Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þjóðsöngurinn til
Ég get nú ekki sagt að ég sé neitt bergnumin yfir þessu þjóðsöngsgargi, Örn minn.
Grétar Þorgeirsson var við Hrafnakletta í
Eystri-Rangá fyrir fáum dögum og veiddi
sína fyrstu laxa. Hér er veiðiugginn á þeini
fyrsta nagaður af.
Að sögn Eiríks St. Eiríkssonar
árnefndarmanns munar mest um að
ágúst, sem er jafnan sterkasti mán-
uðurinn, gaf nú aðeins 50 laxa. „Það
var í ökkla eða eyra, aðstæður voru
lengst af afleitar, frá því í lok júlí og
fram í byrjun septem-
ber. Fyrst settu miklir
þurrkar og vatnsleysi
strik í reikninginn, en
síðan var áin lengi
óveiðandi vegna vatna-
vaxta. Þrátt fyrir
vatnavexti í haust virð-
ist lítið hafa bæst við af
laxi og sáralítið virtist
vera af fiski í lok veiði-
tímans. Góðu fréttimar
eru hins vegar þær að
áin er kjaftfull af seið-
um og ef þau lifa vetur-
inn af og næsta ár í
hafinu er gott útlit fyr-
ir veiðisumarið 2001,“
sagði Eiríkur.
Arnefndarmaðurinn
bætti við að Hellufljót
hefði gefið flesta laxa,
24 stykki, en síðan
hefðu Efri-Strengur og
Neðri-Barki gefið 17
laxa hvor. Sumir af
bestu veiðistöðunum
náðu sér aldrei upp
vegna vatnsleysis, t.d. Laxahylur
sem var besti staðurinn 1998 með
46 laxa, en gaf nú aðeins sex laxa.
Þá var meðalvigtin lakari í sumar
en í fyrra og stærstu laxamir aðeins
13 pund. Þrír slíkir veiddust.
Fáskrúð
fisklítil í
haust
DALAÁRNAR komu yfírleitt frem-
ur iila út miðað við síðasta sumar,
en að öllum líkindum má í a.m.k.
einhverjum tilvikum kenna því um
hversu þurrviðrasamt var á svæð-
inu og árnar urðu fyrir vikið afar
vatnslitlar og ræfilslegar. Má þar
nefna Laxá í Dölum, með tæpa þús-
und laxa, og jafnvel Haukadalsá,
með nálægt 700 laxa, sem þó heldur
vatni sínu betur vegna náttúmlegr;
ar vatnsmiðlunar Haukadalsvatns. í
öðmm tilvikum var heldur lítill lax í
vertíðarlok og má þar nefna Fá-
skrúð sem gaf aðeins 145 laxa í
sumar, sem er 120 löxum minni afli
heldur en í fyrra.
Matra Nortel
símstöðvar
• Mikið úrval ISDN símstöðva
• Allt frá 4 upp í 12.000 innanhússnúmer
• Netkerfistengingar mögulegar milli allra
Matra Nortel símstöðva
• Sami hugbúnaður í öllum símstöðvunum
• Fjölbreyttir möguleikar t.d. beint innval,
talhólf, sjálfvirk svörun, tölvutengingar,
þráðlausar lausnir o.fl.
• Þráðlaus símtæki með titrarahringingu,
og tengingu við heyrnartól
• Símstöðvar sem tryggja samskipti komandi kynslóða,
frá einum stærsta framleiðanda símkerfa í heiminum
r^) BRÆÐURNIR k. á A L
f^lhRMSSON ÍMIM.
Lágmúla 8 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2810
www.ormsson.is
COMMUNICATIONS
Islenskur varaforseti IGS
Alþjóðlegrar
samvinnu þörf
FYRIR skömmu,
nánar til tekið í
ágústmánuði, var
Helgi Björnsson jökla-
fræðingur kjörinn vara-
forseti Alþjóðlega jökla-
rannsóknafélagsins IGS
(International Glaciolog-
ical Society). Hann var
spurður um tildrög þessa
kjörs?
Ég hef verið í stjórn
þessa félags þrisvar sinn-
um áður allt frá 1978 og
hef staðið að tveimur ráð-
stefnum hér á landi og
verið með í undirbúningi
að ráðstefnum erlendis
líka, þannig að ég hef
starfað mikið fyrir þetta
félag um árabil. Valnefnd
stakk upp á mér sem He,9l BjOmSSOIl
varaforseta og var ég síðan kjör- ►Helgi Björnsson fæddist 1942
in af félögum á aðalfundi í Zúrich
í Sviss í ágúst sl.
-Hvað felur þetta embætti í
sér?
