Morgunblaðið - 29.09.1999, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnt að skráningu nýs kjötfyrirtækis á hlutabréfamarkaði
Annast tæplega helming
sauðfjárslátrunar í landinu
Nýja kjötfyrirtækið stærst
SAUÐFÉ, fjölda slátrað 1998
Nýja félagið
47%
245.053
57.015
Aðrir -
KASK/
Þríhyrningur
Nýja
félagið
23.559
19%
36%
Fjölda
slátrað
7.469
60 þús.
50
40
30
20
10
SVÍN
NAUTGR.
HROSS
KJÖTFYRIRTÆKIÐ sem verður
til um áramót með samruna að
minnsta kosti fímm fyrirtækja í
slátrun og kjötvinnslu mun ráða yf-
ir tæplega helmingi sauðfjárfram-
leiðslu landsmanna, liðlega þriðj-
ungi nautgripakjöts og hrossakjöts
og tæpum fímmtungi svinakjöts-
framleiðslunnar. I gær var ákveðið
ferli um samruna félaganna. Stefnt
er að skráningu nýja félagsins á al-
mennum hlutabréfamarkaði eftir
tvö til þrjú ár.
Aðilar að samrunaferlinu eru
kjötiðnaður Kaupfélags Héraðsbúa
á Egilsstöðum, Kjötiðjan ehf. á
Húsavík, kjötiðnaðarsvið Kaupfé-
lags Eyfírðinga á Akureyri, Norð-
vesturbandalagið hf. á Hvamms-
tanga og Kjötumboðið hf. (Goði) í
Reykjavík. Sláturfélag Vestur-
lands ehf. í Borgarnesi er ekki með
í samrunaferlinu í upphafi en KEA
og Norðvesturbandalagið ráða fé-
laginu, sem er með sláturhúsið í
Borgarnesi á leigu, þai’ sem þau
eiga 87,5% hlutafjár. Þórarinn E.
Sveinsson aðstoðarkaupfélags-
stjóri KEA segir að mönnum hafí
þótt nóg að ná utan um sameiningu
fyrirtækjanna fímm og málefni
Sláturfélags Vesturlands biðu úr-
lausnar. Jón Helgi Bjömsson, slát-
urhússtjóri á Húsavík og stjómar-
formaður Kjötumboðsins hf., segir
að til greina komi að Sláturfélag
Vesturlands komi síðar inn í sam-
mnann. Ákveðið er að Bautabúrið
á Akureyri, sem er í meirihlutaeigu
Kjötiðjunnar, verði áfram rekið
sjálfstætt. Þá fylgir eignarhluti
Kaupfélags Héraðsbúa í kjöt-
vinnslunni Kjötkaupi á Reyðarfírði
ekki þeim eignum sem nýja félagið
yfirtekur.
Eigendur NVB eiga 36%
Fyrst um sinn verður sameining-
in undir merkjum Kjötumboðsins
hf., þar til nýju félagi verður gefið
nafn. Stjórnir félaganna fjögurra
mynda meirihluta í Kjötumboðinu
hf. og hafa ákveðið þessa tilhögun
en boðað verður til hluthafafundar
á næstunni.
Endanleg skipting hlutafjái’ mun
liggja fyrir um áramót. Þó er ljóst
að hluthafahópurinn sem stendur
að Norðvesturbandalaginu verður
með stærstan hlut, eða um 36%,
KEA verður með um það bil 26%,
Landsbankinn sem eigandi Kjötiðj-
unnar með 19% og Kaupfélag Hér-
aðsbúa með um það bil 16%.
Ekki hefur verið ákveðið hvar
framkvæmdastjóri félagsins verð-
ur með aðsetur. Þórarinn E.
Sveinsson segir að ný stjórn muni
ákveða það. A það hafi allir aðilar
sameiningarinnar fallist í upphafi.
Hagræði með
verkaskiptingu
„Nýja félagið verður markaðs-
stýrt framleiðslufyrirtæki sem
leggur áherslu á sölu í verslanir
um allt land. Með stofnun þess er
skorið á öll tengsl á milli verslunar-
reksturs og framleiðslu," segir
meðal annars í fréttatilkynningu
sem fyrirtækin sendu frá sér í gær.
Fram kemur að markmiðið er að
sameinað fyrirtæki geti aukið þjón-
ustu við smásöluverslanir, mætt
væntanlegum innflutningi á kjöt-
vörum og aflað markaða fyrir ís-
lenskar kjötvörur erlendis. Um leið
er þess vænst að hægt verði að
leggja aukna áherslu á vöruþróun,
nýsköpun og rannsóknir. Síðast en
ekki síst mun hagræðingin nýtast
bæði neytendum og bændum þar
sem kostnaður við slátrun og kjöt-
vinnslu mun lækka, segir í frétta-
tilkynningunni.
