Morgunblaðið - 05.10.1999, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA / NOREGUR
Morgunblaðið/Golli
Ríkharður Daðason sækir að marki Armeníumanna í landsleik á Laugardalsvellinum í Evrópu-
keppni landsliða.
Ríkharður gagnrýnir
þjálfara Víkings
RÍKHARÐUR Daðason fer
hörðum orðum um þá ákvörð-
un Erik Andreasen, þjálfara
Víkings frá Stavangri, fyrir að
velja sig ekki í byrjunarlið
gegn Rosenborg um síðustu
helgi. Andreasen segir að Rík-
harður hafi þurft á hvfld að
halda eftir erfiða leiki að und-
anförnu.
Ríkharður, sem lék síðustu
25 mínúturnar með Stavangri
og skoraði eitt mark og lagði
upp annað er liðið tapaði 3:2
fyrir Rosenborg. Ríkharður,
sem kom inn á er staðan var
3:0 Rosenborg í hag, kveðst í
samtali við staðarblaðið í
Stafangri, Rogalands Avis,
reiður því hann hafi fengið að
heyra frá þjálfurum liðsins að
hann væri með flensu og
þreyttur og því ekki í leikhæfu
ástandi. Ríkharður vísar því á
bug og bendir á að hann hafi
staðið sig vel þann tíma sem
hann var inn á. Hann bendir
jafnframt á að þrátt fyrir
gagnrýni ætli hann sér ekki að
erfa ákvörðun þjálfarans við
hann.
Andreasen viðurkennir í
samtali við blaðið að hann hafi
ekki spurt Ríkharð hvemig
honum Iiði fyrir leikinn á
sunnudag, en kveðst ekki hafa
slæma samvisku. Hann segir
að leikmenn viðurkenni aldrei
þegar þeir séu veikir, ekki síst
fyrir mikilvæga leiki. Andrea-
sen segir jafnframt að Rík-
harður hafi haft gott af því að
hvfla sig og bendir á að eftir
Evrópuleik gegn Benfica í
Portúgal hafi leikmaðurinn
skemmt sér til tvö eða þrjú að-
faranótt föstudags, farið í erf-
iða flugferð daginn eftir og
ekki lokið æfíngu á laugardegi
vegna lasleika. „Hann [Rík-
harður] hefur staðið sig mis-
jafnlega í undanförnum leikj-
um enda búinn að leika marga
leiki, meðal annars með ís-
lenska landsliðinu. Hann hefur
sýnt að hann stendur sig yfir-
leitt vel eftir hvfld sem þessa.“
Andreasen lofar að Ríkharður
hefji leikinn gegn Skeid, ef allt
verði með felldu.
Rosenborg meistari
MEÐ 3:2-sigri á Viking tryggði Rosenborg sér sigur í norsku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu áttunda árið í röð. Rosenborg er eftir
sigurinn með 56 stig, tíu stigum á undan Brann, sem er í öðru
sæti en á þó leik til góða. Leikurinn var einn af fimm sem fram
fóru í 24. og þriðju síðustu umferðinni um helgina.
Gylfi
Hafsteinsson
skrifar
frá Noregi
Leikurinn fór fram á heimavelli
Rosenborg í Þrándheimi.
Heimamenn náðu strax undirtök-
um í leiknum og
skoruðu fyrsta
markið á 7. mínútu.
Staðan var orðin 3:0
þegar Ríkharður
Daðason, sem kom inná sem vara-
maður á 66. mínútu, minnkaði mun-
inn. Morten Berre félagi hans í Vik-
ing minnkaði enn muninn á 90. mín-
útu en allt kom fyrir ekki. Rosen-
borg fór með sigur og Noregs-
meistaratitil af hólmi. Auðunn
Helgason lék allan leikinn fyrir
Viking og stóð sig ágætlega.
Mikil spenna var fyrir leik
Válerenga og Lilleström í Ósló.
Stuðningsmenn beggja liða eru
þekktir fyrir að láta vel í sér heyra
og spurst hafði út að mikið af neyð-
arblysum seldist í Lilleström
stuttu fyrir leikinn. Um þessar
mundir er sérstaklega stirt á milli
liðanna því Mamadou Diallo, sókn-
armaðurinn sem Lilleström hafði
ekki not fyrir og var lánaður til
Válerenga, hefur staðið sig mjög
vel og nánast bjargað liðinu frá
falli upp á eigin spítur. Ekkert
varð af ólátum á áhorfendabekkj-
unum en Diallo skoraði tvö af
mörkum Válerenga í 3:l-sigri og
var valinn maður leiksins í Aften-
posten. Rúnar Kristinsson var einn
sex leikmanna sem fengu að líta
gula spjaldið í leiknum. Válerenga
er nú í fjórða neðsta sæti deildar-
innar með 24 stig en Lilleström
missti af dýrmætum stigum í bar-
áttunni um annað sætið í deildinni.
