Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 29.09.1999, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 37. LISTIR Nýjar bækur Blóm í bak- grunni, skál í forgrunni MYNÐLIST Listasafn ASÍ, Ásmundarsai, Freyjugötu 41 MÁLVERK U AI) I G1] I> lt J ÖIMV S S 0IV Til 3. október. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14-18. Aðgangur kr. 300. ÍSLENSK listmálun var til skamms tíma fonguð í net taum- lausrar upphafningar sem hálf- helg athöfn. Sá ljómi sem fór af ímynd listmálarans sem einmana og stríðandi sálar uppi á hana- bjálka setti ungum mönnum á of- anverðum áttunda áratugnum ákveðnar skorður. Þeir vildu ólm- ir draga úr hátíðleik iðjunnar sem þeir töldu hneppta í íílabeinsturn úr sér genginna viðmiða. Þannig varð það eitt helsta keppikeíli nýju málaranna svokölluðu að færa list sína nær almenningi með því að koma henni af háleitum hæðum fílabeinsturnsins niður á ögn hversdagslegra plan. Eins og ætíð þegar slíkir vindar blása - en til eru ótal dæmi í lista- sögunni um áþekkar aðfarir - fylgir þeim stemmning sem minn- ir á kjötkveðjuhátíð. Óllum helg- um gildum er snúið á haus og lotningin sem menn bera fyrir göfgi sköpunarverksins er látin lönd og leið. Eftir stendur skrípa- mynd sem kitlar hláturstaugarn- ar, því meir sem fallíð af hátíðar- stallinum er hærra. Þannig var nýja málverkinu ætlað að vera eins konar tabula rasa fyrir kyn- slóðir sem voru búnar að fá sig fullsaddar af undangenginni list sem þeir töldu of sértæka og höfða til of þröngs áhorfenda- hóps. I hópi þessara galgopa nýja málverksins bar fljótlega á Daða Guðbjörnssyni, en hann skar sig úr hópi annarra málara fyrir skreytifíkn. Myndir hans voru fullar af fléttum og vafningum eins og þeim sem fínna má í barokklist 17. og 18. aldar. Sú tegund myndlistar sem virðist hafa mótað Daða hvað mest eru allegorískar táknmyndir á borð við gömul skjaldarmerki helguð ákveðnum faggreinum svo sem tónlist, ritlist og myndlist. Hver man ekki eftir táknum tónlistar þar sem hljóðfærum er raðað í skjaldarmerki með nótnablöðum sem mynda vafninga eins og pappírsrullur? Segja má að Daði sé enn við sama heygarðs- hornið hvað varðar mynstur og skraut, en það væri synd að segja að ekkert hefði breyst í verkum hans. Burtséð frá litnum, sem ávallt hefur verðið styrkur hans og skipar honum hiklaust á bekk með okkar áræðnustu og sér- stæðustu koloristum, leggur Daði nú aukna áherslu á þá hluta myndflatarins sem kalla mætti bakgrunn. Þetta eru atriði sem ekki liggja í augum uppi, en skila sér svo allt í einu þegar nokkur verk eru borin saman. Undir snigilskrautinu og fléttunum má víða sjá annars konar mynstur; veggfóðursmynstur með upp- hleyptum laufblöðum og hring- um, sem virðast stimplaðir frem- ur en málaðir. Spennan sem skapast milli blómamynstursins í bakgrunnin- um og fléttumynstursins ofan á honum hleypir nýrri og óvæntri spennu í málverk Daða. Sama gerir óvenjulegt málverk hans af hinni frægu þvagskál Marcels Duchamp - merkt R. Mutt, 1917 - með hauskúpu yfir, en form kúp- unnar er fullkomin spegilmynd af skálinni. Gleymum ekki að ís- lenska orðið „skál“ er samstofna enska orðinu „scull“, sem þýðir hauskúpa. Þannig gefur Daði hugmyndlistinni og kynföður hennar langt nef með penslum sínum og líkir henni við lang- þreytta afturgöngu. Öðruvísi er varla hægt að túlka þessa lunknu og bráðágætu mynd. En vert er að geta þess í lokin að sýningu Daða lýkur á sunnudag. Þvi fer hver að verða síðastur... Halldór Björn Runólfsson Palle Petersen og Edda Sif. • Kender du Island? er eftir danska rithöfundinn Palle Peter- sen. Þetta er myndskreytt bók um Island frá fortíð til nútíðar. Bókin er ætluð dönskum börnum. I bók- inni segir Edda Sif, kölluð Helga í bókinni, frá landi sínu. Greint er frá rótum Islendinga í víkingatímanum og því lýst hvemig landið hefur u þróast í þá átt að verða afar nú- tímalegt, kannski hið nútímalegasta á Norðurlöndum. Reykjavík er ný- tískuleg