðvar sem stýrir raf- orkukerfinu. Aætlaður kostnaður við að lagfæra öll kerfi fyrirtækisins fyrir aldamót, ásamt vinnu við skráningu, prófanir og viðbúnað, nemur um 35 milljónum króna. Stærsti liður í þeirri fjárhæð,.eða um 20 milljónir króna, er endurnýj- un hugbúnaðar í tölvukerfi stjórn- stöðvar. Eftir er að lagfæra nokkrar sím- stöðvar, en Þorsteinn kveðst gera ráð fyrir að vinnu við þær ljúki á næstu vikum. Einnig hefur að sögn Þorsteins verið samin svo kölluð viðbúnaðará- ætlun, þar sem fram kemur hvernig starfseminni verður háttað, þurfí mannshöndin að gi’ípa inn í það ferli sem yfirleitt er tölvustýrt. Tekið verður mið af reynslu sem fæst í kjölfar æfinganna í gær og 5. októ- ber næst komandi, og viðbúnaðará- ætlunin lagfærð í samræmi við það sem þá kemur í ljós. „Að því loknu teljum við okkur vera til í slaginn," segir Þorsteinn. Leigulínur til gagnaflutnings Gjaldskrá breytist LANDSSÍMINN mun í vik- unni kynna nýja gjaldskrá fyr- h’ leigulínur til gagnaflutnings, að sögn Olafs Þ. Stephensen, forstöðumanns upplýsinga- og kynningarmála Landssímans. Að sögn Olafs mun breytingin fela í sér lækkun á lengi’i og burðarmeiri leiðum og hækkun á burðarminni línum innan- bæjar. Bjöm Davíðsson, hjá Inter- netþjónustunni Snerpu, hefur gagnrýnt Landssímann fyrir seinagang í þessum málum og í opnu bréfi til Olafs sagðist hann vera alvarlega að íhuga að skjóta málinu til Eftirlits- stofnunar EFTA (ESA) ef ekki yrði af gjaldskrárbreyt- ingu um mánaðamótin. Olafur sagði að unnið hefði verið að breytingunni í u.þ.b. ár með Póst- og fjarskipta- stofnun, sem þjrfti að sam- þykkja hana. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Súsanna Georgsdóttir og Magnús Jdnsson eftir að hafa sett upp hring- ana í gamla veiðikofanum í Elliðaey. Fjárveiting ríkisstjórnarinnar 1,2 milljónir til Austur-Tímor Bað hans í Elliðaey Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. SÚSANNA Georgsdóttir kom unnusta sínum, Magnúsi Jóns- syni, heldur betur á óvart um helgina þegar hún bað hans í gamla lundaveiðikofanum í EIl- iðaey. Súsanna kom Magnúsi al- gjörlega í opna skjöldu með bón- orði sínu því hann átti von á öllu öðru en að hitta hana þar, en hann hugsaði sig ekki lengi um og sagði að sjálfsögðu já. Magnús hafði farið í Elliðaey ásamt félögum sínum til að ganga frá búnaði Iundaveiði- manna fyrir veturinn. Súsanna hafði fengið félaga Magnúsar sér til aðstoðar við undirbúning bón- orðsins. Var hún flutt í Elliðaey án vitundar Magnúsar og var fal- in þar í gamla veiðikofanum. Magnús var á meðan sendur til að sinna frágangi í veiðistöðum úti á eyju og tína saman hluti sem í þeim voru. Þegar hann hafði lokið því og kom aftur í veiðihúsið báðu félagarnir hann um að skreppa í gamla kofann til að sækja öl sem þar væri geymt. Þar beið Súsanna hans með kampavín og hringa og bað um hönd hans þegar hann kom í kof- ann. „Þegar ég kom inn í gamla kofann varð ég að beygja mig, því það er svo lágt til lofts þar, og þá sá ég einhverja manneskju út við vegg sem reyndist vera Súsanna. Mér brá alveg hrika- lega þegar ég sá hana, enda átti ég ekki von á neinum þarna og allra síst henni. Ég leit því á hana og stundi upp: Hvað ert þú að gera hér? Hún rétti mér þá kampavínsflösku og sagði mér að opna hana en dró síðan upp hringana og bað mig að trúlofast sér. Eg sagði að sjálfsögu já og þar með var það frágengið," sagði Magnús. Eftir dágóða dvöl í Elliðaey héldu þau siðan í land og um kvöldið var trúlofuninni fagnað á hinu árlega lundaballi bjargveiði- manna í