Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 31

Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 31 LISTIR Samspil milli manns- ins og landsins vatna BÆKUR LjóAabók OKKAR Á MILLI eftir Arthúr Björgvin Bollason. Mál og menning 1999 - 54 bls. HIÐ persónulega og um fram allt gagnkvæma heiti á fyrstu ljóðabók Arthúrs Björgvins Bollasonar er vel heppnað og ýtir undir ástleitinn og samræm- isfullan skilning á til- verunni. Ljóð hans spretta hvorid af angist né hryggð eða brota- kenndum hugsunum. Þau eru vel og hugvits- samlega byggð og í þeim býr skáldleg og skýr mynd af tilveru mannsins. Heiti bókar- innar felur í sér mar- græða merkingu. Ljóð- in verða til „okkar á milli“, þau varpa ljósi á flókið samspil lands og manns, þeim er ætlað að styrkja náið sam- band tveggja persóna og um leið hefur skáldið fært lesendum sínum ljóð. Ljóðabók sinni skiptir Arthúr Björgvin í fjóra hluta án þess að greina megi augljós kaflaskil í með- ferð ljóðmáls eða yrkisefnis. Fjórði og síðasti hluti bókarinnar greinir sig þó að nokkru leyti frá öðrum köflum hennar: jafn- framt því að vera styst- ur er hann samfelldur og óræður. Það er eins og skáldið brjótist of- urlítið undan þeirri heildstæðu og klass- ísku hugsun sem ein- kennir svo ljóðagerð hans í fyrri hlutum bókarinnar og myndi táknrænni og sundur- lausari samræðu „okk- ar á milli“ í endurtekn- um tón þar sem höfðað er til ólíkra skynsviða, hugmynda og hvata. Freistandi er að líta á þennan kafla sem nokkurskonar eftirmála bókaiinnar. Myndbygging ljóða er Arthúri Björgvin hugleikin því skynjun ljóð- mælandans er í senn formföst og klassísk. Hann nýtir sér alla þætti hefðbundinnar ljóðagerðar en gerir það á frjóan hátt. Frjálsleg en markviss notkun ljóðstafa setur sterkan svip sinn á ljóðin í bókinni, hrynjandi er rík og stöku sinnum bregður fyrir rími. Höfundur beitir víða svokölluðum nýgervingum í ljóðagerð sinni þar sem ljóðin eru byggð upp_ í kringum eina mynd- hverfingú. I ljóðinu Þetta land blæs skáldið í bókstaflegum skilningi lífi í köld og hijóstrug vetraröræfi Is- lands og býr til úr þeim mynd af grimmu óargadýri með hvítan makka: öræfm umvetur grimmtóargadýr sem flatmagar dæsir hristir hvítan makka leggur nakinn hramm ánorpandiströnd lygnir ísbláum augum brýnir í storminum jöklanna svellköldu klær Fullyrða má að Arthúr Björgvin feti stíginn milli hefðbundinnar og óhefðbundinnar ljóðagerðar. Ljóð hans eru klassísk í þeirri merkingu að þau mynda heild og tjá fremur samhengi en sundurgerð. Hann er rómantískt skáld því hann vefur víða saman mannsmynd og náttúrumynd og sálgæðir náttúruna. Hann stend- ur styrkum fótum í Ijóðagerð sinni, beitir „tækjum" og „tólum“ skáld- skaparins af leikni og innsæi án þess að þau verði honum nokkum tíma fjötur um fót. Upphafsljóð bókarinn- ar I Vatnsmýrinni er að ýmsu leyti dæmigert fyrir vinnubrögð skálds- ins. Hugmyndin er einföld en árang- ursrík þar sem höfundur teflir sam- an tveimur ólíkum myndum sem hann leiðir til einnar niðurstöðu án þess þó að leggja sjálfur út af efninu: hugvitmannsins segjaþeir oggerísjálfsagt tráttumtalað enhvemvarðar umhásveigða Eiffeltuma sólbryddaða Sigurboga og önnur mannleg undur áhvítrigrein íVatnsmýrinni situríbygginn svartþröstur í vetrarQúki meðvor íaugum Umfjöllunarefni þessa ljóðs er kunnuglegt: andstæða mannlegra verka og náttúru en áhrifin felast í því hvemig höfundur meðhöndlar viðfangsefni sitt með einfaldri fram- setningu, af djúpum skilningi og nið- urstaðan verður skýr. Okkar á milli ber það með sér að vera fullþroska verk. Að minnsta kosti er hér afar vel og hugvitssam- lega að verki staðið. Undantekn- ingalaust má fullyrða að bókin inni- haldi vönduð og vel ort ljóð þar sem tekist er á við form og efni af næm- leik og smekkvísi, djúpum skilningi og leikni í meðferð máls og mynda. Jón Ozur Snorrason Arthúr Björgvin Bollason Inga Rósa Loftsdóttir við eitt verka sinna, Augnablikið. Tímaverk verður ÆVISAGA Ingu Rósu Loftsdótt- ur er yfírskrift sýningar sem var opnuð á neðri hæð Gerðarsafns, Listasafns Kópavogs, sl. laugar- dag. Sýningin er innsetning og eru verkin unnin úr ýmsum efn- um með margvíslegri tækni. Inga Rósa segir verkin hugsuð sem heild en jafnframt megi þó lesa þau sjálfstætt hvert fyrir sig. Hún segir að upphaflega hafi hún hugsað sér sýninguna sem tímaverk. „En svo sá ég að mað- ur miðar alltaf tímann við sjálf- an