Jón Helgi segir að það verði
verkefni stjórnar og nýrra stjóm-
enda fyrirtækisins að móta starf-
semina. Ef Sláturfélag Vesturlands
er talið með mun samsteypan reka
átta sláturhús á svæðinu frá Borg-
arnesi, vestur, norður og austur
um land til Breiðdalsvíkur og sex
kjötvinnslur. Spurður að því hvort
fyrirhugað sé að hætta vinnslu á
einhverjum stöðum segir Jón Helgi
að meira máli skipti að hagræða í
slátrun og vinnslu en hvort starf-
semin leggist einhvers staðar af.
„Ég tel að þetta sé skynsamlegt
skref til að auka hagræðingu og
efla þessi fyrirtæki öll,“ segir hann.
Telur Jón Helgi unnt að spara
verulega fjármuni með sérhæfíngu.
Nefnir sem dæmi að ákveðin hafi
verið verkaskipting sláturhúsanna
á Húsavík og Akureyri, stórgripum
verði slátrað á Akureyri en sauðfé
á Húsavík. Eins nefnir hann að
skinka sé framleitt á fjórum stöð-
um en unnt sé að framleiða hana á
einum stað. Þórarinn E. Sveinsson
segir að stækkun framleiðslulota
sé lykilatriði í hagræðingu en bætir
því við að umtalsverður spamaður
náist fram í yfirstjóm og skrif-
stofuhaldi og bættri nýtingu í
markaðsmálum.
Sláturleyfíshöfum fækkar
Sameinaða fyrirtækið verður
stærsta sláturfélag landsins. Velta
þess nemur um það bil þremur
milljörðum króna á ári. I slátur-
húsum á vegum fyrirtækjanna, að
sláturhúsinu í Borgarnesi með-
töldu, var slátrað 245 þúsund fjár á
síðasta ári, sem er um 47% sauð-
fjárslátmnar í landinu. Þar var
slátrað liðlega 23 þúsund nautgrip-
um, sem var 36% af fjölda inn-
lagðra nautgripa á síðasta ári, eins
og fram kemur í meðfylgjandi yfir-
liti, 7.500 hrossum, sem er 33% árs-
framleiðslunnar, og liðlega 57 þús-
und svínum, en það er um 19% inn-
lagðra svína í sláturhús á síðasta
ári.
Sláturleyfishöfum hefur fækkað
verulega á undanförnum árum.
Sem dæmi um það má nefna að á
síðasta ári voru fimmtán slátur-
leyfishafar í sauðfjárslátrun og er
þá miðað við þau sláturhús sem
tóku við meira en 1.000 lömbum á
árinu. Þeim fækkaði um einn fyi’r
á þessu ári vegna sameiningar
KASK og Þríhyrnings og síðan
um fjóra vegna sameiningarinnar
nú. Éftir áramót munu því aðeins
tíu sláturleyfishafar taka við
sauðfé til slátrunar. Til saman-
burðar má geta þess að á árinu
1993 voru 23 sláturleyfishafar
með sauðfjárslátrun. Sláturhúsum
hefur fækkað á þessum árum en
ekki jafn mikið og sláturleyfishöf-
um því sumir reka fleiri en eitt
sláturhús.
Samþjöppun á þessum markaði
hefur leitt til þess að þrír stærstu
sláturleyfishafamir, Sláturfélag
Suðurlands, KASK/Þríhyrningur
og sameinaða kjötfyrirtækið, eru
með tæplega 75% allrai’ sauðfjár-
slátrunar á landinu, ef miðað er við
tölur frá síðasta ári, liðlega 80%
nautgripaslátrunar, tæplega 70%
hrossaslátrunar og 60% svínaslátr-
unai’.
SAH vildi taka þátt
Athygli vekur að nokkur stór og
meðalstór sláturhús eru eins og
eyjai’ í hinu víðfeðma starfssvæði
nýja kjötfyrirtækisins. Meðal
þeirra eru Sölufélag Austur-Hún-
vetninga (SAH) á Blönduósi og
Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðár-
króki. Ólafur Haukur Magnússon,
framkvæmdastjóri SAH, segir að
fyrirtækið eigi af einhverjum
ástæðum ekki upp á pallborðið hjá
þeim sem ráði ferðinni í samein-
ingu kjötvinnslufyi’irtækjanna.
Sölufélagið hafi verið í viðræðum
við KEA og KÞ í rúmt ár, eða þar
til það seldi mjólkursamlagið á
Blönduósi til Mjólkursamsölunnar
í Reykjavík til að minnka skuldir
félagsins og gera það betur hæft
til að taka þátt í sameiningu kjöt-
fyrirtækja. En eftir það hafí ekki
verið áhugi á að hafa félagið með.
