Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.09.1999, Blaðsíða 6
6 MIÐVTKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Filippseyjar stofna til sendiherraembættis hérlendis Fjölmargir möguleikar á samstarfí landanna SENDIHERRA Filippseyja af- hendir forseta íslands trúnaðarbréf í dag og hefur þar með formlega störf sem slíkur. Formlegt stjórn- málasamband var tekið upp á milli landanna í febrúar á þessu ári, en viðskiptatengsl milli landanna eru þegar töluverð. César B. Bautista er fyrsti sendi- herra Filippseyja á íslandi, með að- setur í London, en hann hefur jafn- framt gegnt sendiherraembætti Filippseyja í Bretlandi og írlandi frá því í janúar á þessu ári. Bautista segist sjá fjölmarga mögu- leika á samstarfi milli landanna, en fyrst í stað séu þrjú verkefni sem hann vilji koma á fót. Þjóðirnar geta lært hvor af annarri í fyrsta lagi telur Bautista nauð- synlegt að mynda viðskiptatengsl við fyrirtæki á íslandi. Filippseyj- ingar hafi mikinn áhuga á að kynna sér fiskiðnaðinn og ýmsar vörur sem framleiddar eru hér- lendis á þeim markaði. Filippsey- ingar stunda fiskveið- ar í stórum stíl og fiskur er mjög vinsæl matvara meðal þeirra, segir Bautista. Hann telur að þjóðirnar geti lært mikið hvor af annarri og mun hann m.a. funda með full- trúum frá Lýsi hf., SR-mjöli og Eim- skipafélaginu til þess að kynnast sviðinu nánar og möguleikun- um. Þá mun hann einnig eiga fund með fulltrúa frá Verslunar- ráði. I öðru lagi telur Bautista að þjóðirnar eigi mikla möguleika á að skiptast á þekk- ingu á sviði orkuöflunar, nánar til- tekið á nýtingu jarðhita. Filipps- eyjar búi yfir miklum jarðhita og þar eru fjölmörg eldfjöll. Eyjarn- ar eru einn stærsti framleiðandi jarðhita í heiminum, að sögn Bautista og telur hann nauðsyn- legt að þjóðirnar skiptist á upplýsing- um og reynslu á því sviði. Hann mun eiga fund með fulltrúa Orkustofnunar til að ræða sameiginlega hagsmuni þjóðanna. Síðast, en ekki síst, segir Bautista að embætti hans sé mik- ilvægt fyrir Filippsey- inga sem búsettir eru hérlendis. Hann telji mikilvægt að veita þeim athygli og stuðn- ing þegar þörf krefur. Hann segist telja þá Filippseyinga sem búa hér tiltölulega ánægða. Þeir hafi komið sér vel fyrir hérlendis og Islendingar kunni að meta þá vegna þess að þeir séu góðir starfsmenn sem vinna vel og mik- ið, auk þess sem þeir hafi komið með nýja menningarlega vídd inn í samfélagið. Þá segist hann vilja leggja áherslu á að þeir Filippsey- ingar sem búi hér haldi tengslum sínum við heimaland sitt og mun hann hitta Filippseyinga búsetta hérlendis í heimsókn sinni nú. Geta alltaf haft samband Bautista vonast til að koma hing- að til lands um það bil einu sinni á ári, en Filippseyingar búsettir hér- lendis geti að sjálfsögðu haft sam- band við sig til London hvenær sem þörf er á, hvort sem er í gegnum síma, símbréf eða tölvupóst. Bautista mun í heimsókn sinni hérlendis jafnframt hitta utanrík- isráðherra, Halldór Asgrimsson, menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, Stefán Hauk Jóhanes- son, sendiherra og skrifstofu- stjóra viðskiptaskrifstofu utanrík- isráðuneytisins og Halldór Blön- dal, forseta Alþingis. Hann kveðst vona að íslendingar sjái sér fært í nánustu framtíð að stofna til sendiherraembættis