Morgunblaðið - 12.10.1999, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 12. OKTÓBER 1999 B 5
Ríkharður Daðason um sjálfsmarkið
Mótherjar
Frakka í EM
Hveoft
fsland 4
Belgía 3
Búlgaría 2
Pólland 2
Lúxemborg 2
Noregur 2
A-Þýskaland 2
Tékkóslóvakía 2
Gríkkland 1
England 1
Ungverjaland 1
Sviþjóð 1
Danmörk 1
Júgóslavía 1
Sovétríkin 1
Spánn 1
Albania 1
Rúmenia 1
Slóvenía 1
Azerbaijan 1
ísrael 1
Andorra 1
Úkraína 1
Armenía 1
Rússland 1
Morgunblaðið/Golli
Þegar Eyjólfur var búinn að sjá glufu í vamarvegg Frakka lét hann knöttinn vaða að marki - stuttu
síðar hafnaði knötturinn í netinu.
„Ég er ekki sáttur við mína frammistöðu í leiknum og það var
svekkjandi að skora sjálfsmark en það má ekki láta slík atriði
fara á sálina. Ég var því ánægður er okkur tókst að jafna leik-
inn því þá var sjálfsmarkið ekki lengur sú byrði á mér sem það
var framan af leik. Því miður tókst þeim að gera eitt mark í
viðbót sem hugsanlega var hægt að koma í veg fyrir,“ sagði
Ríkharður Daðason.
Landslið íslands
er áttunda landsliðið
sem skorar tvö mörk
í Frakklandi í EM
1963, 27.feb.: Frakkland - England 5:2
1971, 10. okt.: Frakkland - Ungverjal. 0:2
1974, 16. nóv.r Frakkland - A-Þýskal. 2:2
1978, 2. sept.: Frakkland - Svíþjóð 2:2
1984, 19. júní: Frakkland - Júgóslavía 3:2
1986, 10. okt.: Frakkland - Sovétríkin 0:2
1998, 5. júní: Frakkland - Rússland 2:3
1999, 9. okt.: Frakkland - ísland 3:2
Birkir Kristinsson um þriðja mark Frakka
Var kominn
úr jafnvægi
Árangur
Frakka
á heim-
avelli
í undan-
keppni EM
veðrið og mig langaði mikið til þess
að hlaupa yfir til strákanna og taka
þátt í fagnaðarlátunum.“
Birkir sagði að Frakkar hefðu
aftur náð taki á leiknum og skorað
en sér hefði ekki leiðst ef íslenska
liðinu hefði tekist að halda lengur
út. „Maður heyrði það á áhorfend-
um að þeir voru orðnir óþolinmóðir
og voru farnir að hrópa á franska
liðið. Leikmenn franska liðsins voru
því orðnir stressaðir um tíma.“
Birkir sagði að árangur íslenska
liðsins í keppninni væri einstakur.
„Við áttum möguleika allt fram á
síðustu stundu en venjulega hefur
liðið ekki átt neina möguleika þegar
nokkrar umferðir eru eftir. Núna
vorum við í baráttu meðal efstu liða
og stefndum á að vinna alla leiki.
Slíkt er í raun ótrúleg breyting frá
fyrri keppnum.“
„í RAUN fannst mér að við gætum komið í veg fyrir öll þessi
mörk sem þeir skoruðu - það var hálfgerður heppnisstimpill á
þeim. Til dæmis var ég alveg með boltann er þeir skoruðu
þriðja markið. Þeir skölluðu að marki en hann breytti um
stefnu og ég fór úr jafnvægi og gat aðeins varið hann með
annarri hendinni. Síðan tókst þeim að koma boltanum í netið,
það var svekkjandi," sagði Birkir Kristinsson, markvörður ís-
lenska liðsins.
Birkir sagði að sér hefði liðið
einstaklega vel er hann sá að
leikurinn snerist íslenska liðinu í
hag. „Eg var nokkuð smeykur um
að Frökkum tækist að bæta við
einu marki í viðbót en er Eyjólfur
skoraði sá maður að leikurinn yrði
spennandi á ný. En maður átti nú
ekki von á að við næðum að skora
strax aftur og það fór sælutilfinn-
ing um mig er ég sá Brynjar Björn
[Gunnarsson] jafna leikinn. Áhorf-
endur vissu ekki hvaðan á þá stóð
Sá ekki
boltann
FOLK
■ TVEIR íslenskir ráðherrar voru
staddir á Stade de France á laug-
ardag: Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra og Geir H. Haarde
fjármálaráðherra. Halldór heilsaði
upp á leikmenn að leik loknum og
óskaði þeim til hamingju með
árangurinn gegn Frökkum. Þá leit
Sigríður Snævarr, sendiherra í
París, inn í rútu íslenska liðsins og
þakkaði þeim fyrir leikinn.
■ GEIR H. Haarde fjármál-
aráðherra dvaldi á sama hóteli og
íslenska liðið, Grand Hótel
Enghien í Enghien Les Bains, sem
er í útjaðri Parísar.
