Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 44

Morgunblaðið - 29.09.1999, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Einar Guðni Þórðarson fæddist í Keflavík 4. október 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 19. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Þórunn Ein- arsdóttir og Þórður Kristinn Jónasson. Þau fluttu að Stóru- W- Vatnsleysu, Vatns- leysuströnd, er Ein- ar var um eins árs gamall, og hefur Einar búið þar alla tíð síðan. Systkini Einars voru: Eyþóra, dáin; Guðríður; Sigrún; Jónas; Sæmundur Ásgeir; Lilja, dáin; Sigríður Auðbjörg; Unnur Ingibjörg og Karl Kristinn. Elsku bróðir, aðeins nokkur kveðjuorð með þakklæti fyrir liðin ár. Þú varst þriðji yngsti í röðinni í tíu systkina hópi og vorum við þrjú yngstu systkinin ákaflega samrýnd í uppvextinum, bæði við leiki og —^störf. Það gat enginn af jafnöldrun- um leikið það eftir þér að sveifla sér á höndunum milli sperra í hlöð- unni heima, eða að sveifla sér á kaðli milli veggja, en þetta var leik- Einar kvæntist eftirlifandi konu sinni Alice Lid, árið 1964 og eignuðust þau þrjú börn. 1) Geir, f. 1966, vél- stjóri, búsettur í Danmörk, kvæntur Lailu Park, þeirra sonur er Haukur Örn. 2) Halldór, f. 1968, skipstjóri, bú- settur á Vatnsleysu. 3) Þórunn Agnes, f. 1970, hjúkrunar- fræðingur, búsett í Keflavík, gift Hann- esi H. Gilbert, þeirra börn eru Helena Rós og Guðni Már. Utför Einars Guðna fór fram frá Kálfatjarnarkirkju, Vatns- leysuströnd, 25. september. fimin okkar þegar hlaðan var hálf- full af heyi. Eg hef oft hugsað um hvað þú hefðir komist langt í íþróttum hefðir þú lagt þær fyrir þig- En það var líka sama hvað Ein- ar tók sér fyrir hendur með árun- um. Allt hið góða sem hann hafði til að bera og létt skap, gerði hann vinsælan og góðan heim að sækja, enda var hann félagslyndur að eðl- isfari og gaf sér alltaf tíma til að tala við fólk. Eftirlifandi eiginkonu sinni, Alice Lid, kynntist Einar þegar hún kom í smáheimsókn frá Noregi til mágkonu okkar sem einnig er frá Noregi en þær hafa svo búið í nágrenni hvor við aðra síðan, því Einar byggði íbúðarhús í túnjaðrinum heima í Stóru- Vatnsleysu. Einar og Alice eign- uðust þrjú mannvænleg börn, og barnabörnin eru einnig orðin þrjú. Einar vann á Keflavíkurflugvelli í mörg ár við viðhald miðstöðvar- kerfa fyrir varnarliðið. Sjósókn var honum í blóð borin og stund- aði hyann hrognkelsaveiðar á vor- in með vinnu sinni og í fríum. Hann söðlaði síðan alveg um þeg- ar börnin voru enn ung og fór að stunda sjóinn af krafti. Það sýndi hvað hann var í raun áræðinn og kjarkmikill. Hann hafði líka eign- ast góða konu á ævintýralegan hátt, sem studdi hann og hjálpaði við útgerðina með ýmsu móti. Börnin voru líka dugleg að hjálpa til eftir bestu getu um leið og þau komust á legg. Hann var ekki hár í loftinu snáðinn sem hljóp í fjör- unni og kallaði á pabba sinn, sem var að vitja um grásleppunetin skammt undan landi. Einar sá ekki annað ráð en sækja dreng, sem sætti sig við að vera bundinn við þóttu, svo hann dytti ekki í sjó- inn, meðan pabbinn var að vitja um. Þau hjón voru líka samhent í að útbúa fallega í kringum sig eins og garðurinn þeirra ber vott um enda hafa þau hlotið viðurkenn- ingu fyrir. Einar vai' góður smið- ur. Hann smíðaði fallegan trébát, sem hann seldi til að afla sér tekna til kaupa á plastbát sem hann inn- réttaði á hlaðinu heima, og síðan annan stærri. Þriðji báturinn er nú í stækkun þegar þetta er skrif- að. Einar var góð skytta og fór einkar vel með byssur sínar, sem hann geymdi í sérsmíðuðum skáp. A hverju vori í mörg ár var hann á tófuveiðum fyrir Vatnsleysu- strandarhrepp