Morgunblaðið - 12.10.1999, Qupperneq 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
§§S|||
i I . vA <& ®íff
m*T ,Vgj fm 8 $ í B j&S ;,'í : . JPj*
Morgunblaðið/Golli
Eyjólfur Sverrisson stendur við knöttinn ásamt Rúnari Kristinssyni - og tekur miðið fyrir aukaspyrnuna. Þórður Guðjónsson á hægri
hönd hans og Helgi Sigurðsson fyrir framan varnarvegg Frakka.
Eyjólfur Sverrisson kom íslandi á bragðið með þrumufleyg úr aukaspyrnu
Stóð og gapti
á eftir boltanum
„SJÁLFSAGT hafa margir haldið að við ættum eftir að fá mikið
af mörkum á okkur miðað við hvernig leikurinn þróaðist í upp-
hafi. En við sýndum að við erum þess megnugir að jafna leik-
inn. Vissulega var sárt að tapa leiknum en þetta hefði getað
farið hvernig sem var. Þetta var virkilega skemmtilegt og sjálf-
sagt hefur fólk haft gaman af. Eigum við ekki að segja að leik-
urinn sé góð landkynning fyrir ísland," sagði Eyjólfur Sverris-
son, fyrirliði íslenska landsliðsins.
Eyjólfur með met
EYJÓLFUR Sverrisson setti
met í Evrópukeppni landsliðs,
er hann skoraði glæsimark
sitt gegn Frökkum í París.
Þar með varð hann fyrsti leik-
maðurinn til að skora mark í
tveimur leikjum í röð á heima-
velli Frakka í Evrópukeppn-
inni. Eyjólfur skoraði mark
gegn Frökkum í París í EM-
leik 1991, er hann kom inn á
sem varamaður. Frakkar
unnu þá 3:1. Enginn leikmað-
ur franska liðsins sem lék í
París á laugardaginn, lék leik-
inn 1991. Aftur á móti tóku
tveir leikmenn íslenska liðsins
þátt í honum - Eyjólfur og
Birkir Kristinsson, markvörð-
ur.
Eyjólfur er fyrsti leikmað-
urinn sem hefur skorað mark
í tveimur leikjum gegn Frökk-
um í EM á heimavelli þeirra.
■ ALLIR leikmenn íslenska lands-
liðsins héldu til félaga sinna í Evr-
ópu nema Ríkharður Daðason og
Auðun Helgason, leikmenn Vík-
ings frá Stavangri, en þeir þurftu
ekki að masta til Noregs fyrr en á
mánudegi og hugðust nýta daginn
til þess að skoða sig um í París.
■ RÍKHARÐUR Daðason fékk oln-
bogaskot í vinstri augnbrún frá Did-
ier Deschamps, fyrirliða Frakka, í
upphafí leiks svo úr blæddi. Rík-
harður þurfti að fara af velli til þess
að láta stöðva blæðinguna. Hann
kom inn á skömmu síðar eftir að
Siguijón Sigurðsson, læknir ís-
lenska liðsins, hafði gert að sárinu.
■ HELGI Sigurðsson fékk viður-
kenningu fyrir 25 landsleiki með ís-
lenska landsliðinu eftir leikinn við
Frakka. Ríkharður Daðason, Her-
mann Hreiðarsson og Lárus Orri
Sigurðsson fengu einnig viður-
kenningu fyrir sama áfanga. Allir
hlutu þeir gullúr Knattspyrnusam-
bands Islands sem Eggert Magnús-
son, formaður sambandsins, afhenti
þeim.
■ EYJÓLFUR Sverrisson fyrirliði
íslenska liðsins, átti að fá að laun-
um listaverk fyrir að ná að leika yf-
ir 50 landsleiki. Listaverkið fékk
hann ekki afhent heldur ávísun fyr-
ir þvú
■ RUNAR Kristinsson er leikja-
hæstur íslenskra landsliðsmanna
frá upphafi, hefur leikið 79 lands-
leiki frá 1987.
■ ÍSLENSKA landsliðið fékk alla
daga lögreglufylgd er það hélt frá
hótelinu þar sem það bjó. Er það
hélt í rútu áleiðis til Stade de
France-leikvangsins fylgdist fjöldi
manns með ferð þess allt til
áfangastaðar.
■ MIÐJA vallarins á Stade de
France var fremur illa farin eftir að
motor cross-keppni fór þar fram
nokkrum dögum á undan.
Eyjólfur sagði að spenna hefði
orðið íslenska liðinu að falli í
fyrri hálfleik. „Mörkin tvö sem þeir
gerðu voru slys.
Qisli Þriðja markið kom
Þorsteinsson síðan eftir ágætt
skrifar spil af þeirra hálfu.“
frá París Hann kvaðst
ánægður með markið sem hann
gerði af 25-30 m færi og kom ís-
lenska liðinu aftur inn í leikinn.
„Ég smellhitti boltann og síðan
stóð maður og gapti á eftir boltan-
um. Við áttum eftir það nokkrar
góðar syrpur og þeir voru í virki-
GUÐJÓN Þórðarson, þjálfari ís-
lenska liðsins, sagði að það hefði átt
að fá víti er Laurent Blanc, varnar-
maður franska liðsins, braut á
Eyjólfi Sverrissyni, fyrirliða ís-
lenska liðsins, inni í vítateig þess
franska í seinni hálfleik. „Blanc
lega miklum vandræðum. Það var
margt vel gert hjá okkur. Um
þetta leyti var leikurinn opinn og
hafði getað farið á báða vegu.“
Eyjólfur sagði það ekki tilviljun
hvers vegna íslenska liðið er í þess-
ari stöðu eftir keppnina. „Liðið hef-
ur leikið jafna og góða leiki. Við er-
um búnir að spila mjög vel og
framar vonum. Það er yfir ár á
milli leikjanna við Frakka en þetta
sýnir að íslenska liðið býr yfir
ákveðnum styrk og þegar allir
standa saman er allt hægt.“
Aðspurður um hvort ekki yrði
togaði Eyjólf niður. Þetta var árás
inni í vítateig og ekkert annað en
víti. Við höfum lent í svona aðstæð-
um áður gegn stórþjóðum, Her-
mann Hreiðarsson var rotaður í
Moskvu og Ríkharði var hrint og
hann laminn gegn Ukraínu í
erfitt að fylgja eftir þeim árangri
sem íslenska liðið náði í und-
ankeppni Evrópumótsins, sagði
Eyjólfur að alltaf þyrfti að byrja
upp á nýtt, hvort sem það væri í
nýrri undankeppni eða nýjum leik.
Reykjavík.“
Guðjón sagði að í aðhlaupinu
hefði það sést vel að Blanc var mjög
hræddur við Eyjólf og ætlaði sér
ekki að láta hann leika lausum hala.
„Blanc stökk á hann og þeir kútvelt-
ust inni í teignum."
Tvö mörk í
Frakklandi
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
landsliði tekst að skora tvö mörk
hjá Frökkum í leik gegn þeim í
Frakklandi. Islendingar urðu átt-
unda þjóðin til að ná því síðan
Frakkar léku sinn fyrsta Evrópu-
leik 1. október 1958. Síðan þá hafa
Frakkar leikið 36 leiki á heimavelli
gegn 25 þjóðum. Aðeins eitt landslið
hefur náð að skora þrjú mörk - það
var landslið Rússa sem vann það af-
rek 5. júní í sumar í París, er Rúss-
ar fögnuðu sigri 3:2.
Guðjón vildi vítaspyrnu