Islands á Fil- ippseyjum eða í nærliggjandi löndum. César B. Bautista Filippseyingar á íslandi á fímmta hundrað Fagna nýskipuð- um sendiherra SAMKVÆMT tölum frá Hagstofu Islands eru 454 einstaklingar sem fæddir eru á Filippseyjum búsettir hérlendis. Þá eru ótalin börn þeirra einstaklinga, sem fædd eru hérlendis, syo leiða má lfkum að því að Filippseyingar hér á landi séu mun fleiri. Nora Valdís Mangubat er for- maður Filippseysk-íslenska félags- ins en í því eru um 100 manns. María Priscilla Zanoria er fyrr- verandi formaður félagsins til fjölda ára og stofnandi þess fyrir níu árum. Þær fagna því að stofn- að hafi verið til sendiherracmb- ættis Filippseyja hér á landi og mun félagið af því tilefni halda samkomu til heiðurs sendiherran- um á meðan hann er staddur hér- lendis. Maria og Nora telja þetta mikil- vægt skref og þýðingarmikið fyrir Filippseyinga búsetta hérlendis. Þeir geti leitað til sendiherrans ef einhver vandamál koma upp eða ef þeir hafa hug á að auka tengsl sín við heimalandið, hvort sem er á sviði viðskipta eða menningar. Að þeirra sögn eru Filippsey- ingar sem búsettir eru hérlendis dreifðir um allt land. Félagið gef- ur út fréttabréf einu sinni til þrisvar sinnum á ári og er það að mestu á ensku þar sem svo mörg ólík tungumál eru töluð á Filipps- Morgunblaðið/Ásdís Mari'a Priscilla Mangubat, stofnandi Filippseysk-íslenska félagsins og Nora Valdís Mangubat, núverandi formaður, munu fagna nýskipuðum sendiherra á Islandi ásamt öðrum Filippseyingum með samkomu á laugardaginn. eyjum. Filippseysk-íslenska félag- ið býður öllum Filippseyingum búsettum hérlendis á samkomuna sem haldin verður sendiherran- um til heiðurs, en hún verður laugardaginn 2. október klukkan 19 í sal Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Stóra fíkniefnamálið Yerjendur krefjast rannsókn- argagna TVEIR verjendur gæsluvarð- haldsfanga í stóra fíkniefna- málinu hafa krafist þess að fá afrit af öllum gögnum lögreglu, sem varða skjólstæðinga sína, en lögreglan hefur enn á sinni hendi hluta þeirra gagna sem lögmennirnir krefjast. Fyrir liggur einn Hæstarétt- ardómur frá því á mánudag, þar sem hafnað var kröfu lög- reglunnar um að synja verj- anda eins fanga um aðgang að gögnum varðandi rannsóknina í þrjár vikur, svo sem afrit símahlerana og aðrar skýrslur. Hafði verjandinn kært úrskurð héraðsdóms frá 22. september þar sem fallist var á kröfu lög- reglunnar um að synja verj- andanum um aðgang að um- beðnum gögnum, en í sama úr- skurði var verjandanum úr- skurðaður aðgangur að öðrum gögnum svo sem handtöku- skýrslu, skýrslum um húsleit og fleira. Ekki talið heimilt að synja um aðgang að gögnum Að mati Hæstaréttar var ekki talið heimilt að synja verj- andanum um aðgang að um- beðnum gögnum þar sem ekki hafði verið upplýst að lögregl- an hefði leitað eftir því að skýrsla yrði tekin af sakborn- ingi eða vitni fyrir dómi. I lög- um er kveðið á um töku slíkrar skýrslu áður en verjandi sak- aðs manns fær aðgang að skjölum eða gögnum máls. Get- ur dómari framlengt einnar viku frest til að afhenda gögn í allt að þrjár vikur þegar lög- regla hefur leitað eftir skýrslu- töku, en þar sem það var ekki gert féll dómur Hæstaréttar verjandanum í hag. Að lokinni uppkvaðningu Hæstaréttardómsins