Liðið er nú þriðja sæti með 45 stig.
Rune Lange í Tromsö tók foryst-
una í baráttunni um markahæsta
mann ársins þegar hann skoraði
tvö mörk í 1:3 sigri á Bodö/Glimt.
Tryggvi Guðmundsson lék ágæt-
lega í leiknum að mati blaðamanns
Aftenposten.
Önnur úrslit í deildinni um helg-
ina urðu þau að Moss sigraði
Strömsgodset 2:5 og Kongsvinger
tapaði 1:2 fyrir Skeid og er þar með
fallið niður í 1. deild. Tveir síðustu
leikir umferðarinnar fara fram á
miðvikudag.
Brann tryggði sér rétt til að leika
í úrslitum bikarkeppninnar á móti
Rosenborg með því að sigra Molde
3:4 í framlengdum undanúrslitaleik
á sunnudaginn. Urslitaleikurinn fer
fram laugardaginn 30. október.
Þórsarar
rótburst-
aðir í
Keflavfk
„ÞETTA er nú það svartasta sem við höfum séð og ég vona að
hér með sé botninum náð,“ sagði Ágúst Guðmundsson, þjálfari
Þórs frá Akureyri, eftir að lið hans hafði verið rótburstað af góðu
liði íslandsmeistara Keflvíkinga í Keflavík á sunnudaginn. Loka-
tölur leiksins urðu 133:72 eða 61 stig munur og það í úrvals-
deild! í hálfleik var staðan 73:30 sem, þótt ótrúlegt sé, er ekki
stigamet hjá Keflvíkingum. Þeir hafa gert betur gegn Tindastóli
frá Sauðárkróki fyrir
nokkrum árum.
KORFUKNATTLEIKUR
Keflvíkingar léku afbragðsvel í
fyrri hálfleik og sýndu þá að þeir
verða engin lömb að leika sér við í
slíkum ham. Norðan-
Björn menn höfðu ekki roð
Blöndal við heimamönnum
skrifar sem fóru á kostum
hvort heldur var í
vörn eða sókn - og það liðu ekki
margar mínútur þegar ljóst var hvert
stefndi. Þórsarar réðu ekkert við
pressu Keflvíkinga sem refsuðu þeim
við hver mistök og í hálfleik munaði
43 stigum. Þá settu Keflvíkingar nið-
ur 14 3ja stiga körfur úr 34 tilraunum
sem er afbragðs nýting.
I síðari hálfleik var ekki eins mikill
stfll yfír Keflvíkingum og þeir féllu í
þá gryfju að leika af meira kappi en
ibrsjá. En það kom ekki að sök því
það sama má segja um Þórsara sem
sjálfsagt vilja gleyma þessari rass-
skellingu sem allra fyrst. „Við reikn-
uðum með að þeir myndu pressa okk-
ur og það var umtalað hvernig ætti
að bregðast við, en það fór allt úr
skorðum. Menn einfaldlega réðu ekki
við verkefnið. Einnig fannst mér
mínir menn bera of mikla virðingu
fyrir meisturunum," sagði Ágúst
Guðmundsson, þjálfari norðan-
manna, ennfremur. Guðjón Skúlason,
aldursforseti Keflvíkinga, átti prýðis-
leik. Hann var stigahæstur með 25
stig, Guðjón setti fimm 3ja stiga körf-
ur í fyrri hálfleik, Elentínus Mar-
geirsson, Halldór Karlsson og
Bandaríkjamaðurinn Dhinatti Ro-
berts voru einnig góðir.
Öruggur sigur í nágrannaslag
Nágrannaslagurinn í Borgamesi
milli Skallagríms og Snæfells
byrjaði rólega. Heimamenn voru yfir
í hálfleik, 43:34, og
Ingimundur unnu öruggan sigur,
Ingimundarson 86:73. I kynningu
skrifar kom fram að Skalla-
grímur er að hefja
sína níundu leiktíð í úrvalsdeild. Ekki
var síður athyglisvert að heyra að
dómarar leiksins, Kristinn Albertsson
og Bergur Steingrímsson, væru að
byrja sitt 18. og 17. ár sem dómarar.
