Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 16

Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Tenging Linda- hverfís og Hafnarfj arðar- vegar á dagskrá 2007-2010 Kópavogur TENGING undir Hafnar- fjarðarveg til að bæta að- komu að Lindahverfí er á langtímaáætlun Vegagerð- arinnar og verður væntan- lega gerð á árunum 2007-2010 en þá verður 991 milljón króna varið til fram- kvæmda á Hafnarfjarðar- vegi. Sameiginleg tillaga sveit- arfélaganna á svæðinu gerir ráð fyrir að vinstri beygja að Lindahverfi verði meðal framkvæmdanna, að sögn Þórarins Hjaltasonar, bæj- arverkfræðings í Kópavogi. Að því er varðar megin- verkefni í vegagerð í Kópa- vogi á næstu árum hafa bæj- aryfírvöld lagt megináherslu á að Reykjanesbraut verði tvöfólduð milli Breiðholts- brautar og Hafnarfjarðar sem fyrst og öll gatnamót milli Miklubrautar og Hafn- arfjarðar gerð sem fyrst mislæg. „Að mati undirrit- aðs kemur sú stefna sér vel fyrir bæði íbúa Smára- og Lindahverfis og ekki síst fyrir verslun og þjónustu í Smáranum," segir í umsögn Þórarins til bæjarráðs í framhaldi af kvörtun Stefáns Ingólfssonar arkitekts yfir mögulegri aðkomu að Linda- hverfi frá Kringlumýrar- braut. Sagt var frá kvörtun Stefáns til bæjaryfirvalda í Morgunblaðinu nýlega en þar voru m.a. gerðar tillögur að þeirri vinstri beygju und- ir Hafnarfjarðarveg sem er á áætlun árin 2007-2010, að sögn bæjarverkfræðings. Næstu gatnamót sem gerð verða mislæg á Reykja- nesbraut eru gatnamót við Breiðholtsbraut og Nýbýla- veg, sem eru á vegaáætlun 2000-2001. Þá verða gerð mislæg gatnamót við Arnar- nesveg á árinum 2001-2002 en sú framkvæmd er hugsuð samhliða tvöföldun Reykja- nesbrautar milli Fífu- hvammsvegar og Arnarnes- vegar. A árinu 2002 er fyrir- hugað að hefja framkvæmd- ir við mislæg gatnamót við Stekkjarbakka og Smiðju- veg. A langtímaáætlun eftir 2002 er að ljúka gerð mis- lægra gatnamóta við Smiðjuveg og Stekkjar- bakka, Bústaðaveg og Vífils- staðaveg. I umsögn bæjarverkfræð- ings kemur fram að megin- atriði sé að stofnbrautakerf- ið sé afkastamikið og öruggt en minna máli skipti þó að vegfarendur þurfi að taka á sig krók upp á 1-2 km þegar eknar eru lengri vegalengdir innan höfuðborgarsvæðisins enda sé slíkt eðlilegt í flokk- uðu gatnakerfi. Meðal kvartana Stefáns Ingólfssonar var að vegna lélegrar aðkomu að Linda- hverfi frá Kringlumýrar- braut og Hafnai-fjarðarvegi væri óeðlilega mikil umferð um Digranesveg því ella þyrfti að taka á sig rúmlega kflómetra krók upp á brúna við Amarnesveg. Þórarinn sagði í samtali við Morgun- blaðið að vegna umferðar um Digranesveg hefði verið óskað eftir því við Vegagerð- ina að vegvísunarkerfið verði endurskoðað þannig að umferð í Lindahverfi verði vísað upp á Arnarnesveg en ekki inn í Kópavog. Þetta væri 1 km krókur og það sagði Þórarinn að ætti ekki að vera tiltökumál fyrir veg- farendur. „Þetta hefur allt verið þrauthugsað og það eru ástæður fyrir þessu öllu,“ sagði Þórarinn Hjalta- son. Morgunblaðið/Kristinn Við nýbyggingu sláturhúss og kjötvinnslu Geirs Gunnars Geirssonar stendur grjótklædd niönin. Gijótlistaverk bóndans og gröfumannsins ber við Esjuna. Alþýðulist bónda og gröfumanns Kjalarnes ÞEIR sem átt hafa leið fram hjá Saltvík á Kjalar- nesi, þar sem Geir Gunnar Geirsson á Vallá er að byggja kjötvinnslu, slátur- hús og uppeldisstöð fyrir endur, hafa tekið eftir mön við húsin og nýstárlegu gijótlistaverki uppi á mön- inni. „Þetta er alþýðulist, leikið af fingrum fram af mér í samvinnu við gröfu- manninn,“ sagði Geir Gunnar Geirsson um grjóthleðslurnar. Hann játaði því að með þessu væri verið að fá útrás fyr- ir sköpunarþörfina, „og reyna að flikka svolítið upp á umhverfið. Þetta var uppátæki hjá okkur að nýta þennan efnivið sem þarna var og ef fólki líkar þetta og finnst þetta ein- hvers virði er það bara af hinu góða.“ Geir Gunnar sagði að skipulagsyfirvöld hefðu lagt áherslu á að hafa mön við húsið. „Þeir voru búnir að ákveða að húsið yrði svo ljótt,“ segir Geir Gunnar. „Það er of mikið af stein- steyptum veggjum, það verður tilbreytingarlítið ef alltaf er verið að byggja fleiri og fleiri gráa veggi. Það er allt í lagi að reyna að hylja það með þessu og svo skýlir þetta líka.