Morgunblaðið - 03.11.1999, Page 4
■
KNATTSPYRNA
Kaup íslenskra fjár-
festa á Stoke staðfest
Morgunblaðið/Sverrir
Frá blaðamannafundinum í gær. Fremri röð, f.w.: Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, John
Coates, eigandi Stoke City, fjárfestarnir Magnús Kristinsson og Júlíus Bjarnason. Aftari röð: Fjár-
festarnir Gunnar Þór Gíslason, og Elfar Aðalsteinsson, Þórður Már Jóhannesson, Kaupþingi, Þor-
valdur Jónsson, einn fjárfestanna, Helgi Sigurðsson, Kaupþingi, Guðmundur Guðjónsson, Bjarni
Þórður Bjarnason, Kaupþingi, Tony Johnston, lögfræðingur fjárfestanna ytra, og Þorsteinn Víglunds-
son, Kaupþingi.
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings hf., um hlutabréf í Stoke
Gríðariegur áhugi á bréfum
SAMKOMULAG hefur tekist
um kaup íslenskra fjárfesta á
meirihluta hlutafjár í knatt-
spyrnufélaginu Stoke City
FC. Skrifað var undir samn-
inga þess efnis í gær, en
formleg eigendaskipti verða
á Brittania-leikvanginum í
Stoke-on-Trent hinn 15. nóv-
ember nk. Kaupa fjárfestarn-
ir 66% hlutafjár í enska fé-
laginu.
Sameiginleg yfirlýsing málsaðila
var gefin á blaðamannafundi í
höfuðstöðvum Kaupþings hf. í gær.
I yfirlýsingunni segir m.a. að í
samningnum felist að íslensku fjár-
festarnir kaupi 66% hlut í félaginu í
kjölfar viðræðna sem staðið hafa í
þrjá mánuði. Samkomulag er um
að kaupverð verði ekki gefið upp
, að sinni.
Fulltrúar Stoke Holding, eign-
arhaldsfélags fjárfestanna, skrif-
uðu undir samninginn í gærmorg-
un, en þeir eru Gunnar Þór Gísla-
son, Elfar Aðalsteinsson og Ás-
geir Sigurvinsson. Aðrir hluthaf-
ar í eignarhaldsfélaginu eru
Isóport ehf., Júlíus Bjarnason,
Kaupþing hf., Kaupthing Luxem-
bourg SA., Lyngháls ehf., Magn-
ús Kristinsson, fyrir hönd fjár-
festa, Spectra AB, Sundagarðar
ehf., Þorsteinn Vilhelmsson og
Þorvaldur Jónsson.
Kaupsamningurinn er bindandi
og verður endanlega staðfestur 15.
nóvember nk. á blaðamannafundi í
'Stoke. Þar verða fulltrúar íslensku
fjárfestanna í nýrri stjórn Stoke
City FC kynntir og munu þeir við
sama tækifæri svara spurningum
um framtíðaráætlanir félagsins.
Stoke City er sem stendur í
toppbaráttu 2. deildar í Englandi
og leikur heima gegn Notts
County í kvöld. Við það tækifæri
hyggst áhugahópur um framtíð
félagsins, skammstafaður SOS,
dreifa fimm þúsund íslenskum
smáfánum til stuðningsmanna
liðsins og lýsa með því á táknræn-
an hátt stuðningi við kaup ís-
lensku fjárfestanna. Um næstu
helgi á Stoke útileik gegn Bury og
.annan sunnudag, 14. nóvember,
tekur liðið á móti Bristol City á
heimavellinum, Brittania Stadi-
um. Daginn eftir verður svo yfir-
taka íslensku fjárfestanna form-
lega kynnt.