ásamt Lárusi Kristmundssyni frá Brunnarstöð- um, félaga frá bernskuárunum. Einar sagði margar skemmtilegar sögur um viðureign sína við rebba og fjölskyldu. Einar missti heils- una íyrir nokkrum árum og var greindur með kransæðastíflu. Eft- ir hjartaaðgerð fékk hann áfall og náði sér ekki að fullu eftir það. Það var sárt en aldrei heyrði ég hann kvarta, eða barma sér á nokkurn hátt. Viðbrigðin voru mikil fyrir mann sem var sístarf- andi alla tíð. Honum auðnaðist þó að vera til sjós með Halldóri syni sínum, sem var búinn að taka við útgerðinni. Svo kom annað áfall er hann þurfti að gangast undir enn stærri aðgerð. Hann tók því með sama æðruleysinu og engan kviða var á honum að sjá en hann varð samt að láta undan í þetta sinn. Það er mikil blessun að eignast góða fjölskyldu, það átti Einar bróðir sannarlega. Elsku bróðir, við kveðjum þig og tregum en huggum okkur við hinar mörgu góðu minningar um ljúfan og góðan dreng sem horfinn er úr okkar hóp. Guð blessi fjölskyldu þína og styrki í sorginni. Unnur. Elsku Alice, Þórunn, Halldór og Geir. Það er sárt að sjá á eftir góð- um eiginmanni og fjölskylduföður. Sem barn dvaldi ég oft nokkrar vikur á hveju sumri hjá ykkur á Vatnsleysu, til að vera með Þór- unni frænku minni og vinkonu. Það var alltaf mjög gott að dvelja heima hjá ykkur og fannst mér ég eiginlega vera ein af fjölskyld- unni. Einar frændi var sérstak- lega kankvís og gamansamur og þess vegna mjög skemmtilegur maður. Eg sé hann fyrir mér þar sem hann sat inni í stofu og slapp: aði af eftir vinnudaginn og kveikti sér í pípu en það var alltaf svo góð lykt af pípunni hans Einars. Hann var þannig manngerð að það var ekki hægt annað en þykja vænt um hann. Það mikilvægasta sem menn skilja eftir sig þegar þeir falla frá eru minningar þeirra sem eftir lifa og góðar minningar hef- ur Einar frændi látið eftir sig í miklum mæli. Hann lifir áfram í þeim. Það er gott að vita að Einar skil- ur eftir sig samrýnda fjölskyldu og að þið getið stutt hvert annað yfir versta hjallann. Guðrún Arnbjörg. EINAR GUÐNI ÞÓRÐARSON + Ástkær systir okkar, JÓNÍNA ÞÓRA JÓNSDÓTTIR, frá Ási, Ásahreppi, Hraunbæ 96, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 17. september sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þuríður Jónsdóttir, Margrét Jónsdóttir og aðrir aðstandendur. Hjartkær eiginkona mín, HÓLMFRÍÐUR GÍSLÍNA HARALDSDÓTTIR, Skeljastöðum 11, Búrfellsvirkjun, sem lést fimmtudaginn 23. september sl., verð- ur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 1. október, kl. 13.30. Helgi Arason. + Eiginmaður minn og faðir, GUÐBJÖRN SNÆBJÖRNSSON, lést á heimili sínu, Fannafelli 12, mánudaginn 27. september. Þuríður Ragnarsdóttir, Ragnar Guðbjörnsson. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA TULINIUS, ' Víðilundi 20, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 1. október kl. 13.30. Ottó Tulinius, Agnes Tulinius Svavarsdóttir, Guðmundur Þ. Tulinius, Elke Tulinius, Erna A. Tulinius og ömmubörn hinnar látnu. FJÓLA SIG URÐARDÓTTIR + Fjóla Sigurðar- dóttir fæddist á Hóli í Hvammsveit 13. apríl 1914. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Slyóli 16. september síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Sesselja Bærings- dóttir, f. 1892, d. 1979, og Sigurður Breiðfjörð Sigurðs- son, f. 1889, d. 1962. Fjóla fluttist með fjölskyldu sinni nokkurra ára göm- ul að Köldukinn á Fellsströnd í Dalasýslu þar sem foreldrar hennar hófu búskap og ólst þar upp. Systkini hennar eru Hanna, f. 1917, d. 1998; Mar- grét, f. 1922; Eiður, f. 1925; og Stefnir, f.1927. Eiginmaður Fjólu var Guð- mundur Kr. Ágústsson, f. 4. desember 1918. Heimili þeirra var í Stykkishólmi þar til 1955 að þau fluttust í Kópavog og til Reykjavíkur 1961. Þau bjuggu lengst af í Bólstað- arhlíð 48. Guð- mundur vann í 18 ár hjá Áburðar- verksmiðju ríkisins. Hann lést 3. des. 1978. Börn Fjólu og Guðmundar eru: 1) Örn Ágúst, tann- læknir, f. 1938, maki 1 Erla Stef- ánsdóttir. Þau eign- uðust þrjú börn og eiga átta barna- börn. Maki 2 Ingiríður Hanna Þorkelsdóttir. 