Morgunblaðið - 05.10.1999, Síða 2

Morgunblaðið - 05.10.1999, Síða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR Vídek ekki til HK TEKKINN Jirí Vídek, 22 ára örvhent skytta, sem samdi við HK í vor, kom ekki til liðsins er á reyndi. Hann tjáði forráðamönn- um HK að tékkneska handknattleikssambandið hefði meinað honum að fara vegna aldurs. Hann sagðist hafa áhuga á að ræða við HK eftir tímabil- ið. Vídek, sem er 1,97 m á hæð, var í landsliðshópi Tékka og hefur leikið með Dukla Prag. Kekisia skortir leik- heimild RÚSSNESKUR leikmaður Fylkis, David Kekisia, lék ekki með liðinu gegn IR á sunnudagskvöld vegna þess að hann hafði ekki leikheim- ild. Hann Iék fyrsta leik liðsins, sem það tapaði gegn ÍBV 24:23 í Vestmannaeyjum siðastliðinn mið- vikudag. Guðmundur Þórðarson, þjálfari Fylkis, sagði að skömmu fyrir leikinn gcgn IR hafi komið í ljós að leikheimild hafði aldrei borist frá Itússlandi. Magnús Bragason, hjá IBV, sagði að Eyjamenn hygðust ekki kæra leikinn því hann hefði unn- ist. Hann sagðist hins vegar hafa vitað það fyrir leikinn að Kekisia væri ólöglegur og kvaðst hissa á vinnubrögðum Fylkismanna. Guðmunda Kristjánsdóttir skoraðí fjögur mörk fyrir Víking. Hér sækir hún að vörn Stjörnunnar. Morgunblaðið/Kristinn Víkingsstúlkur sýndu klæmar í Víkinni VÍKINGSSTÚLKUR sýndu á sér klærnar í Víkinni á laugardaginn þegar stöllur þeirra úr Stjörnunni sóttu þær heim. Eftir afar slaka byrjun hófu Víkingar að raða inn mörkum svo að Garðbæ- ingar náðu aldrei forystunni á ný og lauk leiknum með 26:22 sigri Víkinga. Á Akureyri komu KA-stúlkur sér inná kortið með því að ná 16:16 jafntefli við háttskrifað lið FH. HANDKNATTLEIKUR / KONUR Stefán Arnarson, þjálfari VQdnga, var sáttur við sitt lið eftir leik- inn. „Það var góð stemmning hjá ■■■■■■ okkur fyrir leikinn en Stefán fyrstu sjö mínútur Stefánsson leiksins voru hrikaleg- skrifar ar _ hinsvegar var sig- urinn því sætari og sýnir að allir geta unnið alla,“ sagði Stefán. „Leik- irnir virðast oft þróast þannig að annað liðið nær ekki að halda miklu forskoti en við sýndum hvað í okkur býr þegar á reyndi og það er ég afar ánægður með. Við höfum misst átta leikmenn síðan í fyrra og erum að byggja upp svo að það er bara að sjá til hvemig það gengur. Okkur er spáð áttunda sæti deildarinnar en við ætlum okkur ofar en það,“ bætti Stefán við. Með liprum leik skoruðu Garðbæ- ingar fjögur fyrstu mörkin en þá höktu Víkingar í gang og skoruðu 11 mörk á móti tveimur gestanna. Á fyrstu mínútu síðari hálfleiks náði Stjarnan að minnka muninn niður í eitt mark, Víkingar náðu aftur fimm marka forystu en enn tókst Garðbæ- UTSALA - GOLFVÖRUR 10-50% afs- láttur Golfsett járn 3-SW og tré 1-3 frá kr. 18.500, m/poka, pútter og kerru kr. 28.500 Graphide sett kr. 27.000, m/poka, pútter og kerru 37.000, 1/2 sett fullorðins m/poka kr. 14.000 Stök járn frá kr. 1.880 Pútterar frá kr. 1.330 Graphide tré verð frá kr. 3.700 Golfkerrur verð frá kr. 3.900 Rafmagnskerrur frá kr. 45.000 Standpokar frá kr. 6.900 Golfskór 20-50% afsláttur Golfkúlur í heilum kössum 20% afsl. Golfsett: HIPPO - HOWSON Golffatnaður frá HIPPO - NIKE - ADI- DAS - GREG NORMAN - OZON - Armúla 40 Símar 553 5320, 568 8860 Ein stærsta sportvöruverslun landsins 7M4RKID ingum að jafna og fengu raunar færi til að komast yfir. Það gekk ekki upp og Víkingar skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins. Heiðrún