Eyjum. RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á fundi sínum í gær tillögu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra um að Island greiddi 1,2 milljónir króna til stuðnings starfsemi Sam- einuðu þjóðanna á Austur-Tímor. I tillögu utanríkisráðherra til ríkisstjórnarinnar, segir m.a. að íslensk stjórnvöld hafí allt frá upphafi stutt frelsisbaráttu íbúa Austur-Tímor, m.a. með stuðningi við ályktanir um sjálfsákvörðunar- rétt í samræmi við þjóðarétt og fyrirtöku málsins á allsherjarþingi SÞ. Koma á lögum og reglu I kjölfar ofbeldisöldunnar sem átti sér stað eftir að íbúar Austur- Tímor höfnuðu áframhaldandi sambandi við Indónesíu í þjóðarat- kvæðagreiðslu 30. ágúst sl., hafi ör- yggisráðið ákveðið að verða við boði nokkurra aðildarríkja um að senda fjölþjóðahersveit á vettvang. „Hlutverk fjölþjóðasveitarinn- ar verður að koma á lögum og reglu, og verður hún kostuð af þeim ríkjum sem í henni taka þátt. Hins vegar verður settur á stofn sjóður til að gera öðrum ríkjum kleift að styrkja þetta verkefni. Gert er ráð fyrir að síð- ar verði sett á fót hefðbundin friðargæslusveit SÞ, sem verður kostuð af öllum aðildarríkjum eins og almennt tíðkast um þess háttar verkefni. Með vísan til mikilvægis þess að hægt verði að stuðla að friði á Austur-Tímor, og flóttafólki verði gert kleift að flytja aftur heim, er lagt til að ríkisstjórnin veiti sem nemur einni milljón íslenskra króna til sjóðs SÞ, sem stofnaður verður til að kosta fjölþjóðahersveitirnar. Einnig er óskað eftir því að veitt verði andvirði 200 þúsund króna til sjóðs SÞ, til uppbyggingar á Austur-Tímor,“ segir í tillögunni. Byggðakvóta úthlutað Erfítt að komast hjá óánægju STJÓRN Byggðastofnunar stað- festi í gær úthlutun byggðakvóta til Seyðisfjarðar og Hofsóss en áður hafði stjómin úthlutað kvóta ísa- fjarðarbæjar. Nokkur styrr hefur staðið í sveitarfélögum vegna byggðakvótans að undanfömu en stjómarformaður Byggðastofnunar segir erfitt að komast hjá slíku. Byggðakvóta Hofsóss var öllum úthlutað tO fiskvinnslunnar Höfða á Hofsósi, samtals 114 tonnum. Kvóta Seyðisíjarðar var hinvegar úthlutað til tveggja aðila, Strandasíld sf. fékk úthlutað 57 tonnum en einkahluta- félagið HAS fékk 10 tonn. Áður hafði Byggðastofnun úthlutað öllum byggðakvóta ísafjarðarbæjar til Þingeyrar, alls 387 tonnum. Sam- tals hefur því verið úthlutað 568 tonnum af 1.500 tonna byggðakvóta. Egill Jónsson, formaður stjómar Byggðastofnunar, segist ánægður með þessa niðurstöðu. Hann segir samstöðu hafa ríkt um úthlutunina á báðum stöðum en kannast þó við að styrr hafi staðið um byggðakvót- ann í mörgum sveitarfélögum. „I báðum þessum tilfellum var sam- staða um úthlutunina í bæjarfélög- unum sjálfum og það er okkur mik- ilvægast. En auðvitað er það svo, að þegar fleiri vilja en fá, verður ein- hver óánægja. Ég er hinsvegar sannfærður um að það sem þegar hefur verið úthlutað mun skila góð- um árangri," segir Egill. Stjórn Byggðastofnunar fundar aftur 12. október nk. og gerir Egill ráð fyrir að þá verði hægt að út- hluta því sem eftir er af byggða- kvótanum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ingvar Júlíus Helgason jarðsunginn INGVAR Július Helgason for- stjóri var jarðsunginn í Bústaða- kirkju í gærdag, en það var séra Pálmi Matthfasson sem jarðsöng. Þeir sem bám kistuna voru: Agnar J. Levy, Jóhann Egilsson, Kristján J. Ágústsson, Lárus Helgason, Gunnar Hauksson, Jó- hann Guðjónsson, Jakob Möller og Markús Möller. Ingvar var jarðsettur í Foss- vogskirkjugarði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.