ATHYGLI vekur að Ásgeir Sigur-
vinsson, fyrrverandi atvinnumaður í
knattspyrnu og tæknilegur ráðgjafi
KSÍ, á sæti í stjórn Stoke Holding,
eignarhaldsfélags íslensku fjárfest-
anna, og skrifaði undir kaupsamn-
inginn í gær. Ásgeir hafði verið
bendlaður við svonefndan Áburðar-
verksmiðjuhóp meðal fjárfestanna,
en sá hópur stóð að upphaflegu
kauptilboði en er ekki meðal kaup-
Sigurður Einarsson, forstjóri
Kaupþings hf., sagðist í gær
fagna því að niðurstaða væri fengin
úr viðræðunum við eigendur Stoke
City. „Þetta hefur tekið langan
tíma, ferlið hefur verið flókið og
mikilvægt er, þegar kannaðar eru
stórar fjárfestingar í hlutabréfum,
að skoða málið til hlítar. Þetta á
ekki síst við um þegar keyptur er
meirihluti hlutafjár í félagi. Þannig
komast menn hjá því að kaupa kött-
inn í sekknum," sagði hann. Kaup-
þing hf. fór með kauptilboð hóps ís-
lensku fjárfestanna í Stoke City.
Sigurður sagði að kaupin væru
enn eitt dæmið um útrás íslenskra
fjárfesta. „Við hjá Kaupþingi erum
enda. Mun Ásgeir hafa fallist á að
vinna áfram með fjárfestunum sem
einstaklingur. Herma heimildir
Morgunblaðsins að Ásgeir muni að
öllum líkindum taka sæti í stjórn
Stoke í næstu viku. Aðrir sem lík-
legir eru til þess eru Elfar Aðal-
steinsson, Gunnar Þór Gíslason og
Magnús Kristinsson. Talið er að
valið um formennsku nýrrar stjóm-
ar standi á milli Ásgeirs og Elfars.
afskaplega glöð að fá að taka þátt. í
þetta hefur farið mikill tími og orka
og þess vegna erum við auðvitað
ákaflega ánægð með endalokin."
Viðræður fjárfestanna og eigenda
Stoke hafa staðið yfir vikum saman,
en málin tóku þó óvænta stefnu í
síðustu viku er fallið var frá kauptil-
boðinu. Hafði þá komið í ljós að
skuldir Stoke City voru meiri en
gert hafði verið ráð fyrir og eigend-
ur Stoke sýndu endurskoðuðu til-
boði í samræmi við það ekki áhuga.
Um síðustu helgi hófust viðræðum-
ar svo að nýju og endanlega vai-
staðfest um kaupin í gær. Þá var
um leið tilkynnt að íslendingar réðu
brátt yfir 66% hlutafjár, en áður
hafði verið gert ráð fyrir 51% eign-
arhlut Islendinga fyrst um sinn.
Sigurður segir ekki rétt að fjár-
festarnir hafi slitið viðræðum í síð-
ustu viku til að knýja eigendur
Stoke til samninga, en leitt er líkum
að því á heimasíðu Stoke í gær.
„Nei, sú var ekki raunin. Menn
náðu einfaldlega ekki saman á þeim
tíma. Síðan kom í ljós að aðilar væri
tilbúnir að setjast að samningaborð-
inu að nýju. Þetta vai- engin taktík
af okkar hálfu.“
Framtíðin rædd
Sigurður sagði að næstu skref
fjárfestanna fælust í að tilnefna
fulltrúa sína í meirihluta nýrrar
stjórnar Stoke City og skipuleggja
framtíðaráætlanir félagsins. Hann
vildi ekki svara því til hvort Guðjón
Þórðarson yrði yfirmaður knatt-
spyrnumála enska félagsins, sagði
aðeins að skýrt yrði frá fyrirætlun-
um nýi'ra eigenda 15. nóvember nk.
„Meira get ég í sjálfu sér ekki sagt
um það. Menn munu hins vegar að
sjálfsögðu nota tímann þangað til
og ræða saman,“ sagði hann og
kvaðst ekki geta staðfest að Guðjón
Þórðarson yrði meðal stjórnenda
Stoke City.
Sigurður sagði að í skoðun væri að
bjóða hlutabréf í Stoke City almenn-
ingi til kaups hér á landi, enda hefði
Kaupþing orðið vart við gríðarlegan
áhuga á bréfum í félaginu. „Það gæti
orðið fljótlega, þótt lítið sé hægt að
segja um það á þessu stigi. Við höf-
um fundið fyrir gríðai’legum áhuga
og mikil ásókn hefur verið í að kom-
ast í hóp fjárfestanna."