Guðmundsdóttir og Krist- ín Guðmundsóttir áttu mjög góðan leik hjá Víkingum og skoruðu til að mynda 11 af tólf mörkum Víkinga eft- ir hlé. Markvörðurinn Helga Torfa- dóttir sýndi einnig frábær tilþrif. „Við náðum ekki að íylgja eftir góðri byrjun og það kom yfir okkur deyfð á kafla en síðan snerist þetta upp í hörkuleik - þar höfðu Víkingar betur, þeir eru með skemmtilegt lið og ég óska þeim til hamingju," sagði Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjöm- unnar, eftir leikinn. „Eg á ekkert svar núna við því hvað fór úrskeiðis. Við lékum ilia en áttum möguleika á að komast yfir eftir að hafa náð að jafna en það er oft erfitt þegar búið er að vinna upp mun. Það er slæmt að tapa stigum og við komum ekki hingað til þess en málið er að þetta verður skemmtilegur vetur því Iiðin eru jöfn og eiga eftir að reita stig hvert af öðru. Við emm að byggja upp lið og það tekur tíma.“ Ragnheiður Steph- ensen, Anna Blöndal og Signín Más- dóttir vom bestar hjá Stjömunni. KA tók stig af FH „Ég er mjög ánægður með stigið, sérstaklega eftir stórt tap fyrir Haukum í síðasta leik,“ sagði Hlynur Jóhannesson, þjálfari KA, eftir 16:16-jafntefli fyrir norðan. „Við er- um með ungt lið, sem vantar reynslu svo að það var gaman að ná stigi þegar enginn bjóst við því og sýnir að það er allt mögulegt í deildinni.“ Leikurinn var mjög sveiflukenndur. Norðanstúlkur skoruðu fyrstu fjögur mörkin en Hafnfirðingar næstu fimm og síðan skiptust liðin á um að hafa forystu. KA-stúlkur höfðu bolt- ann í síðustu sókninni en tókst ekki að skora og leggja þar með að velli lið sem talið er langlíklegast til að vinna í deildinni. í Eyjum tókst nýliðum Aftureld- ingar að halda í við heimasæturnar íyrstu mínúturnar og var staðan 5:4. Þá skiptu Eyjastúlkurnar úr flatri vörn í 3-2-1 vörn, sem fór langt út á móti Mosfellingum. Við því áttu þær ekkert svar og Eyjastúlkur tóku öll völd á vellinum og sigraðu 33:10. Grótta/KR-stúlkur gaf engan grið er þær sóttu ÍR heim um helgina og sigruðu 29:14. IR-stúlkur voru ósátt- ar við sinn leik enda náðu þær ekki upp nægilega mikilli baráttu. Haustbragur var á leik Vals og Hauka að Hlíðarenda á föstudaginn en Hafnfirðingar höfðu að lokum bet- ur, 19:18. Leikurinn var jafn framan af en Hafnfirðingar voru þó fyrri til að skora svo að það varð hlutskipti Valsstúlkna að eyða mestri sinni orku í að vinna upp forskot gestanna. Pippen farinn til Portland SCOTTIE Pippen körfuknattleiksmaður hafði vistaskipti um helg- ina er hann var seldur frá Houston Roekets til Portland Trail Bl- azers í skiptum fyrir sex leikmenn. Pippen, sem v.ar margfaldur meistari með Chicago, fór yfir til Houston í fyrrahaust en óskaði eftir því að vera seldur til Portland í sumar en þá var málaleitan hans tekið fálega. í stað Pippens fékk lið Houston þá Walt Willi- ams, Kelvin Cato, Stacey Augmon, Carlos Rogers, Ed Gray og Brian Shaw. Pippen náði ekki að festa rætur í herbúðum Houston og lyndaði síst við Charles Barkley og milli þeirra hafa gengið óvinsamlegar kveðjur. I sfðustu viku lýsti Pippen félaga sfnum sem feitum og eigingjörnum og Barkley hefur látið hafa eftir sér að hann hefði orðið fyrir mikium vonbrigðum með Pippen. Inni á leikvellinum náði Pippen sér heldur ekki á strik og gerði t.d. í fyrra álíka mörg stig og hann gerði veturinn 1997 til 1998.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.