Heimamenn voru sprækari í upphafi
og skoruðu fjögur fyrstu stigin en
síðan vai-jafnræði með liðunum upp í
18:17. Þá dró nokkuð í sundur.
Skallagrímur komst í 27:17 en gest>
irnir löguðu stöðuna í 32:21. Aftur
tóku heimamenn kipp en Hólmarar
drógu á fyrir hlé. Staðan í hálfleik
var 43:34.
Gestirnir byrjuðu með látum síð-
ari hálfleikinn. Skoruðu stig og fisk-
uðu grimmt villur. Fyrri hálfleikm'
var prúðmannlega leikinn og fengu
heimamenn aðeins á sig fjórar villur
á móti átta hjá gestunum. En dæmið
snerist heldur betur við í þeim síðari.
Fengu heimamenn t.d. á sig sjö
fyrstu villur hálfleiksins.
Leikurinn var dæmigerður haust-
leikur. Liðin þreifuðu fyrir sér með
leikkerfin og ýmislegt á greinilega
eftir að fínpússa. Skallagrímur átti
ágæta leikkafla en leikur liðsins datt
niður á milli og voru heimamenn t.d.
ekki nægilega grimmir í sóknar-
fráköstunum.
Heimamenn virtust hafa örugg
tök á leiknum og komust mest í 17
stiga mun, 79:62, en virtust ekki hafa
áhuga á að taka af skarið og vinna ör-
uggan sigur. Er tvær mínútur lifðu af
leiknum komust gestimir niður í 10
stig, 81:71, en nær komust þeir ekki
og leiknum lauk með öruggum sigri
heimamanna, 86:73. Tómas Holton
og Sigmar Páll Egilsson voru snarp-
astir hjá heimamönnum en Birgir
Mikaelsson, Hlynur Bæringsson og
Dragisa Saric, þjálfari liðsins, voru
einnig drjúgir. Kim Lewis var allt í
öllu hjá Snæfelli en breidd liðsins en
hættulega lítil.
Heimasigur á lokasekúndunni
Fyrsti heimaleikur Tindastóls fór
fram í íþróttahúsinu á Sauðár-
króki síðastliðið sunnudagskvöld, en
þá mætti liðið KR-
Bjöm ingum. Nokkur
Bjömsson haustbragm- var á
skrifar leik liðanna beggja,
mikið um mistök en
heilmikil barátta þar sem leikurinn
var alltaf í jámum, heimamenn oftast
fetinu framar, en gestirnir örfáum
stigum á eftir. Undir lok hálfleiksins
hefðu KR-ingar með smáheppni get-
að jafnað, en þess í stað skildu tvö
stig liðin að þegar þau héldu til bún-
ingsherbergja.
I síðari hálfleik byrjuðu gestirnir
betur og með harðfylgi tókst þeim að
jafna, og stóðu þá stigin 39-39 eftir
fjögurra mínútna leik, og var þar að
verki Ólafur Ægisson með tvær fal-
legar 3ja stiga körfur í röð. Skömmu
síðar fékk Jónatan Bow sína fjórðu
villu og gat því minna beitt sér, en
hann hafði verið allt í öllu og sann-
kölluð kjölfesta í ungu liði gestanna.
Jafnframt harðnaði nú baráttan og
oftast skildu liðin að 1 eða 2 stig,
tvisvar náðu gestirnir að jafna og
einu sinni komust þeir yfir. í liði
Tindastóls barðist Bandaríkjamður-
inn Williams vel, var drjúgur að
skora og hirti nánast öll fráköst, en
einnig stóðu sig vel þeir Svavar,
Kristinn, og Isak, en einnig var Sune
Hendriksen mjög hreyfanlegur og
barðist vel.
Þegar 10 sekúndur voru eftir af
leiktímanum var staðan 67-65 fyrir
heimamenn og þeir með knöttinn og
gátu nú gert út um leikinn, en sóknin
misfórst og Jesper Sörensen,
eldsnöggur í liði KR, náði að skora og
jafna, og stefndi nú allt í framleng-
ingu. Tindastólsmenn tóku leikhlé og
Valur lagði á ráðin með félögum sín-
um. Gestirnir gerðu einnig sínar ráð-
stafanir sem fólust í því að blokkera
Kristin Friðriksson og Williams, en
um leið opnaðist greið leið fyrir Sune,
sem brunaði upp völlinn fram hjá
stöðum KR-ingum sem alls ekki áttu
von á þessu, og lagði boltann í körf-
una um leið og leiktíminn var úti, og
fögnuðu heimamenn að vonum ákaf-
lega.