Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 12
SUND Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson Orn Arnarson og Ríkharður Ríkharðsson, tveir af átta sundmönnum sem eru í Olympíuhópi Islands í sundi. Örn Arnarson segist ekki vera sáttur við framfarirnar í 50 metra lauginni Allt lagt í sölurnar „ÉG hef æft linnulaust síðan í lok ágúst eftir að hafa tekið stutt sumarfrí eftir Evrópumeistaramótin tvö sem ég tók þátt í í lok júlí og ágúst," segir Örn Arnarson, íþróttamaður ársins 1998 og sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar. Lítið hefur farið fyrir Erni síðan hann tók þátt í Evrópumeistaramóti unglinga í Moskvu í júlí og skömmu síðar á EM fullorðinna í Istanbúl í beinu framhaldi. „Annars hef ég það gott, er nú að byggja mig upp fyrir keppnisárið sem framundan er, þar sem Ólympíuleik- arnir í Sydney í september á næsta ári er hápunkturinn - það er því spennandi ár framundan." Eftir Ivar Benediktsson Til þess að búa sig sem best undir Ólympíuleikana hefur Örn ákveðið að einbeita sér að sundiðkun og láta námið sitja á hakanum um tíma, en á síðasta vetri var Örn í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Æfingar og keppni taka hins vegar mikinn tíma þegar komið er í fremstu röð og ekki síst þegar undirbúningur fyrir Ólympíuleikana stendur fyrir dyr- um. Öm er því atvinnumaður í sundi þótt aðeins 18 ára gamall sé. „Næstu stórverkefni hjá mér er þátttaka i Evrópumeistaramótinu í tuttugu og flmm metra laug í Lissa- bon í desember og í janúar fer ég - ásamt fleiri íslenskum sundmönnum á Opna Sjálands-mótið þar sem við ætlum að freista þess að ná lágmörk- um fyrir Ólympíuleikana í Sydney.“ Evrópumeistaramótið í 25 metra lauginni verður haldið 8.-11. desem- ber í Lissabon í Portúgal og þar á Öm titil að verja í 200 metra baksundi, en hann vann þá grein á EM í Sheffíeld í fyrra. „Auðvitað er stefnan sett á að verja titilinn en það er erfitt að segja til um hvernig það gengur því ekki er komið í ljós enn hvaða keppendur verða á mótinu og í raun skýrist það ekki fullkomlega fyrr en á mótið kemur,“ segir Öm, en hann sagðist hafa heyrt af því að einhverjar Evrópuþjóðir hefðu hug á að hvíla sína sterkustu sundmenn á mótinu til þess að draga úr álagi á það og gera þeim þannig kleift að einbeita sér að Ólympíuleikunum. Of mikið álag Öm náði ágætum árangri á Evr- ópumeistaramóti unglinga í Moskvu, sigraði í 200 m skriðsundi, fékk silfur í 200 m baksundi og bætti íslands- metið í 100 og 200 m baksundi áður hann veiktist af matareitrun og varð að hætta við þátttöku í úrslitum 100 m baksundsins. Því næst hélt hann rakleitt til Istanbúl og tók þátt í Evrópumeistaramóti fullorðinna í 50 m laug. Þá bar svo við hann náði sér ekki á strik og komst ekki í úrslit í baksundi, eins og vonir höfðu þó staðið til um. Örn vill ekki skrifa vonbrigðin í Istanbúl á reikning mat- areitrunarinnar í Moskvu heldur mikið frekar að álagið hafí verið of mikið og líklega hefði verið rétt að sleppa öðra hvora mótanna. „Það var einfaldlega komin mikil þreyta í mig og alla þá keppendur frá Islandi sem tóku þátt í báðum mótunum, enda sést það á árangrin- um - við vorum öll talsvert betri í Moskvu en í Istanbúl. Eftir á að hyggja hefði verið ráðlegra að veðja á annað hvort mótanna og sleppa hinu,“ segir Örn. Á meira inni Örn segir að æfingar gangi vel og hann sé staðráðinn í að halda áfram að bæta sig ennþá enda eigi hann nokkuð inni. „Eg stefni frekar að framföram í 50 metra lauginni, þar tel ég mig eiga talsvert inni, bæði í baksundi og skriðsundi. Vonandi tekst mér að bæta mig meira en hingað til. Ég tel mig ekki hafa náð þeim árangri eða tekið þeim fram- förum í fimmtíu metra lauginni sem ég ætti að hafa gert ef allt hefði verið í lagi. Nú er ólympíuár framundan og því verður allt lagt í sölurnar til þess að taka framforam.