Tekur hann fram að forystumenn
Sölufélagsins muni áfram leita
eftir möguleikum til samvinnu,
hvort sem það verði í norðurátt
eða suður.
Jón Helgi Björnsson segir að
fyrirtækin sem ákveðið hafí að
sameinast séu öll aðilar að Kjötum-
boðinu og hafí þau ákveðið að
reyna að ná saman, áður en fleiri
kæmu þar að. Þórarinn E. Sveins-
son segir að menn hafi séð að nógu
flókið væri að sameina fyrirtækin
fimm. Hann tekur fram að til
greina komi að taka upp samstarf
við önnur fyrirtæki, að loknu þessu
ferli.
Forstjóri
Fjármálaeftirlitsins
Orca veitti
vissar upp-
lýsingar
PÁLL Gunnar Pálsson, for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, seg-
ir að Fjármálaeftirlitið hafí ósk-
að eftir tilteknum upplýsingum
frá Orca SA um kaup félagsins
á hlut Kaupþings og sparisjóð-
anna í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins.
Gestur Jónsson, lögmaður
Orca SA, sagði í Morgunblað-
inu í gær að Orca hefði reynt að
gefa Fjármálaeftirlitinu „allar
þær upplýsingar sem við höfum
talið að væru nauðsynlegar".
„Það liggur ljóst fyrir að það
er Fjármálaeftirlitsins að meta
hvaða upplýsingar eru nauð-
synlegar en ekki Orca SA. Það
er rétt, að við hjá Fjármálaeft-
irlitinu höfum fengið vissar
upplýsingar frá Orca SA, en
ekki hefur verið orðið við ósk-
um okkar að öllu leyti,“ sagði
Páll Gunnar um samskipti
Fjármálaeftirlitsins og Orca
vegna viðskiptanna með hluta-
bréf FBA. Hann vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um þetta mál.
Forseti fslands fór heim af Sjúkrahúsi Reykjavíkur í gær
Reynir að sinna
skyldustörfum
FORSETI íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, fór heim af Sjúkrahúsi
Reykjavíkur um miðjan dag í gær
eftir að hafa dvalist næturlangt á
sjúkrahúsinu. Hann slasaðist um
kvöldmatarleytið í fyrrakvöld er
hann féll af hestbaki í útreiðartúr
austur á Leirubakka í Landsveit
og hlaut slæmt axlarbrot.
Ólafur Ragnar sagði við þetta
tækifæri að niðurstaða læknanna
væri sú að reyna að láta sárið gróa
næstu þrjár til fjórar vikurnar og
sjá svo til í framhaldi af því hvort
uppskurðar þurfí við, en það sé
ekki hægt að meta það strax. Von-
andi losni hann við sársaukann ein-
hvern tíma fljótlega á næstu vik-
um.
Ólafur Ragnar sagðist ætla að
reyna að sinna brýnum skyldu-
störfum þar sem aðrir kæmu við
sögu, eins og að taka á móti trún-
aðarbréfum svo sendiherrar geti
hafið störf. Síðan ætlaði hann sjá
til seinna í vikunni hvort hann gæti
verið við setningu Alþingis. Annað
myndi hann reyna að vinna með
aðstoð fólks á skrifstofu sinni og
sjá til næstu daga.
Við hlið forsetans þegar hann
fór heim af sjúkrahúsinu var Dor-
rit Moussaieff, vinkona hans frá
Bretlandi, en hún var með honum í
útreiðartúrnum austur í Landsveit
þegar hann slasaðist. Ólafur Ragn-
ar sagðist aðspurður um atvikið er
hann féll af baki að ekki hefði verið
um neinn glannaskap að ræða,
landsvæðið hefði verið nokkuð
erfítt yfirferðar. Þau hefðu ekki
verið á hröðum gangi, en hestur-
inn hefði hrasað og hann flogið
fram af honum. Hann teldi að
hjálmurinn hefði komið í veg fyrir
höfuðmeiðsl.
Ólafur Ragnar sagðist aftur ætla
að fara í útreiðartúr og hann ætlaði
aftur að fara að Leirubakka. Þetta
hefði verið einhver fallegasti dagur
sem hann hefði upplifað í langan
tíma, nýfallinn snjór á Heklu, al-
gjörlega heiðskírt og skógurinn
byi’jaður að fölna.
^ Morgunblaðið/Árni Sæberg
Olafur Ragnar Grímsson, forseti fslands, og Dorrit Moussaieff, vin-
kona hans frá Bretlandi, héldust í hendur er þau yfirgáfu Sjúkrahús
Reykjavíkur í gær. Auk þeirra er á myndinni bflstjúri forsetans Þor-
valdur Ragnarsson.