“ Eins og vegfarendur um Vesturlandsveg taka eftir stendur mikil mön við íbúð- arhús Gunnars Geirs og fjölskyldu á Vallá. „Við höfum í gegnum árin gert manir, t.d. á íbúðarhúsið hjá okkur. Það er að kom- ast í tísku að hafa manir hér og hvar, ekki bara á Kjalarnesinu heldur víðar,“ segir hann. Sláturhúsið og kjöt- vinnslan verða tekin í notk- un á næstu dögum. „Þetta verður stór kjötvinnsla og sláturhús og nýtt merki á markaðnum," segir Geir Gunnar Geirsson, svína-, anda- og kjúklingabóndi á Kjalarnesi. Unnið að samræmingu á tómstundatilboðum barna og unglinga Forskóli tónlistarnáms inn í grunnskólana næsta haust? Reykjavík LÍKUR eru á því að frá næsta hausti bjóði grunn- skólar í nokkrum hverfum borgarinnar nemendum í fyrsta bekk að stunda nám í forskóla tónlistarskóla í skól- anum að loknum skólatíma. Nú er verið að gera úttekt til samræmingar á tóm- stundatilboðum til bama og unglinga í skólum og hverf- um borgarinnar. Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi segir að í kjölfar einsetningar muni grunnskólarnir á næstu árum í auknum mæli bjóða bömum tómstundastarf þannig að vinnudagur bama, sem em í tónlistarnámi eða öðm tómstundastarfi, verði ekki jafnlangur og sundur- slitinn og nú er. Á fundi borgarráðs nýléga var samþykkt tillaga frá Sig- rúnu um að borgin setji á laggimar þriggja manna verkefrtisstjórn til að gera út- tekt á og samræma tóm- stundatilboð til bama og unglinga í skólum og hverf- um borgarinnar. Sigrún sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa lagt til- löguna fram vegna þess að tvær stofnanir borgarinnar, Fræðslumiðstöð og íþrótta- og tómstundaráð, hafi hvor í sínu lagi annast frístunda- störf fyrir böm. Gmnnskól- inn bjóði heilsdagsskóla með lengdri viðvera en ÍTR tóm- stundastarf fyrir grannskóla- böm síðdegis og á kvöldin. Sigrún sagðist hafa talið mikilvægt að það yrði kort- lagt hvað mikið fé væri lagt til þessa starfs og síðan yrði reynt að kanna með hvaða hætti væri hægt að koma starfinu hagkvæmast fyrir. M.a. þurfi að kanna hvort æskilegt sé að skólamir taki yfir tómstundatilboðin eða hvort þau verði alfarið lögð í hendur ÍTR. „Ég vil gera þetta heildstætt. Það hefur orðið svo gífurleg breyting eftir að skólamir urðu ein- setnir að umhverfið hlýtur að verða að taka mið af því,“ sagði Sigrún. „Það er miklu betra fyrir börn og foreldra þeirra að þau geti stundað þetta frístundanám í kjölfarið á skóladeginum en þurfi ekki að koma aftur klukkan fimm eins og stundum hefur verið með námskeiðin sem ÍTR hefur verið með í boði.“ Forskóli tónlistarnáms í grunnskóla Hún sagði að siðastliðið ár hafi nefnd á vegum borgar- innar skilað af sér tillögum sem miðuðu að því að færa forskóla tónlistarskólanna inn í grunnskólann og búið væri að taka ákvörðun um að stefna að því að bjóða slíkt nemendum 1. bekkjar að skóladegi loknum. Sigrún kvaðst hafa vonast til að tilraun í þessa vera gæti farið í gang í sex grunn- skólum í borginni í haust en það hafi strandað á ýmsu, m.a. því að skólar hafi verið að fara í gang með einsetn- ingarferli og hafi því beðist undan frekari skipulags- breytingum á þessu hausti. Hins vegar væri hún sann- færð um að þessu yrði ýtt úr vör næsta haust og þá í fleiri en sex skólum, helst í þremur hverfum, vesturbæ, Grafar- vogi og Breiðholti. Sigrún sagði að stefnt væri að því að tónlistarskólar, sem starfa úti í hverfúm borgar- innar, t.d. tónlistarskólinn Doremi, sem starfar í vestur- bæ, Tónlistarskóli Eddu Borg í Breiðholti og Tónlistarskól- inn í Grafarvogi, þjónustuðu skóla í sínum hverfúm og legðu til kennsluna. Upphaf- lega yrði farið í gang með nemendur 1. bekkjar en síðan næði starfið til fyrstu tveggja bekkja grannskólans. Skól- arnir mundu t.d. leggja til stofu með píanói. Sigrún sagðist sjá fyrir sér að for- eldrar um 20% nemenda mundu e.t.v. velja að senda bömin í tónlistarforskólann en önnur börn mundu e.t.v. velja íþróttaskóla eða mynd- listamámskeið. Samfelldur dagur barna handan við hornið „Þetta verða tilboð sem for- eldrar greiða fyrir en þetta verður ódýrara en ella því við bjóðum húsnæði en ætlum að bjóða samning um að t.d. tón- listarskólarnir annist þetta inni í grannskólunum. Sigrún segir einnig stefnt að því að bjóða t.d. almennt tónlistarnám í tengslum við grunnskólana að loknum skóladegi. „Það er unnið að því hörðum höndum. Þetta er tækifæri sem einsetningin býður upp á og það er mikil- vægt að árétta að einsetning- in er annað en húsbyggingar, hún breytir ýmsu í þjónustu- stigi skólanna við nemendur og foreldra. Það ber að stefna að því að börn geti verið búin að Ijúka námi og frístundaiðkun um klukkan 4-5 á daginn en dagurinn verði ekki langur og sundur- slitinn eins og núna. Ég mundi segja að þetta væri rétt handan við hornið."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.