Morgunblaðið - 03.11.1999, Qupperneq 1
B L A Ð
A L L R A
LANDSMANNA
1999
fllorgunMa&iíb
■ MIÐVIKUDAGUR 3. NÓVEMBER
BLAD
Haukur Ingi undir
smásjá Rosenborgar
ROSENBORG hefur áhuga á að fá Hauk Inga
Guðnason knattspyrnumann til reynslu, eftir
því sem fram kemur á spjallsíðu enska liðsins
Liverpool á Netinu í gær. Þar kemur enn-
fremur fram að norska liðið sé ekki vant því
að fá menn til reynslu nema það hafí áhuga á
að nýta sér krafta þeirra.
„Þú segir mér fréttir, ég hef ekkert heyrt
um þetta,“ sagði Haukur Ingi í gær. „Ef eitt-
hvað er til í þessu þá er áhugi minn fyrir
hendi, enda Rosenborg stórlið sem hefur náð
mjög góðum árangri í meistaradeildinni,“
bætti Haukur við en hann hefur ekki leikið
marga leik frá því hann gekk til liðs við Liver-
pol fyrir 22 mánuðum. Hann er samnings-
bundinn Liverpool þangað til í júní árið 2001.
Haukur segist vera að jafna sig eftir ökkla-
meiðsli sem hafa hrjáð hann síðustu vikur.
Allardyce
hrósar Guðna
SAM Allardyce, knattspyi’nu-
stjóri Bolton, lofar frammi-
stöðu Guðna Bergssonar í und-
anförnum leikjum liðsins, að
því er kemur fram á spjallsíðu
liðsins. AUardyce segir að frá
því að Guðni hóf að leika með
liðinu á ný eftir meiðsli hafi
hann leikið skínandi vel og vill
knattspyrnustjórinn að aðrir
varnarmenn þess fylgi fordæmi
leikmannsins. „Hann [Guðni]
gefur andstæðingum sínum
aldrei tækifæri á að skapa sér
marktækifæri en slík skilaboð
eru til þess fallin að skapa ótta
hjá framherjum."
Geir ekki feng-
ið leikheimild
frá Wuppertal
VALSMENN hafa sótt um
leikheimild fyrir Geir Sveins-
son, þjálfara liðsins, frá þýska
liðinu Wuppertal. Ekki hefur
enn fengist leikheimild frá
þýska liðinu, þar sem Geir lék
um nokkurra ára skeið, því það
hefur farið fram á greiðslu fyrir
félagaskiptin, sem eru um 50
þúsund íslenskar ki-ónur. Því
hafa Valsmenn hafnað á þeim
forsendum að Geir sé laus allra
mála hjá félaginu. Hefur Hand-
knattleikssamband íslands
unnið að lausn málsins og sent
fyrirspurn til þýska liðsins.
Geir hefur ekki gefíð upp hvort
hann hyggist leika með Val í
vetur.
Guðjón tekur
við stjóm mála
SAMKVÆMT heimildum
Morgunblaðsins er frágengið
að Guðjón Þórðarson taki við
stjórnunarstöðu hjá Stoke City
um leið og íslensku fjárfestarn-
ir taka formlega yfir rekstur
félagsins hinn 15. nóvember nk.
Verður Guðjón yfirmaður
knattspyrnumála hjá félaginu
og er ætlað að kaupa nýja leik-
menn og vinna að stefnumótun.
Þegar fram líða stundir er svo
gert ráð fyrir að hann taki við
af Gary Megson sem knatt-
spyrnustjóri liðsins.
Þangað til formleg yfirtaka
fjárfestanna fer fram um
miðjan mánuðinn mun núver-
andi stjórn Stoke City stýra
félaginu.
KNATTSPYRNA
■Meistaradeildin / C3
Evrópumeistararnir í Manchester United tryggðu sér efsta sæti D-riðils meistaradeildar Evrópu með
því að vinna austurríska liðið Sturm Graz 2:1 á Old Trafford í gærkvöldi. Öll mörkin voru skoruð í
síðari hálfleik. Andy Cole, framherji Uníted, reynir hér að koma boltanum í markið hjá Sturm Graz,
en Josef Schicklgruber markvörður bjargar meistaralega.
Leiftur
í fram-
herjaleit
LEIFTUR hefur rætt við
Hedin Alakjuni, færeyskan
framheija, um að leika
með liðinu næsta sumar.