borg og Islendingar eiga fleiri tölvur og fleiri bíla en Danir. Skrifað er um hlut danskrar tungu í menntun skólabarna. Palle Petersen er höfundur fjöl- margra bóka. Hann hefur skrifað bækur um Grænland, Færeyjar og Víetnam. Borgen gefur Kender du Island? út. Bókin er 32 síður og innbundin. Hún kostar 189 danskar kr. Rithöf-,’ undurinn er búsettur í Rithöfunda- húsinu í Fano í Danmörku, en hluta , ársins býr hann á Grænlandi. List hreiður, frá 1999. Olía á striga, 120 x 90 cm. Aldamótaskál, frá 1999. Olía á striga, 60 x 75 cm. ARBONNE INTERNATIQNAL Jurtasnyrtivörur án ilmefna fyrir húð og hár. Útsölustaðið um land allt. Abúendur Vestur- Isafj ar ðarsýslu HERAÐSRIT Vestfjarðarit I-II Firðir og fólk 900- 1900 (I), 588 bls. Firðir og fólk 1900- 1999 (II), 519 bls. Útgáfufélag Búnað- arsambands Vestíjarða 1999. FYRRA bindi þessa mikla ritverks kom út í tvenns konar útgáfu. Ann- ars vegar sem Arbók Ferðafélags Islands 1999 og hins vegar sem hluti af tveggja binda ritverki. Það bindi samdi Kjartan Ólafsson og hefur sá, sem þetta ritar, þegar fjallað um það í sérstakri umsögn. Síðara bindið, sem hér verður sagt frá, er að meginstofni jai’ðalýs- ingar og ábúendatal frá síðustu aldamótum til þessa árs. Spannar því ábúendatalið rétta öld. A undan meginefni fara, auk for- mála og efnisyfirlits, þrjár ritgerðir. Sú fyrsta er rituð af Guðmundi Inga Kristjánssyni og Valdimar H. Gísla- syni. Þar er sögð saga Búnaðarsam- bands Vestfjarða og greint frá margvíslegri starfsemi þess. Er það löng ritgerð og ítarleg, 47 bls., prýdd mörgum myndum af forystu- mönnum og búnaðai’háttum. Önnur ritgerðin eftir Birki Friðbertsson nefnist Mjólkurfélag Isfirðinga, er hún mun styttri eins og vænta mátti, 9 bls. Þriðja ritgerðin og sú síðasta ber heitið Brot úr jarðsögu Barða- strandar- og Isafjarðarsýslna eftir Jón R. Sigui-vinsson. Er eðlilegt að hún taki yfir stærra landsvæði en Vestur-ísafjarðarsýslu eina. Enda þótt sú ritgerð sé aðeins 18 bls. er hún einkar greinargott og gagnlegt yfirlit, prýdd mörgum áhugaverðum myndum. Astæða er til að vekja at- hygli á langri heimildaskrá í lok rit- gerðarinnar. Að loknum þessum yfírlitsgrein- um hefst ábúenda- og jarðatalið. Er byrjað syðst, í Arnarfirði, og hrepp- arnir teknir fyrir í röð norður eftir: Auðkúluhreppur, Þingeyrarhrepp- ur, Mýrahreppur, Mosvallahreppur, Flateyrarhreppur og Suðui-eyrar- hreppur. Áður en einstökum jörðum er lýst fer lýsing sveitai’innar eða hreppsins, svo og gi'eint frá marg- víslegum málefnum hreppsins. Ekki eru þetta staðlaðar frásagnir, enda óvíst að betur færi á því. Jarðalýs- ingar eru orðknappar, en greinai’- góðar. Minni þörf er á ítarlegum jarðalýsingum, þar sem margt er frá jörðunum sagt í fyrra bindi. Auk al- mennrar lýsingar og búnaðarsögu er gi’eint frá byggingum og hver sé eigandi jarðar nú. Ekki er áhöfn til- greind. Lýsing jarða í Suðureyrar- hreppi er frábrugðin að því leyti, að þar er getið eyktamarka jarðar og er það skemmti'eg tilbreytni. Lit- myndir eru af jörðum og ýmsum byggingum (kirkjum, skólum o.s.frv.), svo og af flestum síðustu og núverandi ábúendum. Greinargott kort er af hverjum hreppi fyrir sig. Margir eru höfundar að þessum hreppa- og jarðalýsingum og er framlag hvers þeirra tilgreint þar sem við á, og í bókarlok er ítarleg nafnaskrá. Valdimar H. Gíslason sagnfræð- ingur annaðist heimildasöfnun á síðari stigum bókarinnar og var jafnframt formaður ritnefndar. En í henni sátu, auk hans, Bergur Torfason, Birkir Friðbertsson, Guðmundur Grétar Guðmundsson og Magnús Guðmundsson. Fyrr voru í ritnefnd Friðbert Pétursson, Guðmundur Ingi Kristjánsson og Kjartan Ólafsson. Textahöfundai’ eru alls 23. Guðmundur Ó. Ingvars- son gerði staðfræðikort. Margir hafa komið að ljósmyndun og ljós- myndasöfnun. Að öllu leyti er þetta hið vandað- asta og fegursta rit, sem ber vott góðri samvinnu margra manna. Sigurjón Björnsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.