Forstjórinn sagðist lengi hafa
fylgst með ensku knattspyrnunni.
„Þegar ég hóf að fylgjast með henni
var Gordon Banks, markvörður
Stoke. Hann var auðvitað geysilega
frægur og því hefur Stoke ávallt
verið meðal minna eftirlætisliða.
Ekki síst nú,“ sagði Sigurður Ein-
arsson.
Magnús Kristinsson,
einn fjárfestanna
Mikið
ánægjuefni
MAGNÚS Kristinsson, útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum og
einn fjárfestanna, sagði mikið
ánægjuefni að samningar hefðu
að endingu tekist um kaupin á
Stoke. Nú væri markmiðið að
hefja það til vegs og virðingar
á nýjan leik. „Við munum gera
okkar besta til að efla þetta fé-
lag,“ sagði hann.
„Fyrir hönd fjárfestanna
færum við starfsfólki Kaup-
þings okkar bestu þakkir fyrir
stuðninginn í þessu verki sem
tekið hefur rúma tvo mánuði.
Ekki aðeins þeim mönnum sem
eru í framlínunni, heldur einnig
starfsfólki fyrirtækisins fyrir
þá þolinmæði sem það hefur
sýnt,“ sagði Magnús.
„Viðræðurnar við eigendur
Stoke City hafa verið mjög lær-
dómsríkar, að sögn Magnúsar.
„Það hefur verið mjög gaman
að þessu og ég er glaður yfir að
hafa fengið að taka þátt í
þessu. Fulltrúar Kaupþings
hafa auðvitað stýrt þessu frá
upphafí og við fjárfestarnir að-
eins mætt í höfuðstöðvar fyrir-
tækisins til skrafs og ráða-
gerða. Það er gaman að málin
skuli nú vera í höfn, en enn
meira gaman verður þó úti í
Stoke 15. nóvember," sagði
Magnús, en þá fer formleg yfir-
taka fram.
Magnús hefur stutt Totten-
ham árum saman, en segir að
nú beinist athygli sín að Stoke
City. Hann segir alveg ljóst að
almenningi á Islandi verði gef-
inn kostur á að kaupa hlutabréf
í enska félaginu. „Það gerist
ekki strax, en við höfum orðið
varir við gríðarlegan áhuga á
þessum kaupum. Margir hafa
bankað í okkur og fagnað þess-
ari niðurstöðu. Við eigum eftir
að opna þetta og bjóða bréf til
sölu, það er alveg ljóst,“ sagði
Magnús.
■ HLYNUR Birgisson, knatt-
spymumaður hjá Leiftri, er um
þessar mundir við æfingar hjá
skoska úrvalsdeildarliðinu Dundee.
■ ÓLAFUR Gottskálksson átti
góðan leik í marki Hibs, þegar liðið
lagði Dundee Utd., 3:2. Hibs tapaði
ekki, eins og var sagt frá blaðinu í
gær. Leikmenn liðsins hafa leikið
vel að undanförnu og skorað átta
mörk í tveimur síðustu leikjum sín-
um og eru í sjötta sæti í Skotlandi.
■ ÁRNI Gnutur Arason segir í
samtali við Adressavisen á Netinu
að hann íhugi að yfirgefa norsku
meistarana í Rosenborg, en hann
hefur ekki náð að tryggja sér fast
sæti í liðinu og hefur því verið vara-
markvörður Jorn Jamtfall. Árni
Gautur er samningsbundinn félag-
inu þar til það er úr leik í meistara-
deild Evrópu.
■ SAGT er að forráðamenn Rosen-
borgar vilji bjóða Árna nýjan
samning, en óvissa ríki um hvort
þeir vilji hafa báða markverðina
innan sinna raða á næsta tímabili.
■ ÁRNI Gautur segir við blaðið að
hann hafi sett sér það markmið fyrir
þetta tímabil að slá Jamtfall út, en
því miður hafi það ekki tekist. „Ég
tel mig alveg jafn góðan markvörð
og Jamtfall, en vegna þess hve fá
tækifæri ég fæ með liðinu er erfitt
að þroska sig sem markvörður."
Ásgeir líklega í sljóm