fór lög- reglan fram á skýrslutökur fyrir dómi og fékk aukinn frest með dómsúrskurði og heldur því enn gögnunum. Hefur verj- andinn kært þann úrskurð til Hæstaréttar og er dóms beðið. Sjávarútvegsráðherra skipar nefnd til að endurskoða lög um stjórn fískveiða Frumvarp fyrir Alþingi eftir tvö ár ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða og koma með tillögur til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða og á hún að skila tillögum sínum fyrir 1. september á næsta ári. Að sögn Árna mun verða tekið tillit tO til- lagna nefndarinnar við smíði nýs frumvarps til laga um stjórn fisk- váða, en ef allt gengur að óskum verður frumvarpið lagt fyrir Al- þingi eftir tvö ár. Áð sögn Árna ber nefndinni að taka tillit til hagsmuna sjávarút- vegsins, byggðanna og almennings í landinu í starfi sínu. Hann sagðist ekki eiga von á því að grundvallar- breyting yrði gerð á fiskveiði- stjómunarkerfinu, heldur væri markmið breytinganna að ná fram sem víðtækastri sátt landsmanna um það. Að hans sögn má ekki fóma markmiðum um skynsam- lega nýtingu og bætta umgengni um auðlindir sjávar né heldur raska hagvæmni og stöðugleika í greininni. Mikilvægt að hafa pólitíska vigt í nefndinni Ámi sagðist hafa gefið sér góðan tíma til að skipa nefndina þar sem afar mikilvægt væri að vel tækist til. Nefndin er fámenn en í henni eiga sæti sjö menn, þar af fimm þing- menn, þrír úr stjómarflokkunum og tveir úr stjórnarandstöðu. Ámi sagði mikilvægt að hafa pólitíska vigt í nefndinni þar sem niðurstaðan í málinu yrði að lokum pólitísk. Sér- staka athygli vekur að Vestfirðingar eiga tvo þingmenn í nefndinni en enginn kemur frá suðvesturhominu. Þá á Fijálslyndi flokkurinn engan fulltrúa í nefndinni. Fulltrúar stjórnarflokkanna í nefndinni eru sjálfstæðismennirnir Vilhjálmur Egilsson og Tómas Ingi Olrieh og framsóknarmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson. Fulltrúar stjómarandstöðunnar em þeir Sig- hvatur Björpinsson úr Samfylk- ingunni og Árni Steinar Jóhanns- son frá Vinstrihreyfmgunni - grænu framboði. Auk þingmann- anna sitja þeir Friðrik Már Bald- ursson, rannsóknarprófessor við Hagfræðistofnun Háskóla íslands, sem jafnframt er formaður, og Kri- stján Skarphéðinsson, skrifstofu- stjóri í viðsídptaráðuneytinu. „Það er mikil vegsemd og mikill vandi að fá þetta verkefni,“ sagði Friðrik Már. Friðrik Már sagði að mikið væri búið að fjalla um þessi mál undan- farið og að nefndin myndi án efa fara yfir það sem búið væri að setja Morgunblaðið/Ámi Sæberg Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra greindi í gær frá því að búið væri að skipa nefnd sem endurskoða ætti lög um stjórn fiskveiða. Frá vinstri: Ármann Ólafsson, aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra, Kristján Skarphéðinsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, Friðrik Már Baldursson, prófess- or við Háskóla íslands, og Kristín Haraldsdóttir, lögfræðingur í sjáv- arútvegsráðuneytinu. á blað. Þá sagði hann að nefndin myndi einnig skoða það sem auð- lindanefndin hefði verið að gera, en hún á að skila af sér um áramótin. Sérstakur starfsmaður nefndar- innar verður Kristín Haraldsdóttir, lögfræðingur í sjávarútvegsráðu- neytingu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.