Leikmaðurinn, sem kemur
frá færeysku meisturunum
í Klakksvík, er staddur hjá
Rangers í Skotlandi í von
um komast á samning.
Jens Martin Knudsen,
nýráðinn þjálfari Leifturs,
sagði að ef það gengi ekki
upp hjá leikmanninum væri
hann jákvæður um að
ganga til liðs við Leiftur.
Félagið leitar einnig að
framherja í Danmörku og
víðar.
Leiftur hefur gert
Sámal Joensen, sem leikið
hefur með G»tu, tilboð urn
að leika með liðinu en
hann ætlar að gefa svar í
þessari viku. Þá er félagið
enn í viðræðum við Pál
Guðmundsson sem leikið
hefur með Leiftri undan-
farin ár.
HANDKNATTLEIKUR
Fjölmörg lið sækja eftir
liðstyrk frá útlöndum
Nokkur handknattleiksfélög ósk-
uðu eftir eða fengu leikheimild
fyrir erlenda leikmenn til Hand-
knattleikssambands Islands áður en
frestur til þess rann út 1. nóvember.
Handknattleiksdeild ÍBV hefur
fengið keppnisleyfi og gert sam-
komulag við litháíska liðið Granitas
Kaunas um að fá til sín 23 ára gaml-
an miðjumann, Arumis Florovas, til
Vestmannaeyja. ÍBV hefur enn ekki
náð samkomulagi við leikmanninn en
hugsanlegt er að hann komi til Eyja
að nokkrum dögum liðnum.
Ef Florovas kemur til ÍBV er lík-
legt að Soltan Majeri, rúmenskur
mai-kvörður liðsins, fari frá því en fé-
lagið má aðeins hafa tvo leikmenn
sem koma frá löndum utan Evr-
ópska efnahagssvæðisins á leik-
skýrslu í leik. Fyrir er annar leik-
maður utan ESB, Miro Barisic frá
Króatíu.
Kvennalið Stjörnunnar hefur
fengið 20 ára gamlan pólskan mark-
vörð, Agötu Grzechnik, til sín. Leik-
maðurinn, sem kom til landsins um
helgina, á að baki nokkra leiki með
ungmennalandsiiði Pólverja..
Þóra Helgadóttir sem gekk til liðs
við Stjörnuna frá Val í sumar er
byrjuð að æfa með Garðabæjarliðinu
en hún hefur ekkert æft með því
vegna anna með kvennalandsliðinu í
knattspyrnu. Þá er ekki loku fyrir
það skotið að Guðný Gunnsteinsdótt-
ir og Margrét Theodórsdóttir byrji
að æfa með Stjörnunni á ný.
Framarar hafa óskað eftir leik-
heimild fyrir Maxim Fedukin, sem
er sonur Anatolys þjálfara karlaiiðs-
ins. Maxim, sem hyggst heimsækja
foreldra sína hér á landi, hefur leikið
handknattleik í Rússlandi en ekki er
vitað hvort hann hyggst leika með
Framliðinu. Fyrir eru þrír erlendir
leikmenn hjá félaginu, Oleg Titov,
Kenneth Eilertsen og Robertas
Pauzoulis.
Bojan Bogdanovic, 22 ára
júgóslavneskur miðjumaður, er á leið
til ÍR-inga. Leikmaðurinn var annar
markahæstur í 2. deild þar í landi á
síðastliðnum veti-i og árið á undan en
var markahæstur árið 1997. Hann
lék með RK Cutrija en vildi ekki end-
urnýja samning sinn við félagið. ÍR-
ingar hafa fengið leikheimild fyi-ir
leikmanninn og búist við að hann
komi til landsins á næstu dögum.
Þá hefur 2. deildar lið Gróttu/KR
óskað eftir leikheimild fyrir Joíias
Zarenas, 29 ára gamlan lettneskan
leikmann, sem félagið hefur átt í við-
ræðum við. Von er á leikmanninum
til landsins til reynslu en það ræst af
frammistöðu hans hvort félagið geri
við hann samning. Ef félagið semur
við leikmanninn getur hann hafið
keppni með því. Fyrir eru tveh- 19
ára lettneski leikmenn hjá
Gróttu/KR.
KAUP ÍSLENSKU FJÁRFESTANNA Á STOKE CITY STAÐFEST / C4