Stjómin vinnur að mörkun
stefnu félagsins og sem varafor-
seti er ég einn af stjómaiTnönnum
og staðgengill þegar á þarf að
halda íyrir Robert Bindschadler
forseta félagsins sem er jökla-
fræðingur við bandarísku geim-
ferðastofnunina NASA. Þess má
geta að á sama fundi og ég var
kosinn varaforseti var Tómas Jó-
hannesson jöklafræðingur við
Veðurstofu Islands valinn einn af
ritstjómm Joumal of Glaciology
og Oddur Sigurðsson jarðfræð-
ingur við Orkustofnun er frétta-
ritari fyrir íslands hönd við
fréttabréfið Ice sem félagið gefur
út. Þá má þess að geta að Sigurð-
ur Þórarinsson jarðfræðingur,
sem fyrstur Islendinga lærði
jöklafræði, var á sínum tíma gerð-
ur heiðursfélagi í Alþjóðlega
jöklarannsóknafélaginu IGS. Fé-
lagið veitti árið 1997 Sigfúsi John-
sen, sem starfar við Kaupmanna-
hafnarháskóla, viðurkenningu fyr-
h- framúrskarandi árangur við
jöklarannsóknir, þ.e. boranir eftir
ískjörnum, á Grænlandsjökli.
- Hvert er markmið þessa fé-
lags?
Þetta er alþjóðlegt vísindafé-
lag sem var stofnað árið 1936 í
Bretlandi og aðalstöðvar þess
eru í Cambridge. Markmið þess
er í fyrsta lagi að efla áhuga og
hvetja tO rannsókna á vísinda- og
tæknilegum vandamálum tengd-
um snjó og ís í öllum löndum
jarðar. Snjór og ís er mikilvægur
þáttur í umhverfi manna um all-
an heim og verður það á komandi
árum og það þarf alþjóðlega sam-
vinnu um slíkar rannsóknir. Auk
þess er annað markmið; að auð-
velda og auka alþjóðlegt flæði
hugmynda og upplýsinga um
jöklafræði og efla og auka þekk-
ingu almennings um þessi fræði.
Að þessu er unnið með þvi að
gefa út tvö alþjóðleg tímarit, ann-
að þeirra heitir Journal of Glaci-
ology sem komið hef-
ur út frá árinu 1947 og
Annals of Glaciology,
auk fréttabréfsins Ice
sem fyrr er nefnt. Af
í Reykjavík. Hann lauk stúd-
entsprófí 1963 frá Menntaskól-
anum í Reykjavík og prófi í
jarðeðlisfræði frá háskóianum í
Ósló 1969. Hann hefur starfað
við Raunvísindastofnun háskól-
ans með hléum frá 1971 við
jöklarannsóknir, síðustu fimm
ár hefur Helgi verið prófessor
við háskólann í Ósló í hluta-
starfi. Hann er nú varaforseti
Alþjóðlega jöklarannsóknafé-
lagsins IGS. Helgi er kvæntur
Þóru Ellen Þórhallsdóttur pró-
fessor í grasafræði við HÍ, þau
eiga tvö börn.
A Islandi þurfa
menn að fást
við alla hluti
og til koma út önnur verk eftir
því sem stjórnin ákveður. Félagið
styrkir einnig og stendur að fyr-
irlestrum, vinnufundum og ráð-
stefnum um jöklafræði.
- Hvað er nýtt í þessum fræð-
um?
A ráðstefnum undanfarið hefur
verið rætt um vatnsrennsli í jökl-
um, hitastig, hreyfingar, snjó og
snjóflóð, loftslagsbreytingar sem
menn lesa úr ískjörnum og um
jökulrof og fleira. Allt hefur þetta
verið efni á þessum ráðstefnum
og lýsir vel hvað er nýjast í þess-
um fræðum.
-Hvað ert þú sjálfur að fást
við?
Á Islandi þurfa menn að fást
við alla hluti. Ég hef verið að
vinna að grundvallarrannsóknum
um jökia Islands, kortleggja botn
undir jöklum, vatnsrennsli frá
þeim, svo sem eins og bæði jökul-
hlaup og venjulegt vatnsrennsli,
hreyfingar þeirra, vöxt þeirra og
viðgang. Einnig tengsi jökla-
breytinga og veðurs. Eilífur erill
er í kringum náttúruhamfarir
undir jöklum á íslandi.
-Hvað um loftslagsbreyting-
arnar, aukin gróðurhúsaáhrif, er
sjáanlegt að þau hafí valdið
breytingum hér á landi?
Hér hafa orðið miklar breyt-
ingar á jöklum, einkum frá 1920
og fram undir 1960, þá rýrnuðu
þeir mjög vegna hlýnunar. Frá
því 1930 til 1960 var jú hlýjasta
skeið í íslandssögunni. En svo
kólnaði frá 1960 alveg fram á ní-
unda áratuginn, þá dró mjög úr
rýmun jökla, hún hefur hins veg-
ar aukist allra síðustu ár á ný.
Við höfum ekki séð hraðar breyt-
ingar vegna aukinna gróður-
húsaáhrifa eins og menn hafa séð
t.d. í Ölpunum þar sem jöklar
hafa rýrnað gríðarlega, en það
eru hugmyndir manna sem fást
við þessi fræði að á íslandi, sem
er umlukið haíl, þar
muni loftslagsbreyt-
ing koma síðar fram
en á meginlandinu -
það taki nokkra ára-
tugi að hita upp sjávarstrauma
hér þannig að aukinna gróður-
húsaáhrifa fari að gæta með
svipuðum hætti og á meginlönd-
unum.
- En eru þetta ekki atriði sem
varða fólk um allan heim?
Jú, og það er einmitt með al-
þjóðlegri samvinnu sem verður
að glíma við þessi vandamál og
að því vinnur Alþjóðlega jökla-
rannsóknafélagið.