sig, þannig að ég ákvað að hafa þetta bara mína eigin ævi- sögu - það hefur enginn skrifað hana ennþá,“ segir Inga Rósa og hlær við. Hún gengur með blaða- manni um sýninguna og útskýrir SKILAFRESTUR til að senda smásögur í smásagnasamkeppni Listahátíðar árið 2000 rennur út 15. október. Um fimmtíu smásögur hafa þegar borist. Þrjár smásögur verða valdar tO verðlauna. I tilefni af 70 ára afmæli sínu greiðir Ríkisútvarpið 200.000 kr. í fyrstu verðlaun, 100.000 í önn- nokkur verkanna og samhengi þeirra við ævisöguna og tímann. Þegar inn í salinn er komið blas- ir fyrst við pera í haug af svört- um sandi. Verkið kallar hún Ljós í myrkri. „Það má túlka á marg- an hátt, þar sem þetta er ein pera má kannski segja að þetta sé fæðingin, en þetta getur líka verið ljós í myrkri sem leiðir mann ef maður er í vandræð- um.“ Hún segir verkin ekki vera sett upp í tímaröð. Hún gengur áfram og bendir á nokkur stór, hvít, auð blöð. „Þetta eru óskr- áðu blöðin sem eiga eftir að koma.“ Á göngu með gullljóni Einn veggurinn er þakinn hvítum gifsgrímum - Augnablik- ur og 50.000 í þriðju. Vaka-Helga- fell mun síðan gefa út verðlauna- sögurnar ásamt sjö sögum úr keppninni til viðbótar. Jafnframt verða tíu smásögur sem bestar þykja lesnar í útvarpi. Smásagnakeppnin er samstarf- sverkefni Ríkisútvarpsins, Vöku- Helgafells og Listahátíðar. ið kallar hún það verk. Stór krukka fúll af glerbrotum trónir á stalli í einu horninu og pera lýsir upp brotin. Minningabrot er yfírskrift verksins. I loftinu blaktir fjöldi drauma sem Inga Rósa hefur skrifað á þunnt og létt gardínuefni í ýmsum björt- um og hálfgegnsæjum litum. „Draumarnir eru náttúruega einn þriðji af minni ævi. Mig dreymir stundum heilu bíó- myndirnar á næturnar," segir hún. Þegar hún er beðin um að nefna dæmi um draum segir hún að eitt sinn hafí hana dreymt að hún væri að ganga með gullljóni og þau hefðu tekið tal saman. Það hafi verið einkar skemmti- legur draumur. Óskin er heiti rauðrar kúlu sem þakin er fjögurra laufa smárum. „Núna í sumar fann ég 389 fjögurra laufa smára, 42 fimm laufa, þrjá sex laufa og einn sjö laufa. Ég fann þá hér og þar, það er eins og þeir kalli á mig. Ég veit strax þegar ég horfí yfir breiðu hvort þar eru fjög- urra laufa smárar eða ekki, í sumum er bara einn og í öðrum ekki neinn,“ segir hún. Það er fleira úr náttúrunnar rfld á sýn- ingunni, hrúga af svörtum lauf- blöðum, þar sem viðfangsefni listakonunnar er uppræting ill- gresis, og loks stór græn torfa. „Þar er jú endirinn - undir grænni torfu,“ segir hún. Fimmtíu smásög- ur hafa borist Tveir fyrir einn til London 18. og 25. október frá 14.390 Bókaðu á miðvikudag eða fimmtudag og tryggðu þér þetta ótrúlega tilboð til London Gildir 18. og 25. okt. frá mánudegi til fimmtudags. London er tvímælalaust eftirsóttasta heimsborg Evrópu í dag og vinsældir hennar hafa aldrei verið meiri, enda finnur þú hér fræg- ustu leikhúsin, heimsþekkta listamenn í myndlist og tónlist, glæsi- lega veitinga- og skemmtistaði og á meðan á dvölinni stendur nýt- ur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Nú getur þú tryggt þér 2 sæti á verði eins til London og valið um gott úrval hótela frá 2-4 stjömu, allt eftir því hvað þér hentar. Aðeins 100 sæti á þessu einstaka tilboði. Flugsæti til London 14.390 kr. Fiugsæti til London með flugvall- arsköttum. Ferð frá mánudegi til fimmtudags, 18. og 25. októbcr. Flugsæti kr. 21.200 Skattur kr. 3.790 x 2 = 7590 Samtals kr. 28.780 kr. 14.390 á mann. Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 7. og 14. okt. „29.990 Sértilboð 7. og 14. október, Grand Plaza, 2 stjörnur, 4 nætur í 2ja manna herbergi, flug, gisting með morgunverði, skattar. Hótel í London Kr. 3.700 2 stjömur Verð á mann á nótt í tveggja manna herbergi, Bayswater. Kr. 4.200 3 stjömur Verð á mann á nótt í tveggja manna herbergi, Stakis. Kr. 5.300 3 ‘/2-4 stjömur Verð á mann á nótt í tveggja manna herbergi, Kensington Gardens. Hvenær er laust? 30. sept. - uppselt 4. okt. - laus sæti 7. okt. uppselt 11. okt. laus sæti 14. okt. - 11 sæti 18. okt. - 38 sæti 21. okt. - 21 sæti 25. okt. - 58 sæti 28. okt. - 39 sæti 1. nóv. - laus sæti 4. nóv. uppselt 8. nóv. - laus sæti 11. nóv. laus sæti 15. nóv. laus sæti 18. nóv. - 31 sæti 22. nóv. laus sæti 25. nóv. - 39 sæti Flug alla fimmtudaga og mánudaga í október og nóvember HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.