“ Örn kveðst ætla að einbeita sér meira að baksundinu fyrir Ólympíu- leikana, en hann hafi ekki gefið skriðsundið alveg upp á bátinn, enda náð fyrirtaksárangri í 200 metra skriðsundi á síðustu árum. „Það er ekki ósennilegt að ég einblíni á eitt og tvö hundrað metra baksundið og fyö hundruð metra skriðsund á Ólympíuárinu." Um tíma í fyrravetur barðist Örn við meiðsli í annarri öxlinni og gat lít- ið æft um tíma. „Ég ftnn ekki mikið fyrir í öxlinni nú, að minnsta kosti há- ir það mér ekki eins og í fyrra, en ég finn lítillega fyrir sárindum ennþá.“ Ellefu náð lágmarki fýrir EM í Lissaborn ELLEFU íslenskir sundmenn hafa náð tilskildum árangri til þátttöku á Evrópumeistaramótinu í 25 metra laug í Lissabon í desember. Það eru Örn Arnarson, Lára Hrund Bjargardóttir, Elm Sigurðardóttir, Ómar Snævar Friðriksson og Hjalti Guð- mundsson úr SH, Jakob Jóhann Sveinsson og Ríkarður Ríkarðs- son frá Ægi, Eydís Konráðsdóttir og Sævar Órn Siguijónsson úr Keflavík, Kolbrún Yr Kristjánsdóttir, IA og Friðfinnur Krist- insson, Selfossi. Sjö þessara sundmanna ætla hins vegar ekki að taka þátt í mótinu en það eru Ríkarður sem er við háskólanám í Denver í Bandaríkjunum, Hjalti ætlar að einbeita sér að keppni í 50 metra laug með Ólympfuleikana í huga og Keflvíkingarnir, Ey- dís og Sævar, ætla einnig að sleppa EM að þessu sinni. I Leó hættir hjáÍA SKAGAMENN eiga enn eftir að ráða þjálfara fyrir meistara- flokk kvenna í knattspyrnu fyr- ir næsta sumar. Leó Jóhannes- son þálfaði liðið í sumar en þá lenti Iiðið í 6. sæti af átta liðum í efstu deild kvenna. Smári Guðjónsson, formaður ÍA, sagði að félagið hefði átt viðræður við nokkra þjálfara en vildi ekki greina frá því hverjir þeir væru. Nokkrar breytingar urðu á Skagaliðinu fyrir síðasta sumar og það var Iengi án þjálfara. Leó tók við því nokkrum mán- uðum fyrir mót en hugðist aldrei þjálfa það nema í eitt ár. Smári sagði að mikil ánægja væri með störf Leós og að árið hefði nýst til uppbyggingar. Markmiðið fyrir næsta sumar væri að gera enn betur og koma liðinu á ný í toppbaráttu. Magnús þjálfar KR-stúlkur KR-ingar hafa ráðið Magnús Pálsson þjálfara meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Samn- ingur Magnúsar, sem tekur við af Vöndu Sigurgeirsdóttur, við félagið er til tveggja ára. Undir stjórn Vöndu urðu KR-ingar ís- lands- og bikarmeistarar í sum- ar. Magnús hefur þjálfað Fylki, Leikni, FH og Ægi undanfarin sjö ár og lék áður með FH, Sindra ogÞrótti. Hann er eig- inmaður Örnu Steinsen, sem þjálfaði og lék með KR um margra ára skeið. Brynjar var bestur BRYNJAR Björn Gunnarsson var valinn besti leikmaður leiks Örgryte og AIK um helgina að mati Aftonbladet. Brynjar og félagar í Örgryte unnu 1:0 og eru í fjórða sæti sænsku úrvals- deildarinnar. Haraldur Ingólfsson lék með Elfsborg í 62 mínútur er liðið tapaði 3:0 fyrir Halmstad um helgina. Hann brenndi af víta- spyrnu fyrir Elfsborg í leikn- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.