2) Sesselja Hrönn, húsmóðir, f. 1942. Hennar maki var Eðvarð Geirsson, d. 1984. Þau eignuð- ust þrjú börn og eiga þrjú barnabörn. Félagi og góður vin- ur í dag er Tryggvi Sigurðsson. 3) Sigurður viðskiptafræðingur, f. 1946. Hans maki er Guðný Benediktsdóttir og eiga þau tvær dætur. títför Fjólu fer fram frá Foss- vogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Stapahrauni 5, Hafnarfiröi, sfmi 565 5892 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Fjóla amma mín er látin. Hún var eina amma mín sem ég fékk að kynnast. Alltaf gat ég leitað til hennar, alveg frá því ég man fyrst eftir mér. Amma átti ekki alltaf auðvelt líf. Hún barðist mikið fyrir aðra, þá sérstaklega mömmu mína. Ef ekki hefði verið fyrii- styrk ömmu þá hefði mamma ekki lifað og við systkinin ekki fæðst. Amma ferðaðist landa á milli til að bjarga lífi dóttur sinnar og gafst aldrei upp. Dugnaður ömmu átti eftir að hjálpa okkur meira eftir að pabbi lést þegar ég var 11 ára göm- ul. Öll áttum við erfitt en amma kom og bjó hjá okkur í smátíma. Armar hennar umluktu mig. Hve mér leið vel við hlið þessarar sterku, góðu konu. Blóma búðin öaúðskom v/ f~OS5VOí‘j s!< I rki MU<5 ►'ö Sími! 554 0500 Eftir að amma eltist varð erfið- ara hjá henni og þá gat ég hjálpað ömmu eins og hún hafði hjálpað mér. Ég verð ævinlega þakklát íyr- ir að ég gat endurgoldið henni um- hyggjuna. Heimili hennar var minn griðastaður. Hve mér leið þar vel. Elsku amma mín, síðustu árin þín vora erfið. Ég veit að þér líður betur nú og átt það skilið. Ég bið guð og englana að annast þig og vernda. Þín dótturdóttir, Ingibjörg S. Eðvarðsdóttir (Imba). Mig langar að minnast tengda- móður minnar í rúm 30 ár. Lág- vaxin en sterkleg, trygg og trú- föst, hlý og glettin. I mínum aug- um var hún í bliki sínu himinblá, persónan og sálin tær og staðföst. Heimabyggð hennar í æsku var Fellsströndin, átti hún tvo bræður og tvær systur. Það var alltaf viss glettni og gáski í fólkinu hennar, þótt þungir tónar hljómuðu líka. Hún giftist strák úr Stykkishólmi og eftir að hún eltist sagði hún oft sögur af þeirra fyrstu kynnum. Hann, Guðmundur Ágústsson, kom af sterkum breiðfirskum meiði. Fluttist hann frá jarðheimi daginn fyrir sextugsafmælið sitt 1978. Skóli lífsins var ekki alltaf léttur hjá henni Fjólu ömmu, en þannig var hennar minnst í minni fjölskyldu af vörum barna minna. En þetta með lífsskólann, hann er nú mismunandi þungur hjá okkur mannverunum. Guðmundur og Fjóla eignuðust þrjú börn, tvo drengi og eina stúlku. Yngri bróð- irinn var 13 ára þegar ég kom inn í fjölskylduna, ljóshærður, ljúfur og bjartur. Systirin dökkhærð, 17 ára, dreymin og falleg með miklar væntingar af líflnu, en því miður ekki heilsuhraust. Fjóla amma og Mundi afi fengu síðan átta barna- börn og nú eru komin 11 langömmubörn. Ég þakka þér alla þína hlýju og velvild þessi 32 ár sem við vorum í fjölskyldutengsl- um. Bið þig fyrir kveðju inn í ljós- heima. Ég kveð mín kæra kærleik og hlýju gafstu mér. Fyrir hönd þinna þriggja barna- barna og átta barnabarnabarna. Guð og englar verndi þig í hinni veröld nýju. Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ Erla Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.