Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 52

Morgunblaðið - 29.09.1999, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir ( Anna er hérna ' að œfa sig á flautuna sína..j-r o Ljóska Smáfólk O YOU THINKj 5HOULP 60 0 CAMP? ONLY IF YOU WANT TO.. UJANTTO?! 5INCE WHEN HAVE I EVEK HAP A CHOICE A0OUT ANYTHIN6? 6-29 Finnst þér að Aðeins ef ég ætti að fara í þig langar sumarbúðimar? til þess. Langar til ?! Síðan hvenær hef ég haft val um einn einasta hlut? Hvað um píanó- tímana? Engin löngun. BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Forvarnir Frá Sigríði Kristjánsdóttur: ÍSLAND vímuefnalaust árið 2000 frábært, flott verkefni en hvernig ætlum við að fara að því? Eg get bent á nokkrar leiðir sem gætu hjálpað til að ná því marki, þótt við séum að öllum líkindum fallin á tíma. Það er jú samdóma álit manna að fyrst kemur áfengi og tóbak, síð- an fíkniefnin og því yngri sem ung- lingurinn byrjar neyslu áfengis því meiri hætta á að hann ánetjist öðr- um vímuefnum. Hér á höfuðborgarsvæðinu mætti byrja að hreinsa svolítið til og hætta að ráða starfsfólk undir aldri til starfa við þjónustu þar sem kemur að tóbaks- og vínveitingaafgreiðslu. Hvernig í ósköpunum stendur á því að á vínveitingastöðum eru ung- lingar undir aldri við ýmis þjónustu- störf? Við dyravörslu á krám og víð- ar eru 17-19 ára piltar við störf, við þjónustustörf á veitingahúsum eru 17-19 ára unglingar, á kaffihúsun- um starfa unglingar allt niður í 16 ára aldur og við afgreiðslu í sölu- turnum eru allt niður í 14 ára böm við störf. Erum við virkilega svo einföld að halda að dyraverðirnir hleypi einungis 20 ára og eldri inn á staðina? Er ekki öllu líklegra að það slæðist inn vinir, kunningjar og skólafélagar sem hafa ekki aldur tO að stunda vínveitingastaði? Er ekki líklegt að unglingarnir í söluturnun- um selji vinum sínum tóbak? A vinveitingastöðunum er það látið viðgangast að unglingar vinni jafnvel á börunum við afgreiðslu áfengra drykkja, þau starfa ekki eingöngu við að taka glös af borðum og þrífa. Á kaffihúsunum starfa unglingar allt niður í 16 ára aldur og þangað leita m.a. 15-16 ára ung- lingar, búnir að finna sér griðastað til að stunda sínar reykingar þó svo að þeir megi það ekki lögum sam- kvæmt. Nú þegar knattspyrnumenn eru að ljúka leiktíð sumarsins þá eru gjaman haldnar uppskeruhátíðir fé- laganna og lokahóf KSÍ. Af því til- efni vil ég hvetja Knattspyrnufélög- in og Knattspymusamband íslands til að standa vörð um æskuna og stuðla að því að ungir knattspyrnu- menn neyti ekki áfengis undir ' verndarvæng þeh-ra. Við vitum öll að í meistaraflokkunum eru ungir leikmenn sem era undir lögaldri og á það sérstaklega við í meistara- flokkum kvenna. Uppskerahátíðir hafa verið haldnar þar sem 15-16 ára ungling- ar hafa tekið þátt í gleðskapnum með fullorðnum meistaraflokks- mönnum/konum, stjórnarmönnum og öðram stuðningsaðilum. Áfengi er iðulega haft um hönd í þessum lokahófum meistaraflokkanna, áfengi selt í húsakynnum íþróttafé- laganna og jafnvel enn þá yngri böm í þjónustuhlutverkum. Hætt- umar í dag era mun fleiri en þegar við foreldrarnir vorum að alast upp. Unglingar eiga greiðari aðgang að margvíslegum tegundum vímuefna. Því miður eru alltof margir foreldr- ar sem gera lítið úr þessum hættum og segja, „ég var nú lítið betri“, „hvemig á ég að geta verið að predika, ég byrjaði að drekka ung- ur“ o.s.frv. Það er mikið starf að ala upp og leiðbeina unglingum, einfaldir hlutir geta vafist fyrir foreldram. Fræðsla og stuðningur við foreldra unglinga er allt of lítilL Fræðslan, stuðning- urinn og ráðgjöfin til foreldra er að- allega þegar unglingurinn er fallinn í neyslu eða að stíga upp úr neyslu eða meðferð. Eg skora á stofnanir samfélagsins og fjölmiðla til að beita sér fyrir aukinni fræðslu til handa foreldram. Hvers vegna era ekki vikulegir pistlar í dagblaði allra landsmanna um hversdagslegt uppeldi, ráðlegg- ingar og stuðningur þar sem fyrir- spurnum foreldra væri svarað? Svör um hvernig eigi að bregðast við kröfunni um lengri útivistartíma eða þegar unglingurinn segist vilja hætta í skólanum o.s.frv. Það er ekki nóg að vara foreldra við þegar kemur að verslunar- mannahelginni, lokum grannskóla- prófa o.s.frv., það þurfa að vera stöðugar umræður um uppeldi ung- linga og vekja þarf foreldra til um- hugsunar. SIGRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Holtsgötu 4, Hafnarfirði. Grísir og umhverfí Frá Gunnari Sigurðssyni: EG VAR að lesa um svínabóndann og umhverfisráðherrann og um- hverfismatið. Ég þykist viss um að þegar verið er að ræða stærðar- mörk búa í löggjöf þá gildi það sama hér í Danmörku og heima á íslandi. Þegar talað er um að fjárfjöldi bónda sé 450 fjár, er ekki talað um lambafjöldann heldur ærnar. Ég hef ekki séð viðmiðun EB-gerðanna sem ráðherra virðist vísa í. En ég þykist fullviss um að til að bú fari í umhverfismat hér í Danmörku þá sé um að ræða bú með 3000 gyltur, ekki 3.000 svín í allt. Þessar 3000 gyltur gefa svo um 60.000 grísi á ári. Ef Stjömugríss-menn ætla í 8.000 gyltur þá er verið að tala um u.þ.b. 150.000 (eitthundraðogfimm- tíuþúsund) grísi á ári. Það er óhugs- anlegt. Ef hins vegar mörkin með 3.000 svín væra gild, hefðu margir nú þeg- ar átt að sæta umhverfismati. Mín skoðun er að viðmiðunarreglur ESB séu rangt túlkaðar fyrir ráðherrann. Með athugasemd minni vil ég benda blaðinu á nauðsyn þess að stjórnvöld séu á hverjum tíma að- stoðuð í að fara að lögum. Þar á ég einkum við stjórnsýslulög. Stjómsýslan á Islandi er ekki nægilega mönnuð (hvorki í magni né gæðum) til að geta sinnt skyldu sinni. Þið, sem stærsti fulltrúi að- halds (fjórða stjómsýslustigs), hafið skyldu að gegna í þessu tilliti. GUNNAR SIGURÐSSON, Tvedvangen 87, 2730 Herlev. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.