■ I hálfleik á Stade de France var
tilkynnt að jafnt væri í hálfleik í
leik Rússa og Ukraúiu í Moskvu
við mikla kátinu franskra áhorf-
enda. Að leik loknum biðu leik-
menn og forráðamenn franska liðs-
ins eftir staðfestum úrslitum frá
Moskvu, en Frakkar urðu að
treysta á hagstæð úrslit í þeim leik
til þess að eiga möguleika á að
komast úr riðlinum. Fljótlega
kvisaðist út að leikurinn í Moskvu
hefði endað 1:1 við fagnaðarlæti á
Stade de France.
Umsögn breska blaðsins Guardian um leikinn í París
Islenska uppreisnin
brotin á bak aftur
LANDSLEIKUR fslendinga
og Frakka á þjóðarleikvang-
inum í París vakti mikla at-
hygli um gervalla Evrópu. í
grein breska dagblaðsins Gu-
ardian, undir fyrirsögninni
„Heimsmeistararnir brjóta
uppreisn fslands á bak aftur“,
sagði að þótt sigur Frakka
hefði tryggt þeim þátttök-
urétt í úrslitakeppni Evróp-
umótsins, hefði þetta verið
dýrðarkvöld fslendinganna,
þar sem eldmóður þeirra end-
urspeglaðist við sannarlega
magnþrungnar kringumstæð-
ur á troðfullum Stade de
France-leikvanginum.
„Framlag þeirra til leiks-
ins, sem hafði hreina úr-
slitaþýðingu, nauðbeygði
Frakka á svo áhrifamikinn
hátt að jafnvel hlutlausir
menn skræktu af undrun. Is-
lendingar áttu þegar heiður
skilinn fyrir að eiga enn
möguleika, þótt litlir væru, á
að komast áfram úr riðlinum
með Iiðum á borð við Rúss-
land, Úkraínu og Frakkland.
Sú staðreynd ein, að þeir
voru nærri því að knýja
Frakka til að „éta hatta
sína“, skóp óstjórnlegar geð-
sveiflur nærstaddra í níutíu
mínútur."
I frétt blaðsins stóð einnig
að leikur Islendinga og
Frakka hefði ekki verið eftir-
bátur annarra í heimsmeist-
arakeppninni sjálfri, er lauk
svo eftirminnilega á sama
stað á síðasta ári. „Hver sá er
gerði ráð fyrir ellefu manna
vörn íslands var kveðinn í
kútinn.“
Blaðamaður Guardian reit
einnig lýsingu sína á
viðbrögðum áhorfenda er ís-
lendingar jöfnuðu leikinn eft-
ir að hafa verið undir, 2:0,
með marki Brynjars Björns
Gunnarssonar. „Það var engu
líkara en að 99 prósent áhorf-
enda á Stade de France hefðu
verið slegnir í rot með
óvæntri uppreisn. Hinir, þar á
meðal fimmtíu stuðningsmenn
Brentford sem mættir voru til
að styðja Hermann Hreiðars-
son, gengu hreinlega af göfl-
unum.
Leikurinn reis á hærra og
áhrifameira stig. Andrúms-
loftið var rafmagnað. Vörn
Frakka hrundi og íslending-
ar, sem sáu sitthvað sögulegt
í vændum, gerðu atlögu að
marki Lamas. Eiður Guðjohn-
sen, leikmaður Bolton, fór af-
dráttarlaus fremstur í
flokki.“
Eg veit ekki hvort ég hefði getað
gert neitt annað er ég gerði
markið. Ég sá ekki boltann því
Hermann [Hreiðarsson] og
[Laurent] Blanc fóru upp í boltann
og ég var búinn að taka mér stöðu
þar sem búast mátti við að boltinn
lenti með [Zinedine] Zidane við
hlið mér. Síðan barst boltinn fram-
hjá Hermanni og Blanc og ég var
ekki nægilega snöggur að átta mig
á hlutnum en kipptist við með þeim
hætti að ég stýrði boltanum að
marki en ekki í hina áttina. Ég hélt
reyndar aldrei að ég mundi skora
því að ég var talsvert frá markinu."
Ríkharður sagði að ekki hefði
þýtt neitt annað en að halda áfram
eftir markið og kvaðst sáttur að ná
að vinna þá skallabolta sem bárust
að sér. „Mér fannst okkur takast að
ógna þeim meira vegna þess að við
vorum með tvo leikmenn frammi og
við náðum smá tökum á þeim um
tíma. Þá náðum við mun fleiri sókn-
arfærum heldur en við gerðum í
leiknum heima. Ég held því að þess
uppstilling hafi skilað sér. Ég hefði
auðvitað viljað spila lengur en það
er þjálfarinn sem ræður för og
þarna gerði hann rétt er hann setti
Eið Smára [Guðjohnsen] inn á því
hann stóð sig mjög vel.“
Ríkharður sagðist ekki sáttur
við frammistöðu sína með lands-
liðinu síðari hluta sumars. „En þó
að ég hafí ekki verið jafn sterkur
og ég var fyrr í sumar, tel ég að
liðið geti borið höfuðið hátt eftir
keppnina."